Morgunblaðið - 20.08.1980, Page 4

Morgunblaðið - 20.08.1980, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 1980 WIKA Þrýstimælar Allar stæröir og gerðir. SöytrOðiMg)(y(r Veaturgötu 16, 8Ími 13280 67 þúsund haf a séð Oðal feðr- anna ÁHORFENDUR að kvikmynd- inni Óðali feðranna eru nú orðnir um 67 þúsund. Kvikmyndin hef- ur verið sýnd víðs vcgar um landið og er fyrirhugað að taka hana til endursýningar í Reykja- vík um mánaðamótin septem- ber—október í Laugarásbíói. Tónlistin úr myndinni var gefin út á hljómplötu og öðlaðist vin- sældir og hefur selst í rúmlega 3000 eintökum. Óðal feðranna verður frumsýnd í Stokkhólmi um mánaðamótin september—október, í Los Angel- es þann 7. nóvember og í New York-borg 12. nóvember. Ferðahandbók fyrir börn kom- in á markaðinn FYRIR nokkru sendi Bókaútgáf- an Saga frá sér ferðabækling á íslensku og ber hann heitið „Ferðahandhók barna (1) fjöl- skylduferðir i nágrenni Reykja- víkur“. Eins og heitið ber með sér er bæklingurinn ætlaður íslensk- um börnum. sem eru að skoða eigið land með fjölskyldu eða kunningjum. I bæklingnum eru hugleiðingar um náttúruskoðun almennt, hvers við förum á mis ef við ökum beint af augum eftir þjóðveginum, án þess að stansa eða gefa gaum að því, sem fyrir augun ber. Einnig eru ábendingar um auðveldar gönguleiðir í nágrenni Reykjavík- ur, um undirbúning, umgengni og bent er á nokkrar bækur sem gott er að hafa með í ferðir. Ferðahandbók barnanna er ætl- að að svara spurningum um um- hverfið og náttúruna, en ákveðið er einnig að gefa út röð af handbókum handa ungum náttúruskoðendum. Siglfirðingar ágirnast síldina SÍKlufirði 18. áKÚst. UNDANFARIÐ hefur orðið vart síldar í talsverðum mæli úti af Siglufirði og á Grímseyjarsundi. Margir Siglfirðingar hafa rætt um að nýta sér þessar síldargöngur og salta síldina og fullvinna á Siglu- firði hjá Sigló-síld og Egils-síld. Síld fyrir þessar verksmiðjur hef- ur undanfarið verið flutt frá Höfn, Vestmannaeyjum og fleiri stöðum. - mj. Sjónvarp kl. 21.20: Kristur nam staðar í Eboli Klukkan 21.20 í kvöld er á dagskrá sjónvarpsins þriðji hluti myndarinnar „Kristur nam staðar í Eboli". I þættinum gerist það að Levi býr í nýja húsnæðinu með ráðskonunni sem en dálítið sér- kennileg. Með hennar hjálp, eða í gegnum hana kynnist hann hugarheimi fólksins. Hann kynnist Ameríkuförunum, sem komnir eru aftur, og sér ástæðurnar fyrir brottflutningi og heimflutningi. í myndinni kemur einnig fram að hugmyndir Levis eru að mótast um sögulegar og menningarlegar orsakir ástandsins á Suður-Ítalíu. Hann fer að hugsa um ástandið, þ.e.a.s. örbirgð fólksins á S-Italíu og hvað sá hluti er mikið aftur úr og af hverju hann hefur slitnað frá N-Ítalíu. Útvarp kl. 17.20 Lögreglustöð- in heimsótt Á dagskrá útvarpsins í dag klukkan 17.20 er litli barnatím- inn. Sjö krakkar úr Norðurbæn- um í Hafnarfirði fara í heim- sókn á lögreglustöðina á Hlemmtorgi í Reykjavík og þar tekur Baldvin Ottóson á móti þeim og sýnir þeim húsið og segir frá starfi lögreglunnar. Hann sýnir þeim einnig hvar fjarskipti fara fram. Börnin eru á aldrinum fimm til níu ára. Útvarp kl. 22.35 Reynt að bregða upp mynd af alheiminum „MILLI himins og jarðar" nefnist þáttur sem hefst í útvarpinu klukkan 22.35 í kvöld. Alls verða þættirnir sex, og í þessum fyrsta þætti verður reynt að bregða upp mynd af alheiminum, þ.e.a.s reynt að gera grein fyrir sjálfu kerfinu og síðan farið út fyrir, og reynt að segja úr hverju alheimurinn er og hvað finnist þar. Saga stjörnu- fræðinnar verður rakin í stuttu máli eiginlega er þessi þáttur inngangur að hinum fimm. Útvarp Reykjavík A1IÐMIKUDKGUR 20. ágúst MORGUNINN 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar 7.20 Bæn. 7.25 Tónleikar. I>ul- ur velur og kynnir. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.) Dagskrá. Tón- leikar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund harnanna: „Kolur og Kolskeggur“ eftir Barböru Sleight. Ragnar Þorsteinsson þýddi. Margrét Helga Jóhannsdóttir les (7). 9.20 Tónleikar. 