Morgunblaðið - 12.06.1980, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.06.1980, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ1980 Ólafur E. Stefánsson, nautgriparæktarráðunautur: Galloway í fremstu röð Árið 1979 voru dæmdir (metn- ir) nokkrir gripir utandyra á Smithfield markaðinum i Lond- on, en gripi þessa átti að selja til slátrunar á jólamarkaðinn. Siðan hefur sýningin tekið miklum breytingum, sem eðlilegt er, og vélsýning orðið annar meginþátt- ur hennar samhliða sýningunni á sláturgripum og kjöti nú hin siðari ár. Um langt skeið hefur sýningin verið haldin i Earls Court. og er tryggt húsnæði fyrir hana þar til ársins 1999, er 200 ára aímæli hennar verður. Enn er það konunglegi Smithfield klúbburinn. sem að sýningunni stendur, og er hún haldin i hyrjun desember hvert ár. íslenzkir bændur og búvélasalar hafa oft fjölmennt á þessa sýn- ingu hin siðari ár. Nautgripirnir setja svip sinn á búfjársýninguna Smithfield sýningin er hin stærsta, sem haldin er í Bretlandi á sláturgripum. Auk nautgripa er sýnt sauðfé og svín, en hvort tveggja lendir í skugganum borið saman við nautgripina, sem eru af holdakynjum og blendingum milli þeirra. Á sýningunni í desember sl. munu hafa verið sýndir um 480 nautgripir, uxar og kvígur í mis- munandi aldursflokkum, auk 100 gripa, sem slátrað var í byrjun Svipmyndir frá nokkrum sýningum á Smithfield síðustu 10 árin sýningar, en skrokkar af þeim voru hafðir á sérstakri kjötsýn- ingu. Af hinum 480 nautgripum voru 280 af 12 hreinum holdakynjum, en 200 voru blendingar. Nær Mynd 1. Mynd 4. helmingi færri gripir voru sýndir af Galloway en öðrum hreinum holdakynjum að meðaltali eða 12 gripir, enda flestir hinna út- breiddari. Viðurkenningar Margar viðurkenningar eru veittar í hinum ýmsu flokkum nautgripa, bæði innan hinna ýmsu kynja svo og milli þeirra. Líkleg- ast ber mest á því í augum margra sýningargesta, hvaða gripur er dæmdur beztur sem einstaklingur. Oftast nær mun það vera blend- ingur, sem verður fyrir valinu, enda fær blendingsþróttur notið sín í þessari keppni. í seinni tíð mun það oft hafa verið blendingur undan gripum af Aberdean Angus kyni og Charolais, jafnvel að fleiri holdakyn standi að gripnum. Áhugaverðustu verðlaunin að minni hyggju eru þó þau, sem veitt eru sameiginlega fyrir 3 beztu hreinkynja uxana af sama holdanautakyni. en þeir þurfa að vera sinn i hverjum aldursflokki, þ.e. 21—27 mánaða, 15—21 mán- aða og 15 mánaða og yngri. Keppni um þessa viðurkenningu er kennd við hertogann af Nor- folk, sem gefið hefur bikar til keppninnar. Það er hápunktur sýningarinn- ar, þegar þessi viðurkenning er veitt, og er það venjulega einhver úr konungsfjölskyldunni eða há- aðlinum, sem afhendir verðlaunin, enda konunglegt félag, sem að sýningunni stendur. í fremstu röð að gerð og gæðum Þegar kemur að ytri gerð og kjötgæðum, er Galloway kynið oft í fremstu röð eða næstu. Stundum er samkeppnin við önnur kyn hörð, stundum er sigurinn auð- unninn. Er hér átt við 3ja gripa keppnina um Norfolk bikarinn. Á siðasta áratug (1970—1979) hefur Galloway kynið hlotið þessa viðurkenningu 4 sinnum (1970, 1971, 1975 og 1979) og milli áranna 1975 og 1979 var það dæmt næst bezt öll 3 árin. 1. mynd. Norfolk bikarinn. „Einn af meiri háttar silfurmunum landsins", eins og komizt er að orði í tilefni af afhendingu þessa farandgrips til félagsskapar ræktenda Gallo- way nautgripa á Smithfield sýn- ingunni í London í des. sl. Frá Smithfield 1970 2. mynd. Galloway uxarnir, sem unnu Nor- folk bikarinn 1970, voru allir þrír gráir (dun). Þótt þeir væru komnir nær 800 km leið frá Perth í Skotlandi sem hlýtur að reyna á gripina, stóð enginn uxahópur af öðrum kynjum þeim á sporði, en þá voru 3 ár liðin frá því Galloway hópur hafði hlotið þessi verðlaun. Uxinn t.h. (133), sjá 3. mynd, var dæmdur besti uxi sýningar- innar og næst bezti nautgripurinn á sýningunni í samkeppni við öll önnur holdakyn og blendinga. Uxinn t.v. (140) var dæmdur næst bezti uxinn af öllum á sýningunni. í þetta skipti var keppnin auðunnin. 3. mynd. Sjá texta við mynd 2. Frá Smithfield 1971 4. mynd. Uxarnir, sem unnu Norfolk bikar- inn 1971. Það var 2. árið í röð, sem Galloway kynið sigraði í keppn- inni sem bezti hreinræktaði hóp- urinn á sýningunni. Á henni fengu Mynd 6. Mynd 7. Galloway gripir fleiri viðurkenn- ingar en nokkurt annað kyn. 5. mynd. Þessi uxi, sem var í hópi Galloway gripanna þriggja, sem Norfolk bikarinn unnu, var jafnframt dæmdur annar bezti hreinræktaði gripurinn af öllum á sýningunni. Hann var 23 mánaða. Myndin er tekin á landssýningu í Skotlandt rétt áður, þar sem hann var

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.