Morgunblaðið - 21.08.1980, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1980
Komur skemmtiferðaskipa í ár:
Síðasta skipið
kemur í dag
SÍÐASTA skemmtiferða.skipið á
þessu sumri er væntanlegt til
Reykjavíkur í dag og heitir það
Mermoz frá Frakklandi. Komur
skipa hafa því orðið 17 á þessu
sumri. en nokkur skip komu
oftar en einu sinni.
Það er ljóst að um nokkra
fækkun farþega hefur orðið að
ræða, en það vekur einnig athygli
að skipin eru áberandi minni en
áður. Eins og venjulega hafa
skipin iðulega haft viðkomu á
Akureyri og hefur Ferðaskrifstofa
Akureyrar séð um alla fyrir-
greiðslu við skipin en fimm ferða-
skrifstofur hafa séð um þjónustu
við skipin hér í Reykjavík.
Ferðir Smyrils í sumar:
Aukning í kom
um útlendinga
FÆREYJAFERJAN Smyrill fór
sína fyrstu ferð frá Seyðisfirði
3.júni sl. og hefur hún frá þeim
tíma komið hingað til lands einu
sinni í viku með brottför á
þriðjudögum.
Síðasta ferð ferjunnar verður
þriðjudaginn 16. september og
hefur hún þá farið 16 ferðir i
sumar sem er einni ferð fleira en í
fyrra. Sú nýbreytni var tekin upp í
ferðum ferjunnar í sumar, að
nýjum viðkomustað var bætt við,
en það var bærinn Hanstholm á
Jótlandi í Danmörku. í upplýsing-
um sem fengust hjá Ferðaskrif-
stofunni Úrval hefur tala íslend-
inga sem tóku ferjuna staðið í
stað, en aukning hefur orðið í
komum erlendra ferðamanna, að-
allega frá Frakklandi. Eins og
fyrri ár, er mjög vinsælt að taka
bifreiðar með í ferðina og það er
t.d. mjög vinsælt meðal Islendinga
að taka ferjuna til Bergen.aka
þaðan um Evrópu og taka síðan
ferjuna til baka á Skotlandi ein-
hverjum dögum eða vikum síðar.
Alþýðuflokksmenn í bæjarstjórn Kópavogs:
Ætla að halda
meirihlutasam-
starfinu áfram
EINS og fram hefur komið í
fréttum Mbl. greiddu Alþýðu-
flokksmenn i Kópavogi atkvæði
gegn tillögu um kaup Kópavogs-
bæjar á Fifuhvammslandi. sem
samþykkt var í bæjarstjórn
Kópavogs.
Um tíma leit út fyrir að meiri-
hlutasamstarf Alþýðuflokks, Al-
þýðubandalags og Framsóknar-
flokks væri í hættu vegna þessa
máls, en Guðmundur Oddsson
oddviti Alþýðuflokksmanna í
bæjarstjórninni, upplýsti í viðtali
við Morgunblaðið að á bæjarmála-
ráðsfundi sem Alþýðuflokksmenn
héldu, hefði verið ákveðið, að
halda samstarfinu áfram, þrátt
fyrir að þungt hljóð væri í
mönnum vegna þessa áls. Guð-
mundur Oddsson sagði, að eftir-
mál þessa yrðu engin af þeirra
hálfu, en framtíðin yrði að skera
úr um hvort þetta mál hefði
skaðað samstöðu meirihlutaflokk-
ana.
Hluti gestanna á afmælishátiðinni.
Sjáifetæðisfélagið ÞjóðóK-
ur í Bolungarvík 50 ára
í síðasta mánuði var haldið upp
á fimmtíu ára afmæli Sjálfstaeð-
isfélagsins bjóðólfs í Bolung-
arvík. Afmælisins var minnst
með fagnaði fyrir félagsmenn
og gesti i Félagsheimilinu i
Bolungarvík. Meðal gesta var
Geir Hallgrimsson formaður
Sjálfstæðisflokksins en þing-
menn Sjálfstæðisflokksins á
Vestfjörðum. sem boðið var,
gátu ekki komist en þeir sendu
allir kveðjur. Kveðjur bárust
frá fleiri aðilum og má þar
nefna fyrrverandi þingmenn
Sjálfstæðisflokksins Sigurð
Bjarnason frá Vigur, sendi-
herra í London. í stjórn Sjálf-
stæðisfélagsins Þjóðólfs eru Jón
Fr. Einarsson formaður, Karl
bórðarson gjaldkeri og Guð-
mundur Agnarsson ritari, en
hann las upp sögu félagsins á
afmælishátíðinni.
Geir Hallgrimsson formaður
Sjálfstæðisflokksins flytur
ræðu sina.
Gisli Hjaltason einn af stofn-
endum Þjóðólfs.
