Morgunblaðið - 20.08.1980, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 1980
+ Móöir mín, RANNVEIG KJARAN, Mávahlíö 44, RayKjavík, lést í Landakotsspítala 19. ágúst. Fyrir hönd systkina minna og annarra vandamanna, Anna Kjaran Yngvarsdóttir.
t Móöir mín og fósturmóöir, MATTHILDUR BJÖNSDOTTIR, frá Smáhömrum, andaöist hinn 17. þ.m. Björn Jónsaon, Aöalbjörg Thoroddsen.
t í Eiginmaöur minn, faöir og tengdafaöir, SKÚLI ARNOR STEINSSON, forstjóri, Heíöargerói 19, Rvík, í andaöist aö morgni 19. ágúst í Landspítalanum. Gyóa Brynjólfsdóttir, börn og tengdabörn.
+ Eiginmaöur minn og faöir okkar, VILHJALMUR GUDMUNDSSON, bóndi og hreppstjóri, Syðra Lóni, Þórshöfn, er látinn. Brynhildur Halldórsdóttir, Þuríöur Vilhjálmsdóttir, Guómundur Vilhjálmsson, Herborg Vilhjálmsdóttir.
+ BENEDIKT MAGNUSSON, frá Staö í Aöalvík, lést 7. ágúst 1980. Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey að ósk hins látna. Guórún Jónsdóttir, Jón E. Benediktsson, Guöný Benediktsdóttir, Siguróur Guómundsson, og barnabörn,
Faöir okkar, KARL BJÖRNSSON, gullsmiöur, Vesturgötu 26 A, er látinn. Útförin veröur auglýst síöar. Björn Karlsson, Jens Karlsson, Karl Valur Karlsson, Garðar Karlsson.
+ Maöurinn minn, faöir okkar og afi, SVEINN BORGÞÓRSSON, veröur jarösunginn frá Fríkirjunni í Hafnarfiröi fimmtudaginn 21. ágúst kl. 13.30. Blóm afþökkuö, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Hjartarvernd. Vilborg Jóhannsdóttir, börn og barnabörn.
+ Þakka innilega þá miklu vináttu og samúö, sem mér var sýnd viö andlát og útför drengsins míns, STURLU BRIEM. Halldór Þorsteinn Briem.
+ Faöir okkar, JÓN JÓNSSON, frá Keldunúpi á Síöu, er lést aö heimili sínu Dunhaga 23, þann 11. ágúst veröur jarösunginn frá Neskirkju fimmtudaginn 21. ágúst kl. 13.30. Jarðsett veröur í kirkjugaröinum viö Suöurgötu. Þeir sem vildu minnast hins látna eru vinsamlega beönir um að láta kristniboöiö í Konsó njóta þess. Fyrir hönd vandamanna. Siguróur Jón.son, Valgeröur Jónsdóttir, Guófinna Jónsdóttir.
Minning:
Rakel Káradótt-
ir Presthúsum
Hinn 20. ágúst er jarðsungin
Rakel Káradóttir frá Presthúsum
í Vestmannaeyjum. Hún fæddist
4. september 1917 í Vestmanna-
eyjum, dóttir hjónanna Kára Sig-
urðssonar og Þórunnar Pálsdótt-
ur.
Ragga, eins og hún var jafnan
kölluð, ólst upp í Presthúsum í
fjölmennum systkinahópi, því þau
Kári og Þórunn eignuðust 17 börn
en eftir lifa nú sjö þeirra.
í uppeldinu naut hún verndar
móður og eldri systkina, því hún
missti föður sinn rétt tæpra 8 ára,
en Þórunn lést fyrir rúmum 15
árum. Upplag Röggu var mikið og
það var ekki erfitt verk fyrir hana,
sem gáfað og gott barn, að tileinka
sér hollt og trúfast uppeldi mikil-
hæfrar móður. Þannig óx hún upp
í ljúfri æsku, sem ástkær dóttir og
góð systir.
Presthúsasystkinin hafa alltaf
tengst traustum böndum og eining
þeirra verið sérstaklega mikil alla
tíð, en Ragga var ætíð einn
sterkasti hlekkurinn í þeirri sam-
heldni.
