Morgunblaðið - 22.06.1980, Page 12
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1980
SKUGGINN
YFIR
ALI
Múhameð All 1980: Sljór og
þvoglumæltur.
Blaðamaður brezka
blaðsins The Sunday
Times, Denis Lehane,
kom nýlega að máli við
fyrrverandi heims-
meistara í hnefaleikum,
Múhameð Ali. Hann
spurði garpinn af
hverju hann hefði
ákveðið að fara aftur í
hinginn. „Eg vil vera
þekktur sem bezti
hnefaleikari allra
tíma“, svaraði Ali, „ —
og ekki aðeins sem bezti
hnefaleikarinn, heldur
einnig mesti íþrótta-
maður fyrr og síðar.“
Enn sem fyrr er Ali
þéttur á velli, skrifar
Lehane. Hann hefur los-
að sig við nokkur auka-
kíló af fitu síðan hann
hóf að búa sig undir
keppni við Larry Holmes
í æfingabúðum sínum
við Deer Lake í Penn-
sylvaniu. Þó fær útlitið
ekki dulið að Múhameð
Ali er aðeins fyrrum
íþróttamaður og
löngu kominn af bezta
skeiði. Hreyfingar hans
eru þunglamalegar og
hann færir sig úr stað
líkt og aldinn hlébarði,
sem tekinn er að stirðna.
Hann dregur seiminn
og er illskiljanlegur á
köflum. Væri jafnvel
enn erfiðara að henda
reiður á þvi sem hann
segir færi hann ekki
troðnar slóðir, eins og
uppiskroppa skemmti-
kraftur, sem ekki hefur
lengur lifandi spaug á
hraðbergi og styðst því
heldur við útnýtta
fyndni.
Þrátt fyrir það hef-
ur gesturinn sterklega
á tilfinningunni að hann
sé ekki aðeins í nær-
veru mikilhæfs
íþróttamanns, heldur
einnig stórmennis. Ali
talar um þörf blökku-
manna fyrir átrúnað-
argoð, sem þeir geti
tekið til fyrirmyndar.
Einhvern af yngri kyn-
slóð sem veitt geti
þeim innblástur og
sjálfsvirðingu í heimi þar
sem þeir eru iðulega
hornreka og órétti
beittir.
„Eftir tuttugu ár“
segir hann, „þegar lítill
svartur drengur gengur
inn í íþróttahús og spyr
föður sinn er hann sér
mynd mína á veggnum,
hver þetta sé, þá mun
faðirinn svara: Þessi
maður var Múhameð
Ali, fimm sinnum
heimsmeistari í þunga-
vigt og mesti íþrótta-
maður sem sögur fara
af.“
En þeir eru ekki
margir, nákomnir Ali,
sem líta málið sömu aug-
um. Hann er nú þrjátíu
og átta ára gamall og
hefur ekki komið nærri
keppni í tvö ár. Telja
margir vina hans það
glapræði eitt að
hætta sér í hendur hins
höggþunga Holmes. Fað-
ir Alis, Cassius Clay
sagði í viðtali við New
York Times í apríl:
„Þegar ég legg við hlustir
hef ég tekið eftir að
hann er stundum ekki
allt of skýr. Ég sagði
við hann: „Þú hefur ekki
gott af því gæzkur, að
fá fleiri högg á höfuð-
ið.“ Eiginkona Alis og
móðir, auk margra ann-
arra hafa lagt hart að
honum að draga sig
til baka. Sama máli
gegnir um forseta Al-
þjóða hnefaleikaráðs-
ins, Jose Sulaiman, og
Ferdie Pacheco, aldavin
Alis og lækni.
Áður en Ali getur
sett upp hanskana að
nýju verður hann að sæta
læknisrannsókn, sem
meðal annars felur í
sér heilarit til að
grennslast fyrir um
skemmdir. Taugasér-
fræðingar eru þó
mjög vantrúaðir á
áreiðanleika slíkra at-
hugana og benda á að
árangursríkara sé að
bera saman kvikmyndir
og hljóðupptökur af AIi
yfir nokkurra ára tíma-'
bil, bæði áður og eftir
að grunsemdir vöknuðu .
um að heilaskemmdir
væru að gera vart við
sig.
Slíkum heimildum
er að sjálfsögðu til að
dreifa þar sem Ali á í
hlut. Blaðamaður The
Sunday Times fór
þess á leit við kunnan
taugasérfræðing í Lund-
únum að hann rannsak-
aði þrjár upptökur af
Ali, en sérfræðingur
þessi hefur talsverða
reynslu af meðferð
heilaskemmdra
hnefaleikara.
Eftir að hafa kann-
að upptökurnar þrjár,
frá 1970, 1978 og 1979,
hafði sérfræðingurinn
eftirfarandi að segja:
„Margs konar taugalíf-
eðlisfræðilegar truflanir
kunna að valda röskum
á framsögn manna og
þar sem ég hef ekki
rannsakað þennan
ákveðna aðila sér-
staklega er mér ókleift
að staðhæfa eitt eða
neitt. Eftir að hafa
kynnt mér þessar
þrjár upptökur af
heilsuhraustum einstakl-
ingi hallast ég þó að því
að talbundnir erfið-
leikar hans séu afleið-
ing fjölmargra minni-
háttar skemmda, sem
viðkomandi hefur
orðið fyrir á ferli sín-
um.“ Hann bætti við að
væri um aðrar skýr-
ingar að velja þá
væru þær svo alvar-
legar að „Ali sætti nú
nákvæmri heilarann-
sókn í stað þess að
undirbúa sig fyrir
næstu lotu sem atvinnu-
maður í hnefaleikum."
