Morgunblaðið - 12.06.1980, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 12.06.1980, Qupperneq 31
dæmdur bezti gripur á þeirri sýningu. MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ1980 31 6. mynd. Annar úr hópnum var þessi árs- gamli uxi, sem dæmdur var næst beztur allra uxa á Smithfield. 7. mynd. Slakað á. „Keppninni lokið, orust- an unnin“. Eitthvað á þessa leið hljóðaði textinn, sem birtur var með þessari mynd. 8. mynd. Hertogaynjan af Kent ræðir við tvo framámenn Galloway rækt- enda. í miðið er James Biggar, þáverandi formaður Smithfield klúbbsins, sem býr að Chapelton við Castle Douglas í Skotlandi. Það mun hafa verið frá búi föður hans þar, sem Galloway gripirnir, er fluttir voru til íslands 1933, voru. Frá Smithfield 1975 9. mynd. Sigurvegari í Norfolk bikarkeppn- inni. Sýnendur raða uxunum upp fyrir framan konungssætin. Auk þeirra eru á myndinni dómarinn, umsjónarmaður með gripum á sýningunni og formaður Galloway félagsins. Uxinn á miðri mynd (129) var 19% mán. gamall. Hann var jafn- framt dæmdur bezti Galloway uxinn á sýningunni. Sá t.h. (133), 22% mán. var bezti Galloway- gripurinn þar, og 10 mán. uxinn t.v. (126) var næstbeztur af Gallo- waygripunum. Kynnirinn á sýningunni sagði við þetta tækifæri: „Árangur Galloway gripanna á sýningunni hefur verið frábær“. 10. mynd. Drottningin afhendir James Bigg- ar, formanni félags Galloway ræktenda, Norfolk bikarinn. Það er viðurkenning á því, að Gallo- way uxarnir þrír voru betri en nokkrir aðrir þrír uxar af öðrum kynjum á sýningunni. Sjálf á drottningin Galloway hjörð í Balmoral í Skotlandi. 11. mynd. Philip hertogi af Edinborg ræðir við sýnendur Galloway uxanna, sem verðlaunin hlutu. Frá Smithfield 1979 12. mynd. „Þeir unnu auðveldlega", sagði dómarinn á Smithfield sýningunni í des. sl. um Galloway uxana, sem unnu bikar hertogans af Norfolk. Beztur Galloway gripurinn á sýn- ingunni var sá í miðið (432). Eigandi hans, Mrs. Muriel Johns- ton, sýndi sjálf gripinn, eins og jafnan áður, en hún er kunnur Mynd 13. ræktandi. Uxinn var 19% mán. gamall og vó 581 kg á fæti. Hann var seldur til slátrunar að lokinni sýningu á eitt. þús. sterlingspund eða tæpa milijón króna. 13. mynd. Uxi nr. 432 á sýningunni. Sjá texta við 12. mynd. 14. mynd. Lavinia, hertogaynja af Norfolk, afhendir núverandi formanni fé- lags Galloway ræktenda, Peter Kennedy-Moffat, silfurbikarinn, sem kenndur er við hertogann af Norfolk. Á annan tug hreinrækt- aðra holdakynja eru árlega sýnd á Smithfield, en þetta var í 4. sinn á 10 árum, sem gripir af Galloway kyni hrepptu þennan farandgrip. (Myndirnar eru úr The Galloway Journal) Mynd 14. Dýraverndunarfél. Reykjavíkur: Hagur félagsins góður — nýr stjórnarformaður NÝLEGA var haldinn aðalfundur í Dýraverndunarfélagi Reykjavík- ur. Fram kom í skýrslu formanns, að hagur félagsins er góður, og einnig þeirra sjóða, sem eru í umsjá þess, en þeir eru: Minn- ingarsjóðir Jóns Ólafssonar, Fanneyjar Sigurðardóttur, Jóns Blöndal og svo Sólskríkjusjóður Guðrúnar Erlings, sem gegnir því göfuga hlutverki að reyna að sjá til þess, að fuglum sé gefið korn í harðindum. Er korninu dreift í skóla um land allt og hefir Erling- ur Þorsteinsson læknir haft veg og vanda af þessari þakkarverðu starfsemi. Til að afla sjóðnum fjár er kornið selt í verslunum. Á s.l. ári lést frú Sigríður Steffensen Grettisgötu 55, Reykjavík, en hún var heiðursfé- lagi í Dýraverndunarfélagi Reykjavíkur. Árið 1977 stofnaði hún minningarsjóð um eiginmann sinn Peder Jakob Steffensen, en hann lést árið 1952. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að dýravernd og dýraverndarmálum hverskon- ar, þar á meðal útbreiðslustarf- semi, einkum útgáfu blaðsins Dagur dýranna. Sigríður heitin Steffensen ánafnaði sjóðnum allar eigur sín- ar, eftir sinn dag, m.a. húseignina Grettisgata 55 og skal vöxtum sjóðsins varið í framangreindum tilgangi. Dýraverndunarfélag Reykjavíkur mun í framtíðinni skipa menn í sjóðsstjórnina, þegar núverandi stjórnarmanna nýtur ekki lengur við, en þau eru Mar- teinn Skaftfells og Anna Steinunn Sigurðardóttir. Sigríður Ásgeirsdóttir hdl. — nýr formaður. Fráfarandi formaður Björg Sverrisdóttir baðst undan endur- kosningu, þar sem hún er á förum úr bænum. Stjórnarkjör fór þann- ig að formaður var kosin Sigríður Ásgeirsdóttir hdl., aðrir stjórn- armenn eru: Laufey Jakobsdóttir, Sigfríð Þórisdóttir, Þorleifur Gestsson og Kristrún Skúladóttir. Dýraverndunarfélag Reykjavík- ur og Dýraspítali Watsons hafa tekið upp samstarf og hefir Dýra- verndunarfélagið fengið skrif- stofuaðstöðu á dýraspítalanum í Víðidal við Vatnsveituveg og er hún opin virka daga frá kl. 2—5. Sími félagsins er 76620. AFGREIÐSLA: 83033 Mynd 12.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.