Morgunblaðið - 12.06.1980, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 12.06.1980, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ1980 GRANI GÖSLARI Þú gerir mig svo taugaveiklaða, ég verð að biðja öku.skólastjór- ann um annan kennara! Það er annaðhvort fyrir þig að þora að sleppa. eða ekki — eftir 5 mín. er leigutíminn úti! BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Stundum má sjá slik tilþrif við spilaborðið, að engu er líkara en að spilarar sjái öll spilin. En sé betur að gáð kemur i ljós, að að baki liggur rökrétt hugsun og möguleikar. scm til falla nýttir til hins ýtrasta. Austur gaf, allir á hættu. Vestur Norður S. ÁD85 S. K75 T. D963 L. 43 Austur S. KG74 S. 962 H. 2 H. Á932 T. ÁKG42 T. 10875 L. G82 Suður S. 103 H. DG1086 T. - L. Ádl0975 L. K6 COSPER Ég fer í kvöld, áÖur en hann pabbi þinn kemur og hendir mér út! Kyn eða hjúskaparstétt ættu ekki að ráða vali kjósenda .Eb. Ebenesersson, Hringbraut 109, R., skrifar: „Nú á ísl. þjóðin að kjósa sér forseta. Þegar við óskum þjóð vorri hins besta, ætti það ekki að ráða, hvort það sé karl eða kona, sem kjósa skal, eigandi maka eða ekki. Mér koma í hug tvær mann- eskjur, sem urðu íslandi og ís- lenskri kristni til góðs og sæmdar, bæði heima og erlendis; það voru Ólafía Jóhannsdóttir og Fr. Frið- riksson. Hvorugt þeirra átti maka. • Réttsýni og manndómur Mér finnst enginn bera á móti því, hver nú sé hæfastur fram- bjóðenda: Pétur Thorsteinsson. Hann hefur verið í utanríkisþjón- ustu frá unga aldri, verið í mikils- varðandi samningum fyrir þjóð vora, bæði austan hafs og vestan. Notað dýrmætan tíma, á unga aldri, til að læra rússnesku svo vel, að geta jafnvel leiðrétt túlka. Honum virðist í öllum störfum hafa farnast vel og stjórnmála- flokkar hafa treyst honum vegna réttsýni og manndóms. • Lífsgrund- völlurinn Hvaða lífsgrundvöllur var það, sem hann byggði á? Jú, við höfum heyrt það. Hann ólst upp hjá ömmu sinni er kenndi honum bænir og kristilegan mannkær- leika, sem hún átti sjálf í ríkum mæli. Og svo í drengjahópi hjá séra Friðrik, en hann fór oft fótgangandi suður í Fjörð til að búa drengi undir baráttu lífsins. — Þar fékkst lífsgrundvöllurinn. • Of gamall? Sumir segja of gamall, f. 1917. Einmitt gott. Kynntist hallærisár- unum, var sjálfur fátækur, í vega- vinnu á sumrum og við kennslu á námsárunum. Ég hef sannfrétt, að þá var hann til hjálpar og góðs, þeim er minna máttu sín. Njótum starfskrafta hans meðan hægt er. Tveir menn hafa haft ótrúlega mikil áhrif á þjóð vora á þessari öld: Halldór Laxness og Ragnar í Smára. Nú styðja þeir Pétur. Góður Islendingur svíkur ekki gefið loforð að ástæðulausu, en öðrum ber að kjósa þann hæfasta á þessum umbrota- og umsvifa- tímum, ef hann í sannleika elskar þjóð sína. • Eignarnám ríkisins íbúðareigandi skrifar: „Fyrstu verkamannabústaða- íbúðirnar voru seldar á fullu verði árið 1930. Hvernig má það vera að fólk hafi á þeim tímum getað fest kaup á svo dýru húsnæði? Jú, því er nú Suður var sagnhafi í fjórum hjörtum og vestur spilaði út tíg- ulkóng. Sagnhafi trompaði og spil- aði næst trompi á kónginn. Austur lét lágt en það var skilyrði til, að vörnin nægði yfirhöndinni. Sé tekinn með ás nægir ekki að spila tígli til að ná trompunum af sagnhafa. Hann lætur þá spaða og sleppir þar með spaðasvínunni, nema að vestur spili spaða eftir að hann fær á tígulkóng. Þannig verður sama hverju vestur spilar, suður svínar seinna laufdrottn- ingu og trompar þriðja laufið. Austur getur þá yfirtrompað en ræður ekki við spilið. Vörnin fær aðeins tvo slagi á tromp og þann þriðja á tígulkóng. Förum til baka. Sagnhafi fékk á trompkónginn í blindum og hann svínaði þá laufi. Tók á laufás og trompaði þriðja laufið. Enn beið austur rólegur. Hann trompaði ekki betur, lét frekar spaða. Frá blindum var þá spilað trompi. Loksins var kominn rétti tíminn til að taka á trompásinn og austur sá, að ekki dygði nú fremur en áður að spila tígli. Suður myndi þá láta svart spil og fá seinna tíunda slaginn á tíguldrottning- una. I stað þess gerði austur það ótrúlega. Hann spilaði spaða — upp i ás og drottningu blinds. Seinna átti austur því eftir þrett- ánda trompið þegar sagnhafi hafði farið inn á hendina með trompun og kom þannig í veg fyrir, að sagnhafi fengi tíunda slaginn á tromp. Göngudagur fjölskyldunnar Umhverfi Kermóafoss Ljtam. Mbl. Emilla. í TILEFNI „Göngudags fjöl- skyldunnar" mun Ungmennafé- lagið Vikverji i Reykjavik efna til gönguferðar upp Elliðaár- dalinn og mun hún hefjast kl. 13.30 á laugardaginn. „Ástæðurnar fyrir þvi að þessi leið varð fyrir valinu er sú að umhverfi Elliðaárinnar er óvenjufagurt. jafnframt því sem þessi gönguleið er vel viðráðanleg fyrir þá sem ekki eru sérstakir göngugarpar. enda er ætlunin að fá fjölskyld- ur til þátttöku að meðtöldum bæði þeim yngstu og elstu. Elliðaársvæðið er tiltölulega ósnortið miðað við legu sina i borginni og bæði gróður og fuglalif f jölskrúðugt“ sagði Sig- urður Geirdal framkvæmda- stjóri Ungmennafélags íslands i samtali við Morgunblaðið. „Reyndir göngustjórar verða með i förinni og munu þeir greina frá jarðfræði, jurta og dýralifi svæðisins og ýmsu öðru þvi sem vert er að vita svolítið um“ sagði Sigurður ennfremur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.