Morgunblaðið - 20.08.1980, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 1980
31
Öster tapaði
AIK gengur vel
ALDREI þessu vant átti enginn
íslendinganna þriggja stórleik i
„Alsvenska“ er 18. umferð fór
fram siðasta sunnudag. Lands-
krona kom á óvart gegn Öster og
náði jafntefli, ekkert mark var
skorað. Landskrona iék nú sinn
besta leik á tímabilinu. Teitur
Þórðarson var í mjög strangri
gæslu allan leikinn og fékk oft
mjög slæma meðferð hjá varnar-
mönnum Landskrona. Lítið
reyndi á Árna Stefánsson i leikn-
um. Sömu sögu er að segja um
Þorstein ólafsson, það reyndi
lítið á hann i leiknum á móti
Sundsvall en Gautaborg mátti
sætta sig við að tapa leiknum
1—0. Þorsteinn átti enga mögu-
leika á að koma í veg fyrir
markið. Úrslit þessi komu nokk-
uð á óvart.
Lið Öster hefur 4 stiga forystu í
1. deild nú er stutt hlé verður gert
á deildarkeppninni vegna lands-
leiks Svía og Ungverja, og 16 liða
úrslita í sænska bikarnum.
Stórleikur var á dagskrá í 2.
deildinni (norður) er lið AIK lék
við Karlstad en þau eru efst í
deildinni. AIK sigraði 2—0 en
leikurinn fór fram í Karlstad að
viðstöddum 7500 áhorfendum.
AIK hefur sigrað í síðustu sex
leikjum sínum og gert 15 mörk en
fengið á sig 1. Baráttan í norður-
deildinni er geysihörð og hefur
Karlstad forystu með 26 stig en
AIK 25. í suðurdeildinni er líka
hart barist eins og sjá má á því að
þrjú stig skilja á milli efsta liðsins
og þess sem er í áttunda sæti.
Örgryte tapaði öðrum leik sínum í
röð, Órn Óskarsson átti góðan leik
að venju. ,
- HH. Sviþjóí.
Rummemgge bestur
KARL Heinz Rummenigge var
kjörinn knattspyrnumaður árs-
ins í Vestur-Þýskalandi. Hann
fékk langflest atkvæði hjá
íþróttafréttariturum eða 343, fé-
lagi hans fyrirliði Bayern
Munchen, Paul Bretner varð í
öðru sæti með 81 atkvæði. Fyrir-
liði Duisburg, Bernard Dietz kom
svo i þriðja sæti með 44 atkvæði.
Iforst Hrubesch hjá Hamborg
kom næstur með 33 atkvæði.
Keegan sá er sigraði í fyrra varð
í sjötta sæti með 21 atkvæði.
Rummenigge var markahæsti
knattspyrnumaður deildarinnar
í fyrra.
Stórsigur KA
í minnsta lagi
KA var ekki í nokkrum
vandræðum að tryggja sér tvö
stig i viðureign sinni gegn
Fylki i 2. deild Islandsmótsins i
knattspyrnu i gærkvöldi, en
leikið var á glerhálum Laugar-
dalsveilinum. Lokatöiur leiks-
ins urðu 5—2 KA í vil og meira
að segja eftir að leikmenn
liðsins voru orðnir einum færri
sökum brottreksturs Jóhanns
Jakobssonar. voru þeir sterkari
aðilinn og það liðið sem flest
færin fékk. Staðan var orðin
5—0 eftir 50 minútur, þannig
að Fylkir skoraði tvö síðustu
mörkin. En miðað við gang
leiksins hefði verið nær að
KA—menn bættu mörkum við
en ekki Fylkir, hins vegar
sýndu KA—menn ekki sömu
yfirvegun í dauðafærum sinum
í seinni hálfleik og i þeim fyrri.
Það tekur því ekki að ræða
mikið um leik þennan, hann var
fjarri því að vera merkilegur, til
þess var hann of ójafn. En við
skulum renna yfir hverjir skor-
uðu mörkin og hvenær. Haraldur
Haraldsson kom KA á bragðið á
10. mínútu, er hann skoraði
glæsilega beint úr aukaspyrnu af
25 metra færi. Aðeins tíu mínút-
um síðar skoraði Óskar Ingi-
mundarson af stuttu færi eftir
undirbúning Elmars. Á 22. mín-
útu bætti Jóhann Jakobsson
þriðja markinu við eftir hroða-
leg mistök í vörn Fylkis. Og
aðeins 3 mínútum síðar bætti
Óskar við fjórða markinu eftir
að Jóhann, Ásbjörn og hann
sjálfur höfðu splundrað lélegri
vörn Fylkis.
Fylkismenn sóttu sig heldur,
en KA bætti þó fimmta markinu
við á 50 mínútu. Elmar tók þá
hornspyrnu frá hægri, Ásbjörn
skallaði knöttinn aftur fyrir sig
til Óskars sem lauk við þrennu
sína með laglegum skalla. 8
mínútum fyrir leikslok minnkaði
Hilmar Sighvatsson muninn
með marki úr tvítekinni víta-
spyrnu, Óskar hafði varið með
höndum á marklínunni skot
Kristins Guðmundssonar. Krist-
in skoraði svo sjálfur annað
mark Fylkis á síðustu andartök-
um leiksins. I heild var lið KA
miklu sterkara að þessu sinni,
allir stóðu fyrir sínu, Óskar,
Elmar og Ásbjörn voru þó einna
mest áberandi. Hjá Fylki var
það helst Guðmundur Baldurs-
son, svo og Ögmundur í markinu,
sem verður ekki sakaður um
ósköpin. —gg.
