Morgunblaðið - 22.06.1980, Blaðsíða 14
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ1980
Ertu að
safna
Shirley?
„Ertu að safna Shirley"?,
spurðu smástelpur hver aðra
fyrir nokkrum áratugum. Var
þar auðvitað átt við myndir af
hinni ungu kvikmyndastjörnu
Shirley Temple. Svarið við
spurningunni var ákaflega oft
jákvætt, við vorum margar sem
söfnuðum Shirley. Þegar það var
komið á hreint, voru myndirnar
sóttar og tekið til við að bera
saman og skipta, ef til voru fleiri
eu ein af sömu gerð. Shirley var
það fallegasta sem hægt var að
hugsa sér, dúkkur og dúkkulíslur
voru skírðar nafni hennar og
hún varð nokkurskonar viðmið-
un, það var ekki hægt að segja
fallegra við, eða um nokkra
persónu, en að hún væri lík
Shirley.
Þá mætti segja mér, að marg-
ar „fyrrverandi smástelpur" hafi
glaðst við að sjá hana Shirley í
sjónvarpinu laugardaginn 14.
júní sl. Sú er þetta ritar hafði
svo sannarlega ánægju af.
Amatörverslunin
í Austurstræti
1 versluninni Amatör, sem var
í Austurstræti, keyptum við
myndir af leikurum, sem við
„söfnuðum", bæði póstkort og
minni myndir, sem seldar voru í
búntum. Verslunin er nú við
Laugaveg, og rekin af sonum
Þorleifs heitins Þorleifssonar
ljósmyndara, sem stofnsetti
hana árið 1926.
Amalía Þorleifsdóttir, sem
byrjaði ung, eða um fermingu,
að vinna í búðinni hjá föður
sínum, sagði að kortin, sem seld
voru hjá þeim hafi verið flutt
inn frá Þýskalandi þangað til að
stríðið skall á. Hún segist vel
muna eftir þegar telpur voru að
koma í búðina til að skoða
Shirley-kort. Giskar hún á að
þau hafi kostað 10—25 aura og
búntin, sem voru með 6—8
litlum myndum, eitthvað dýrari.
Kortin voru bæði mött og glans-
andi.
Barnastjarnan
Shirley
Það er af Shirley að segja, að
hún fæddist í Santa Monica,
Californíu, 23. apríl 1928, dóttur
Gertrude og George F. Temple.
Hún gekk ekki í venjulegan
barnaskóla heldur fékk hún
einkakennslu heima. Hún hóf
kvikmyndaleik aðeins 3% árs, og
án nokkurrar tilsagnar á því
sviði. Fyrsta myndin, í fullri
lengd sem hún lék í, hét „Stand
Up and Cheer" og tekin hjá
„Twentieth Century-Fox. En hjá
því félagi og „Paramount Stud-
ios“ lék hún í mörgum myndum,
t.d. „Little Miss Marker", „Baby
Take a Bow“, Poor Little Rich
Girl“ „Bright Eyes“, „Gurly
Top“, Heidi“ „Rebecca og Sunny-
brook Farm“, „Miss Annie Roon-
ey“. „Our Little Girl“. Á Ungl-
ingsaldri lék hún í nokkrum
myndum" „Kiss and Tell“ 1945,
„That Hagen Girl“, „War Party“,
„The Bachelor and the Bobby-
Soxer“ og „Honeymoon" árið
1947.
Shirley Temple giftist John
Agar árið 1945, eignuðust þau
eina dóttur, Linda Susan heitir
hún, en þau hjón slitu samvist-
um 1947. Árið 1950 giftist Shirl-
ey seinni manni sínum, Charles
A. Black og eiga þau tvö börn,
Charles og Lori. Það var heldur
hljótt um hana næstu árin, enda
haft nóg að gera að sinna búi og
börnum. En árið 1958 hóf hún
þátt í sjónvarpi, fyrir NBC, sem
ætlaður var börnum og nefndist
„Shirley Temple Storybook“, þar
sem hún sagði sögur og ævintýri.
Árið 1960 var svo á dagskrá hjá
sömu sjónvarpsstöð þáttur sem
nefndist „Shirley Temple Show“.
Á sjöunda áratugnum fór hún
á láta til sín taka í félags- og
stjórnmálum og fylgir Republ-
ican-flokknum að málum. Hún
var kjörin fulltrúi á allsherjar-
þing Sameinuðu þjóðanna
1969—70. Ennfremur hefur hún
verið fulltrúi á ýmsum ráðstefn-
um þar sem mannréttinda og
umhverfismál hafa verið reifuð.
Shirley Temple Black varð
sendiherra Bandaríkjanna í
Chana árið 1974 og hélt því
embætti til ársins 1976. Áður en
hún var skipuð í þá stöðu voru
uppi vangaveltur í blöðum í
Bandaríkjunum um, áð hún yrði
sendiherra á íslandi.
Hún fékk
50,000 bréf
í febrúarhefti tímaritsins Mc
Call’s, árið 1973, ritaði Shirley
reynslusögu, sem vakti mikla
athygli. En í nóvember mánuði
árið áður hafði þurft að fjar-
lægja annað brjóst hennar vegna
krabbameins. Hún lýsti í þessari
grein skilmerkilega, hvernig hún
varð vör við þykkildi í brjóstinu,
læknisskoðun og öllu því er að
aðgerðinni laut svo og skjótum
bata sínum. Greinin hét á frum-
málinu „Don’t Sit Home And Be
Afraid" (eða Ekki sitja aðgerð-
arlaus og skelkuð heima).
