Morgunblaðið - 22.06.1980, Side 30

Morgunblaðið - 22.06.1980, Side 30
62 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ1980 Umsjón: Séra Jón Dalbú Hróbjartason Séra Karl Siynrbjörnsson Siyurfrur Pálsson áUdrottinsdegi Biblíulestur vikuna 22.—28. júní. Sunnudagur 22. Júní Lúk. 15: 1—10. Mánudagur 23. Júní Mark. 2: 1—12. Þriöjudagur 24. júní Dóm. 10: 6—16. Miövikudagur 25. júnf Mark. 2: 13—17. Fimmtudagur 26. júnf Róm. 4: 1—8. Föstudagur 27. júnf Róm. 5: 1—5. Laugardagur 28. júní i. Jóh. 2: 1—6. Boöorö — til hvers? Sáttmálinn Það er ekki hugmyndin að fara mörgum orðum um sáttmálann sem Guð gerði við Israelsmenn í Sínaí-eyðimörkinni forðum daga enda þótt það efni sé á margan hátt fróðlegt og áhugavert til umfjöllunar. Boðorðin tíu til- heyra þeirri sáttmálsgerð og þess vegna er óhjákvæmilegt að minna á það um leið og hafist er handa við að fjalla stuttlega um boðorðin. Án efa finnst mörgum þeir sjá upplyftan fingur hins vandláta Guðs þegar þeir heyra eða lesa: Þú skalt... Þú skalt ekki... Og vissulega er Guð vandlátur guð. Það er samt ekki megineinkenni hans. Það er allrar athygli vert að staldra ögn við þau fáu orð í 20. kafla fyrstu Mósebókar sem standa næst á undan boðorðun- um. Ég er . . . „Og Guð talaði öll þessi orð og sagði: Ég er Drottinn, Guð þinn, sem leiddi þig út af Eygypta- landi, út úr þrælahúsinu." Hér talar Guð velgjörðanna, Guð verndarinnar, Guð leiðsagnar- innar, Guð kærleikans. Hér talar sá Guð sem ber umhyggju fyrir sköpun sinni og vill henni vel og veit hvað til farsældar horfir. Enn þann dag í dag, liðugum 3000 árum síðar minnast Gyð- ingar um allan heim þessa at- burðar sem vitnað er til, þ.e. brottfararinnar af Egyptalandi, með viðhöfn á hverjum páskum. Það hátíðahald er þrungið þakklæti til Guðs. Það er því nauðsynlegt að hafa í huga, þegar boðorðin eru hug- leidd, að hér talar Guð kærleik- ans. Kristnir menn hafa um allar aldir talið boðorðin skuld- bindandi „leiðartein í stafni." Jesús sagði um lögmálið að ... „Þangað til himinn og jörð líða undir lok, mun ekki einn smá- stafur eða einn stafkrókur lög- málsins undir lok líða.“ (Matt. 5:17-20). Þú skalt ekki hafa aðra Guði en mig Fyrsta boðorðið tekur af öll tvímæli um það að Guð er einn og öðrum guðum á ekki að lúta. Þetta er þörf áminning í dag engu síður en á dögum Móse. Margt kemur til. Trúmálaum- ræða á Islandi einkennist oft af algyðistrúarhugmyndum og/eða þeirri hugmynd að í raun og veru séu trúarbrögðin öll leiðir að sama Guði. Slíkar hugmyndir eiga ekkert skylt við kristna trú. Guð sá sem Biblían talar um er ekki „hver sem er.“ Hann er sá Guð sem hefur opinberað sig í rás sögunnar, birt vilja sinn fyrir munn þjóna sinna og síðast en ekki síst opinberast í Jesú Kristi. Þetta er sá guð kærleik- ans sem segir: Ég er Drottinn Guð þinn. Þú skalt ekki hafa aðra Guði en mig. Hér er rétt að huga aðeins að orðinu Drottinn. Dorttinn er sá sem drottnar þ.e. sá sem lotið er, sá sem hlýtt er. Fjöldi fólks telur sér trú um að það lúti engum Guði, vegna þess að enginn Guð sé til. Enn aðrir lifa í þeirri trú að þeir uppfylli fyrsta boðorðið og hafi ekki annan Guð en Guð Biblíunnar, Guð föður almáttugan, skapara himins og jarðar. Hver er Guð minn? Frægur maður hefur sagt: Guð er sá sem varðar manninn mestu. Það merkir að það sem mér finnst mestu máli skipta í lífinu er minn Guð. Varajátn- ingar og boðorðakunnátta stoða mig lítið þegar ég stend frammi fyrir þessari áleitnu spurningu: Hvað varðar mig mestu í lífinu? Hverju lýtur vilji minn? Hverj- u(m)? þjóna ég með tíma mín- um? Hver ræður fjármálunum mínum? Hver ræður afstöðu minni- til annarra manna? Hverjum kappkosta ég að þókn- ast? Þannig mætti lengi halda áfram að semja spurningar