Morgunblaðið - 21.08.1980, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1980
11
(>I»A It.i U •) 7 <• h
31710
31711
Blikahólar
Glæsileg 2ja herb. 65 ferm íbúö
á 6. hæö. Góöar innréttingar.
Stórkostlegt útsýni. Verð 26—
27 millj.
Nökkvavogur
Mjög falleg 2ja herb. íbúö á
jaröhæö, 55 ferm. Sér inngang-
ur. Verö 25—26 millj.
Smyrlahraun
Góð 3ja herb. 100 ferm íbúö í
fjórbýli. Bílskúr. Verö 39 millj.
Eyjabakki
Afar falleg 4ra herb. 110 ferm
íbúð á 1. hæð. Þvottaherb.
innaf eldhúsi. Laus fljótt. Verö
39 millj.
Vesturberg
Mjög falleg og notaleg 4ra herb.
110 ferm. íbúö á 1. hæö. 2
stofur, sér garður. Verö 38 millj.
Hrafnhólar
Vönduð 4ra herb. 100 ferm
íbúö á 1. hæð. Lagt fyrir
þvottavél á baöi. Bílskúr. Verö
43 millj.
Kársnesbraut
Sérhæö 150 ferm. 2 stofur, 4
svefnherb., bílskúr. Verö 65
millj.
Sundlaugarvegur
Sérhæö 115 ferm. 2 stofur, 2
svefnherb., 1 herb. í kjallara.
Bílskúr. Verö 55 millj.
Markholt
Vandaö einbýlishús 130 ferm. 4
svefnherb., stór stofa, stór og
falleg lóö. Bílskúrsréttur. Verð
65 millj.
Nökkvavogur
Sænskt einbýlishús úr timbrl
110 ferm á steyptum kjallara.
Stór bílskúr. Mjög falleg eign í
grónu hverfi. Verö 85 millj.
Fasteigna-
SeíTd
Fastelgnaviðslclpti:
Guðmundur Jónsson. sími 34861
Garðar Johann Guðmundarson.
sími 77591
Magnús Þórðarson. hdl.
GrtMisd' vt>gi 1 1
XKil.VSINt.ASIMIW KR:
22480
Yiðræður eru hafnar
um Rockall-svæðið
1 SAMTALI. sem MorKunblaðið
átti á þriðjudaK. við Eyjólf Kon-
ráð Jónsson. fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins á Hafréttarráðstefnunni
í Genf. kom fram. að viðræður við
FæreyinKa og Dani um Rockall-
málið eru hafnar í samræmi við
ályktun Alþingis frá 19. maí sl. og
fyrirmæli utanrikisráðuneytisins.
en síðan er ráðgert að ræða við
Breta og íra. Miða þessar umræð-
ur að því að komast hjá árekstrum
og tryggja hagsmuni tsiendinga á
hafshotninum suður af landinu.
Eyjólfur sagði, að nú hefði veru-
lega miðað í samkomulagsátt
varðandi yfirstjórn alþjóðahafs-
botnssvæðisins og menn væru því
bjartsýnir á. að þeim árangri yrði
náð, sem að er stefnt i Genf. Ekki
væri því lengur til setunnar boðið.
heldur yrði að hraða aðgerðum til
að tryggja islenzka hagsmuni
Málum miðar
nú vel áfram
á Hafréttar-
ráðstefnunni
vestur af Rokknum og á Hatton-
banka.
— í síðustu viku komu fyrirmæli
að heiman til formanns íslenzku
sendinefndarinnar, Hans G. And-
ersens, um að taka upp viðræður
við þá, sem telja sig eiga hagsmuna
að gæta á Rockall-svæðinu og hafa
um það fullt samráð við fulltrúa
þingflokkanna á Hafréttarráð-
stefnunni, — sagði Eyjólfur Kon-
ráð Jónsson. — Við héldum því
fund þar sem ákveðið var að Hans
G. Andersen undirbyggi málið við
Færeyinga og Dani og gerir hann
það í dag. Annars er hann einnig í
dag, þriðjudag, á fyrsta formlega
fundi sáttamannanna í Jan May-
en-málinu ásamt þeim Jens Evens-
en og Elliot Richardson, aðal-
fulltrúa Bandaríkjanna, en hann
var formlega skipaður oddamaður í
nefndinni síðastliðinn föstudag.
