Morgunblaðið - 06.09.1980, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1980
17
Ágúst Ágústsson fjármálastjóri Fríhafnarinnar:
Fríhöfnin fullkom-
lega samkeppnisfær
við aðrar fríhafnir
Ekki alls fyrir löngu sló Dag-
blaðið upp frétt á neytendasíðu
„Okur í Fríhöfninni". I fréttinni
segir, að einhver hafi keypt Sony
segulbandstæki í Fríhöfninni fyrir
$129.000 en seinna komist að raun
um, að samskonar tæki kosti
aðeins $56.50 í New York. Til
staðfestingar var birt úrklippa úr
verðlista frá 47th Street-fyrirtæk-
inu í New York, sem um árabil
hefur getað boðið ýmsar raf-
magns- og ljósmyndavörur á mjög
hagstæðu verði. Rétt er að stað-
festa, að frétt Dagblaðsins er að
öllu leyti rétt hvað snertir verð á
þessu segulbandstæki. Þó hefði
góður blaðamaður getið þess, að
við New York-verðið bætist sölu-
skattur, sem nemur 8% og að
ábyrgð á tækinu er takmörkuð,
þannig að viðgerð getur aðeins
farið fram hjá New York-fyrir-
tækinu sjálfu.
Að vonum spyr blaðamaður
hvað valdi þessum verðmismun.
Pétur Steingrímsson hjá Japis,
Sony-umboðinu á Islandi, segir, að
tvær ástæður liggi til grundvallar
háu verði í Fríhöfninni.
í fyrsta lagi, segir Pétur, að
verð á japönskum vörum sé mun
hærra í Evrópu en í Ameríku, en
Japis flytur Sony-vörur inn á
Evrópuverði. í öðru lagi leggur
Fríhöfnin yfir 50% á allar vörur,
sem keyptar eru frá Japis. Að
lokum segir Pétur: „Okkur blöskr-
aði þegar við heyrðum verðið á
Sony-vörum í Fríhöfninni."
Ekki er að undra þó að Pétri og
Dagblaðinu blöskri, því að glöggur
lesandi sér að sjálfsögðu strax, að
Sony-umboðið á íslandi getur ekki
einu sinni boðið innflutningsverð,
sem jafnast á við smásöluverð í
Ameríku. Smásöluverð í Ameríku
er $56.50 en Sony-umboðið selur
Fríhöfninni samskonar tæki á
rúma $80.00. Það hefði borgað sig
fyrir Fríhöfnina að kaupa þetta
segulbandstæki frá smásala í Am-
eríku fyrir $56.50 og leggja 50% á
það, og útsöluverð hefði þá orðið
$84.75 í stað $129.00. Neytendasíða
Dagblaðsins hlýtur að spyrja Pét-
ur hvað valdi því að innflutnings-
verð hjá Japis er $23.50 hærra en
hjá smásöluverzlun í Ameríku?
Hvað snertir 50% álagningu hjá
Skagfirska
söngsveitin
gefur út plötu
Um síðustu helgi kom út plata
Skagfirsku söngsveitarinnar i
Reykjavik, sem ber heitið „Heili
þér Drangey“.
Er platan gefin út á 10 ára
afmæli Söngsveitarinnar, en upp-
tökur þessar voru að mestu gerð-
ar á hliómleikum i Háteigskirkju
1975. I söngsveitinni eru sextiu
félagar, en söngstjóri er Snæ-
björg Snæbjarnardóttir.
A „Heill þér Drangey" eru ellefu
lög, þar af þrjú eftir Þórarin
Guðmundsson og tvö eftir Pál
ísólfsson, en auk þess eru þekkt
erlend sálmalög eins og „Ave
Maria" eftir Bruckner og „Sanct-
us“ eftir Schubert.
Undirleikur er í flestum lag-
anna ýmist orgel eða píanó og
leikur Árni Arinbjarnarson á
orgelið en Ólafur Vignir Alberts-
son á píanóið.
Barnakór söngsveitarfólksins
syngur auk 'þess í tveimur lag-
anna. Á framhlið plötuhulsturs er
nýtt merki söngsveitarinar sem
var hannað af eiginkonu eins
söngsveitarmanns, Ingibjörgu
Andrésdóttur, en platti hefur
einnig verið gerður með merkinu á
og eru 300 tölusettir plattar til
sölu í frímerkjaversluninni Magna
og svo hjá kórfélögum.
SATT-kvöld
á Borginni
SATT-KVÖLD verður að Hótel
Borg næstkomandi miðvikudags-
kvöld 10. sept.
Fram koma hljómsveitirnar
Start og hinn nýstofnaði Jazz-
kvartett Reynis Sigurðssonar, en
auk hans skipa kvartettinn Þórður
Árnason, Tómas Tómasson og
Ásgeir Óskarsson, allir meðlimir í
Hinum íslenzka Þursaflokki.
Boðið verður upp á jam-session
og má búast við að ýmsir kunnir
spilarar láti í sér heyra.
Þorgeir Ástvaldsson sér um
kynningu og bregður jafnframt
íslenskum plötum á fóninn.
(Fréttatilkynning frá SATT)
Skagfirska söngsveitin gefur
plötuna út, en Fálkinn hf. sér um
dreifingu á henni. HIA
Fríhöfninni er auðvelt að útskýra
hvernig hún er tilkomin. Á árinu
1979 voru laun hjá Fríhöfninni
rétt um 20% af veltu en hagnaður
21%, þetta gerir samtals 41% og
eru þá eftir 9% til að standa undir
öllum öðrum kostnaði. Sumum
finnst e.t.v. 21% hagnaður há tala.
