Morgunblaðið - 22.06.1980, Side 11

Morgunblaðið - 22.06.1980, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1980 43 rottarim Umsjón: SIGRUN DAVÍÐSDÓTTIR t siðasta þætti rabbaði ég fram og aftur um avocado, og hvernig hægt er að fara með það. í dag ætla ég a halda áfram með sjaldséða gesti hér i búðum.Það verður kannski til þess að fleiri reyna til við nýjungarnar, þegar þeir sjá þær. Þó nýjunga- girni sé bezt i hófi, er óneitan- lega spennandi að reyna eitt- hvað nýtt, þegar það verður á vegi manns ... Góða skemmtun! Mangó Mangóávöxturinn er upp- runninn á Indlandi og hefur verið ræktaður þar um langan aldur, svo eitthvað hefur hann við sig, sem þarlendum hefur þótt betra að hafa en vera án. Það er þó ekki aðeins ávöxtur- inn, sem er vinsæll þar, heldur einnig tréð, sem er um 15 m hátt og varpar velkomnum skugga sínum á heita og sólbak- aða jörðina. Sagan segir reynd- ar að hinn vísi Búdda hafi öðlast vizku sína og hugljómun sofandi undir mangótré. Ávöxturinn er misstór, á stærð við peru eða kókoshnetu og allt þar á milli. Óþroskað mangó er skærgrænt og þá gjarnan notað í velkryddaða mangósultu, mangóchutney, sem fæst hér og er undra góð með hvers kyns krydduðum réttum á austurlenzka vísu. Mangó er tínt hálfþroskað en fullþroskað á mangó að vera rauðleitt og gefa eftir við þrýsting. Þá er það stundum með svarta bletti. Bragðið er undra sætt og höfugt og nýtur sín bezt, ef ávöxturinn er kældur, en ekki þó ískaldur, því kuldi deyfir bragð. Ávöxt- urinn er viðkvæmur og þolir illa hnjask og langa flutninga, því var ekki hægt að flytja hann milli landa með góðu móti, fyrr en flugvélar voru notaðar til þess. sömuleiðis romm og svo ávaxtasafi eins og t.d. mandar- ínusafi. Kókosmjöl finnst mér eiga mjög vel við mangó. Til þess að kókosmjöl njóti sín sem allra bezt er nauðsynlegt að rista það. Það gerið þið á þurri pönnu, eða í heitum ofni. Mjölið á að verða vel brúnt, en auðvitað ekki að brenna. Mjölið fæst misgróft, og mér finnst það grófasta bragðmest. Þið getið gjarnan ristað mikið af kókosmjöli, allt að l‘A—2 dl. í salat handa fjórum, og stráð því yfir salatið um leið og það er borið fram. Góða skemmtun! Mangó með kókosís (Handa fjórum) Mangó er einnig gott með ís. Þá er ekki úr vegi að gera vel við þennan ljúffenga ávöxt og búa ísinn til heima. Þið getið sleppt kryddinu, ef þið GOTT OG FRAMANDI Mangó er býsna gott kælt, eitt sér. En það er mun drýgra að nota það með öðru, því það er vissuiega frekar dýrt. Það er einkar gott í ávaxtasalöt. Þá mæli ég með því að þið notið það með t.d. eplum og banönum. Ýmislegt krydd fer býsna vel við mangó, t.d. kanell, negull og engifer. Því er ekki úr vegi að krydda ávaxtasalatið svolítið með þessu kryddi. Þarna gerir sultaður engifer mikinn mun, því hann fer svo vel við mangó- bragðið. Nokkrar msk. af t.d. þurru eða hálfþurru sérrí og portvíni eru góð bragðbót, steininn. Því er bezt að skera sitt hvorumegin niður eftir steininum, eða þá að skera allt í kringum steininn og reyna síðan að rífa ávöxtinn utan af .steininum. Hafið disk undir, svo ekkert af safanum fari til spillis. Gætið einnig að öllu taukyns, því það er erfitt að ná mangóblettum úr. Setjið ísinn í skál, eða skálar fyrir hvern og einn, og raðið mangó- bitunum þar ofan á. Ef þið viljið, getið þið stráð svolitlu af ristuðu kókosmjöli ofan á. Þar með er rétturinn tilbúinn. í staðinn fyrir að frysta isinn og láta hann harðna svolitið getið þið blandað öllu saman, eins og lýst er hér að ofan, og borið þetta fram sem krem með mangóbitunum yfir eða undir. Það þarf varla að taka. fram að ísinn eða kremið er einnig býsna gott með ýmsu öðru. Ég læt nægja að nefna sérstaklega heita eplaköku ... Papaya náið ekki í það, eða þá breytt eitthvað til frá uppskriftinni. 4 eggjarauður 3 msk hunang 4 dl rjómi 2 dl ristað kókosmjöl 1 rifið, sultað engiferhnýði, eða Vi tsk engiferduft 'k tsk kanell 1. Ristið kókosmjölið og kælið það. Þeytið rauðurnar þar til þær verða léttar og ljósar, þeytið þær síðan með hunang- inu, þar til það er uppleyst. 