Rockall-málið er ekki síður
vandasamt en Jan Mayen-málið og
hagsmunirnir miklir, — sagði Eyj-
ólfur. — Þótt Alþingi hafi mótmælt
tilraunum Breta og íra til að taka
sér réttindi vestan Rokksins er ekki
þar með sagt, að ekkert eigi við þá
að tala. Ljóst er hins vegar að
Islendingar hafa markað sér þá
stefnu að hafa eins nána samvinnu
við Færeyinga í þessu máli og þeir
óska, en málið er ekki síður vand-
meðfarið af þeirra hálfu. Kröfu-
gerð íra og Breta er meira en
hæpin. Þá tel ég sjálfsagt að reyna
á það hvort þessar fjórar þjóðir
gætu með einhverjum hætti komið
sér saman, t.d. með því að hagnýta
allt svæðið eða hluta þess sameig-
inlega og vera sameigendur hafs-
botnsins og auðæfa hans. Er það
sama hugsunin og margsinnis var
sett fram við Norðmenn í Jan
Mayen-deilunni.
Hörð átök um yfirráðin á svæð-
inu vestur af Rokknum gætu leitt
til langvarandi deilna, sem engin
leið er að sjá fyrir endann á.
Vonandi verður öllum það ljóst í
þeim viðræðum, sem framundan
eru hér í Genf, hvaða áhætta fylgdi
slíkri framvindu, en á þessu stigi
tel ég ekki hyggilegt að ræða málið
ítarlegar, — sagði Eyjólfur Konráð
Jónsson að lokum.
Eldmessa
Að sækja tónleika austur í
Skálholt frá Reykjavík er þeim
annmarka bundið er varðar
ástand vega, þar sem malbikun
þrýtur. Hvörfin, sem eru sér-
kenni vegarins undir Seiðishól-
um, verka eins og heljarsterk
áhersla utan við takt og hljóma,
eggharður vegurinn undir með-
fram Ingólfsfjalli, minnir á
hranalegan flutning rómantískr-
ar laglínu og lausamölin á vegin-
um frá Minniborg til Skálholts,
á óaflátanlegt suð af gamalli
hljómplötu. Margbrotinn hrynur
og blæbrigði einkenna íslenska
vegagerð og að eiga leið um
þessa vegi með það erindi eitt að
hlusta á orgelleik og hafa á leið
sinni fram undan sér ógn-
þrungna mynd af stórgosi í
Heklu, rétt eins og ekkert væri
sjálfsagðara er auðvitað sér ís-
lenskur samleikur andstæðn-
anna.
Ragnar Björnsson fyrr-
verandi dómorganleikari hélt
tónleika í Skálholti og að sitja
inni í kaldri kirkjunni meðan
Hekla logaði enda á milli og
hlusta á Ragnar leika íslenska
orgeltónlist, minnti á Eldmessu
séra Jóns Steingrímssonar:
nUm sumarid sjaldan sáum
sól fyrir mökkum háum
med ódaun ofurþráum.
askan sat á stráum.“
Áþján og ok hins fátæka
verður skemmtan hins ríka og
nú valda gosin hin minni ekki
Tónllst
eftir JÖN
ÁSGEIRSSON
lengur landflótta, heldur safnast
fólk saman í flokkum til að sjá
það sem áður var nefnt nöfnum
eins „ógn helvítis" en nú nátt-
úruundur. Þannig hefur og inni-
hald þeirrar tónlistar, sem leikin
var á orgel Skálholtskirkju
breytt um merkingu og orgelið,
sem bæði var notað til að túlka
himnavist og helvítiskvalir við
kraftmiklar trúarathafnir, er nú
notað að mestu til að tjá undur
tónmenntanna. Þannig fór sam-
an kraftmikill hljómur orgelsins
og þeirra átaka í iðrum jarðar-
innar er umhverfðust í ógn-
þrungna mynd litlu austar, að
einni hljómkviðu og mætti vel
benda myndatökumönnum á
slíkt samspil mynda og hljóma.