Ástæðan fyrir að hún skrifaði
þessa grein var sú, að hún áleit
að hún gæti orðið öðrum konum
hvatning til að leita læknis eins
fljótt og þær hefðu minnsta grun
um, að eitthvað væri að, en bíða
ekki þangað til einkenni væru
greinileg.
Er skemmst frá því að segja,
að það rigndi bókstaflega yfir
hana bréfum 50,000, hundruðum
símskeyta og mörg þúsund sím-
töl, frá fólki sem lýsti aðdáun
sinni á þessari hispurslausu
frásögn. Það komu þakkir frá
konum, sem lent höfði í því sama
og hún, fjölskyldum slíkra
kvenna og ýmsu fólki, sem ekk-
ert hafði annað að. Kveðjurnar
áttu það allar sameiginlegt að
dáðst var að hugrekki hennar og
dugnaði. Og þeir voru margir,
sem mundu hana frá því hún var
lítil telpa og lék í kvikmyndum.
Ein kona skrifaði eftirfarandi:
„Kæra Shirley. Mér finnst ég
geta kallað þig skírnarnafni, þó
við séum ekki kunnugar. En ég
gerði það sama og margar aðrar
mæður gerðu þegar þú varst lítil
telpa, ég klæddi dóttur mína í
Shirley Temple kjóla, krullaði á
henni hárið eins og á þér og gaf
henni Shirley-dúkkur.“ Og kon-
an endaði bréfið með því að biðja
henni allrar blessunar.
En þegar minnst er á slöngu-
lokkana hennar Shirley, sem
okkur þótti óviðjafnanlegir,
kemur það upp í hugann, að
einhversstaðar sást á prenti,
haft eftir einhverri konu, sem sá
um að auka við fegurð kvik-
myndastjarna í Hollywood með
ýmsum hætti,“ að hún hafi
meira að segja séð um að festa
krullurnar á Shirley Temple:"
Ósatt! Dálkahöf. tók það þá, sem
hvert annað illgirnistal og gerir
enn. Krullurnar hennar Shirley
voru áreiðanlega EKTA!
Þetta gerðist
23. júní
1978 — 29 ítalir dæmdir í allt að
15 ára fangelsi eftir 15 vikna
hryðjuverka-réttarhöld í Torino.
1956 — Gamal Abdel Nasser
kosinn forseti Egyptalands.
1951 — Brezku diplómatarnir
Guy Burgess og Donald MacLean
flýja til Sovétríkjanna.
1934 — Saudi-Arabía og Jemen
semja frið eftir sex vikna stríð.
1908 — Mohammed Ali keisari
fellir stjórnarskrá Persíu úr gildi.
1848 — „Júní-dagarnir“ í Frakk-
landi hefjast; Louis Cavaignac
hershöfðingi bælir niður uppreisn
verkamanna í París.
1793 — Ógnarstjórnin hefst í
Frakklandi.
1785 — Her Prússa bíður mikinn
ósigur í Landshut, Bæjaralandi,
þar sem hann gætti Slésíu-
skarðanna.
1757 — Sigur Robert Clive í
orrustunni um Plassey, Indlandi.
1724 — Konstantínópel-friður
Rússa og Tyrkja undirritaður til
að tryggja Tyrkjum Erivan og
ógna Persum.
1683 — William Penn undirritar
friðar- og vináttusamning við
indíána.
1650 — Austurríkismenn og Sví-
ar undirrita friðarsamninginn í
Núrnberg.
1611 — Uppreisnarmenn skilja
sæfarann Henry Hudson eftir á
báti og hann ferst.
1532 — Hinrik VIII af Englandi
og Franz I af Frakklandi undir-
rita leynisamning gegn Karli
keisara V.
Afmæli. Jósefína, keisaradrottn-
ing Frakka og eiginkona Napole-
ons Bonaparte (1783—1814) —
Játvarður, hertogi af Windsor
(1894-1972).
Andlát. 1836 James Mill, heim-
spekingur og sagnfræðingur.
Innlcnt. 1849 Fyrsti Þórsnesfund-
ur — 1305 Réttarbót Hákonar
konungs háleggs — 1627 Árás
Tyrkja á Bessastaði — 1846 d.
Björn Blöndal sýslumaður — 1892
d. Vilhjálmur Finsen hæstarétt-
ardómari — 1920 Flugvél veldur
slysi í fyrsta sinn á íslandi —
1923 Listasafn Einars Jónssonar
opnað — 1926 Varðskipið „Óðinn"
kemur til gæzlustarfa — 1926 Jón
Magnússon forsætisráðherra and-
ast á Norðfirði — 1967 Þotuöld
hefst á Islandi með komu Boeing
727 til Reykjavíkur — 1967 Willy
Brandt kemur í heimsókn til
íslands.
Orð dagsins. Eftir því sem áhrif
trúarbragða dvína, eykst félags-
legt mikilvægi lista; við verðum
að vara okkur á því að skipta á
góðum trúarbrögðum og lélegum
listum — Aldous Huxley, enskur
rithöfundur (1894—1963).
Ferðaáætl-
un Djúpbáts-
ins komin út
FERÐAÁÆTLUN m.s. Fagra
ness er komin út. Áætlaðar ferðir
eru um ísafjarðardjúp. Jökulfirði
og Hornstrandir, og hefjast frá
og með 27. júni, en standa til 15.
september.
Á þriðjudögum verður farið í 12
tíma ferðir um ísafjarðardjúp og
stoppað á ýmsum stöðum, á föstu-
dögum einnig, en þá aðeins í fimm
tíma ferðir. 4. júlí og 7. júlí verður
farið í Jökulfjörð, og á Horn-
strandir, 27. júní, 5., 11., 18. og 25.
júlí og 1. ágúst