Morgunblaðið - 20.08.1980, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 1980
5
99
til
Tvær af Áttum FluKleifla á Luxemburj<arfluKvelli
Einar Ólafsson forstjóri Cargolux:
Getur brugðið
beggja vona um
stofnun nýs félags
Erfiðleikar i flugrekstri i 1-1V2 ár
Ekki lengur inn-
anfélagsmál held-
ur milliríkjamál
- segir framkvæmdastjóri FEP
„I>AÐ er auAsætt. að FluKleiðir fara ekki að lðKum hvað varðar
uppsagnir þessara átján starfsmanna hér í LuxemhorK ují við
erum ákveðnir í að láta á það reyna fyrir dómsstólum. verði
ekki fundin lausn á málinu. sajíði framkva-mdastjóri HandalaRs
skrifstofumanna hjá einkafyrirtækjum í Luxemhorjí. FEP. í
samtali við Mhl. í KærdaK. Mhl. reyndi ennfremur að ná í Jaques
Santer. atvinnumálaráðherra Luxemhorjíar. eh hann var
sajjður í sumarleyfi ojí ráðuneytisstjóri hans vildi ekki tjá síjí
um málið.
44
MORGUNBLAÐIÐ hafði samband
í Ka r við Einar ðlafsson forstjóra
Cargolux ojt innti frétta af ganxi
mála i viðræðum Flugleiða. Cargo-
lux og flugfélaga í Luxemborg um
stofnun nýs flugfélags á Norður-
Atlantshafsleiðinni. I frétt Morg-
unblaðsins i gær úr hlöðum i
Luxemborg var sagt að Luxem-
borgarar vildu eiga 51% i sliku
nýju flugfélagi. en Einar kvaðst
aldrei hafa heyrt að Luxemborgar-
ar vildu eiga meirihluta og reyr.d-
ar kvað hann ekki heldur hafa
komið fram hjá talsmonnum
Flugleiða að þeir vildu endilega
eiga meirihluta í slíku fyrirtæki.
„Það hefur margt verið til um-
ræðu á þessum fundum," sagði
Einar,“ en ennþá er aðeins um að
ræða áþreifingar um það á hvern
hátt málið verði höndlað." Aðspurð-
ur um líkurnar fyrir stofnun nýs
flugfélags svaraði Einar: „Það get-
ur að mínu mati brugðið til beggja
vona hvort af stofnun félagsins
verður eða ekki.“
Um uppsagnir 18 starfsmanna
Flugleiða í Luxemburg sagðist Ein-
ar ekki vita hvað lægi að baki, en
þegar hann var spurður álits á
stöðunni í flugrekstrinum á Atl-
antshafsleiðinni sagði hann:
„Staðan er geysilega erfið á
þessari leið og það er reyndar erfitt
hvarvetna í flugbransanum í dag.
Það er enginn ofsæll af starfi á
þeim vettvangi og ég tel að þetta
muni verða erfitt í næsta 1—1 Vfe ár
vegna þess að framboð af flugvélum
er allt of mikið og fargjalda stríðið
eins og það er. Öll stóru ríkisreknu
fyrirtækin eins og Lufthansa, Air
France og SAS geta leyft sér
ákveðna hluti í þeim efnum, því
þeir geta fremur möndlað með fé í
rekstrinum en einkafyrirtæki eins
og Flugleiðir, Laker, bandarísku
félögin og önnur félög sem verða að
byggja á því að reksturinn standi
undir sér.
Milljónaþjóðir hafa mun betri
aðstöðu í þessum efnum heldur en
smáþjóðir eins og Islendingar og
Luxemborgarar, en þegar litið er á
stöðuna í heild er ekkert undarlegt
að Flugleiðir skuli vera í vandræð-
um. Fargjöldin eru of ódýr og það
er margt fleira sem kemur til í
flugrekstrinum almennt. Spurning-
in er um það hvort að hægt sé að
þrauka af, því auðvitað kemur að
því að menn hætti að verðleggja
þjónustuna eins vitlaust og gert er
nú. Ég tel að það sé einlægur vilji
stjórnvalda í Luxemborg að hjálpa
Flugleiðum að einhverju leiti í
stöðunni, en að sjálfsögðu er það
erfitt pólitískt séð að veita erlendu
flugfélagi beinan fjárhagslegan
stuðning. Nú hafa seglin verið rifuð
nokkuð og menn eru að velta því
fyrir sér hvað bezt sé að gera fyrir
framtíðina, hvort aðgengilegar leið-
ir séu út úr þessari erfiðu stöðu.“
„Þá finnast okkur það mjög
einkennileg vinnubrögð af hálfu
Flugleiða, að láta hvorki kóng né
prest vita, fyrr en upssagnar-
bréfið er borið í hendur þessara
starfsmanna, auk þess sem okkur
finnst það alveg út í hött, að
segja þessum starfsmönnum upp
á sama tíma og verið er að ræða
stofnun nýs flugfélags, sem
myndi væntanlega taka við öllu
þessu starfsfólki," sagði fram-
kvæmdastjórinn ennfremur.
