Morgunblaðið - 29.06.1980, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 29.06.1980, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ1980 Robert Ache var ekki starfsmaður Rauða krossins. Hjálpar- stofnun hans, sem upphaflega byrjaði hjálparstarf í Víet Nam 1966, með það að markmiði að „bjarga einu barni" fyrir forustu foreldra hans, sr. Patrich og Marion Ache. Björg- uðu þau fjölda munaðarlausra barna þar. Eftir að því stríði lauk fluttu þau hjálparstarfið 1975 til flóttamanna frá Kambodiu og hefur Robert verið þar lengst af síðan. Hann var á landamærunum á sl. hausti og var sjálfur við að sækja og bera hungraða, sem ekki komust alla leið yfir landamærin, i fyrstu hjálparbúðir. Frásögn hans, sem kom hingaö í bréfi fyrir skömmu, ásamt stuttri frásögn gests sem hjá þeim var, fer hér á eftir og gefur góða mynd af því af hverju vietnamskir hermenn hafa nú tekið hann. Alþjóðlegu stóru hjálparstofn- anirnar eiga oft í erfiðleikum með fæðudreifingu vegna þess að þær þurfa að taka tillit til stjórnmála- ástandsins í heiminum og gætu verið að hjálpa aðilum í stríði. Minni hjálparstofnanirnar hafa ekki eins bundnar hendur og því hefur VPO getað fætt hungrað fólk á landamærunum, og stærri stofnanirnar nota þann farveg fyrir matvæli sín. Gestur, sem kom til VPO lýsti því svo: „Við fórum í sendiferðabíl frá Rauða krossinum til Nong Chan, þar sem Alþjóða Rauði krossinn og UNICEF deila út hrísgrjónum undir umsjá Roberts. Hrísgrjón- um er deilt út til hungraðra þrisvar sinnum í viku, um 100 tonn á viku. Nú síðast hefur líka verið hægt að láta eitthvað af fatnaði, fiskinetum, lýsi og þess- Robert Ache, sem Vietnamar handtóku um helgina, í bréfí til blaðam Mbl: ,y aro að koma mat til Vietnamskir hermenn hafa tekið fjóra útlendinga á landamærum Thailands í innrásum þeirra í landið og í frétt á forsíðu blaðsins í gær segir að einn þeirra sé Englendingurinn Robert Ache. Robert er lesendum Mbl. að nokkru kunnur. Það var hann sem hjálpaði blaðamanni blaðsins Elínu Pálmadóttur í flóttamannabúðunum og á landamærunum haustið 1977, þegar hún var þar. Hann og hjálparstofnun hans VPO kom því mikið fyrir í frásögnum. í bréfi, sem hann skrifaði nýlega rekur hann í rauninni aðdraganda að handtöku sinni — því að hann hefur verið að dreifa matvælum til allra hungraðra á landmærunum, og sjálfsagt slæðst með eitthvað af hungruðum Rauðum kmerum. „Við urðum í vetur að koma með einhverju móti mat til deyjandi og hungraðra,“ segir hann. háttar. Þarna er stór, þurr og rykug slétta með trjám á stangli, en enginn veit hvar landamæra- línan liggur. Allt í kring eru jarðsprengjubelti. Kambodísku „gestirnir" koma gangandi, á reið- hjólum eða uxakerrum. Sumir allt að 150 km leið og hafa ferðast í 4—5 daga. Þegar þeir koma, eru þeir skráðir og skipt í 30 manna hópa sem setjast í röð á jörðina og bíða eftir úthlutuninni. Hrísgrjón- unum er deilt út til hópanna, sem svo skipta skammtinum á milli sín og svo snýr hver við til síns heima í Kambodíu. Svo virðist sem viet- namskir hermenn taki nokkurt magn af hrísgrjónum af fólkinu á heimleiðinni, en ekki allt, svo að því finnst borga sig að koma þessa löngu leið og ná í það. Þennan morgun, sem ég var þarna, voru þar 6—7 þúsund manns, sem biðu eftir matvælum sínum. Aðeins þremur vikum áður hafði verið gerð árás á búðirnar og þær brenndar til ösku af mönnum úr næstu búðum, sem seldu hrísgrjón á svörtum markaði og vildu ekki samkeppnina af ókeypis matvæla- dreifingu. Tveimur vikum seinna kom þar til minni háttar bardaga milli vietnamskra hermanna og kmera hermanna. En það sem mér þótti mikilvægast var, að þarna var verið að gefa hungruðu fólki matinn beint, til að fara með heim til sinnar fjölskyldu og engir milliliðir." Robert sjálfur skýrir ástandið og aðdraganda þess í bréfi. Gefur það góða mynd af því, hvers vegna til átaka kemur. Kjarni málsins er sá, að eftir að liðkaðist um matvælaflutninga til Kambodíu með flutningum flugleiðis og á skipum til Phnom Penh, varð dreifing matvæla betri í austur- hluta landsins, en sáralítil hjálp barst í vesturhéruðin, næst Thai- landslandamærunum. En þar berjast einmitt skæruliðar Rauðu kmeranna og vietnamskar her- sveitir. Því reyna hjálparstofnan- irnar á landamærunum að koma fólki á þeim slóðum til bjargar. Robert Ache segir svo frá aðstæð- um og ástandi, eins og það lítur út Thailands megin við landamærin: „Allt frá fyrstu dögum vand- ræðanna í Kambodíu í fyrra, þegar fjöldi fólks kom skjögrandi yfir landamærin í hræðilegu ástandi, hafa streymt hjálpargögn í gífurlegu magni til flóttamanna- hjálpar Sameinuðu þjóðanna með miðstöðvar í Sa Khao, Khai I Dang, Kamput og Mai Rut, og jafnframt til flóttamannasvæð- anna meðfram landamærunum í Mak Mun, Samet og fleiri stöðum. Hjúkrunarhópar frá Rauða kross- inum og sjálfboðaliðahópar frá hjálparstofnunum hafa verið sendir þangað til að hjúkra sjúk- um og særðum, fórnarlömbum ástandsins inni í Kambodíu. Um líkt leyti komust flutningar í lofti og á sjó til Phnom Penh og Kompong San í fullan gang, og fluttu þangað þúsundir tonna af matvælum. Því miður hefur geng- ið hægt að koma þessum birgðum til vesturhluta landsins, og afleið- ingarnar orðið þær að þúsundir manna hafa komið yfir landamær- in í leit að fæðu. Þeir koma eftir rykugum slóðum — gangandi, hjólandi eða á uxakerrum. Sumir koma einfaldlega í verslunarer- indum, í þeim tilgangi að kaupa varning á svörtum markaði og fara með hann til sölu á markað- ina, sem sprottið hafa upp í Battahbang, Sisophon og öðrum stórum bæjum í Kambodíu. Þús- undir annarra koma fjárvana í slitnum og tættum lörfum, til að reyna að fá mat og snúa við með hann til fjölskyldna sinna, sem bíða þeirra. Þar til fyrir 2—3 mánuðum höfðu Rauðu kmera hermenn eft- irlit með matvæladreifingu í landamærabyggðunum. Vegna skipulagsins í allri stjórnun hjá Rauðu kmerunum var ekki mögu- legt að framkvæma þetta öðruvísi. Annað óframkvæmanlegt verk- efni, var að áætla fjölda fólksins á staðnum. Rauðu kmera hermenn- irnir gáfu upp tölur, sem sýnilega

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.