9.30 Tilkynn- ingar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. 10.25 Kirkjutónlist Ann-Marie Conners, Elisabet Erlingsdóttir, Sigríður E. Magnúsdóttir og Polýfón- kórinn syngja með kammer- sveit „Gloria“ eftir Antonio Vivaldi; Ingólfur Guð- brandsson stj. 11.00 Morguntónleikar. Kammersveitin i Stuttgart leikur Hljómsveitarkonsert nr. 4 í f-moll eftir Giovanni Battista Pergolesi; Karl Múnchinger stj. / Elly Amel- ing og Enska kammcrsveitin flytja „Exultate Jubilate“, mótettu (K165) eftir Mozart; Raymond Leppard stj. / Sin- fóníuhljómsveit útvarpsins í Ilamborg leikur Strengja- serenöðu í E-dúr op. 22 eftir Antonin Dvorák; Hans Schmidt-Isserstedt stj. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikasyrpa. Tónlist úr ýmsum áttum, þ.á m. léttklassisk. SÍÐDEGIÐ 14.30 Miðdegissagan: „Sagan um ástina og dauðann" eftir Knut Hauge. Sigurður Gunnarsson les þýðingu sína (16). 15.00 Popp. Dóra Jónsdóttir kynnir. 15.50 Tilkynningar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Siðdegistónleikar Björn Guðjónsson og Gísli Magnússon leika Trompet- sónötu op. 23 eftir Karl O. Runólfsson / Gérard Souzay syngur lög eftir Gabriel Fauré; Jacqueline Bonneau leikur á píanó / Vladimir Horovitsj leikur á píanó „Kreisleriana“ op. 16 eftir Robert Schumann. 17.20 Litli barnatíminn. Stjórnandinn. Oddfríður Steindórsdóttir, fer ásamt nokkrum börnum úr Norður- bænum i Hafnarfirði i heim- sókn í lögreglustöðina við Illemm. 17.40 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. KVÖLDID 19.00 Frettir. Tilkynningar. 19.35 Samleikur i útvarpssal. Helga Þórarinsdóttir og Anna Taffel leika á viólu og pianó Sónötu op. 120 nr. 1 eftir Jóhannes Brahms. 20.00 Hvað er að frétta? Bjarni P. Magnússon og Ólafur Jóhannsson stjórna frétta- og forvitnisþætti fyrir og um ungt fólk. 20.30 „Misræmur“, tónlistar- þáttur í umsjá Þorvarðs Árnasonar og Ástráðs Ilar- aldssonar. 21.10 Fuglar. Þáttur i umsjá Hávars Sigur- jónssonar. 21.30 Píanósónata nr. 11 í A-dúr (K331) eftir Mozart. Wilhelm Backhaus leikur. 21.45 Útvarpssagan: „Sigmars- hús“ eftir Þórunni Elfu Magnúsdóttur. Höfundur les (8). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.35 „Milli himins og jarðar" Umsjónarmaður: Ari Trausti Guðmundsson. Fyrst þáttur. Um stjörnufræði almennt og uppbyggingu alheimsins. 23.05 Kvöldtónleikar. a. „Alcina", forleikur eftir G.F. Ilándcl. Fílharmoníu- sveit Lundúna leikur; Karl Richter stj. b. Tvær aríur, „O, let me weep" og „Allcluia" eftir Henry Purcell. Sheila Armstrong syngur. Martin Isepp leikur með á scmbal. c. Obókonsert í c-moll eftir Benedetto Marcelli. Renato Zanfini leikur mcð Virtuosi di Roma kammersveitinni. d. Sónata í G-dúr fyrir selló og sembal eftir J.S. Bach. Josef Chuchro og Zusana Ruzicková leika. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. MIÐVIKUDAGÚR 20. ÁGÚST 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Kalevala Fimmti þáttur. Þýðandi Kristín Mántylá. Sögumaður Jón Gunnars- son. 20.45 Frá Listahátíð 1980 fyrri dagskrá frá tónleik- um óperusöngvarans Luci- anos Pavarottis í Laugar- dalshöll 20. júni. Sinfóniuhljómsveit íslands leikur. Stjórnandi Kurt Herbert Adler. Stjórn upptöku Kristín Pálsdóttir. Síðari dagskrá frá tónleik- unum verður send út sunnudagskvöldið 24. ág- iict lfl 9A ^O 21.20 Kristur nam staðar í Eboli Þriðji þáttur. Efni annars þáttar: Levi kemst ekki hjá þvi að stunda læknisstörf í þorp- inu, og þannig verður hann kunnugur fólkinu. Systir hans kemur í heimsókn og hvetur hann til dáða. Levi fær eigið húsnæði og ráðs- konu. Þýðandi Þuríður Magnús- dóttir. 22.10 Fiskimenn i úlfakreppu (Spying for Survival; bresk heimildamynd) Þegar Bretar gengu i Efna- hagsbandalagið, urðu þeir að opna landhelgi sina fiskiskipum bandalags- þjóðanna. Bandamenn þeirra, einkum Frakkar, virða oft að vettugi ákvæði um möskvastærð og friðun fiskstofna, enda veiða þeir nú tvöfalt meiri fisk á þessum slóðum en Bretar sjálfir. Þýðandi Bogi Arnar Finn- bogason. 22.35 Dagskrárlok

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.