Morgunblaðið - 29.06.1980, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ 1980
7
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
55. þáttur
Sá sem illa kemur fyrir sig
orði, er nefndur bögubósi og
tal hans bögumæli. Orðið
baga merkir m.a. ómynd eða
afkáralegt tal. Vafalítið er
þetta skylt orðum eins og
bagi =óhagræði eða eitthvað
þvíumlíkt, svo og lýsingar-
orðinu bágur =erfiður, ves-
all, lélegur. Enn er að nefna
bágindi sem stundum mætti
nota í tilbreytingarskyni í
staðinn fyrir hina endalausu
erfiðleika sem hrjá okkur.
Þetta bágindatal mitt er
til komið vegna bréfs frá
Baldri Kristjánssyni á Ytri-
Tjörnum í Eyjafirði, en hann
hefur ýmislegt að segja um
orðið rassbaga. sem einmitt
er haft í sömu merkingu og
bögumæli. Baldur segir:
„Mér var sagt, þegar ég
var strákur, að rétt mál væri
að segja rasbaga, óskylt öll-
um rössum, þ.e. menn rasa
og falla á orðinu eða setning-
unni, koma ekki rétt út úr
sér því sem þeir ætluðu að
segja. En nú vandast málið,
því að orðabækur Menning-
arsjóðs og Blöndals eru báð-
ar með rass-bögur, og má
þetta e.t.v. til sanns vegar
færa, því að ekki þótti líklegt
til góðs árangurs að gera
hlutina aftan við rassinn á
sér. En hvað um það, ég hef
minnst á þetta við þó nokkra,
aðallega eldra fólk, og það er
einróma með ras-bögum.“
Þetta kemur mér ekki á
óvart, og má mikið vera, ef
ekki er upprunalegra að hafa
þessa samsetningu með einu
s-i. Rasbaga væri þá fljót-
færnislegt eða klaufalegt tal.
Þessu til stuðnings mætti
nefna orðið rasgjöf, sem nú
er að vísu lítt eða ekki notað.
Rasgjöf merkir gjöf sem gef-
in er í fljótræði, og lifir orðið
í málshættinum: Aftur tekur
ragur maður rasgjöf sína.
Hvað ragur merkir í því
sambandi er ekki alveg víst,
því merking þess er ofurlítið
breytileg: huglaus, smásálar-
legur og blauður í rýmsta
skilningi.
Baldur á Tjörnum hefur
fleira merkilegt að segja:
„Það eru nú yfir 50 ár
síðan ég hlýddi einu sinni á
tal þeirra bræðra, föður míns
og Jóns í Hól, sem svo var
jafnan nefndur. Ekki man ég
hvað þeir ræddu, en aðeins
þessa setningu hjá Jóni: „Við
ætluðum nú svona að láta
dolviðrast yfir það!“
Áratugum síðar minntist
ég á þetta við Kristján
frænda minn, son Jóns, og
kannaðist hann við orðið, en
taldi þó ekki rétt með farið
hjá mér. Það mundi hafa
verið sagt dof-viðrast, og er
það raunar skiljanlegra og
getur vel verið að þetta hafi
ruglast í mér í tímans rás
eða ég tekið skakkt eftir. En
þó finnst Ingu systur minni,
sem man þetta orð, að sagt
hafi verið dolviðrast. Ég geri
þetta að umræðuefni, vegna
þess að á seinni árum og
áratugum hef ég ekki heyrt
þetta orð notað, og ekki
fyrirfinnst það í orðabókum.
En Kristján segir, að þeir
bræður muni hafa notað það
dálítið og merkingin er að
sjálfsögðu sú sama og að
humma fram af sér eða láta
gleymast og hverfa."
Orðabók háskólans hefur
engin dæmi um þessar orð-
myndir, sem Baldur greinir
hér frá.
Að síðustu ræðir Baldur
um notkun málsháttarins: Á
skammri stundu skipast veð-
ur í lofti. Faðir nokkur hafði
kennt syni sínum að þetta
segðu menn ekki nema þegar
veður batnaði. Á þetta leggur
Baldur engan dóm en telur
hæpið að rétt sé. Ekki veit ég
betur en hann og vísa málinu
til lesenda.
Er rétt að segja að refirnir
hafi verið fláðir, eins og lesa
mátti í blaði? var ég spurður
fyrir skemmstu. Nei, mér
finnst það ekki rétt og því
síður fallegt. Það er ná-
kvæmlega eins og sagt væri:
Mennirnir voru sláðir, ekki
slegnir.
Hinu er því miður ekki að
leyna, að sögnin að flá er
óðum að missa sína gömlu
sterku beygingu: flá, fló,
flógum, fleginn. En helst lifir
þó sterka beygingin í lýs-
ingarhætti þátíðar, fleginn.