til sjálfsprófunar. Það getur hver og einn gert fyrir sjálfan sig. En mér segir svo hugur um að sé þessara spurninga spurt í ein- lægni kunni að fara svo að sá sem spyr taki að efast um trúnað sinn við fyrsta boðorðið: Þú skalt ekki hafa aðra Guði en mig. Ef til vill er út í hött að reyna að gera sér grein fyrir hver algeng- asti hjáguðinn sé okkar á meðal. Samt get ég ekki varist þeirri hugsun að maðurinn sjálfur sé sestur í þann sess sem Guð einum ber. Það liggur harla nærri okkur mörgum að spyrja fyrst og síðast um eigin vilja og hvað þénar eigin hagsmunum. Og erum við ekki vanari því að þakka daglegt viðurværi og önn- ur lífsins gæði eigin dugnaði og framtaki fremur en skaparan- um, sem er gjafari allra góðra hluta. Hins vegar er handhægt að grípa til hans og kenna honum það sem aflaga fer í eigin tilveru og annarra og ásaka hann fyrir það eina sem ekki er frá honum komið, hið illa. Hvar stend ég þá, hafi ég brotið þetta boðorð? — Um það fjöllum við síðar. Ég trúi — á Guð, föður almáttugan .. Almáttugur? „Getur Guð skapað svo stór- an stein. að hann geti ekki lyft honum sjálfur?“ Nei, og þá getur hann heldur ekki verið almáttugur!“ Þessi röksemda- færsla kom eitt sinn fram á málfundi i menntaskóla og þótti góð. En hvað merkir þetta orð: Almáttugur? Að Guð er almáttugur merkir, að ekkert vald er honum æðra. ekkert afl, ekkert lögmál. Vald má nota á ýmsa vegu. Guð nær yfirleitt ekki fram markmiðum sinum með valdi og þvingunum, held- ur oðrum leiðum. Markmið hans er hið góða. fagra og fullkomna, og leið hans að því marki er KÆRLEIKURINN. Guð er almáttugur faðir, segir trúarjátningin: Sem sagt, ekki ópersónulegt almætti eða frum- kraftur, heldur faðir, sem er umhyggjusamur, kærleiksríkur. í því felst að hann verndar og viðheldur lífinu, sem hann skap- ar, með umhyggju og kærleika föðurins, og hann sér okkur fyrir öllum þörfum bæði með auðlegt náttúrunnar og því mannfólki, sem hann á ýmsan hátt vekur og kallar til þjónustu við lífið og málefni hins góða. Guð er hafinn yfir öll lögmál náttúrunnar og hefur mátt til að framkvæma það, sem hann óskar. En þó verður margt í veröldinni án vilja hans. Guð vill ekki að menn misþyrmi hver öðrum, kúgi og hati, særi og svívirði. Vilji Guðs er hið góða og í upphafi var allt gott. En það er annar vilji að verki í tilver- unni. Heimurinn er hernuminn af valdi hins illa. Þessvegna rís maðurinn gegn skapara sínum og föður og treður á meðbróður sínum og gerist á margvíslegan hátt bandamaður hins illa valds, sem vill menga, sundra, eyða og umturna. „Væri Guð almáttugur, myndi hann yfirbuga hið illa,“ segja menn stundum. Það er líka rétt. Almætti Guðs setur hinu illa skorður, en vegna kærleika síns getur hann ekki þvingað mann- inn til hlýðni við vilja sinn. Hann vill ekki svipta manninn frelsi sínu og umbreyta mannin- um í strengjabrúðu og heimili hans í leikbrúðuland. Hann vill vekja kærleikann í brjóstum okkar. Harðstjórinn ríkir með því að brjóta alla andstöðu á bak aftur, hvað sem það kostar. Færi Guð þá leið þá fengi enginn okkar staðist, því með okkur öllum býr andstaða gegn Guði og vilja hans. Þessvegna notar Guð mátt sannfæringarinnar, annars veg- ar með lögmálinu, sem hann hefur ritað á hjörtu mannanna og samvisku og öllum þeim góðu eiginleikum, sem hann hefur gefið okkur í sköpuninni. Hins vegar gerir hann það með orði sínu og áhrifum anda síns. En fyrst og fremst er hann vitjar mannanna í syni sínum, Jesú Kristi, frelsara heimsins, sem dó á krossi og afhjúpar þannig hið illa og sigrar það innan frá, með því að snúa hinu ægilegasta illvirki mannanna til góðs, til lífs og blessunar, vonar og lausn- ar hinum mörgu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.