Morgunblaðið - 20.08.1980, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 1980
ERLENDAR FRÉTTIR
1STUTTU MÁLI
80 farast í
sprengingu í Iran
AÐ minnsta kosti 80 manns
fórust og 45 slösuðust þegar
gífurleg sprenging varð í vöru-
geymslu þar sem sprengiefni
voru geymd í Kuzestan héraði í
íran. Iranska fréttastofan Pars
skýrði frá þessu í dag. Orsakir
sprengingarinnar eru sagðar
skammhlaup.
Andstaða arabískra írana
hefur verið hörð í hinu olíuauð-
uga Kuzestan og skemmdar-
verk verið tíð.
Tekere
látinn laus
EDGAR Tekere, ráðherra í
stjórn Zimbabwe var í dag
látinn laus úr varðhaldi, gegn
tryggingu. Hann er ásakaður
um morð á hvítum bónda.
Ferðir ráðherrans hafa verið
takmarkaðar og lögreglumenn
fylgja honum hvert sem hann
fer. Hann hefur verið í haldi
frá 6. ágúst. Tekere er 43 ára
gamall og er áhrifamikill ráð-
herra í stjórn Roberts Mug-
abes í Zimbabwe.
Leitað í líkum
í Ecuador
HJÁLPARSVEITIR leita nú
að líkum í rústum húsa í
borginni Guayaquil í Ecuador
eftir öflugan jarðskjálfta, sem
mældist á bilinu 7 og 8 á
richterkvarða. Að minnstó
kosti 6 fórust og 50 slösuðust.
FlóðíKína
MIKIL flóð hafa verið í Suður
og Mið-Kína að undanförnu og
valdið miklu tjóni. Þúsundir
húsa hafa farið undir vatn og
liðlega 500 þúsund hektarar
lands hafa farið undir vatn.
Flóð á Indlandi
AÐ MINNSTA kosti 800
manns hafa farist í flóðum á
Norður og Mið-Indlandi.
60 kommúnískir
innrásarmenn
felldir í Thailandi
YFIR 60 kommúnískir innrás-
armenn hafa verið felldir á
síðustu tveimur vikum í skær-
um við thailenska hermenn að
sögn thailenska hersins. Her-
inn náði á sitt vald nokkrum
stöðum kommúnista og bar-
dagar geisa enn. Thailenski
herinn hefur notið stuðnings
stórskotaliðs og fallbyssu-
þyrla.
Miles sigraði
í Noregi
ENSKI stórmeistarinn An-
thony Miles bar sigur úr být-
um á skákmóti í Gausdal.
Hann sigraði John Donaldson í
síðustu umferð og hlaut 7
vinninga af 9 mögulegum. Sví-
inn Dan Cramling átti alla
möguleika á efsta sætinu fyrir
síðustu umferðina. Hann hafði
hálfs vinnings forskot á Miles
en tapaði fyrir landa sínum,
Lars Karlsson í síðustu um-
ferð. Þeir urðu jafnir í 2.-3.
sæti með 6.5 vinninga.
Stuggað við fær-
eyskum togbáti
línuna. Þetta var 180 til 190 tonna
bátur, en sem kunnugt er hafa
Færeyingar þegar veitt upp í
þann kvóta, sem þeir máttu veiða
hér við land í ár og eiga þeir að
vera farnir úr landhelginni.
Berenet Sveinsson í Stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar sagði í gær,
að svo virtist, sem Færeyingar
miðuðu við aðra landhelgislínu
heldur en við íslendingar og væri
skýringin sjálfsagt sú að þeir
notuðu aðra grunnlínupunkta
heldur en íslendingar. Gæti þetta
skapað nokkurn rugling, en ekki
sagðist hann vita til þess að þetta
mál hefði verið rætt við Færey-
inga.
FLUGVÉL Landhelgisgæslunn-
ar kom í gær að færeyskum
togbát, þar sem hann var að
veiðum VA sjómilu íslandsmegin
við miðlinuna milli íslands og
Færeyja suðaustur af iandinu á
svonefndum Íslands-Færeyja-
banka.
