Morgunblaðið - 06.09.1980, Side 14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1980
14
HLAÐVARPINN
bað er KreinileKa eitthvað skemmtileKt að Kerast og ungir sem Kamlir fyliíjast með af innlifun.
(Ljósm. Kristján.)
Árviss sumargleði
íbúa í Engjaseli
SÍÐASTLIÐIN þrjú ár hafa íbú-
arnir í Lnujaseli 52—68 haldið
sína eijfin sumanjleði og svo vel
hefur tekizt til. að þessar hátiðir
þykja með öllu ómissandi ok
yngsta kynslóðin vildi öruKKlega
að slík sumarjfleði væri haldin á
dejíi hverjum. bessi hátíð er þó
ckki aðeins fyrir þau ynjfstu,
heldur einnÍK fyrir aðra ibúa í
þessum húsum í EnKjaseli.
Síðastliðinn laugardag var blás-
ið til sumargleði í Engjaselinu og
til að byrja með var farið í ýmiss
konar leiki innan húss og utan, en
enginn fór soltinn úr veizlunni, því
pylsur og popp voru á boðstólum.
Um kvöldið var síðan grillað úti og
loks skemmti eldri kynslóðin sér
við dans og gleði fram undir
morgun í kjallara hússins númer
58, en þar er í raun um ágætan
samkomusal að ræða. Annars er
e.t.v. ekki rétt að tala um eldri
Hlaupið i skarðið.
kynslóðina í þessu tilviki, því
meðalaldur „foreldranna" í Engja-
selinu er um 30 ár.
í Engjaseli 58 eru 2 fjölbýlishús
og 5 raðhús og sóttu um eða yfir
100 manns sumargleðina að þessu
sinni. Auk þess að vera grannar þá
eiga íbúarnir þarna ýmislegt sam-
eiginlegt og eru m.a. með sameig-
inleg bílskýli og verið er að koma
upp leiksvæði fyrir börnin. Verk-
efnum var skipt niður á íbúðir og
stigaganga og sá hver um sitt. bað
eru ékki margir íbúar í fjölbýlis-
húsum, sem hafa þennan skemmti-
lega siö, en þvi ekki að fara að
fordæmi þeirra í Engjaselinu?
íláóinni..
Kveðið á Kaldármelum
Á fjórðungsmótinu á Kaldármelum fór fram ágæt kvöldvaka
undir stjórn Sigurðar Guðmundssonar skólastjóra Heiðarskóla.
Þar kom m.a. fram þessi vísa eftir Skjöld Stefánsson í Búðardal:
Tvísýnt málið tímar líða
tómir pelarnir.
Næstu keppni kappa bíða
Kaldármelarnir.
„Gens una sumus“
bAGALL skrifar í Alþýðublaðið á fimmtudaK og fjallar um
deilur skákmanna um hver skuli vera forscti Skáksambands
Norðurlanda: Segir m.a.:
Nú kom upp sú kátbroslega staða fyrir nokkru, að fyrrverandi
formaður Skáksambands íslands, og núverandi formaður (eða
forseti) Skáksambands Norðurlanda, varð fyrir þeirri óskemmti-
legu reynslu, að eins og Jesú á undan honum, var honum afneitað af
sínum félögum. Sá, sem fyrir afneituninni stóð, var núverandi
formaður Skáksambandsins (og formaður Friðarnefndarinnar
íslensku), Ingimar nokkur Jónsson, doktor að nafnbót.
Það er reyndar kostulegt og saga útaf fyrir sig, að formaður
íslensku Friðarnefndarinnar hefur ekki fyrr sest í stól formanns
Skáksambandsins en í sambandinu logar allt í ófriði og erjum. En
af einhverjum ástæðum ágirnist formaðurinn tvöfaldi for-
mennskuembættið hið þriðja.“
„Lífgar sál ef konu kyssi“
flr Víkurblaðinu: „begar Guðmundur á Kvistarhóli fletti
Morgunblaðinu einn daginn rakst hann á grein með fyrirsögn-
inni: „Sæði bót við brjóstkrabba“. Greinina las síðan Guðmundur
með athygli en þar segir bandariskur iæknir, að samfarir séu
besta lausnin á brjóstkrabba. Varð honum þá að orði:
I.íÍKar »ál t'f kunu kyssi
kítlar laicIeK snnt.
En hitt < r eins uk ík alltaf vissi
allra mrina bót.
Og einnig úr Víkurblaöinu, þættinum Heyrt og hlerað:
„I tilefni af því að rætt er um hundahald í blaðinu í dag má geta
þess, að Víkurblaðið hefur fregnað af hundi hér í bæ, sem virðist
einn harðsvíraðasti útsendari bindindishreyfingarinnar á staðnum.
