Morgunblaðið - 06.09.1980, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1980
11
Erna Ragnarsdóttir, íorm. Félags húsgagna- og innanhússarkitekta:
Hvers vegna einokun?
útboðslýsing
tarbiðskýli fyrir svr
Fyrir nokkru ákváðu Stræt-
isvagnar Reykjavíkur að efna
til samkeppni um hönnun
gangstéttabiðskýla í Reykjavík.
Tilgangur keppninnar eins og
getið er í samkeppnisgögnum
er að fá fram tillögur um gerð
og lögun gangstéttarbiðskýla
við musmunandi aðstæður.
Ætla mætti að forráðamenn
Strætisvagna Reykjavíkur
vildu vanda vel til þessarar
samkeppni með því m.a. að gefa
öllum landsmönnum kost á að
spreyta sig og ekki þá síst þeim
fjölmörgu sem nota strætis-
vagna að staðaldri. En reyndin
er sú að íbúar Reykjavíkur, sem
ferðast dagiega með þessum
vögnum og þekkja þá og biðsk-
ýlin best í reynd voru útilokaðir
frá samkeppni. Allir iðnhönn-
uðir og hönnuðir yfirleitt voru
útilokaðir, allir húsgagna- og
innanhússarkitektar, lands-
lagsarkitektar og mynd-
listarmenn.
Þeir einir, sem rétt hafa til
þess að láta sér detta eitthvað
nýtt í hug í þessum efnum og
taka þátt í samkeppninni, voru
ARKITEKTAR og aðrir sem
hafa rétt til að leggja upp-
drætti af húsum fyrir bygg-
inganefnd Reykjavíkur, enda
var farið eftir samkeppnisregl-
um ARKITEKTAFÉLAGS IS-
LANDS.
Nú er það einu sinni svo að
íslendingum hefur tekist
þokkalega að gera ýmsa hluti
þótt þar hafi enginn ARKI-
TEKT komið nærri. Ekki er
heldur vitað að islenskir ARKI-
TEKTAR hafi til þessa sýnt
strætisvögnum sérstakan
áhuga svo að réttlæta megi
útilokun margra aðila, sem
standa þessum málum nær, frá
þessari samkeppni. Hvergi hafa
ARKITEKTAR komið nærri
hönnun strætisvagnanna
sjálfra sem eru þó mun stærri
og flóknari hlutir en biðskýlin.
Þessir vagnar eru yfirleitt
hannaðir af iðnhönnuðum,
vélaverkfræðingum og vél-
tæknifræðingum. Hvers vegna
eru þessir aðilar útilokaðir frá
samkeppninni? Hvers vegna fá
innanhússarkitektar, sem vita
mikið meira um innréttingar
og um rými næst fólki heldur
en margir arkitektar, ekki að
taka þátt í þessari samkeppni?
Margir bestu ARKITEKTAR
heims eins og Le Corbusier og
Frank Loyd Wright höfðu ekki
menntun til þess aðgeta komist
í ARKITEKTAFELAG ÍS-
LANDS, en teiknuðu þó ekki
verri hús en islensk ARKI-
TEKTASTÉTT.
Umhverfi okkar er mjög til
umræðu þessa daga og áhugi
fólks fyrir að taka þátt í mótun
umhverfis síns fer vaxandi —
sem er um leið meginforsendan
fyrir að takast megi að þróa
þau mál til betra horfs. Sér-
fræðingar hafa fram að þessu
einokað þekkingu og umræðu
um umhverfið og hvernig megi
hafa áhrif á mótun þess. Svo
virðist að sú stefna skuli ríkja
áfram.
Almenningur á íslandi og
þær starfsstéttir, sem vilja og
telja sig geta lagt eitthvað af
mörkum til þess 'að bæta bið-
skýli fólks í Reykjavík og um-
hverfið yfirleitt, láta ekki bjóða
sér svona vinnubrögð.
í DAG KL. 9-7
HÚSGAGNAKYNNING
A húsgagnakynningunni í dag kynnum við m.a. landsins mesta
úrval af forstofukommóðum með speglum. 22 tegundir i ýmsum
viðartegundum og litum.
JSÍásícó
Símar: 86080 og 86244
<1
ar
Húsgögn
Ármúli 8