Morgunblaðið - 20.08.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 1980
25
fclk f
fréttum
•^ý-'áj|yf£S -
-sr a 3Sf=3E5^> -»"*
^ iS'-^n^r ifcm - -v.
+ Eldur kom upp á Rauöa torginu í Moskvu um daginn. Sjónarvottar sögðu að eldurinn hefði logað í
manni. Lögreglan umkrinxdi fljótleKa staðinn. hélt forvitnum mannfjöldanum í skefjum og fjarlægði
síðan öll verksummerki.
+ Kampavínsdrenííirnir voru þeir
kallaðir um daginn dönsku prins-
arnir tveir. Frederik og Joakim.
l>að var í Naksov í Danmorku en
þeir komu þar fram opinherlega
um daKÍnn og skírðu tvö skip.
Þetta voru íerjur sem sisla yfir
Stórabelti ok voru þær skírðar í
höfuðið á prinsunum. Þetta var í
fyrsta skipti sem prinsarnir komu
fram opinberleRa.
Panda-björnin Pe PE stikar hér fram o« aftur í dýraKarðinum í
MexíkóborK en á sunnudattinn annan í var átti hirnan Yintc Yin>;
lítinn hún ok er það fyrsti panda-húnninn. sem er borinn í dýraKarði.
í gær bárust svo um það fréttir, að húnninn væri dauöur. Hafði móðir
hans af einhverjum ástæðum lagst á hann og kæft.
Anderson ítrekar
fyrri fullyrðingar
Washinicton 18. áffúst. AP.
Dálkahöfundurinn Jack And-
erson visaði sl. laugardag á bug
fullyrðingum Hvita hússins þar
sem þvi er hafnað, að ráogcrð
hafi verið innrás í íran. Ander-
son sagðist mundu greina frá
undirbúningi innrásarinnar í
greinaflokki i þessari viku.
í yfirlýsingu, sem Anderson lét
frá sér fara, segir hann, að
ákvörðun Carters um innrásina sé
„fyrst og fremst af pólitískum
toga spunnin" og af þeim sökum
hafi hann ákveðið að grafast fyrir
um sannleikann. Að hans sögn átti
að gera innrásina um miðjan
október til að styrkja stöðu Cart-
ers í forsetakosningunum 4. nóv-
ember.
Harold Brown varnamálaráð-
herra neitaði þvi í gær, að Banda-
ríkjastjórn hefði lagt á ráðin um
innrás í Iran en vildi ekkert um
það segja hvort önnur tilraun yrði
gerð tii að frelsa gíslana. Stór-
blaðið The Washington Post sagði
í gær, að það hefði hafnað því að
birta upplýsingar Andersons
vegna þess að það hefði ekki getað
komist að neinu, sem renndi
stoðum undir fullyrðingar hans.
Sleppa norskum
hringnótabátum
Þórshðfn f Færeyjum. mánudan.
FÆREYSKA eftirlitsskipið
„ólafur helgi“ tók tvö norsk
hringnótaskip að ólöglegum veið-
um norðaustur af Færeyjum á
sunnudag. en Færeyingar munu
ekki lögsækja skipstjórana.
Landstjórn Færeyja kom saman
til fundar um málið í dag og
samkomulag náðist við norsk yfir-
völd þess efnis, að litið verður á
makrílveiðar, sem eru stundaðar
nálægt miðlínunni milli Noregs og
Færeyja, sem tilraunaveiðar.
„Ólafur helgi" kom aldrei til
Færeyja með norsku skipin. Eftir-
litsskipinu var sagt að halda
kyrru fyrir meðan samningavið-
ræður færu fram og þegar þeim
lauk fyrirskipaði landstjórnin að
skipin yrðu látin laus.
Undanfarna daga hafa norsk og
færeysk hringnótaskip fengið
talsvert af makríl á færeysku
svæði norðaustur af Færeyjum.
Norsku skipin voru 15 mílur fvrir
innan færeysku markalinuna þeg-
ar þau voru tekin.
— Arge.
Skæruliðar boða
sókn í S-Afríku
JóhannesarborK. 18. ágúst. AP.
SUÐUR-AFRISKI skæruliðaforing-
inn Oliver Tombo sagði í dag að
liðsmenn hans væru að undirhúa
stórsókn gegn hvítu meirihluta-
stjórninni í Suður-Afriku. nú, þeg-
ar svartri meirihlutastjórn hefði
verið komið á fót i Zimbabwe. Hann
sagðist þó ekki mundu fara fram á
það við stjórn Zimbabwe, að hún
leyfði hreyfingunni að hafa bæki-
stöðvar í Zimbabwe, enda gæti það
stofnað öryggi þessa nýfrjálsa ríkis
i hættu.
Morðið á suður-afríska prófess-
ornum Jan Lombard um helgina
hefur vakið ugg um að í vændum séu
frekari hermdarverk af hálfu öfga-
sinnaðra hægri manna, sem berjast
gegn breytingum á stjórnarfari í
Suður-Afríku. Lombard, sem var
ráðgjafi forsætisráðherrans, P.
Botha, í efnahagsmálum, hafði beitt
sér fyrir því að þeldökkir íbúar
Suður-Afríku fengju takmörkuð
stjórnmálaleg völd í landinu.
Hætt við málssókn
á hendur Granada
London, 18. ágúst. AP.
BRITISH Steel Corp. tilkynnti sl.
laugardag. að það hefði fallið frá
málshöfðun á hendur Granada-
sjónvarpsstöðinni til að fá hana til
að nefna þann mann. sem lét hana
fá skjöl. sem notuð voru i sjón-
varpsþætti um fyrirtækið.
í sjónvarpsþætti Granada-stöðv-
arinnar kom fram, að fremur mætti
rekja erfiðleika British Steel Corp.
til slæmrar stjórnar en verkfalla
starfsmanna. BSC höfðaði mál á
hendur sjónvarpsstöðinni og vann
málið á öllum dómsstigum. Tals-
menn fyrirtækisins héldu því síðan
fram, að þeir hefðu komist að nafni
heimildarmannsins en vegna þess,
að hann ynni ekki lengur hjá því,
hefði málið verið látið niður falla.
Tuttugu og fimm starfsmenn
Observers, elsta sunnudagsblaí.. á
Bretlandi, gáfust upp sl. laugardag
og samþykktu kauptilboð atvinnu-
rekenda, sem höfðu hótað að hætta
við reksturinn ella.
Grafíska sveinafélagið þeirra í
Bretlandi hafði skipað starfsmönn-
unum að ganga til samninga enda
hafði 1800 starfsmönnum blaðsins
verið sagt upp með þriggja mánaða
fyrirvara. Prentararnir sögðust
samþykkja þá „með mikilli tregðu
og nauðugir viljugir."