Morgunblaðið - 29.06.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 29.06.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ 1980 5 * Karl Martin hittir Maí konu sína að lokinni fanRavist. Sjónvarp kl. 20.45: Fölsk skilaboð Áttundi og síðasti þáttur fram- haldsmyndarinnar Milli vita er á dagskrá sjónvarpsins kl. 20.45 í kvöld. í síðasta þætti hafði söguhetj- an, Karl Martin, verið handtek- inn af nasistum. Þessi þáttur hefst þar sem hann er í fangels- inu. Honum berast fölsk skila- boð sem leiða til þess að hann kemur upp um einn félaga sinn í andspyrnuhreyfingunni. Honum er sleppt úr fangelsinu en sam- viskan lætur hann ekki í friði. Fararheill - þátt- ur um ferðamál Á dagskrá hljóðvarps kl. 15.15 er þátturinn Fararheill. Birna G. Bjarnleifsdóttir sér um þáttinn og segir hún að í þessum þætti verði reynt að gera grein fyrir ferðamálum á íslandi á nokkuð breiðum grundvelli. Þar verður sagt frá ýmsum ferðum sem íslenskar ferðaskrifstofur bjóða uppá, hvað þær kosta og hvaða ferðaútbúnaður sé nauð- synlegur í þessar ferðir. Þá er rætt við nokkra aðila sem skipu- leggja orlofsferðir fyrir ellilíf- eyrisþega og einnig spjallað við fólk sem farið hefur í slíkar ferðir. Sláttar- byrjun Á dagskrá hljóðvarps kl. 9.45 á mánudag. er þátturinn landbún- aðarmál. í þættinum mun Óttar Geirs- son, ráðunautur, spjalla við Bjarna Guðmundsson, kennara á Hvanneyri, um sláttutíma og ýmis verk sem tengjast honum. Þá verður fjallað um grundvallarat- riði þurrheys- og votheysverkun- ar, hvernig viðrar til heyskapar um landið o.fl. óttar Geirsson, ráðunautur. Sjónvarp mánudag kl. 21.35: Létt hjal um sum- arið og fleira Á dagskrá sjónvarps kl. 21.35 á mánudagskvöld er þátturinn Sumarfri, sem Helgi Pétursson sér um. Morgunblaðið hafði samband við Helga og sagði hann m.a. um efni þáttarins: „Þetta er léttur þáttur í anda sólar og útilífs. Það verður spjallað við fólk á götunni og rætt við ýmsa aðila sem fást við ferðamál. M.a. verður rætt við þá bræður Kjartan Lárusson, for- stjóra Ferðaskrifstofu ríkisins og Stein Lárusson, formann Félags íslenskra ferðaskrifstofa. — Þá verða einnig ýmsir góðir gestir í þættinum, t.d. munu Jóhann Helgason og Helga Möller koma fram og syngja lagið Þú og ég. Þá munu félagar úr Kópavogsleikhús- inu flytja atriði úr Þorláki þreytta, gamanleikriti sem Emil Thoroddsen þýddi úr dönsku á sínum tima.“ Sjónvarp kl. 18.35: Lífið á Salteyju Á dagskrá sjónvarps kl. 18.35 er heimildarmynd um lífið á eyjunni Hormoz. Eyja þessi er á Hormossundi við Persaflóa og er næstun eingöngu úr salti. Að sögn Óskar Ingimarssonar, sem er þýðandi og þulur myndarinn- ar, fjallar myndin fyrst og fremst um dýralífið á eyjunni. Á Salteyju er fábreytt dýralíf en lengi hefur vafist fyrir mönnum hvar dýrin ná í ferskt vatn. Konur bera vatn i brúsum á höfði sér. Allt neysluvatn verður að flytja til eyjanna úr landi. Kosningasjónvarp Kosningasjónvarp hefst kl. 22.40 í sjónvarpi og verður með hefðbundnum hætti. Sérstök frétt er um dagskrá kosningasjón- varps annars staðar í blaðinu. Hljóðvarp kl. 22.55: Utvarp frá fréttastofu og talningarstöðum Kosningaútvarp hefst kl. 22.55 í hljóðvarpi og verður með hefðbundnum hætti. Sérstök frétt er um dagskrá kosningaútvarps annars staðar í blaðinu. ein af þeim allra bestu! Það er engin tilviljun að Rímíni er talin ein af allra bestu baðströndum i Evrópu. Spegiltær sjór og sandur, íbúðir og hóte/í sérflokki, íþrótta- og útivistaraðstaða hin fullkomnasta og tækifæri fyrir börnin óvenju fjölbreytt. Rimíni iðar af lifi og fjöri allan sólarhring- inn. Maturinn ódýr og afbragðsgóður. skemmtistaðir og diskótek á hverju strái og alls staðar krökkt afkátu fólki, jafnt að degi sem nóttu. 3. júli - uppselt 7. júli - „auka-auka" ferð - 8 saeti laus 14. júli - örfá sæti laus 24. júli - laus sæti 28. júli - „auka-auka" ferö - örfá sæti laus 4. ágúst - uppselt, biðlisti 14. ágúst - uppselt, biðlisti 18. ágúst - „auka-auka“ ferö - uppselt, biölisti 25. ágúst - örfá sæti laus 4. september - uppselt, biðlisti 15. september - laus sæti PORTO ROZ Stórbrotin náttúrufegurð og nálægð stór borga gefa moguleika á fjolda ógleyman- legra skoðunarferða, m.a. til Feneyja. Bled vatnsins. Postojna dropasteins- hellanna og víðar. Spyrjið vini og kunningja um Portoroz - einn vinsælasta sumarleyfisstað íslend- inga síðustu árin. Löng reynsla og örugg viðskiptasambond tryggja farþegum okkar fullkomna þjónustu og lægsta mögulega verð. 3. júli - uppselt 14. júlf - örfá sæti laus 24. júlf - laus sæti 4. ágúst - uppselt. biðlisti 14. ágúst - uppselt, biölisti 25. ágúst - örfá sæti laus 4. september - uppselt, biðlisti 15. september - laus sæti Samvinnuferóir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SIMAR 27077 & 28899

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.