Voru skipstjóra bátsins gefin
fyrirmæli um að flytja sig út
fyrir landhelgislínuna og hífði
hann trollið og fór út fyrir
Færcyski báturinn var að tog-
veiðum l'/2 sjómílu fyrir innan
miðlinuna suðaustur af landinu.
Ljósm. Sigurvin Einarsson.
Jafnteflið
líklegast í
13. skákinni
í 13. EINVÍGISSKÁK Korchnois
og Polugajevskys, sem teíld var í
gær, náði hinn fyrrnefndi fljót-
lega aðeins betri stöðu i enska
leiknum. Skákin fór i bið i 44.
leik og virðist jafntefli óumflýj-
anlegt.
Eins og sjá má er liðsafli jafn og
auk þess er staðan jöfn að öðru
leyti. Svarta d-peðið er stakt en
hvítur hefur engin tök á að notfæra
sér það. Á sama hátt getur svartur
ekki notfært sér að peð hvíts á
drottningarvæng standa á hvítum
reitum. Líklegt framhald er 44. ...
Kd6 og keppendur semja jafntefli.
- J.G.J.
Ljómarall '80:
Breytingar á aksturs-
leiðum vegna Heklugoss
HEKLUGOS hefur sett strik í
reikninginn hjá Bifreiðaiþrótta-
klúbbi Reykjavíkur. Þegar gosið
hófst var aiþjóðlega aksturs-
keppnin Ljómarall '80 tilbúin i
öllum meginatriðum. En þar sem
aka átti þrjá daga keppninnar á
svæðinu i kringum gosstöðvarn-
ar, varð að gera breytingar á
akstursleiðum. Margir af vegun-
um. sem fara átti um, eru nú
þaktir ösku. og auk þess er
ferðamannastraumur það mikill
að gosstöðvunum að ekki þótti
Franskrar skútu
með einum manni
saknað í 1V2 mánuð
FYRIR einum og hálfum mánuði
lagði frönsk seglskúta, Birisi,
upp frá Halifax i Bandaríkjunum
og ráðgerði að koma til Akureyr-
ar 27. júlí sl. Ekkert hefur spurst
til skútunnar frá þvi að hún fór
frá Halifax i Bandarikjunum 2.
júli sl. og i gær var Slysavarnar-
félag íslands beðið um að svipast
um eftir henni hér við tsland.
Einn maður er á skútunni, en
hún er 26 fet á Iengd.
Óskar Þór Karlsson, erindreki
hjá Slysavarnarfélaginu sagði, að
þeir hefðu fengið beiðni frá Björg-
unarmiðstöðinni á Keflavíkur-
flugvelli um að islenskir aðilar
yrðu látnir vita um að skútunnar
væri saknað. Hefði Slysavarnafé-
lagið þegar látið Landhelgisgæsl-
una, Flugstjórn og fleiri aðila vita.
Óskar sagði, að skútan hefði
samkvæmt ferðaáætlun sinni átt
að koma til St. John’s í Kanada á
leið sinni til Akureyrar, en þangað
hefði skútan ekki komið og ekkert
spurst til hennar. Er talið hugsan-
legt að stjórnandi skútunnar hafi
ákveðið að sleppa því að koma til
St. John’s en haldið þess í stað
beint til Akureyrar.
Eini fjarskiptabúnaður skút-
unnar er móttökutæki, sem tekur
við sendingum á flugvélabylgju,
þannig að maðurinn getur ekki
sent neitt frá sér. í skútunni var
hins vegar fjögurra manna gúm-
björgunarbátur og flugeldar og
blys. Skútan er með oranslitaðan
bol, grátt dekk, eitt mastur og hvít
segl.
fært að auka umferðarálagið.
Lokið hefur verið við að hanna
nýja keppni og verður leiðin
örlítið styttri en sú sem upphaf-
lega átti að aka. eða 2.696 km.