Aðspurður um möguleika á
stofnun nýs flugfélags sagði
hann möguleikana fyrir hendi,
en hvort Flugleiðir yrðu inni i
þeirri mynd væri erfitt að sejya.
Það væri alls ekki loku fyrir það
skotið að flugfélögin í Luxem-
borg leituðu á einhver önnur mið,
ef Flugleiðamenn héldu upptekn-
um hætti.
„Annars finnst okkur þetta
mál alls ekki vera neitt innanfé-
lagsmál Flugleiða lengur, þetta
er orðið milliríkjamál, því miklir
fjármunir og atvinnuöryggi er í
veði.
Við höfum þegar óskað eftir
því við forsætisráðherra Lux-
emborgar, að hann láti þegar
taka upp viðræður við islenzk
yfirvöld um þessi mál. Það þýðir
greinilega ekki að ræða þessi mál
við forystumenn Flugleiða,"
sagði framkvæmdastjórinn
ennfremur.
Það kom ennfremur fram, að
auk þessara átján starfsmanna,
sem þegar hefur verið sagt upp
störfum, eru í kringum 35 starfs-
menn í FEP, sem starfa að
málum tengdum starfsemi Flug-
leiða í Luxemborg.
Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi:
„Það er sýnileg
tregða í stofnun
nýs flugfélags64
Farið að lög-
um um uppsagn-
ir starfsfólks
„VIÐRÆÐUR Flugleiða við Lux-
emborgara og aðra aðila varðandi
stofnun nýs flugfélags á leiðinni
Luxemborg-Bandarikin m.a., eru
búnar að standa lengi og Flug-
leiðamenn gerðu sér vonir um að
Luxemborgarar kæmu inn í þetta
með þeim hætti að stofnað yrði
flugfélag sem myndi gera átak í að
viðhalda þeim flugrekstri sem hef-
ur verið á þessari leið sl. 25 ár. en
það er sýnileg tregða i framgangi
málsins. Viðræðum er þó ekki
lokið, en það heíur ekkert komið
inn í myndina í þessum viðræðum
að Luxemborgarar vildu eiga 51%
í slíku fyrirtæki.“ sagði Sveinn
Sæmundsson hlaðafulltrúi Flug-
leiða i samtali við Mbl. i gær þar
sem hann var m.a. spurður um
frásögn blaða í Luxemborg af
þessum viðræðum.
Eins og sagt var frá í Mbl. í gær,
kom þar fram að aðilar í Luxem-
borg vildu eiga a.m.k. 51% í nýju
flugfélagi á þessari leið.
Sveinn sagði að uppsagnirnar hjá
18 starfsmönnum í Luxemborg
kæmu til fyrst og fremst vegna þess
að nú kæmi vetraráætlun til fram-
kvæmda og umsvif í fluginu væru
minnkandi. „Þetta hefur verið
ófremdarástand sl. tvö ár og það
segir til sín, en á allan hátt er farið
að Luxemborgarlögum í sambandi
við þessar uppsagnir."
(OMIC)
iráA OMIC REIKNIVÉUN Eft HRHINGI
FYRIRFEftMÍHINNI OG TÖLUVEftT ÓDÝRARI
Nú hefur ný reiknivél bæst i Omic fjöl-
skylduna, - Omic 410 PD. Þessi nýja
Omic vél er lítil og lipur. Hún gengur
fyrir rafhlöðum jafnt sem rafmagni.
Omic 410 PD skilar útkomu bæði á
strimli og með Ijósatölum. Hún vinnur
að öllu leiti verk stærri véla bæði fljótt
og vel.
Við byggjum upp
framtíð fyrirtækis þins.
Þegar Omic reiknivélarnar komu fyrst
á markaðinn voru þær sérhannaðar
samkvæmt óskum viðskiptavina Skrif-
stofuvéla h.f. Á örfáum vikum urðu
Omic 312 PD, Omic 210 PD og Omic 210
P, sannkallaðar metsöluvélar.
Komið og kynnist kostum Omic.
Verðið og gæðin tala sínu máli.
£
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
%
r* X ~ Hverfisgötu 33
Simi 20560