Morgunblaðið - 06.09.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1980
3
Eftir ólætin í miðborginni:
Borgarstjórn krefst
aukinnar löggæslu
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur hafa þurft að búa við, samanber
samþykkti á fundi sinum í fyrra- ályktanir þeirra."
kvöld tillögu frá Davíð Oddssyni
bogarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins þar sem óskað er aukinnar
löggæslu i borginni vegna óláta
og skemmda i miðbænum um
síðustu helgi. Tillaga Daviðs var
samþykkt með 15 samhljóða at-
kvæðum. og lýstu fulltrúar allra
flokka stuðningi sinum við hana.
Ályktunin sem samþykkt var, er
svohljóðandi:
„Borgarstjórn Reykjavíkur átel-
ur harðlega þau skemmdarverk,
sem unnin hafa verið á gróðri í
görðum borgarinnar að undan-
förnu. Miklum fjármunum og
vinnu er varið til að fegra og
prýða borgina á ári hverju. Óþol-
andi er að skemmdarvörgum skuli
haldast uppi að gera slíka viðleitni
að engu á örskammri stund.
Borgarstjórn hlýtur að gera þá
kröfu, að löggæsla í borginni sé
svo öflug að hún geti spyrnt á
móti slíkri skemmdarstarfsemi og
varið íbúðahverfi fyrir ágangi eins
og þeim sem íbúar Grjótaþorps
Gylfi Þ. heldur
ræður í Varsjá
og V-Þýzkalandi
GYLFI Þ. Gíslason fyrrverandi
ráðherra heldur á næstu dögum til
Póilands og V-Þýzkalands, þar
sem hann mun flytja ræðu hjá
íslendingafélögum í nokkrum
borgum. Upphaflega var dr. Gylfa
boðið að koma til Kölnar 25.
september og halda þar hátiðar-
raéðu á 25 ára afmælishátið þýzk-
islenzka félagsins þar. Formaður
þess félags er Max Adenauer, sem
var á sínum tfma fjármálaborgar-
stjóri Kölnar, en hann er sonur
Konrads Adenauer fyrrum kansl-
ara.
Síðar var Gylfa einnig boðið að
halda ræðu hjá samsvarandi félög-
um í Hamborg, Lúbeck og Dort-
mund og hjá Freie Universitet í
V-Berlín. Loks bættist síðan
pólsk-íslenzka félagið í Varsjá við
og mun Gylfi fyrst fara þangað.
Formaður þess félags er Margaret
Schlau. Ræðu sína í vestur-þýzku
borgunum kallar Gylfi: „Island og
Islendingar. Verður þúsund ára
gömul menning varðveitt í nútíma
iðnríki." I Póllandi mun Gylfi hins
vegar tala um íslenzka ull og
skinnavörur að beiðni Pólverja,
sem kaupa árlega mikið af skinna-
vörum frá íslandi.
Um 50% kjör-
sókn hjá BSRB
UM 50% kjörsókn var í atkvæða-
greiðslu BSRB um samkomulagið
við ríkið, en kosningu lauk í gær-
kvöldi. I Reykjavík var kjörsókn
aðeins fyrir ofan landsmeðaltal eða
um 55% og sagði Kristján Thorla-
cius, formaður BSRB, í gærkvului,
að hann teldi þetta viðunandi kjör-
sókn. Talið verður í uíig ! atkvæða-
greiðslunni.
Tvær sölur
TVÖ skip lönduðu afla sínum í
Bretlandi í gær. Heimaey seldi 41
tonn í Grimsby fyrir 25.5 milljónir,
meðalverð 618 krónur. Guðsteinn
seldi 156 tonn í Hull í gær og
fyrradag fyrir 80 milljónir króna,
meðalverð 511 krónur.
Hvernig væri að bregða sér í Laugardalshöll um helgina?
Kynna sér nýjungar, t. d. á sviði andlitsfegrunar, saumaskapar og matargerðar,
- jafnvel fá að smakka.
Eða nýta sér kynningarafslætti sem ýmsir sýnendur bjóða. Þannig er hægt að
kaupa sér ólíkar vörur á góðum kjörum, kaffi, postulín, fiskibollur, tískuvörur,
hljómplötur, blóm og margt, margt fleira. Og að þessu loknu, spillir heimsókn á
tívolísvæðið ekki fyrir.
Sýningunni „Heimilið 80“ lýkur annað kvöld.
Missið ekki af sýningarviðburði ársins.
Opið í dag laugardag og á morgun sunnudag frá kl. 1 -23.00
Um 64 þúsund hafa
skoðað Heimilið ’80
UM 64 þúsund manns höfðu í
gærkvöldi komið á sýninguna
Heimilið '80 í Laugardalshöllinni.
Sýningin opnar í dag og á morgun
klukkan 13 og lokar klukkan 23, en
síðasti sýningardagur er á morg-
un. Meðal þess, sem fyrir augu ber
á sýningunni eru tízkusýningar.
sem Karnabær hefur verið með.
Um helgina verða þær klukkan
15.15, 18.15 og 21.15. Einnig
skemmta Jóhann Helgason og
Helga Möller og árita plötu sína
klukkan 17 báða dagana.