Morgunblaðið - 20.08.1980, Page 19

Morgunblaðið - 20.08.1980, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 1980 19 Bilun í ör- bylgjusendi á Hvolsvelli BILUN varð í Kærmorgun i radiobúnaði Pósts og sima á Hvolsvelli og varð um tima sima- sambandslaust við útlönd og ýms- ar simstöðvar á Suðurlandi. Að sögn starfsmanna við mæla- borð Landsímans var þarna um að ræða bilun í örbylgjusendi og var bilunin ekki í neinum tengslum við gosið í Heklu. Símasamband við útlönd rofn- aði um kl. 9 í gærmorgun en var á ný komið á um klukkan 12.30. Samband við símstöðvarnar á Suðurlandi fyrir austan Selfoss rofnaði strax klukkan 9 og tókst ekki að koma á símasambandi við stöðvarnar í Vestmannaeyjum, á Hvolsvelli og Höfn i Hornafirði fyrr en kl. 3 í gærdag. Bátur eyðilagðist í eldi í Stykkishólmi Frá fundi norrænu félags- og heilbrigðismálaráðherranna og norrænu félagsmálanefndarinnar Stykkishólmi hinn 19. ágúst 1980. UM hádegisbilið í dag kom upp eldur í bátnum Svani SII 111, þar sem hann lá i höfn- inni hér í Stykkishólmi. Bátur- inn skemmdist mikið áður en slökkviliði tókst að ráða niður- lögum eldsins. og er hann jafnvel talinn ónýtur. Báturinn, sem er um 60 tonn, átti innan skamms að fara á Fundi norrænu félags- og heil- brigðismálaráðherranna lokið 100 manns gáfu blóð í ólafsvík Ólaísvlk. 19. áxÚHt. RAUÐI krossinn og Blóðbankinn standa hér fyrir blóðsöfnun í dag. Um klukkan 18 höfðu 100 manns gefið blóð en fleiri höfðu raunar gefið sig fram án þess að vera svo færir um að gefa ýmissa orsaka vegna. Þessi vísa var ort í orðastað eins þeirra, er frá þurfti að hverfa: Áður íyrr brá olt á leik I ástamálum slynKur nu er illa hrutrðið hleik: blóðlaus vesalinitur. — Helgi. NÚ ER lokið fundi norrænna félags- og heilbrigðismálaráð- herra, sem haldinn var hér i Reykjavik. Fundinn sátu sextíu til sjötiu manns, þar á meðal ráðherrar og æðstu embættis- menn þessara málaflokka á Norð- urlöndum. t gærkvöidi hélt for- seti íslands fundarmönnum mót- töku og i dag er ætlunin að skoða heilsugæzlustöðina á Egils- stöðum, en hún hlaut styrk úr sjóðum Norðurlandaráðs 1975. í tilefni þessa voru blaðamenn boðaðir á fund ráðherranna og kom þar meðal annars fram, að aðalvið- fangsefni fundarins var að fjalla um heilsugæzlu og fyrirbyggjandi aðgerðir í þeim efnum á Norður- löndunum. Fundarmenn lögðu áherzlu á að heilsufar fer eftir fjölmörgum þáttum í unhverfi manna og því er ekki nóg að hugsa aðeins um heilsufarið sjálft, heldur verður einnig að rannsaka samspil umhverfis og heilsufars. Þá voru norrænu ráðherrarnir sammála um, að nauðsynlegt sé að fólk sjálft geri sér grein fyrir heilsu sinni og að það fái upplýs- ingar um, hvernig helzt beri að varðveita hana. í því tilefni sé það mjög mikilvægt, að fólki sé gerð grein fyrir þeirri hættu, sem stafað 30 til 50% verðlækkun á grænmeti í heildsölu VERÐ á flestum tegundum íslensks grænmetis lækkaði frá og með deginum i gær um 30 til 50% miðað við heildsöluverð. Álagning á græn- meti i smásölu er frjáls og kann þvi að vera nokkur munur á smásölu- verðinu milli verslana en algengt er að smásöluálagningin sé rétt innan við 40%. Þá hefur Sölufélag garð- yrkjumanna ákveðið að standa fyrir sérstakri kynningu á græn- meti á Útimarkaðnum á Lækjar- torgi næstu daga og þar verður einnig til sölu grænmeti á niður- settu verði á vegum Vörukynningar s/f. Þorvaldur Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri hjá Sölufélagi garð- yrkjumanna sagði, að verðlækkunin væri mest á rófum en kílóið af þeim lækkar úr 600 í 300 krónur í heildsölu eða um 50%. Af öðrum tegundum má nefna að heildsöluverð á hvítkáli lækkar um 37,5% tómatar og gúrkur lækka um 45%, paprika um 28%, höfuðsalat um 37,5% og steinselja um 44%. Verð á gulrótum lækkar ekki og ekki á blómkáli nema í