Fleiri keppendur hafa bæst á
lista Ljómaþeysu ’80 og eru þeir
nú orðnir sautján. Vigdís Finn-
bogadóttir, forseti íslands, ræsir
keppendur á áður uppgefnum tíma
kl. 9.00 og verður lagt upp frá
Austurbæjarskólanum í Reykja-
vík. Ekið verður áleiðis til Sauð-
árkróks og gist þar í nótt en svo
aftur til Reykjavíkur á morgun.
Frá Reykjavík verður ekið á föstu-
dagsmorgun til Sauðárkróks en
það er breyting þar sem þessa nótt
átti að gista á Laugarvatni. Frá
Sauðárkróki verður ekið sem leið
liggur og gist á Laugarvatni,
samkvæmt upphaflegri áætlun —
Er það von keppnisstjórnar
B.Í.K.R. að keppni þessi verði ekki
síðri en sú sem upphaflega var
ákveðin og mætti e.t.v. há hana
undir slagorðinu, nútíminn og
náttúruöflin, þar sem hér setja öfl
náttúrunnar óneitanlega sitt svip-
mót á þessa nútímalegu íþrótta-
grein.
(Fréttatilkynning).
Fyrirlestrar um
fræði Martinusar
ROV Elving frá Martinus Insti-
tut i Kaupmannahöfn er stadd-
Lýst eftir ökumanni
UM KLUKKAN hálf tvö á föstu-
dag var ekið á gangandi vegfar-
anda á horni Hverfisgötu og
Vatnsstigs að austanverðu eða
við Járnvörubúð KRON.
Tildrög slyssins voru með þeim
hætti að maðurinn beið færis að
komast yfir Hverfisgötu og stóð
fyrir aftan kyrrstæðan bíl á bíla-
stæði. Bílnum var bakkað á mann-
inn og féll hann í götuna. Öku-
maður bílsins vildi fara með
manninn upp á Slysadeild en
maðurinn vildi það ekki, og ók þá
ökumaðurinn manninum heim til
sín að Leifsgötu 4. Bíllinn, sem ók
á manninn var fólksbifreið og er
ökumaðurinn beðinn um að gefa
sig fram við Slysarannsóknadeild
lögreglunnar í Reykjavík.
ur hérlendis þessa dagana.
Hann flytur fyrirlestra um
heimsmynd Martinusar i húsi
Guðspekifélagsins við Ing-
ólfsstræti í kvöld og annað
kvöld, kl. 9 bæði kvöldin.
Danski spekingurinn Martinus
er mörgum íslendingum kunnur.
Hann hefur heimsótt ísland
fimm sinnum og kom síðast árið
1970 þá er hann var áttræður.
Hann á sem sé níræðisafmæli á
þessu ári og má segja að það sé
tilefni heimsóknar Elvings.
Bókaútgáfan Leiftur gaf út fyrir
nokkrum árum yfirlit hugmynda
Martinusar í fjórum bókum.
Bifhjólinu var ekið á móti umferðinni og lenti það framan á
fólksbifreið, sem kom upp eftir tengibrautinni. Ljóxm. júiíu«.
Lögreglumað-
ur á bifhjóli slas-
ast í árekstri
LAUST EFTIR klukkan 15 i
gær varð umferðarslys á tengi-
braut, sem liggur frá Reykja-
nesbraut upp á Vesturlandsveg
við Elliðaárbrýrnar. Slasaðist
lögreglumaður á bifhjóli tölu-
vert og hlaut meðal annars
fótbrot og viðbeinsbrot.
Tildrög slyssins voru með
þeim hætti að lögreglumaðurinn,
sem ók bifhjólinu mun hafa
verið að svipast um eftir bíl og
verið með sírenur og rautt ljós á
hjólinu. Fór hann út af Vestur-
landsvegi og ók á móti umferð-
inni á tengibrautinni. Þar lenti
hann framan á fólksbifreið, sem
var ekið upp tengibrautina í
áttina að Vesturlandsvegi.