Morgunblaðið - 29.06.1980, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.06.1980, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ1980 Ég sendi öllum þeim sem mundu mig á 60 ára afmæli mínu 14. júní sl. hjartanlegar þakkir. Fjóla Jósefsdóttir, Reynimel 78. Rennibrautarstolar. Vönduö smíöi. Meö eöa án arma Stærð á útsaum 46x125 Verö frá kr. 218.000-248.000 „Sesselon“ falleg og vönduð vara. Verö kr. 395.000 Goöir afborgunarskilmálar. Staögreiösluafsláttur SENDUM GEGN POSTKROFU VALHÚSGÖGN ÁRMÚLI 4 SÍMI82275 Brottför , hvern laugardag Í3javiknafenðir til Miami Beach, Florida FLUGLEIÐIR /S Undirbúningur lýðveldis- stofnunar var ánægjulegasta verkefnið Agnar Kl. Jónsson, íyrrverandi sendiherra og ráðuneytisstjóri, kom heim um sl. áramót og lauk þar með 46 ára farsælum störfum í utanríkisþjónustu. Þörfum störfum fyrir okkur íslendinga, því hann var reiðubúinn með þekkingu og reynslu þegar íslenzk stjórnvöld ákváðu skyndilega við hernám Danmerkur vorið 1940 að taka utanríkismálin í sínar hendur. Hann kom þá strax til starfa og upp frá því var Agnar einn þeirra^sem höfðu forystu um að móta utanríkisráðuneytið og andlit íslands í viðskiptum við umheiminn, allt þar til hann hætti sjötujíur um síðustu áramót. Nú er hann seztur að heima með konu sinni, Olöfu Bjarnadóttur, í gamla húsinu við Tjörnina, þar sem hann hefur ávallt átt heimili og rætur í rótgrónu umhverfi traustra embættismanna. Þangað lagði blaðamaður Mbl. leið sína einn af þessum fögru sumarmorgnum til þessa viðtals. Agnar er sonur Klemensar Jónssonar — sem verið hafði sýslumaður Eyfirðinga og bæj- arfógeti á Akureyri, og var orð- inn landritari þegar Agnar fædd- ist, eini maðurinn sem því emb- ætti hefur gegnt á íslandi — og seinni konu hans Önnu Maríu Schiöth. Það lá því beint við að spyrja fyrst hvort lífshlaup hans hafi frá upphafi verið markað og miðað að því sem varð, að hann helgaði líf sitt embættisstörfum og utanríkisþjónustu. — Það er rétt, sagði Agnar. En ég hafði þó ekki utanríkisþjón- ustuna í huga. Ég ólst upp á embættismannaheimili og ætlaði alltaf að lesa lögfræði og verða embættismaður. Fá starf á stjórnarskrifstofu og e.t.v. síðar sýslumannsembætti úti á landi. Vafalaust hefur starf föður míns haft þau áhrif. En það var mágur minn, Tryggvi Þórhallsson, sem þá var forsætisráðherra, sem beindi mér inn á braut utanríkis- þjónustunnar. Það á sér forsögu. Þegar Jón Þorláksson var forsæt- isráðherra, réði hann sér til aðstoðar Sigríði Thoroddsen og Tryggvi Þórhallsson tók sér líka aðstoðarmann, Jón Grímsson, þegar hann tók við. Þessir starfs- menn höfðu það verkefni að sjá um bréfaskriftir við danska utan- ríkisráðuneytið. En frá 1918 hafði dóms- og kirkjumálaráðuneytið sé9 um þetta samband, enda forsætisráðherra þá jafnan dóms- og kirkjumálaráðherra. Haustið 1929, þegar alþingishá- tíðin færðist nær og ráðuneytið þurfti á aðstoðarmanni að halda, var Stefán Þorvarðarson, sem var í dönsku utanríkisþjónustunni og þá í Montreal, fenginn til að koma heim og gerður að fulltrúa í forsætisráðuneytinu. Ég vann líka á þessari skrifstofu á sumrin meðan ég var í náminu og einn vetur með náminu. En þetta var