öðrum verðflokki. Sem fyrr sagði verður grænmeti næstu daga selt á Útimarkaðnum á Lækjartorgi og verður verð þar mun lægra heldur en í verslunum. Verður salan opin frá kl. 10 til 18 meðan birgðir endast. Þorvaldur Þorsteinsson sagði, að sérstök áhersla yrði lögð á það af hálfu Sölufélags garðyrkjumanna að kynna fyrir fólki, hvernig megi matreiða grænmeti og búa það undir geymslu fram á veturinn. í því sambandi yrði vörukynning á Lækj- artorgi og einnig yrði þar dreift uppskriftum. „Þessi verðlækkun og kynning er vegna góðrar uppskeru í kjölfar hagstæðs tíðarfars í sumar og við viljum sérstaklega hvetja fólk til að birgja sig upp af grænmeti fyrir veturinn," sagði Þorvaldur. getur af neyzlu áfengis, tóbaks og annarra vímugjafa. Það kom einnig fram að nauð- synlegt er að styrkja og auka heilsugæzluna, vegna aukins fjölda aldraðra á Norðurlöndunum að Islandi undanskildu. Ráðherrarnir héldu síðan fund með norrænu félagsmálanefndinni og var henni falið að gera nýjan tryggi ngasam n i ng milli Norður- landanna, sem tryggi norðurlanda- búa fullkomlega félagslega hvar á Norðurlöndunum þeir eru staddir. Einnig var rætt um endurskoðun norrænu samvinnunnar á sviði félags- og heilbrigðismála. Fundinn sátu ráðherrarnir Henning Rasmussen, innanríkis- og dómsmálaráðherra Danmerkur, formaður nefndarinnar, Sinikka Luja-Penttilá, félags- og heilbrigð- ismálaráðherra Finnlands, Katri- Helena Eskelinen ráðuneytisstjóri finnska félags- og heilbrigðismála- ráðuneytisins, Arne Nilsen félags- málaráðherra Noregs, Elisabet Holm, heilbrigðismálaráðherra Noregs og Svavar Gestsson, heil- brigðis- félags- og tryggingamála- ráðherra íslands. skelfiskveiðar. Var unnið að því að logsjóða um borð er eldurinn kom upp, og breiddist hann skjótt út. Slökkviliðið í Stykkis- hólmi var kallað til, en langan tíma tók að komast fyrir eld- inn, vegna þess hve hann var orðinn útbreiddur og vegna þess hve illa gekk að komast að honum. Svanur SH 111, sem innan skamms átti að fara á hörpu- diskveiðar á Breiðafirði, er í eigu Sigurðar Ágústssonar hf. Ólíklegt er að hann fari á sjó framar, og hefur báturinn nú verið dreginn upp í fjöru. Tjón- ið er því tilfinnanlegt fyriT skelfiskvinnsluna, og einnig fyrir áhöfnina, sem var að hefja veiðarnar. — Árni. Minning Leiðrétting í minningargrein sem Bjarni 0. Frímannsson frá Efri-Mýrum skrifaði hér í Morgunblaðið 13. þ.m. féll niður málsgrein i grein þessari, en hún er svohljóðandi: „Heyrt hefi ég, að er Sveinn faðir Esterar lá banaleguna, hafi vinur hans Þórarinn í Jórvík, vakað yfir honum m.a. nóttina sem hann andaðist og þá verið — afráðið að litla stúlkan færi að Jórvík. Má vera að sá samningur hafi verið — gjörður án orða né umræðu, milli hlutaðeigenda, en staðið var við hann með sóma.“ Morgunblaðið biður hlutaðeig- andi afsökunar á þessum mistök- Umferðarslys í Ólafsvik Ólaísvik, 19. áKÚst. SÍÐDEGIS síðast liðinn laugar- dag varð hér umferðarslys er bifhjól og lítil fólksbifreið rák- ust saman á þann hátt, að bifhjólið skall þvert á hlið bíls- ins. 18 ára piltur er ók hjólinu mun hafa kastast yfir bílinn og slasaðist allmikið er hann skall í götuna. Hlaut meðal annars brot á báðum handleggjum. Var hann eftir fyrstu aðgerð fluttur á sjúkrahús í Reykjavík með sjúkraflugi. Ökumaður bílsins slasaðist lítið en bæði ökutækin eru stórskemmd. Helgi. GETUR GJÖRBREYTT ÚTUTI HEIMIUSINS MEÐ NOKKRUM LÍTRUM AF KÓPAL Fáður þér Kópal litakort í næstu málningarbúð. Veldu síðan fallega liti í rólegheitum heima í stofu. Þú ert enga stund að velja liti, sem fara vel við teppin, húsgögnin og gluggatjöldin. Það er alveg ótrúlegt hvað fáeinir lítrar af Kópal geta breytt miklu. Komdu fjölskyldu þinni á óvart - málaðu fyrir helgi. 0. málningbf o

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.