Lífið brosti við hinni ungu og
glæsiiegu konu og liðlega tvítug
steig hún heillaríkt gæfuspor er
hún kvæntist eftirlifandi manni
sínum, Þorkeli Sigurðssyni.
Ungu hjónin hófu búskap sinn í
Presthúsum og þar eignuðust þau
tvo syni, Karl og Sigurð, sem báðir
lifa móður sína, — sannir heið-
ursmenn, vel giftir og eiga indæl
börn og falleg heimili.
En þessi litla fjölskylda átti
eftir að reyna að lífið er ekki alltaf
t
Úttör eiginmanns míns, fööur okkar og tengdafööur,
AXELS Ó. ÓLAFSSONR,
innheimtustjóra Ríkísútvarpsins,
Skaftahlíö 8,
Reykjavík,
veröur gerö frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 21. ágúst kl. 13.30.
Þorbjörg Andrésdóttir,
Ólafur Ó. Axelsson, Svana Víkingsdóttir,
Ingibjörg Axelsdóttir, Sœmundur Rögnvaldsson,
Anna Axelsdóttir.
t
Þökkum auösýnda samúö vegna andláts og viö útför,
ELÍASAR KRISTJANSSONAR.
Guö blessi ykkur öll.
Börn, systkini og aörir vandamenn.
t
Þökkum af alhug öllum þeim sem sýnt hafa okkur samúö og
vinarhug viö andlát og útför,
HALLDÓRS BJARNASONAR
loftskeytamanns,
Hraunbraut 40.
Margrót Þorvaldsdóttir, Sigríöur Helgadóttir,
Heiðar Póll Halldórsson, Rannveig Siguröardóttir,
Sigrún Halldórsdóttir, Bjarni Guömundsson,
Bjarni Halldórsson, Auöur Sigurgeirsdóttir,
Erla Halldórsdóttir,
Halldór Halldórsson,
systkíni og aórir vandamenn.
t
tnnilegar þakkir fyrir samúö og vináttu vegna andláts mannsins
míns, sonar, fööur okkar og tengdafööurs,
GUÐMUNDAR KRISTJÁNSSONAR,
fyrrverandi skipstjóra,
Safamýri 87.
Lillý Kristjónsson, Kristjana Guömundsdóttir.
Ari Guömundsson,
Kristjana Guómundsdóttir,
Guórún Guómundsdóttir, Guömundur E. Hallsteinsson,
Karl Harrý Sigurósson, Helga K. Möller,
Hrefna Guömundsdóttir, Gunnlaugur Kristjónsson.
dans á rósum. Berklaveikin heim-
sótti heimilið og unga móðirin hóf
nú langa og tvísýna glímu við
þungan sjúkdóm. Ragga varð að
fara á Vífilsstaðahæli í fyrsta en
ekki síðasta sinn. Sonunum ungu
urðu þau hjónin að koma fyrir sitt
á hvorum staðnum, hjá frænd- og
vinafólki, en Þorkell stundaði sjó-
inn á þessum árum.
Nú hófst löng og erfið sjúkra-
saga. Eftir áralanga spítalavist
fékk hún nokkra heiisu á ný og
sameinaðist þá fjölskyldan aftur
og nú í Reykjavík. Hér var þó um
raunalega skammvinnan bata að
ræða, aftur varð Ragga að fara á
Vífilsstaði og enn í langan tíma,
hún gekk undir þungar aðgerðir
og leið miklar þrautir. En lífsgleð-
in var henni í blóð borin, sterkur
viljinn og vonin um nýtt og betra
líf gaf henni kraft.
Á þessum árum réðist Þorkell,
sem hættur var sjóniennsku, í að
byggja reisulegt hús í samvinnu
við mág sinn, Kára. Hann lagði
allan sinn dugnað í að hafa
íbúðina fullgerða þegar Röggu
batnaði, það tókst honum líka.
Hvílík hvatning til bata, það var
'hinni veiku konu, að eiga von um
nýtt líf í glæsilegu eigin húsnæði
er ekki erfitt að ímynda sér.
