Morgunblaðið - 12.06.1980, Side 26

Morgunblaðið - 12.06.1980, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ1980 Stuðningsmenn Vig dísar opna fjórar nýjar skrifstofur Guðlaugur Þorvaldsson og frú i Sandgerði. Guðlaugur á f erð um landið STUÐNINGSMENN Vigdísar Finnbogadóttur hafa opnað fjór- ar nýjar kosningaskrifstofur á fjórum stöðum á landinu, Siglu- firði, Egilsstöðum, Seltjarnarnesi og í Borgarnesi. Skrifstofan á Egilsstöðum er að Laugavöllum 10 og opin á mánu- dögum og fimmtudögum kl. 20:30—22 og laugardaga kl. 13— 15. Forstöðumaður er Einar Rafn Haraldsson. A Seltjarnarnesi er skrifstofan til húsa að Vallarbraut 16 og er opin öll kvöld. Forstöðumaður hennar er Sveinbjörn Jónsson. I Siglufirði er skrifstofan að Gránugötu 14 og opin kl. 17—19 daglega. Hermann Jónasson bankamaður veitir skrifstofunni forstöðu en kosninganefnd skipa auk hans: Ása Guðjónsdóttir, yfir- Stuðningsmenn Vigdís- ar Finnbogadóttur: Skrifstofa opn- uð í Kópavogi STUÐNINGSMENN Vigdísar Finnbogadóttur í Kópavogi hafa opnað kosningaskrifstofu að Auðbrekku 53 3. hæð. Verður skrifstofan opin frá kl. 15 til 21 alla daga. Framkvæmdanefnd í Kópavogi skipa Sigurður Grétar Guð- mundsson pípulagningameistari, Ingibjörg Arnadóttir ritstjóri, Hjördís Pétursdóttir húsmóðir, Hannes Björnsson múrari, Guð- björg Björgvinsdóttir ráðskona og skrifstofustjóri er Erla Óskars- dóttir hjúkrunarfræðingur. Guðlaugur á ferð um Vestfirði GUÐLAUGUR Þorvaldsson var fyrir nokkrum dögum á ferð um Vestfirði. Hann heimsótti vinnu- staði á Patreksfirði, Tálknafirði, Þingeyri, Flateyri, Súgandafirði og Isafirði. Almennir fundir voru haldnir á Patreksfirði, Bolungar- vík og ísafirði. Á öllum fundunum kynnti Guð- laugur viðhorf sín og svaraði fyrirspurnum, en eiginkona hans Kristín Kristinsdóttir ávarpaði fundarmenn í lok fundanna. (ílr fréttatilkynningu). læknir, Guðrún Thorarensen, hús- freyja, Jón Rögnvaldsson, sjómað- ur, Oli Geir Þorgeirsson, verslun- armaður, Guðrún Hildur Rögn- valdsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Ámundi Gunnarsson, vélvirki, Freyja Árnadóttir, póstafgreiðslu- maður, Úlfar Gunnlaugsson, iðn- nemi, Júlíus Júlíusson, kennari, Kolbrún Eggertsdóttir, kennari, Steinunn Rögnvaldsdóttir, kenn- ari, Flóra Baldvinsdóttir, starfs- maður Verkalýðsfélagsins Vöku. í Borgarnesi er skrifstofa stuðn- ingsmanna Vigdísar í Snorrabúð, Gunnlaugsgötu 1. Hún er opin 15—18 og 20—22 virka daga og 14—17 um helgar. Starfsmaður skrifstofunnar er Ósk Axelsdóttir. Framkvæmdanefnd stuðnings- manna skipa: Árni Snæbjörnsson Hvanneyri, Sigrún Elíasdóttir Andakílsárvirkjun, Jón A. Egg- ertsson Bjargi, Ingþór Friðriks- son, Helga Ólafsdóttir, Anna Ólafsdóttir, Svanlaug Vilhjálms- dóttir, María J. Einarsdóttir, Guð- laug Guðmannsdóttir, Trausti Jónsson, Davíð Sverrisson, Áslaug Þorvaldsdóttir og Hjördís Karls- dóttir. ____t t t_____ 465 nemendur í Tónlistarskóla Akureyrar TÓNLISTARSKÓLANUM á Ak- ureyri var slitið í 35. sinn í Akureyrarkirkju, föstudaginn 23. maí sl. Skólahljómsveitin lék undir stjórn Oliver J. Kentish flautu- konsert, og tvær stúlkur fluttu dúett fyrir fiðlu og lágfiðlu, sem saminn var af Oliver J. Kentish. Þá tók til máls skólastjóri tónlist- arskólans Jón Hlöðver Áskelsson. Alls stunduðu 465 nemendur nám við skólann á vetrinum, þar af 98 í forskóla. 