Tónleikarnir hófust á tignarlegri
Chaconnu, eftir Pál Isólfsson,
yfir upphafsstef Þorlákstíða.
Miðhluti tónieikanna var settur
saman af sálmforleikjum eftir
fimm íslensk tónskáld. Fyrst
flutti Ragnar tvo sálmforleiki
eftir sjálfan sig yfir sálmalögin
Himnarós og þá mæðubára
minnsta rís.
Ragnar er góður orgelleikari
og ekki þyrfti það að koma á
óvart, að hann ætti eftir að láta
heyra til sín á sviði tónsmíða, ef
dæma má eftir þessum stuttu
verkum. Yfir þeim var fallegur
og sérkennilegur blær. Eftir
Ragnar forleik yfir sálmalagið
Jesú mín morgunstjarna og lag
er ekki var frekar kynnt en með
nafninu, í kirkjugarði. Hugleið-
ingin um fyrra lagið var nokkuð
mislit í stíl en yfir því nokkur
þokki. Seinna lagið var eins og
hlutur, sem er skakkskotið inn á
milli án þess þó að valda veru-
legri röskun. Eftir Leif Þórar-
insson voru viðfangsefni sótt í
17. passíusálm Hallgríms og
Liljulagið, en í þessum verkum
er ekki unnið út frá óbreyttri
laglínu laganna.heldur unnið úr
einstökum stefjum þeirra, svo að
erfitt er að greina lagbrot
sálmalaganna. I Liljulaginu
mátti greina mörg falleg blæ-
brigði og skemmtilegar tóntil-
tektir. Eftir Atla Heimi Sveins-
son voru flutt tvö tilbrigði við
sálmalög eftir Sigfús Einarsson
og eru bæði lög Sigfúsar og
sálmforleikir Atla heldur svip-
lítil tónverk en þó hljómþýðir.
Tveir síðustu sálmforleikirnir
eru eftir Jón Nordal, sá fyrri við
sálminn Hreint skapað hjarta
(Kær Jesú Kristi) og en sá seinni
er saminn yfir lag, sem aldrei
var sungið. Þar fæst Jón við
nýstárlegar hljómagerðir, sem
hann fléttar saman á fínlegan
hátt. Tónleikunum lauk svo með
Prelúdíu, Kóral og fúgu, eftir
Jón Þórarinsson, gamalkunnugt
og gott verk, sem Ragnar
Björnsson flutti vel og örugg-
lega. Eftir þessa góðu tónleika
var tekið til við að rýna í
Hekluelda og um nóttina var
haldið heim frá þessari hrika-
legu eldmessu í iangri lestarferð,
sem framundan liðaðist eins og
rauður ormur í dökkri skugga-
mynd landsins.
Philips
Þú getur
reitt þig á Philips frystikistur...
Þegar þú kaupir frystikistu er þaö til geymslu á matvælum um lengri tíma.
Hún veröur því að vera traust og endingargóö. Þar kemur Philips til móts við
þig með frystikistur,sem hægt er aö reiða sig á. *
Phiiips frystikistur eru klæddar hömruðu áli.
Philips frystikistur gefa til kynna með sérstöku aðvörunarljósi, ef frostið fer
niður fyrir 15°.
Philips frystikistur hafa lykillæsingu.
Philips frystikistum fylgja 2—3 lausar grindur.
Philips frystikistur hafa Ijós í loki.
Philips frystikistur fást í stærðunum 260 I. — 400 I. — 500 I. og 600 I.
Philips viðgerðarþjónustu getur þú treyst.
Þú kaupir Philips fyrir framtíðina.
heimilistæki hf