Morgunblaðið - 21.08.1980, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1980
5
Pétur Pétursson þulur:
Að draga núll
á tombólunni
ÞAÐ var eins og meistari Jakob
væri kominn í Brúðuleikhúsinu og
togað væri í strengina að tjalda-
baki þegar þeir Ragnar og Kristj-
án skrifuðu undir pakkasúpusa-
mninginn í gær. Og eftir fregnum
að dæma ríkir einhugur í sam-
ninganefndinni. Vilhjálmur
Hjálmarsson var prúðmannlegur
að vanda og hreyfði ekki pennann.
Hann hlýtur líka að hafa verið
orðinn dasaður eftir að teyma
mannskapinn í Austfjarðarþok-
unni þangað til þeir sáu ekki milli
augna en hrópuðu allflestir í kór:
Við viljum Vilkó.
Ýmsir trúðu ekki sínum eigin
augum er þeir horfðu á sjónvarps-
fréttirnar. Voru þetta sömu menn-
irnir er sátu hverja ráðstefnuna
eftir aðra nú á þessu ári og
undirbjuggu vandaða kröfugerð
þar sem allt að 60% launahækkun
er talin óhjákvæmileg til þess að
halda í við kjararýrnun?
Voru þetta sömu mennirnir og
læddust með leynd og hvísluðu
trúnaðarorðum um ólöglegar að-
gerðir og áhættusamar og stefndu
múgnum til mannfunda og
heitstrenginga í tíð Matthíasar?
Hvað var orðið af allri baráttu-
gleðinni? Sögðu ekki þeir félagar á
fundum, allt til skamms tíma, að
þeir ætluðu að endurheimta allt
sem af opinberum starfsmönnum
var tekið frá fyrri samningum?
Það virðist ekki vera sama hver
stendur fyrir ríkistombólunni. Nú
er Kristján hinn ánægðasti. Hann
fær að standa við tombólukassann
og útdeila núllum að vild. Og
Haraldur að hræra í Vilkópakka-
súpunni. En lífeðlisfræðingurinn
sér um að bæta í hana vatni. Hann
segir að hollast sé að allir launa-
menn séu í launaflokki H20.
Esaú seldi frumburðarréttinn
fyrir baunadisk. Kristján fékk
pakkasúpu.
En með hverju á að greiða
síhækkandi vörur og húsnæði og
þjónustu. Ætla opinberir starfs-
menn og verkalýður að láta
krossatossa í ómældri aukavinnu
hafa sig að pólitískum attaníoss-
um og lama stéttarvitund sína og
samtök?
Stóri messudagur
inn í Skálholti
Hinn svokallaði „Stóri
messudagur" verður í Skál-
holti þann 24. þessa mánaðar.
Að þessu sinni verður þess
minnst, að 900 ár, eru síðan
fsleifur biskup lézt og mun
ísleifsreglan sjá um helgihald
þennan dag. Kl. 12 verður
sungin miðmundatíð, kl. 17
verður hátíðamessa, þar sem
sungið verður Ordinarium
„Missa de Angelis", en upp-
runi hennar verður rakinn til
Innheimtuveski
tapaðist
EINN blaðburðarmanna Morgun-
blaðsins tapaði innheimtuveski
með peningum á Freyjugötu í
Reykjavík. Er finnandi vinsamleg-
ast beðinn að hafa samband við
skrifstofu Morgunblaðsins.
samtíðar ísleifs biskups.
Handrit messunnar verður fá-
anlegt á staðnum. Strax á eftir
messunni verður gengið inn í
Skálholtsskóla, þar sem Is-
leifsreglan heldur opinn fund
fyrir þá, sem vilja kynnast
þessari starfsemi. Um kvöldið
verður síðan sunginn nátt-
söngur.
Stjórn reglunnar skipa:
Séra Sigurður Pálsson vígslu-
biskup formaður, Helgi Braga-
son organisti varaformaður,
Smári Olason kirkjutónlista-
maður ritari, Glúmur Gylfa-
son organisti gjaldkeri og séra
Sigmar Torfason prófastur
meðstjórnandi. í varastjórn
eru séra Valgeir Ástráðsson
sóknarprestur og Þorgerður
Ingólfsdóttir kórstjóri. Félag-
ar í Isleifsreglunni eru nú nær
60 talsins.
Sumarferð Fríkirkjusafn
aðarins i Hafnarfirði
ÁRLEG sumarferð Fríkirkju-
safnaðarins í Hafnarfirði verður
að þessu sinni farin austur í
Þjórsárdal á sunnudaginn kem-
ur, 24. ágúst. Hin óvæntu eldsum-
brot i Heklu gera ferðalagið
trúlega enn áhugaverðara. Gosið
blasir að sjálfsögðu vel við úr
Þjórsárdal og kann að vera að
farið verði eitthvað nær gosstöðv-
um, en ekki vcrður lagt í neina
tvísýnu til þess, segir i frétt frá
Fríkirkjusöfnuðinum.
Lagt verður af stað frá Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði kl. 9.30 á
sunnudagsmorgun. Ekið verður
upp Skeið og skoðuð hin sérstæða
veggmynd Balthasar í Ólafsvalla-
kirkju. Er komið er upp í Gnúp-
verjahrepp, mun Ásólfur Pálsson
á Ásólfsstöðum taka á móti hópn-
um og verða leiðsögumaður um
heimabyggð sína.
I Þjórsárdal verður sögualdar-
bærinn skoðaður, svo og Hjálpar-
foss, menjar að Stöng og sitthvað
fleira til fróðleiks og augnayndis.
Á heimleiðinni verður hópurinn
við messu í Stóra-Núpskirkju.
Séra Sigfinnur Þorleifsson er
sóknarprestur Gnúpverja.
Þátttakendur eru beðnir að taka
með sér nesti til hádegisverðar.
Matast verður úti á fallegum stað
ef veður leyfir, annars verður
komi við í Ásaskóla. Eftir messu
verður hinsvegar drukkið kirkju-
kaffií hinu myndarlega samkomu-
húsi Gnúpverja, Árnesi. Komið
verður heim í tæka tíð fyrir
kvöldmat.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
mcíano ?#*#?**
S9óf6^Íp^LqasSac
^eruú'-
Ufcúoaveflí J j