Morgunblaðið - 22.06.1980, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1980
53
Isbjarnarblúsinn
BUBBI er kominn" stendur í
búAargluKKum.
Bubbi Morthens og Utan-
garðsmenn eru aðal umræðu-
efni rokkáhugamanna þessa dag-
ana auk komu Clash.
Bubbi Morthens byrjaði að
taka upp breiðskífu t stúdíó
Tóntækni upp á eigin kostnað fyrr
i vetur, með hjálp Sigurðar
Arnasonar tæknimanns.
Smátt og smátt bættust menn í
hóp þeirra sem þátt tóku í plöt-
unni og í lokin hafði Bubbi
stofnað Utangarðsmenn, sem
er orðin ein eftirsóttasta
hljómsveit landsins á þrem mán-
uðum.
Hver ástæðan er, má deila
um, en það fer þó ekki á milli
mála að hér er á ferðinni mikill
ferskleiki, feikna kraftur og vel
leikin frumsamin rokk tóniist,
sem þeir sjálfir kalla Gúanór-
okk, orð sem má svo sannarlega
skýra á marga vegu.
kominn!
Hvað um það, eftir sögulega
dansleiki og konserta víða um
iand, þar sem þeim hefur verið
misjafnlega tekið, er piatan
hans Bubba komin.
Eins og sjá má á meðfylgj-
andi mynd Kristins Óiafssonar
sem tekin var í Laugardalshöll-
inni á 17. júní höfðar Bubbi til
fólksins og gefur Rúnari Júl.
ekkert eftir hvað sviðsfiðring
varðar.
Hver með nýja söngkonu
HLJÓMSVEITIN Hver frá Akur-
eyri ætlar að leggja sitt til þess
að gera tónlistarlifið i sumar
Iíflegra, og skrautlegra. Þeir
hafa fengið til liðs við sig þel-
dökka söngkonu frá Los Angeles,
Susan Causey að nafni.
Causey sem hefur sungið bak-
raddir hjá ýmsum þekktum lista-
mönnum á borð við Thelmu
Houston, Arethu Franklin og
Stevie Wonder, syngur með
hljómsveitinni Hver í sumar að-
eins. Susan er 27 ára gömul og
hefur að sögn sungið frá 8 ára
aldri. Þess má líka geta að Causey
semur eigin lög. Mun þetta víkka
tónlistarstefnu Hvers og bætast
nú við soul lög með meiru í
prógrammið.
Meðlimir Hvers eru því í dag,
Susan Causey og Hilmar Þór
Hilmarsson söngvarar, Þórhallur
Kristjánsson, gítar, Leifur Hall-
grímsson, bassagítar, Baldur Pét-
ursson, hljómborð og Steingrímur
Sigurðson, trommur.
Myndin er af Susan ásamt
Hilmari og Leifi á Austurvellin-
um.
BRETLAND — Stórar plötur 1. ( 3) PETER GABRIEL
2. ( 2) FLESH & BLOOD Roxy Music
3. ( 1) McCARTNEY II Paul McCartney
4. ( 4) JUST CAN’T STOP Beat
5. ( 5) ME MYSELF I Joan Armatrading
6. ( 9) READY & WILLING Whitesnake
7. (10) CHAMPAGNE & ROSES 8. ( 6) SKY 2 Ýmsir
9. ( 8) OFFTHEWALL 10. ( 7) THE MAGIC OF BONEY M Litlar plötur Michael Jackson
1. ( 1) THEME FROM THE MASH Mash
2. ( 4) CRYING Don McLean
3. ( 3) FUNKYTOWN Lipps Inc
4. ( 2) NO DOUBT ABOUT IT Hot Chocolate
5. ( 6)VER YOU Roxy Music
6. (-)
7.
8.
9.
10.