25 kennarar störfuðu við skólann, að stunda- kennurum meðtöldum. Skólinn gekkst fyrir píanónámskeiði í maí og fékk til liðs við sig Martin Berkofsky. Auk þessa var í vetur Philip Jenkins kennari við skólann og lék hann á mörgum tónleikum, en hann var í vetrarleyfi frá Royal Academy of Music. Við skólaslitin fór fram fjórða úthlutun námsstyrkja. Að þessu sinni hlutu þrír námsstyrk að upphæð kr. 200.000 hver. Að lok- um þakkaði skólastjóri skóla- nefnd, starfsliði, nemendum og foreldrum samstarfið á vetrinum. GUÐLAUGUR Þorvaldsson er nú á ferð um landið. Á laugardag fór hann til Grímseyjar, Varmahlíðar í Skagafirði og Skagastrandar. í Varmahlíð var haldinn fundur í Miðgarði en á laugardagskvöld á Skagaströnd. Á sunnudagsmorgni hélt Guð- laugur fund á Hellissandi og í Ólafsvík eftir hádegi. Áætlað var Albert í STUÐNINGSMENN Alberts Guð- mundssonar og Brynhildar Jó- hannsdóttur í forsetakosningun- um, efndu til almenns fundar í félagsheimilinu Stapa kl. 20.30 síðastliðinn þriðjudag. Konur á staðnum sáu um kaffi- veitingar og allmargir heimamenn fluttu ræður. Fundarstjóri var I Huxley ólafsson. að halda fund í Grundarfirði kl. 16.30 á sunnudag en kvöldfund á Stykkishólmi á sunnudagskvöld. Guðlaugur Þorvaldsson hefur þegar ferðast um Austfirði þar sem hann hélt 10 fundi á þremur dögum. 10. júní var haldinn fundur í félagsheimilinu Stapa. (Úr fréttatilkynningu). Stapa Þá sungu þeir tvísöng þeir Sverrir Guðmundsson og Jón Kristinsson við undirleik Ragn- heiðar Skúladóttur, við mikinn fögnuð áheyrenda. í fundarlok flutti frú Brynhild- ur ávarp og Albert Guðmundsson flutti ræðu. (Úr fréttatilkynningu). Grænlenskir sveitarstjórnar- menn undirbúa kynnisf ör hingað ÞRÍR aí frammámonnum í sveitastjórnarmálum í Grænlandi. voru hér á ferð fyrir skömmu. — Komu þeir til þess að kynna sér starf- semi Sambands ísl. sveitar- félaga, eins höfðu þeir kynnt sér meðan á dvöl þeirra stóð, verksvið Fram- kvæmdastofnunar rikisins. Húsnæðisstofnunar ríkisins, Orkumálastofnunar og landbúnaðarmál, svo og um- svif S.Í.S. Fyrir Grænlendingunum var formaður sambands sveitastjórnanna í Græn- landi, en innan vébanda þess eru öll sveitarfélögin í íandinu og eru þau 18 tals- ins. Formaðurinn heitir Uvdloriánguak Kristiansen. Á hann sæti í bæjarstjórn- inni í Godtháb — Nuuk. — Hann hefur verið formaður um nokkurra ára skeið, — Mun hann um næstu áramót verða framkvæmdastjóri sveitarfélaga-samtakanna og lætur þá af störfum við fréttastofu grænlenska út- varpsins, þar sem hann hef- ur starfað um all mörg ár. Hann mun og áfram verða formaður sambandsstjórn- arinnar. Með honum í förinni voru starfsmenn skrifstofu sveit- astjórnarinnar sem er í Nuuk, þeir Fredrick Willi- ams og Jens Eriksen. í stuttu samtali við Mbl. skömmu áður en Kristiansen fór af landi brott kvað hann þessa Islandsferð hafa verið farna í þeim tilgangi að undirbúa kynn- isferð grænlenskra sveitastjórn- armanna hingað til lands á næsta sumri. — Myndu þeir félagar semja skýrslu um ís- landsför sína. Segja mætti að þessi skýrsla ætti að vera nokk- urs konar leiðabók fyrir þátttak- endurna í væntanlegri hópferð, þar eð hún ætti að miðla þeim all ítarlegum upplýsingum um ísl. sveitastjórnarmál. — Myndi hópurinn ferðast á milli bæja. Meðan þremenningarnir höfðu hér viðdvöl höfðu þeir ferðast nokkuð um landið