Það má samt ekki gleyma því að
hagnaður rennur í ríkissjóð og er
m.a. notaður til að greiða niður
dilkakjöt og styrkja listamenn.
Spurningin er því ekki hvort
álagningin eigi að vera mikil
heldur hve 'náan skatt (tekjur)
ríkissjóður ætlar sér vegna rekst-
urs fríhafnar.
Áður en lengra er haldið vil ég
nota tækifærið og fullyrða að verð
á vörum í Fríhöfninni er mjög
hagstætt miðað við verzlanir og
fríhafnir víðast hvar. Að vísu er
það rétt að sem stendur eru
ljósmyndavörur og rafmagnstæki
boðin á mjög góðu verði í Amer-
íku. Þrátt fyrir það er munurinn
oftast ekki mikill á verði Fríhafn-
arinnar og verzlana í t.d. New
York. Það vill nefnilega mjög oft
brenna við að verðsamanburður er
rangur. Sem dæmi má nefna að
myndavélar eru oftast auglýstar
þannig, að verðið nær aðeins yfir
sjálfa vélina, en þá á eftir að bæta
við söluskatti, tösku og rafhlöðu
til þess að verðið sé sambærilegt
við verð í Fríhöfninni á Keflavík-
urflugvelli. Þessir þrír þættir
nema oftast um það bil $50 á
myndavél sem kostar $250 út úr
búð í Ameríku.
Eins og áður er sagt er óhætt að
fullyrða að verð hjá Fríhöfninni er
fullkomlega samkeppnisfært við
hvaða verzlun eða fríhöfn sem er.
Þessu til staðfestingar birtist
hér úrdráttur úr könnun sem
danska dagblaðið Jyllandsposten
gerði fyrir rúmum mánuði. Könn-
unin sýnir tvímælalaust að Frí-
höfnin í Keflavík býður upp á verð
MORGENAVISEN______________
Jyfland-s B>sten
1
200 cigaret- ter 25 cigarer 100 g pibe- tobak 1 liter alm. whisky 1 liter luksus whisky 0,7 liter 1 liter 1 liter cognac Campari Martini
Billund 40,00 40,00 12,00 50,00 90,00 90,00 (1 liter) 45,00 25,00
Kastrup 46,00 53,00 17,00 65,00 105,00 80,00 56,00 25,00
Stockholm 45,85 55,00 21,00 48,45 90,40 98,25 55,00 26,20
Amsterdam 29,90 35,90 10,90 36,70 63,90 36,70 (0751) 23,95 (0.901) 14,15
Frankfurt am Main 40,00 31,00 18,60 31,00 80,30 71,30 40,30 18,60 *
Hamborg 35,65 43,40 15,50 49,60 86,80 71,30 43,40 18,60
Geneve 33,70 40,45 20,20 40,45 64,05 60,65 43,80 (0,92 1)
Keflavik 21,75 27,20 9,50 40,80 59,85 (0 95 1) 58,50 (0.95 1) 28,55 (0.921) 19,05
Spanske 12,50 26,50 15,60 46,80 85,80 15,60 (11 spansk) 24,95 12,10 (0,931)
Vejledende priser i Danmark 166,00 67,50 17,60 103,00 168,50 163,30 (C.7!) (0 7 1) 86,80 (0.7 1) 40,85
DANSKA blaðið Jyllandsposten birti fyrir skömmu frétt þar sem sagt
var að fríhafnirnar á Keflavíkurflugvelli og í Amsterdam biðu mjög
lágt verð á tollfrjálsum vörum og m.a. birti blaðið lista sem sýnir
verðið á nokkrum vörutegundum í ýmsum frihöfnum.
sem fáar fríhafnir í Evrópu geta
státað sig af (Verð á Spáni eru á
spánskum vörum).
Eftir að hafa skoðað verðsam-
anburð spyr ef til vill einhver:
hvers vegna er þessi verðmismun-
ur? Spurningunni er auðvelt að
svara. Stjórnvöld hinna ýmsu
landa hafa mismunandi skoðanir
á því hvað beri að skattleggja þá
sem verzla í fríhöfn. í öllum þeim
fríhöfnum, sem teknar eru með í
könnun Jyllandsposten, er um
útleigu að ræða. Það er að segja,
einkafyrirtæki borgar ákveðið
hlutfall af veltu til ríkissjóðs fyrir
að fá að nota aðstöðuna á flugvelli
til að reka fríhöfn. Þetta hlutfall
er mismunandi eftir því hvaða
land á í hlut, en tekjur stjórnvalda
eru skattur engu að síður. Ríkis-
sjóður íslands rekur fríhöfnina
fyrir eigin reikning og voru tekjur
(skattar) um 21% af veltu árið
1979. Til samanburðar má nefna
að tekjur Dana eru 57% af veltu,
Svía 50%, Norðmanna 45% og
Spánverja 30% árið 1979.
Af ofangreindum upplýsingum
er óhætt að fullyrða að viðskipta-
vinir Fríhafnarinnar gera yfirleitt
góð kaup. Á hinn bóginn er
íslenzkur skattborgari ef til vill
hlunnfarinn ef miðað er við tekjur
Norðurlandaþjóðanna af fríhöfn-
um.
Barry sófasettió
Ulferts
skipar eitt efstu sætanna á
sölulista ULFERTS . . .
ástæðan er augljós þegar þú hefur skoðað það nánar.
Eins, tveggja og þriggja sæta, með tauáklæði sem taka
má af og hreinsa.
KRISTJÁn
SIGGEIRSSOn HF.
LAUGAVEG113, REYKJAVÍK, SÍMI 25870