( 5)
( 9)
( 7)
(-)
BACK TOGETHER AGAIN
Roberta Flack & Donny Hathaway
RAT RACERUDE BUOYS OUTA JAIL Specials
LET’S GET SERIOUS Jermaine Jackson
WE ARE GLASS Gary Numan
YOU GAVE ME LOVE Crown Heights Affair
USA — Stórar plötur
1. (2) GLASS HOUSES
2. ( 1) AGAINST THE
WIND Bob Seger & The
3. ( 4) JUST ONE LOOK
4. ( 3) THE WALL
5. ( 5) MOUTH TO MOUTH
6. ( 6) WOMEN AND CHILDREN FIRST
7. ( 7) CHRISTOPHER CROSS
8. (10) MIDDLE MAN
9. ( 9) PRETENDERS
THE EMPIRE STRIKES BACK
10. (-)
Litlar plötur
Billy Joel
Silver Bullet Band
Eric Clapton
Pink Floyd
Lipps Inc
Van Halen
Boz Scaggs
Kvikmyndatónlist
1. ( 1) FUNKYTOWN
2. ( 2) COMING UP
3. ( 3) BIGGEST PART OF ME
4. ( 6) THE ROSE
5. ( 7) AGAINST THE
WIND Bob Seger & the
6. ( 5) CALL ME
7. ( -) IT’S STILL ROCK N ROLL TO ME
8. (10) LITTLE JEANNIE
9. ( 9) CARS
10. (—) STEAL AWAY
Lipps Inc.
Paul McCartney
Ambrosia
Bette Midler
Silver Bullet Band
Blondie
Billy Joel
Elton John
Gary Numan
Robbie Dupree
LISTAHÁTÍÐ 1980
ÍRSKA þjóðlagasveitin
Wolfe Tones náðu
áhorfendum í Höllinni á sitt
band á miðvikudagskvöldið
þó ekki hefðu þeir verið
margir. Wolfe Tones má
líkja við Dubliners, þeir
syngja þó mun meira um
ættjörðina, uppreisnir sem
virðast endast að eilífu í
írlandi, og gefur þeim yrk-
isefni í alls lags hetjuljóð og
níðvísur sem féllu áheyrend-
um sérlega vel í geð.
Yrkisefnið var bæði beiskt
og blítt, hresst og dapurt, en
flutningur Wolfe Tones allt-
af fagmannlegur, og skýr.
Þeir eru fjórir og leika sín á
milli á gítara, mandólín,
banjó, pípur, hörpu, og
bodhran og syngja allir sam-
an þó tveir mest þeir Brian
Warfield og Tommy Byrne,
en hinir heita Noel Nagle og
Derek Warfield.
Flest laga þeirra eru forn
þjóðlög sem þeir hafa grafið
upp, en hljómsveitin hefur
starfað í um 17 ár.
Auk þess voru á efnis-
skránni lög eftir Brian
Warfield sem reyndist vera
þeirra fremstur bæði í söng
og hljóðfæraleik en kappinn
lék á banjó, gítar, hörpu,
bodhran og blístru.
Bæði lög hans og textar
báru af öðrum (ólöstuðum)
en sérstaklega var lagið
„Rock On Rockall“ sem er
W0LFE T0NES
Wolfe Tones má líkja við Dubliners — þeir syngja þó
mun meira um ættjörðina ...
svar þeirra við lagi Breta
„Rule Britannia", en textinn
var það svæsinn að þó ég hafi
tekið hann niður ætla ég ekki
að hafa hann eftir á prenti,
ekki einu sinni á ensku.
Það sem flutningur Wolfe
Tones sannaði best var
hversu lítil fjölbreytni er
annars í tónlistarlífi okkar
Islendinga. Þó við ættum
tónlistarmenn sem gætu
flutt tónlist á borð við Wolfe
Tones væri það ógerningur
vegna aðstæðna. Slíkir tón-
listarmenn gætu á fáum
stöðum leikið og alls ekki
stundað það sem atvinnu.
Wolfe Tones höfðu áhorfend-
ur, sem voru komnir til þess
að skemmta sér með þeim,
fullkomlega á sínu bandi.
Klappgleðin var gífurleg og
eins og oft áður, yfirþyrm-
andi og það sungu flest allir
með þeim í írsku þjóðernis-
lögunum „A Nation Once
Again“, „We’re On The One
Road“ og „Some Say The
Devil Is Dead“.