t.d. farið kynnisför til Akureyrar og Húsavíkur. Hér í Reykjavík höfðu þeir rætt við borgarstjór- ann. Kristiansen sagði að lokum að fyrirsvarsmenn Samb. ísl. sveit- arfélga hefðu lagt sig í fram- króka við að gera ferðina sem árangursríkasta, fyrir þá félaga. Grænlenzkir stjórnmálamenn Uvdloriánguak Kristiansen bæjarfulltrúi í Nuuk hafa áhuga á því að reyna að efla samskiptin milli þjóðanna og vissulega er sú velheppnaða ferð, sem nú er lokið þáttur í þeirri viðleitni okkar sagði Kristians- en, sem kvaðst vilja í nafni þeirra þremenninga þakka öllum þeim sem greitt hefðu götu þeirra meðan á heimsókninni stóð. Pétur á Hellu Pétur Thorsteinsson heimsótti 6 vinnustaði á Hellu sl. fimmtudag og hitti fjölmarga að máli. Við gleriðjuna Samverk hélt hann fund með starfsfólkinu og var hann haldinn undir berum himni. Hins vegar var fundurinn á Skatt- stofu Suðurlands haldinn innan- dyra. Þá heimsótti hann Mosfell (þar eru m.a. saumuð tjöld og gallabux- ur), Saumastofuna hjá Rudolf Stolzenwald og hin ýmsu fyrir- tæki Kaupfélagsins Þórs. Næstu daga hefst kosningastarf sérstakrar framkvæmdanefndar, sem komið var á laggirnar á Hellu. (Úr fréttatilkyiminKu). Stuðningsmenn Guðlaugs opna skrifstofu í Siglufirði STUÐNINGSMENN Guðlaugs Þorvaldssonar í Siglufirði hafa -opnað skrifstofu að Grundargötu 5 þar í bæ. Verður hún opin fyrst um sinn kl. 17—19 virka daga og allan daginn um helgar. Forstöðu- maður skrifstofunnar er Birna Dís Benediktsdóttir, en meðal þeirra er skipa framkvæmdaráð stuðn- ingsmanna Guðlaugs Þorvalds- sonar í Siglufirði eru Sigurður Kjartansson, Birgir Guðlaugsson, Sverrir Sveinsson, Halldóra Jóns- dóttir og Margrét Pálsdóttir. (Fréttatilkynning). Stuðningsmenn Alberts í Stykkishólmi STUÐNINGSMENN Alberts Guð- mundssonar í Stykkishólmi hafa opnað skrifstofu í Verkalýðshús- inu. Hún er opin þriðjudaga og fimmtudaga kl. 20—23.00. Kosninga- og baráttunefnd skipa eftirtaldir: Sigfús Sigfússon formaður, Guðni Friðriksson, Sig- urður Kristinsson, Hinrik Finns- son, Kristinn Finnsson, Númi Fjeldsted, Högni Bæringsson, Gunnleifur Kjartansson, Einar Sigfússon, Lárus Kr. Jónsson, Bjarni Lárentsínusson, Einar Magnússon, Svavar Edilonsson, Pétur Jack, Þorsteinn Sigurðsson. (Úr fréttatilkynningu). Stuðningsmenn Vigdísar í Skagaf irði STUÐNINGSMENN Vigdísar Finnbogadóttur í Skagafirði hafa opnað kosningaskrifstofu á Sauð- árkróki að Skagfirðingabraut 8. Skrifstofan verður opin alla daga frá klukkan 17—19 og 20—22. Rannveig Þorvaldsdóttir fulltrúi veitir skrifstofunni forsjá fyrst um sinn en frá 15. júní verður Heiðmar Jónsson kennari for- stöðumaður. Pétur á Suðurlandi PÉTUR Thorsteinsson hefur síð- ustu daga verið á Suðurlandi, þar sem hann hefur haldið fjölmarga fundi með starfsfólki á vinnu- stöðum. Hann fór fyrst til Þor- lákshafnar, þaðan á Stokkseyri og Eyrarbakka og síðan til Selfoss. Hann kom einnig á Heilsuhæli LNFÍ í Hveragerði og víðar. Þá lá leiðin á Hellu og Hvols- völl, og einnig var ætlunin að heimsækja Vík í Mýrdal. Framkvæmdanefndir hafa tekið til starfa á öllum þessum stöðum. Næstu daga verða haldnir al- mennir fundir á fjölmörgum stöðum um allt land, og þá mun Pétur einnig fara á vinnustaði í Reykjavík. (Úr (réttatilkynningu (rá stuöh- ingsuiönnuin Péturs Thorsteins- sonar.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.