2. Stífþeytið rjómann. Blandið öllu saman. Bragðið á og athugið hvort enn þarf að bæta. Frystið ísinn. Þessi ís er lang beztur þegar hann er vel mjúkur, og reyndar á það sama við um festan annan ís. 4—5 klst. í frysti ættu að duga. 3. Skerið magnó í bita, þið getið notað eitt eða tvö, eftir því sem ykkur sýnist. Ávöxtur- inn situr nokkuð fast utan um Þessi ávöxtur er ættaður frá hitabeltissvæðum Amer- íku. Hann er ekki alveg ósvipað- ur mangó á að líta og er grænn á litinn. Þegar hann er full- þroskaður verður hall gul- flekkóttur, og gefur eftir þegar ýtt er á hann. Oþroskað papaya er notað eins og grænmeti, t.d. soðið hýðislaust og síðan bakað í ofni, e.t.v. fyllt með skeldýrum og osti, eða skinku og osti. Einnig er hægt að kæla soðinn ávöxtinn og bera hann fram með edikssósu, t.d. ásamt öðru grænmeti. En hann er einna beztur fullþroskaður, og þannig er bezt að verða sér út um hann. Geymið hann ekki í kæliskáp, heldur við stofuhita, ef hann á að þroskast. Aldinkjötið er appelsínugult á fullþroska ávexti. Innan í eru litlir svartir kjarnar, sem eru hreinsaðir úr. Bragðið er sætt og verður áhrifameira ef sítrónusafa er dreypt yfir ávöxtinn. Þennan ávöxt getið þið annars notað líkt og mangó, þ.e. í salöt með öðrum ávöxtum og e.t.v. með ísnum hér að ofan. Papaya er stundum soðið og notað þannig í eftirrétti. Einnig getið þið sett það í kökudeig og látið það bakast með. Það eru því ýmsir möguleikar, og ekkert þarf nema hugdirfskuna til að prófa sig áfram og reyna eitt- hvað nýtt. Ýmislegt Auk þessara nýjunga eru aðrar sem stinga upp kollinum endrum og eins. Fennel hefur sést hér einstaka sinnum, því miður alltof sjaldan. Þetta er grænmeti, ekki ósvipað selleríi að sjá, grænir stönglar í knippi, með fjaðurkenndum blöðum. Mér finnst þetta undra gott, bæði hrátt og soðið. Bragðið er svolítið lakkrískennt. Fennel er gott hrátt í salöt, eða ekki sízt eitt sér. Léttsoðið og svo e.t.v. bakað með svolitlum osti, er það býsna gott með okkar ágæta lambakjöti. Blöðin getið þið fryst og notað með fiski og í fisksúpur. Fræin fást hér víða þurrkuð og eru góð í brauð, með lambakjöti og í fiskrétti. Suð- rænar þjóðir halda töluvert upp á þetta grænmeti, ekki sízt Italir. Við getum ekki annað en vonað að kaupmenn taki sig nú til og panti þetta ágæta grænmeti öðru hvoru. Nú fæst sellerí hér, réttara sagt í Reykja- vík, allan ársins hring. Því sé ég ekki, hvers vegna það er ekki hægt að koma okkur upp á að nota fennel hér rétt eins og sellerí forðum. Það kaupa fáir það, sem þeir þekkja ekki, og enginn getur sagt til um hvern- ig eigi að matreiða. Ef kaup- menn hafa einhvern snefil af áhuga á að flytja inn eitthvað nýtt og selja það, verða þeir að sjá til þess að hægt sé að spyrja afgreiðslufólkið ráða. Annars selja þeir lítið af þessum nýju vörum. Það sér hver heilvita maður ... Eggaldin sést nú æ oftar. Það er býsna gott steikt, t.d. með sósu úr nýjum tómötum, e.t.v. með spaghetti og svo kannski með glóðarsteiktu kjöti. Prófið t.d. að setja þunn- ar sneiðar á pizzu. Einnig er það gott bakað í ofni, holað út og fyllt af kjöthræru úr hakki og góðu grænmeti, með nóg af óðalsosti yfir. Aldinið er ekki býsna bragðmikið en fer vel með ýmsu öðru, ekki sízt tómötum. Hýðið gefur gott bragð. Það er oft látið standa um stund með salti á, áður en það er matreitt, því saltið dregur úr því vökva, sem stundum er sagt að sé rammur. Saltið ekki óhóflega og skolið saltið af áður en þið matreiðið aldinið, svo maturinn verði w ekki alltof AUGLÝSINGASTOFA MYNDAMÓTA Adalstræti 6 simi 25810 I0 ITilllNlltMMaiiaLjMiM noupmannanoTn FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTAR- STÖÐINNI Hafnarfjörður Hin árlega sumarferö Félags óháöra borgara veröurfarin laugardaginn 16. ágúst. Nánar auglýst síöar. Stjórnin Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim, sem glöddu mig meö heimsóknum, gjöfum, blóm- um og skeytum, á sjötiu ára afmœlisdegi mínum. Guð blessi ykkur öll. Guöjón Jóhannsson frá Skjaldfönn. ALBERT & BR YNHILDI til Bessastaða

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.