Þegar Ragga útskrifaðist aftur
af hælinu var hún fertug, þessi
veikindalota hafði staðið yfir í um
13 ár, hún var þó enn á góðum
aldri og lífið hafði upp á margt að
bjóða.
Þótt hún næði aldrei fullri
heilsu birti til og margar óskir
uppfylltust. Fjölskyldan samein-
aðist enn, og nú í nýju íbúðinni að
Njörvasundi 23, sem var heimili
Röggu æ síðan. Og Sigurður og
Karl urðu þeirrar gæfu aðnjótandi
að njóta umsjár foreldra sinna á
viðkvæmum unglingsárum. Þau
hjónin áttu nú saman mörg ham-
ingjurík ár og þó skuggi veikind-
anna biði jafnan við bæjardyrnar
var sambúðin ástrík og heimilið
hlýtt.
Kynni mín af Rakel móðursyst-
ur minni hafa allan minn aldur
verið mikil og góð. Heimili þeirra
hjóna hef ég ávallt litið á sem mitt
annað heimili og það er sama
hvort ég hef kvatt dyra að nóttu
eða degi, alltaf hefur mér verið
tekið opnum örmum, svo sem væri
ég þeirra sonur.
Við Ragga vorum einnig sarn-
vistum á Vífilsstöðum árin 1957 og
1958 og það fór ekki fram hjá mér
hversu almenns álits og vinsælda
hún naut þar, jafnt meðal sjúkl-
inga sem hjúkrunarfólks, því
lundin var ætíð létt og umgengnin
hlý, harm sinn bar hún í hljóði.
Það er einmitt sú mynd sem ég
geymi af Röggu þegar hún, glað-
vær og kát, kom öllum í gott skap
sem nálægt henni voru. Þrátt
fyrir sinn þunga sjúkleik, reyndi
hún alltaf að vera fremur veitandi
en þiggjandi. Höfðingslund henn-
ar var einstök og hún gat ekkert
aumt séð. Persónuleikinn var
mikill og hjartað hlýtt.
Dugnaður Röggu var einstakur,
svo framarlega sem hún gat reist
höfuðið frá koddanum vegna las-
leika féll henni aldrei verk úr
hendi og kröfurnar sem hún gerði
til sjálfrar sín voru jafnan meiri
en hún gerði til annara.
Húsmóðurhlutverkið lét Röggu
einstaklega vel, heimili hennar og
húshald bar þess jafnan fagurt
vitni, að þar réð kona sem hafði
yndi af að hirða um heimili sitt og
fjölskyldu. Enda naut hún jafnan
hjálpar styrkra handa eigin-
mannsins við þau verk sem henn-
ar veiki líkami réði ekki við.
Vinátta fjölskyldu Röggu og
fjölskyldu minnar var slík að hún
verður aldrei með orðum þökkuð
og guð einn getur launað fyrir
hennar löngu og tryggu vináttu.
í þessum kveðjuorðum hefur
mér verið tíðrætt um veikindi
Röggu, vilja sínum hélt hún þó
jafnan styrkum og ekkert um-
ræðuefni féll henni verr en hennar
eigin sjúkrasaga.
Sunnudaginn 10. ágúst kvaddi
sómakonan þennan heim, hún
fékk hægt andlát eftir skamma
legu, andaðist í rúminu sínu
heima, eins og hún hafði helst
kosið sér. Heilsan hafði þó lengi
verið mjög veikburða og ég trúi að
frábær umönnun mannsins henn-
ar, sem bar hana á höndum sér
alla tíð, hafi lengt lífdaga hennar,
ef til vill um mörg ár. Megi guð
létta honum konumissinn og
styrkja hver hans spor, uns hann
hittir hana aftur í ríki ljóssins.
Sonum hinnar látnu og fjölskyld-
um þeirra votta ég mína innileg-
ustu hluttekningu.
Guð blessi minningu Rakelar
frænku minnar, hún er mér sem
öðrum vinum sínum bæði ljúf og
fögur.
Ársæll Þórðarson
i