Kæran kom
of seint
Lið Vais i fimmta flokki i knattspyrnu. sem lék úrslitaleikinn i íslandsmótinu i knattspyrnu gegn liði
ÍA. Valsdrengirnir töpuðu, 1—0, og höfnuðu því i öðru sæti i mótinu. Ljónm. þr.
Fjórði flokkur pilta úr Þór, Akureyri, sem hafnaði í öðru sæti i íslandsmótinu í knattspyrnu. Þór lék til
úrslita gegn Val og tapaði 5—1. Ljósm Mbi. þr.
KÆRA Hauka á hendur Axeli
Axelssyni og Fram í útimótinu í
handknattleik var afgreidd i
gærkvöldi. Dómstóll kvað þá upp
þann úrskurð, að Axel hefði verið
óiöglegur, en að kæra Hauka
hefði ekki borist timanlega sam-
kvæmt reglum HSÍ. Fram heidur
því sæti sínu í úrslitum keppn-
innar og mætir KR við Austur-
bæjarskóiann í kvöid kl. 19.00.
ísland varð
ekki neðst
ísiendingar höfnuðu i næst
neðsta sæti SAAB—landskeppn-
innar i golfi sem fram fór fyrir
skömmu. íslenska liðið skipuðu
þeir Hannes Eyvindsson, Sveinn
Sigurbergsson og Björgvin
Þorsteinsson, en fararstjóri og
liðsstjóri var Kjartan L Pálsson
landsliðseinvaldur. ítalir höfn-
uðu neðar á blaði en fsland, lið
þeirra lék á samtals 482 höggum,
islenska liðið lék hins vegar á 478
höggum samaniagt.
Islensku piltarnir náðu -ekki
eins góðum árangri og vænta hefði
mátt ef á heildina er litið, og ef
litið er á lokaskor næstu þjóða
fyrir ofan ísland, kemur í ljós, að
með ögn betri frammistöðu hefði
ísland léttilega getað hafnað
tveim til þremur sætum ofar. í
þriðja neðsta sætinu var Danmörk
á samtals 477 höggum. Finnar
komu næstir með 473 högg.
Hannes Eyvindsson náði besta
heildarárangri íslensku keppend-
anna. Hann lék samtals á 156
höggum. Þrátt fyrir fádæma
óheppni fyrsta dag keppninnar,
tókst Björgvin næst best upp
íslensku keppendanna, lék samtals
á 160 höggum. Sveinn lék á 162
höggum. Það voru annars Skotar
sem sigruðu, lið þeirra lék samtals
á 446 höggum. A—lið Svía hafnaði
í öðru sæti á 453 höggum. Austur-
ríkismenn urðu nokkuð óvænt í
þriðja sæti á 459 höggum.
Gullna
mílan
NÆSTKOMANDI mánudag
fer fram mikið míluhlaup i
London og þar mætast allir
fremstu hlauparar heimsins.
Þar á meðal Ovett og Coe.
Hlaup þetta er kallað
„Gyllna mílan" og verður
hlaupinu sjónvarpað um alla
Evrópu beint.
Eiríkur
lék best
UM síðustu helgi fór fram
öldungakeppni í goifi á
Hólmsveili i Leiru. 30 kepp-
endur mættu til leiks. Spil-
aðar voru 18 holur. Sigur-
vegari varð Eiríkur Smith,
lék á 82 höggum, jafnir i
2.-3. sæti urðu Hólmgeir
Guðmundsson og Ólafur
Ólafsson, léku á 83 höggum.
Hólmgeir sigraði svo í
bráðabana. Fjórði i keppn-
inni varð svo Guðmundur
ófeigsson, lék á 84. höggum.
Með forgjöf sigraði Jón
Thorlacius.
Helgi
marði
sigur
10 ÁRA afmæiismót Amb-
assador White Label íór
fram á Nesveilinum sl. laug-
ardag. Keppnin var æsi-
spennandi, þó sérstaklega
einvigið milli Ilelga Hólm og
Jóns Hauks Guðlaugssonar
sem þurftu að heyja bráða-
bana um fyrsta sætið. Bráða-
baninn var mjög spennandi,
báðir fóru þeir á pari á
fyrstu braut, en á annarri
braut fór allt i vaskinn hjá
- báðum og endaði með að
Helgi Hólm marði sigur á 6
höggum (2 yfir pari) og Jón
Haukur fór á 7 höggum.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Án forKjatar:
1. Hrliri Hólm GS »6 36
2. Jón H. GuÖlauKSH. GN 36 36
3. kageto Þórðarw. GR 35 38
MrÖ forgjóf:
1. Ge«tur M. Sl^urÖHs. GB 66 nettó
2. Jón Alfreöss. GL 68 nettó
3. JúIIuh BernburK GR 68 nettó
Sérstök verðlaun voru
veitt fyrir högg næst holu og
hlaut Sigurður Pétursson
White Label Puttara i verð-
laun fyrir að vera 3,05 frá
holu á 6. braut.
Hjólreiða
keppni
Hjólreiðafélag Reykjavikur
heldur sina fyrstu hjólreiða-
keppni í Reykjavik um
næstu helgi.
Keppt verður í 3 flokkum,
12—15 ára og 16 ára og
eldri, einnig verður keppt i
kvennaflokki ef næg þátt-
taka fæst. Hjólreiðakeppni
þessi er sú fyrsta sinnar
tegundar hér í Reykjavik og
er ætlunin að kcppni þessi
verði árlegur viðburður.
Veittir verða farandbikarar
ásamt verðiaunaprningum
og viðurkenningarskjölum.
Hjólað verður ca. 10 km á
hringlaga braut i eldri
flokk. og 5 km í yngri og i
kvennaflokki. Búist er við
góðri þátttöku. þar sem
hjóireiðanotkun hefur átt
sivaxandi fylgi að fagna
undanfarin ár.