Ég hlýt að mæla með því tali,
að sleði sé dreginn, varnagli
sleginn, greiði þeginn og
skepna flegin. Ósköp held ég
okkur þætti öllum kauðalegt
að beygja: slá, sláði, sláð, eða
liggja, láði, láð.
Tryggvi Helgason á Akur-
eyri hefur orðið við áskorun
um nýyrði fyrir ro - ro -skip.
Þessi skip flytja varning á
hjólum, og ro-ro er stytting
fyrir ensku: roll on, roll off.
Tryggvi hefur látið sér detta
í hug orðið ekja, sbr. ferja,
og hljómar það vel, enda
flytja skipin æki á hjólum,
sem fyrr sagði.
ekki líst mér miður á
nýyrði hans þeysa í staðinn
fyrir rall eða rally, og væri
þá rally cross landsþeysa á
íslensku.
Má ég nota tækifærið og
minna á nýyrðið skyrja í
staðinn fyrir jógúrt.
Að lokum er vísa sem
Þóroddur Jónsson á Akur-
eyri kenndi mér í sambandi
við tvímyndirnar mökkur —
mokkur. Páll Ólafsson kvað:
Hver sem vettlinjf valdid *at,
vatt sér út í mokkinn.
KvenfólkiA i kyrrðum sat,
kembdi ok spann á rokkinn.
Lokaútsala
allt á að seljast
Fatnaður og vefnaðarvara á stórlækkuðu verði
Dömu og herrabuxur frá kr. 8.900.-
Barnabuxur frá kr. 4.900,-
Sumarjakkar
á dömur, herra og börn frá kr. 6.900.-
Efni: Flauel, denim, poplín, flannel, fóöur o.fl., o.fl.
Komið snemma og náið því besta.
Verksmiðjusala
Skipholti 7.
anœstunm
Úrvalsferdir 1980
4. júlí Ibiza, Mallorka ein vika
4. júlí Ibiza 3 vikur, laus sæti
11. júlí Mallorka 3 vikur, örfá sæti laus
25. júlí Ibiza 3 vikur, laus sæti
1. ágúst Maltorka 2 og 3 vikur, örfá sæti laus
15. ágúst 22. ágúst Mallorka, Ibiza biðlisti
Mallorka 3 vikur, örfá sæti laus
FERDASKR/FSTOFAN
URVAL
VID AUSTURVÖLL SÍMI 26900
Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum:
VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI
______ _ * _ _
RÍKISSJOÐS: Innlautnarverö
l.iúlí 1980 Kaupgengi Seðlabankans
m.v. 1 érs Yfir-
pr. kr. 100.- tímabil frá: gengi
1968 1. flokkur 5.786,89 25/1 80 4.711.25 22.8%
1968 2. flokkur 5.224,03 25/2 '80 4.455,83 17,2%
1969 1. flokkur 4.178,46 20/2 '80 3.303,02 26,5%
1970 1. flokkur 3.826,27 25/9 ’79 2.284,80 67,5%
1970 2. flokkur 2.760,62 5/2 ’80 2.163,32 27.6%
1971 1. flokkur 2.540,28 15/9 '79 1.539,05 65,1%
1972 1. flokkur 2.214,75 25/1 ’80 1.758,15 26,0%
1972 2. flokkur 1.895,21 15/9 '79 1.148,11 65,1%
1973 1. flokkur A 1.419,74 15/9 79 866,82 63,8%
1973 2. flokkur 1.307,96 25/1 ’80 1.042,73 25.4%
1974 1. flokkur 902,72 15/9 79 550,84 63,9%
1975 1. flokkur 736,58 10/1 ’80 585,35 25,8%
1975 2. flokkur 558,77
1976 1. flokkur 530,02
1976 2. flokkur 430,44
1977 1. flokkur 399,76
1977 2. flokkur 334,85
VEÐSKULDA- Kaupgengi m.v. nafnvexti
BREF:* 12% 14% 16% 18% 20% 38%
1 ár 65 66 67 69 70 81
2 ár 54 56 57 59 60 75
3 ár 46 48 49 51 53 70
4 ár 40 42 43 45 47 66
5 ár 35 37 39 41 43 63
*) Miöaö er viö auöseljanlega faeteign.
Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum:
1978 1. flokkur 272,90
1978 2. flokkur 215,38
1979 1. flokkur 182,13
1979 2. flokkur 141,31
1980 1. flokkur 109,84
eiénpcfTmcARp^uMi iiumoi hp.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR, LÆKJARGÖTU 12 R.
Iðnaðarbankahúsinu. Sími 2 05 80.
Opiö alla virka daga frá kl. 9.30—16.