Þar kom fram, að Þjóðólfur
var stofnaður 13. júlí 1930 og
voru stofnfélagar 117, sem sýnir
þann mikla áhuga sem ríkti
þegar félagið var stofnað. Félag-
ið lét þegar í stað mörg mál til
sín taka, bæði stór og smá og má
nefna, að athuganir voru gerðar
á atvinnumálum á fyrstu árum
félagsins og m.a. var stofnuð
nefnd, sem átti að kanna mögu-
leika á því, að taka skip á leigu
til síldveiða. Þá voru einnig uppi
hugmyndir um að leita eftir
landskika til kartöfluræktar, en
á þessum dæmum má sjá, að
starfið í upphafi var margþætt
fyrir utan hið hefðbundna
stjórnmálastarf. Þess má geta
að tveir brautryðjenda félagsins
sátu afmælishátíðina, þeir Einar
Guðfinnsson og Gísli Hjaltason,
en af öðrum frumkvöðlum fé-
lagsins má nefna Halldór Krist-
insson, Kristján Ólafsson,
Högna Gunnarsson, Jóhannes
Teitsson, Ólaf Ólafsson og Pétur
Oddsson yngri.
Á þessum fimmtíu árum sem
liðin eru frá stofnun Sjálfstæðis-
félagsins Þjóðólfs hafa margir
gegnt margs konar ábyrgðar-
stöðum í félaginu til lengri eða
skemmri tíma.
Formenn félagsins frá upphafi
hafa verið Steinn Emilsson,
Kristján Ólafsson, Halldór
Kristinsson, Páll Jónsson, Jó-
hannes Teitsson, Benedikt Þ.
Benediktsson, Jónatan Einars-
son, Friðrik Sigurbjörnsson,
Guðmundur B. Jónsson og nú-
verandi formaður Jón Fr. Ein-
arsson.
Á afmælishátíðinni sem var
fjölsótt fluttu ræður þeir Geir
Hallgrímsson, Jónatan Einars-
son og Einar Kr. Guðfinnsson.
Hiibner á unna biðskák
í gær var tefld 9. einvíg-
isskák Hiibners og Portisch.
Hiibner hafði hvítt en engu
að síður tókst Portisch að
ná betri stöðu snemma í
skákinni. í framhaidinu lék
hann illilega af sér og Hiibn-
er var ekki lengi að notfæra
sér það. Þegar skákin fór í
bið stóð Htibner til vinn-
ings. En sjón er sögu ríkari:
Hvítt: R. Hiibner
Sikileyjarvörn
Svart: L. Portisch
1. e4 - c5, 2. Rf3 - d6, 3.
d4 — cxd4, 4. Rxd4 — Rf6,
5. Rc3 — a6, Najdorfaf-
brigðið svonefnda sem Port-
isch hefur notað með góðum
árangri að undanförnu. 6.
Be3 - e6, 7. f4 - b5, 8. Df3
- Bb7, 9. Bd3 - Rbd7, 10.
g4 — Rc5, 11. g5. Að
sjálfsögðu var 11. a3 örugg-
ari leikur en Hiibner er ekki
í neinum jafnteflishugleið-
ingum núna. — b4! 12. gxf6
— bxc3, 13. fxg7 — Bxg7,
14. bxc3 — Dc7. Svartur
stendur nú vel að vígi enda
hefur hann nægar bætur
fyrir peðið. 15. Hbl —
0-0-0, 16. Ke2!? Eflaust
skásti kosturinn! — Hhe8.
Eftir 16. - f5, 17. Hxb7 -
Dxb7, 18. exf5 fær hvítur 2
peð uppí skiptamun. 17.
Hhgl - Bh8, 18. f5 - e5?!
Skák
eftir JÓHANNES
GÍSLA JÓNSSON
18 — d5! var sterkara og
hvítur stendur mjög höllum
fæti 19. Rb3 — Rxe4. Þetta
var hugmyndin með 18. leik
svarts. Hvítur sleppur nú
fyrir horn í bili. 20. Bxe4 —
Dc4+, 21. Kd2 - Bxe4, 22.
Df2 - Kd7, 23. Bb6 - Hb8,
24. Kcl - Ba8, 25. Rd2 -
Da4, 26. f6 - Bd5, 27. c4 -
Bxc4, 28. Hg4 - Da3+, 29.
Hb2 - Be6, 30. Rc4 - Dh3?
Eftir 30. — Dxb2+! ásamt 31.
— Bxg4 stendur svartur bet-
ur. Nú kemur heldur betur
banvæn sending 31. Rxe5+!
— dxe5, 32. Hd4+ — Bd5.
Eini leikurinn. 33. Hxd5+ —
Ke6, 34. Hc5 - Dh6+ 35.
Kbl - Df4, 36.Hc6+ - Kf5,
37. De2 - h6, 38. Hb3 -
Kg6, 39. Hf3 - Dd4, 40.
Hb3 - Dd5
Hér fór skákin í bið. Hvítur á
um margar vinningsleiðir að
velja. Ein þeirra er 41. Dg4+
- Kh7, 42. Df5+ - Kg8, 43.
Hcc3 og svartur er varnar-
laus. Fleiri svona skákir
takk!