Morgunblaðið - 29.06.1980, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 29.06.1980, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ1980 3 1 Nýja messuformið Útvarpsmessan í dajf er frá guðsþjónustu í Dómkirkj- unni við upphaf Prestastefnu sl. þriðjudag. Er þar fylgt tillögu að nýju messuformi fyrir íslenzku kirkjuna, sem Prestastefnan samþykkti samhljóða i öllum grundvall- aratriðum. Sr. Gunnar Björnsson og sr. Sigurður Sigurðarson þjóna fyrir altari ásamt sr. Þóri Stephensen. Sr. Ingólfur Ástmarsson prédikar. Dómkórinn syngur. Organleikari Marteinn H. Friðriksson. Fer þetta messuform hér á eftir, eins og það verður flutt i útvarpsmessunni i dag. Organforleikur Bæn Presturinn: í nafni Guðs föður, sonar og heilags anda. Svar: Amen. Presturinn: Hjálp vor kemur frá Drottni. Svar: Skapara himins og jarðar. Allir: Ég er kominn í þitt heilaga hús til að lofa þig og ákalla og til að heyra, hvað þú, Guð faðir, skapari minn, Guð sonur, frelsari minn, Guð heilagi andi, huggari minn, vilt við mig tala í þínu orði. Heyr þú lofgjörð mína og bæn og opna þú hjarta mitt, að ég fyrir þitt orð iðrist synda minna og taki daglega framförum í trú, von og kærleika. Amen. Inngöngusálmur og víxlsöngur Sálmur nr. 331 Víxlsöngur Prcsturinn: Skapa í oss hreint hjarta, ó Guð. Svar: Og veit oss nýjan, stöðugan anda. Presturinn: Gef oss, faðir, frið þinn og kærleika. Svar: Iklæð oss krafti frá hæðum. Miskunnarbæn Prcsturinn: Drottinn, miskunna þú oss. Svar: Drottinn, miskunna þu oss. Presturinn: Kristur, miskunna þú oss. Svar: Kristur, miskunna þú oss. Presturinn: Drottinn, miskunna þú oss. Svar: Drottinn, miskunna þú oss. Dýrðarsöngur — lofgjörð (söfnuður stendur) Presturinn: Dýrð sé Guði i upphæðum. Svar: Og friður á jörðu og velþóknun yfir mönnunum. (Sem lofgjörð er sunginn sálmurinn nr. 223). Kollekta Presturinn: Drottinn sé með yður. Svar: Og með þínum anda. Presturinn: Látum oss biðja. (Kollektan. endar á orðunum:... um aldir alda). Svar: Amen. Lestur úr Gamla testamentinu Lesturinn endar á orðunum: Þannig hljóðar hið heilaga orð. Svar: Guði sé þakkargjörð. Pistill Pistillinn: endar á orðunum: Þannig hljóðar hið heilaga orð. Svar: Guði sé þakkargjörð. Pistill Pistillinn: endar á orðunum: Þannig hljóðar hið heilaga orð. Svar: Dýrð sé þér, Drottinn. Lofgjörðarvers nr. 224 Guðspjall Prcsturinn: Guðspjallið skrifar guðspjallamaðurinn ... Söfnuður rís á fætur. Svar: Guði sé lof og dýrð fyrir sinn gleðilegan boðskap. Guðspjallið lesið. Lesturinn endar á orðunum: Þannig hljóðar hið heilaga guðspjall. Svar: Lof sé þér, Kristur. Trúarjátning — sálmur nr. 225 (söfnuður stendur) Prédikun Orgelleikur Almenn kirkjubæn Presturinn: Drottinn sé með yður. Svar: Og með þínum anda. Presturinn: Látum oss biðja. Bæninni er skipt niður í beiðnir, sem hver endar á orðunum: Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn. Svar: Drottinn, heyr vora bæn. Friðarkveðja Presturinn: Friður Drottins sé með yður. Svar: Og með þínum anda. Sálmur nr. 287 Upphaf þakkargjörðar (söfnuður stendur) Presturinn: Drottinn sé með yður. Svar: Og með þínum anda. Presturinn: Lyftum hjörtum vorum til himins. Svar: Vér hefjum þau til Drottins. Presturinn: Látum oss þakka Drottni Guði vorum. Svar: Það er maklegt og réttvíst. Presturinn tónar framhaldið, sem endar á orðunum: ... óaflátanlega segjandi: Heilagur (söfnuður stendur) Allir: Heilagur, heilagur, heilagur ert þú, Drottinn, Guð allsherjar. himnarnir og jörðin eru full af dýrð þinni. Hósíanna í upphæðum. Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins. Hósíanna í upphæðum. Þakkarbæn Presturinn biður þakkarbænina. Ilún endar á orðunum: Fyrir hann, með honum og í honum sé þér, almáttugi faðir, í einingu heilags anda, heiður og dýrð í heilagri kirkju þinni um aldir alda. Svar: Amen. Faðir vor Presturinn: Biðjum saman bænina, sem Drottinn hefur sjálfur kennt oss. Allir: Faðir vor ... Guðs lamh. Sálmur nr. 234 Altarisgestir ganga innar. Berging Eftir bergingu Sálmur nr. 240 Presturinn: Drottinn sé með yður. Svar: Og með þínum anda. Presturinn: Látum oss biðja, (Lokabæn, endar á orðunum: ... um aldir alda). Svar: Amen. Blessun (söfnuður stendur) Presturinn: Drottinn sé með yður. Svar: Og með þínum anda. Presturinn: Drottinn blessi þig og varðveiti þig. Drottinn láti sína ásjónu lýsa yfir þig og sé þér náðugur. Drottinn upplyfti sínu augliti yfir þig og gefi þér frið. Svar: Amen. Sálmur nr. 56 Eftirspil Vegkantur gaf sig við Borgarfjarðarbrúna Hvanneyri 27. júní VINNA er hafin við lagningu hitaveituæðar utan á nýju Borgar- fjarðarbrúna. í dag varð óhapp, er unnið var við undirstöðu undir brúnni, og sprakk vegkanturinn þá undan þunga steypuflutninga- bíls við suðurenda brúarinnar. Féll bíllinn niður í gryfju, en enginn slasaðist. Að sögn starfs- manna voru nokkrir menn ný- komnir upp úr gryfjunni er óhapp- ið varð. Bíilinn skemmdist tals- vert. — ÓfeÍKUr. Landsliðshópur valinn FIMMTÁN leikmenn hafa verið valdir i landsleikinn i knatt- spyrnu á móti Færeyingum, scm fram fer á Akureyri annað kvöld. Leikur íslendinga og Færeyinga verður fyrsti landsleikurinn í knattspyrnu. sem háður verður norðanlands, en á miðvikudag leika Færeyingar við Gra'nlend- inga á Sauðárkróki og á föstudag ma>ta íslendingar liði Grænlend- inga á Húsavík. Þessi þriggja landa keppni er liður i íþróttahá- tíð ÍSÍ. sem nú stendur yfir. Landsliðsnefnd KSÍ hefur valið eftirtalda 15 leikmenn í leikinn gegn Færeyingum: Bjarna Sigurðs- son ÍA, Þorstein Bjarnason ÍBK/ La Louviere, Martein Geirsson Fram, Sigurð Halldórsson ÍA, Trausta Haraldsson Fram, Óskar Færseth ÍBK, Karl Þóraðrson La Louviere, Magnús Bergs Val, Guð- mund Þorbjörnsson Val, Albert Guðmundsso'n Val, Pétur Ormselv Fram, Sigurlás Þorleifsson ÍBV, Ólaf Júlíusson ÍBK, Árna Sveins- son ÍA, Ottó Guðmundsson KR. Landsliðsþjálfari er Guðni Kjart- ansson. Sjö millilandaflug hvorn verkf allsdag EF kemur til boðaðs verkfalls flugmanna Flugleiða dagana 5. —12. júli n.k. munu falla niður öll flug innanlands og sjö flug til útlanda. Millilandaflug sem eru bókuð á laugardögum í sumaráætlun eru flug til Kaupmannahafnar, tvö flug til Luxemborgar, tvö til New York, eitt til Parísar og eitt til Færeyja. Vöruskipti í mai hag- stæð um 1,9 milljarða VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR landsmanna er orðinn óhag- stæður um rúma 7 milljarða króna það sem aí er árinu. Varð hann hagstæður um 1.9 milljarð í maí sl., en þá voru fluttar út vörur fyrir 37,6 milljarða króna og innflutn- ingur nam 35,6 milljörðum. Fyrstu 5 mánuði ársins nam útflutningur 149,5 milljörðum króna og innflutningur 156,6 milljörðum og því er vöruskipta- jöfnuðurinn nú óhagstæður um röska 7 milljarða. Á sama tíma í fyrra var hann óhagstæður um tæpa 2,5 milljarða. í síðasta mánuði var ál og álmelmi flutt út fyrir 4,2 milljarða og kísiljárn Nafn manns- ins, sem lést MAÐURINN. sem fannst látinn við Fnjóská á fimmtudag hét Gunnar Sigþórsson til heimilis að Norður- götu 31 á Akureyri. Hann var fæddur 1. september 1913 og er talið að hann hafi látist úr hjartabilun. fyrir 487 milljónir. Innflutningur til ísal var 1,1 milljarður og til Járnblendifélagsins 931 milljón. Baskar sprengja á Malaga Malaxa. Spáni. 28. júni. AP. HRYÐJUVERKAMENN Baska halda áfram sprengjuherferð sinni og í dag sprakk sjötta sprengjan skammt frá hóteli á Estepona- ferðamannastaðnum á Malaga. Engin slys urðu á fólki. Hryðjuverkasamtökin (ETA), sem berjast fyrir því að fá leysta úr haldi 19 félaga sína, sem bíða dóms, höfðu varað við sprengingunni og voru 1500 gestir fluttir á brott úr nálæg- um hótelum. Adolfo Suarez, forsætisráðherra, hefur með öllu neitað að semja við ETA, sem eru sökuð um 225— 250 pólitísk morð í 12 ára langri baráttu sinni fyrir sjálfstæði Baskahérað- anna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.