Hundur þessi ku umhverfast í hinn illirmislegasta Baskerville-
hund ef nasavængir hans komast í námunda við eitthvað sterkara
en mjólk og eiga þá viðkomandi hóf- eða ofdrykkjumenn fótum
sínum fjör aö launa.
Mun það m.a. hafa hent í sumar, að tveir einstaklingar sem
staddir voru með vín í grennd við þessa skarpskyggnu skepnu lentu
óþægilega á milli tanna hins hneykslaða hunds.
Heyrst hefur að bindindishreyfingin hafi falast eftir skepnunni
til undaneldis og hyggist síðan dreifa afkvæmunum víðs vegar um
landið, þannig að menn verði annaðhvort að hætta að drekka eða
vera bitnir ella.“
„Skrapmálaráðherrann“
STEINGRÍMUR Hermannsson hefur mikið vcrið í fréttum að
undanförnu og þá bæði í sambandi við fisk og flug. Eftirfarandi
klausa birtist í blaðinu Vesturland á dögunum:
Steingrímur Hermannsson sjávarútvegsráðherra mæðist í
mörgu þessa dagana. Hann hefur verið iðinn við að auka
þorskveiðibönnin og á þessu ári munu þorskveiðar verða bannaðar
í alls 142 daga, sem er nær 40 prósent úr árinu. Ráðherann hefur
líka liðkað duglega fyrir innflutningi skuttogara og jafnvel ekki
skeytt um almennar reglur i þeim efnum. Mun sú lipurð hans enn
auka á þorskveiðbönnin sem flestum þykja þó ærin. Eins og flestir
vita kalla sjómenn það „skrap" þegar ekki má veiða þorsk og
þorskveiðibönnin skrapdaga. Fyrir skömmu var því hvíslað að
tíðindamanni Vesturlands að Steingrímur hefði hlotið nýja
nafngift meðal sjómanna og gengi hann jafnan undir nafninu
„skrapmálaráðherrann“.
I nógu aö snúast
EFTIRFARANDI frásögn er að
finna í vikublaðinu „Fólk“ 2.
september sl: „Karl prins snæddi
hádegisverð með Vigdísi áður en
hann hélt í laxinn. Vigdís var
spurð um matarboðið.
„Þegar ég undirbjó komu hans,
leitaði ég í öllum bókum eftir
einhverri laxasögu til að segja
honum og fann loks eina um
konuna, sem skipti á þorskhaus og
sporði af laxi. Sagan vakti mikla
lukku við borðið," sagði Vigdís og
hló. „Ég gaf honum soðinn skötu-
sel, sem hann hafði aldrei smakk-
að, og graflax. Karl er mjög
skemmtilegur og þægilegur í við-
ræðu.
Strax og hann var farinn komu
fjörutíu norrænir stúdentar og
síðar um kvöldið komu hundrað
manns, sem sitja hér ráðstefnu.
Þetta voru alls hundrað og sextíu
manns. Og hvað það er erfitt að
vera kvenmaður í þessu starfi, þó
ekki sé nema hvað klæðnað snert-
ir. Við móttöku Karls varð ég að
vera mjög virðulega klædd, en
síðan gat ég ekki verið eins fín við
komu stúdentanna og hljóp til að
skipta. Svo varð ég aftur að
klæðast virðulega við komu síð-
asta hópsins."
I sama blaði er einnig sagt frá
upphafi Ljómarallsins á dögunum,
þar segir m.a: „í mörgu og ólíku er
að snúast í forsetaembættinu
þessa dagana. Vigdís kom öllum
bílunum í Ljómarallinu úr höfn á
miðvikudagsmorgun með miklum
skemmtilegheitum og sóma. Mjög
létt var yfir kynningu hennar á
köppunum og talaði hún norsku,
sænsku, frönsku og íslenzku, allt
eftir þjóðerni keppenda. í kaffi-
sopanum á eftir ásamt rallnefnd-
inni, sagðist Vigdís ekki hafa verið
ánægð með frammistöðu sína.
„Eg kunni ekkert á þessa ný-
tízkuskeiðklukku, hún ruglaði mig
alveg og nokkrir bílar fóru tveim
eða þrem mínútum of seint af
stað. Ætli það hafi nokkuð slæmar
afleiðingar? Ég hafði ekki nógu
mikinn tíma til að undirbúa mig,
því í gær tók ég á móti 160 manns
á Bessastöðum og ég var satt að -
segja búin að gleyma rallinu í
öllum látunum."