Viðvíkjandi fyrstu
kvikmyndinni, sem tek-
in var af Ali 29 ára
gömlum, sagði læknir-
inn: „Mér virtist hann
fær um að tjá sig á
viðstöðulausan og skil-
merkilegan máta. And-
lit hans var líflegt og
hugsunin fölskvalaus."
Þegar kom að síðari
upptökunum, þóttist
hann hins vegar sjá
skarpa andstæðu. „Ég
tók eftir“, sagði lækn-
irinn, „að á myndsegul-
bandsupptöku frá því
fyrir átján mánuðum,
og í hinní myndinni
sem tekin var fyrir ári,
var hann þvoglumæltur
og ónákvæmur. Andlit-
ið var hluttekningar-
laust og framsaga og
limaburður miklu sein-
legri.“
Ef hugað er að at-
vinnumannsferli Alis
kemur í ljós að getu hans
hefur hnignað. Frá því í
október 1960 til marz
1967 barðist hann við
29 keppinauta og lagði þá
alla. I heild fólu einvígi
þessi í sér 183 lotur og
var meðallengd hvers
einvígis um sex lotur.
Hlé varð á ferli Alis
frá marz 1967 til októ-
ber 1970, en á átta næstu
árum barðist hann
þrjátíu sinnum, tap-
aði þremur einvígjum á
stigum og vann tuttugu
og sjö. Af þessum tutt-
ugu og sjö sigrum
unnust aðeins fjórtán á
rothöggi eða meiðslum
andstæðingsins. Lot-
urnar voru 341 og
meðallengd einvígis var
meira en ellefu lotur.
Örlagaríkasti kafl-
inn á þessu síðara
keppnisskeiði var e.t.v.
þriðja hrina hans og
Joe Frazier í Manila,
1. október 1975. Báðir
má segja að hafi barizt
til síðasta blóðdropa í
mollu og hita. Frazier
lyppaðist saman í horni
sínu við lok 14. lotu en
Ali var engu betur á sig
kominn.
Eftir þennan at-
burð barðist Ali átta
sinnum. En eini maður-
inn, sem hann gat kom-
ið í gólf var Bretinn
Richard Dunn, í marz
1976, og telst það vart til
afreka. Hann tapaði á
stigum fyrir Leon
Spinks í febrúar 1978,
og er það skoðun grann-
kunnugra að hann hafi
einnig lotið í lægra
haldi fyrir Jimmy
Young og Ken Norton
þrátt fyrir að honum
væri dæmdur sigur-
inn. Jafnvel Ernie
Shavers, telja sumir að
hafi haft betur í einvígi
þeirra.
Fari Ali nú til
hólmgöngu gegn Larry
Holmes, spá margir að
Ali kunni að vera tek-
inn í karphúsið og
jafnvel steinrotaður
fyrsta sinni. Kappinn er
engu að síður staðráð-
inn í að fara sínu
fram, með glæstar von-
ir um ódauðleika að leið-
arljósi.
Þegar blaðamaður
The Sunday Times
sagði honum við Deer
Lake í síðasta mánuði
að það væri skoðun
sín og milljón annarra
að Múhameð Ali væri
þegar mesti íþrótta-
maður allra tíma og
því tilgangslaust að
reyna að sanna það nú,
svaraði Ali: „Mér stend-
ur nákvæmlega á
sama um hvað þú held-
ur, kæri vin. Það sem
skiptir mig máli eru
heimsmetabækurnar.
I hnefaleikum er oft
haft á orði að metin séu
til þess að sigrast á
þeim. Og ég veit að
það er á einskis manns
meðfæri að verða heims-
meistari í þungavigtar-
flokki fimm sinnum."
„Þú hefur ekki gott af því gæzkur að fá fleiri högg
á höfuðið,“ sagði faðir Alis við son sinn nýlega.
Myndin sýnir þá feðga er Ali var upp á sitt bezta
og heilaskemmdirnar höfðu ekki sagt til sín.
Furuskrifborð
Stærð 60x120 kr. 77.700.-.
Stærð 60x150 kr. 113.900.-.
Bókahilla kr. 24.100.-.
Vörumarkaðurinn hf.
Furusofasett
Áklæði brúnt, rifflað flauel
3ja sæta sófi og 2 stólar. Verð frá kr. 234.000.-.
3ja sæta — 2ja sæta — 1 stóll. Verð frá kr.
259.00.-
Kommoður
Efni: fura — brún-
bæsaðar — hvítlakk-
aðar. 3 skúffur — 4
skúffur — 6 skúffur.
Verð frá kr. 51.900,-
til 88.000.-.
Sími 86112.