Morgunblaðið - 29.06.1980, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 29.06.1980, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ 1980 19 Aðalheiðar Runólfsdóttur Viðar og óttars Viðar. Hann var næst- yngstur fjögurra systkina. Óttar er sonur Gunnars heitins Viðar fyrrverandi bankastjóra og síðast hagfræðings Reykjavíkurborgar og konu hans Guðrúnar Helga- dóttur, sem enn er á lífi og sér nú á eftir þriðja barnabarni sínu af slysförum. Aðalheiður er dóttir hjónanna Runólfs Dagssonar og Guðrúnar Sigurðardóttur af Snæ- fellsnesi sem síðast bjuggu í Brekkubæ á Hellissandi. Þegar hún var 9 mánaða fór hún í fóstur að Svarfhóli í Miklaholtshreppi og skildi ekki við þá fjölskyldu síðan, þar til hún giftist óttari. Fóst- urmóðir hennar, Þórdís Sigur- geirsdóttir, sem um árabil hefur búið í Háteigi í Garðabæ, er enn á lífi. Aðalheiður og Óttar giftust vorið 1957 og fluttu skömmu síðar norður að Geirbjarnarstöðum. Þar gerðust þau landnemar á vissan hátt, enda hafði jörðin verið í eyði skamma hríð og allt þurfti að V6RZLUNRRBRNKINN BANKASTRÆTI 5, LAUGAVEGI 172, ARNARBAKKA 2, UMFERÐARMIÐSTÖÐ GRENSASVEGI 13 og VATNSNESVEGI 14, KEFL. Ferðalög eru nauðsynleg tilbreyting hjá þorra manna. Þá er oft meiru til kostað en fjárhagur leyfir. Safnlánakerfi Verzlunarbankans gerir þér m. a. kleift að skipuleggja sumar- eða vetrarfrí þitt fram í tímann með tilliti til þeirra aukafjármuna sem upp á vantar svo að þú fáir notið þess áhyggjulaust. byggja upp. Áhugi Óttars vaknaði fyrir búskap þegar hann dvaldi fjölmörg sumur hjá frændfólki sínu að Gautlöndum í Mývatns- sveit, en móðir hans Guðrún Helgadóttir og Jón Gauti Péturs- son á Gautlöndum voru systkina- börn. Það var hljóður söfnuður sem kvaddi Grétar Þór hinstu kveðju að Þóroddsstað í Kinn mánudag- inn 16. júní sl. Hin ríka samúð, sem sveitungar hans sýndu, vitn- aði enn einu sinni um hlýtt hjartaþel þessa fólks. Megi þeir allir heila þökk hafa. Að lokum votta ég og fjölskylda mín öllum aðstandendum — og þá fjölskyldunni á Geirbjarnar- stöðum sérstaklega — okkar dýpstu samúð. Guð fylgi Grétari Þór á nýjum brautum. Gísli G. Auðunsson. Vinarkveöja: Grétar Þór Viðar Geirbjarnarstöðum Fæddur 17. maí 1963 Dáinn 11. júní 1980 .. Marmaranshöll er sem moldarhrúga. Musteri kuös eru hjörtun. sem trúa. þó hafi þau ei yfir höfdi þak.“ Mér flaug þetta brot úr „Hnattasundum" Einars Bene- diktssonar í hug þegar ég af vanmætti reyndi að styðja fjöl- skylduna á Geirbjarnarstöðum í Kinn við hörmulegt og skyndilegt fráfall sonar og bróður. Eg fann að ég hafði ekki miklu að miðla í samanburði við styrkinn sem trú- in veitti foreldrum þessa unga vinar. Það snart mig djúpt. Þessi fjölskylda hefur ekki safnað ver- aldarauði. En hún hefur ávaxtað sitt pund á öðrum vettvangi og þar er auður hennar fólginn. Grétar Þór var rétt rúmlega 17 ára þegar hann lézt af slysförum. Skömmu fyrir miðnætti þess 10. júní hélt þessi örþreytti ákafa- maður frá Húsavík á dráttarvél og ætlaði heim í Geirbjarnarstaði, rúmlega 35 km leið. En áður en sú ferð var hálfnuð fór vélin útaf háum vegarkanti með þeim hörmulegu afleiðingum að Grétar Þór lézt. Frá því við fluttum í Þingeyjar- þing hefur fjölskyldan á Geir- bjarnarstöðum tengst okkur tryggðaböndum og þau styrktust vegna vináttu Þórs sonar okkar og Grétars Þórs. Þór dvaldi oft á Geirbjarnarstöðum og við fundum að þar leið honum vel. Síðastliðinn vetur var Grétar Þór við nám og störf á Húsavík og hélt þá til á heimili okkar og stóð okkur því orðið mjög nærri. Þá kynntumst við þessum opinskáa og ákafa pilti, sem stundum lá svo mikið á, að hann tæpast tyllti sér niður við matarborðið. Við kynntumst djúpri umhyggju hans fyrir fjöl- skyldunni og ákafri iöngun hans til að geta stutt foreldra sína sem hann mátti. Hann hafði einmitt hjálpað þeim til að komast yfir nýtt tæki til að létta bústörfin og var að færa þeim það, þegar hið hörmulega slys átti sér stað. Grétar Þór var fæddur á Húsa- vík 17. maí 1963. Hann ól allan sinn aldur á Geirbjarnarstöðum í Kaldakinn, fyrir utan vetrarlanga dvöl í Laugaskóla og síðasta vetur ævinnar hér á Húsavík. Hann hafði geysilegan áhuga á vélum og hafði mikinn skilning á gangi þeirra að mér fannst. Næsta haust ætlaði hann í iðnskóla að læra bifvélavirkjun. Grétar Þór var sonur hjónanna Aðstaða í Kenya Watihiitgton, 27. júnt. AP. BANDARÍSKA utanrikisráðu- neytið skýrði i dag frá samkomu- lagi við Kenya er veitir Banda- ríkjunum aukna aðstöðu i lofti og á sjó i grennd við Persaflóa. I staðinn mun Kenya fá ótiltekna efnahagsaðstoð frá Bandarikjun- um ef þjóðþingið samþykkir það. Ekki er nánar sagt frá sam- komulaginu þar sem Kenya vill ekki að nafn landsins sé of mikið nefnt opinberlega í sömu andrá og Bandaríkin að sögn embættis- manna. Tilraun Bandaríkjamanna til að fá aðstöðu í Sómalíu gengur erfið- lega, en samkomulag við Oman var nýlega kunngert. Bandarísk her- skip koma oft við í Mombasa, Kenya. MYNDAMÓTHF. AOALSTNÆTI « — ACVKJAVlK PMCNTMVNOAGCKO OfFSCT-FILMUR OG PLÖTUK SlMI 171*1 AUGIÝSINGATIIKNISTOFA SlMI 25« 10

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.