vísirinn að skrifstofu þeirri, sem fór með utanríkismál þegar stríð- ið kom og danska utanrikisráðu- neytið gat ekki lengur gengt þeim störfum fyrir íslendinga. — Tryggvi Þórhallsson hugs- aði mikið um það hvernig þessum málum yrði best fyrir komið, þegar sambandslögin féllu úr gildi. Hann hafði því áhuga á að fá unga menn til að fara í þessi störf í Danmörku. Og hann spurði mig hvort ég gæti ekki hugsað mér það. Ég hugsaði öðru hverju um þetta og að prófi loknu var skrifað úr forsætisráðuneyt- inu til danska utanríkisráðuneyt- isins, sótt um starf fyrir mig og mælt með mér. Hálft ár leið og rétt fyrir nýár 1934 kom bréf. Ég gæti fengið starf 1. febrúar. Og síðan var ég í 46 ár í utanríkis- þjónustu, danskri og íslenzkri. — Nú hafa orðið gífurlegar breytingar á embættisstörfum og viðhorfum öllum frá því faðir þinn var í stjórnarráðinu á þín- um uppvaxtarárum? Þú hefur upplifað alla þessa breytingu? — Já, það er ólíku saman að jafna. Faðir minn var landritari allan þann tíma, sem það emb- ætti var til, eða frá 1904 til 1917. Landritari var yfirmaður stjórn- arráðsins, og kom næstur á eftir ráðherra. En um leið gat hann gegnt embætti ráðherra í hans umboði, ef ráðherra var fjarver- andi, t.d. sigldi á konungsfund með lög til undirskriftar. En að ráðherra látnum, sem aldrei kom til, átti hann að gegna embætti hans á eigin ábyrgð þar til nýr ráðherra væri skipaður. Þetta var mjög óvenjulegt embætti og var lagt niður 1917, en þá komu 3 ráðherrar. Ég kom að sjáfsögðu í stjórnarráðið á þessum árum og man eftir skrifstofunum, en ég var mjög ungur 1917, aðeins 8 ára. Allt stjórnarráðið var þá í þessu litla húsi. Það var ákaflega hátíðlegt á skrifstofunum og ró- legt, ekki eins mikill erill og síðar hefur orðið. Ekki var mikið að gera, aðeins opið kl. 10 til 4 síðdegis, en sex daga vikunnar. Rætt við Agnar Kl. Jónsson, sem lokið hefur 46 ára starfi í utanríkisþjónustu Það breyttist á kreppuárunum og enn meira á stíðsárunum. Öll stjórnun hefur vaxið gífurlega og ráðuneytin stækkað. Aður en við hverfum frá upp- vaxtarárum Agnars, er talinu vikið að umhverfi hans við Tjörn- ina. — Hér voru indælir nágrannar og ég á góðar endurminningar um þá, sagði hann. Það er rétt, að þetta var gata embættismann- anna. Þeir keyptu Tjarnarbrekk- una, létu ýta fram jarðveginum til að fá götuna fyrir framan og byggðu sér hús við hana. Faðir minn byggði þetta hús, Tjarnar- götu 22, árið 1906. Sama ár byggðu svilarnir Sigurður Briem póstmeistari og Björn Ólafsson augnlæknir sín hús, en þeir gengust fyrir þessum fram- kvæmdum. Milli okkar og Ráð- herrabústaðarins byggðu Álf- heiður Briem, nýorðin ekkja Páls amtmanns, þá Eggert Briem síð- ar hæstaréttardómari og Jón Helgason, síðar biskup. Ég hefi alltaf átt hér heima og alltaf þótt jafn gott að koma í þetta hús, þegar ég hef komið heim frá útlöndum. Byggð upp ísl. utanríkisþjónusta Agnar var í sex ár í danska utanríkisráðuneytinu, fyrst í fjögur ár í Kaupmannahöfn, en var síðan sendur í sendiráð Dana í Washington. — Mér líkaði þar mjög vel, segir hann. Þar var gott að starfa, góðir félagar og yfir-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.