Morgunblaðið - 06.09.1980, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1980
23
Verkföllum lokið
í Suður-Póllandi
Varsjá, 5, sept. — AP.
SAMNINGAR milli kolamámumanna í Suður-Póllandi
og stjórnvalda voru í dag undirritaðir og gengu yfirvöld
að kröfum verkamanna umleyfi til þess að stofna frjáls
verkalýðsfélög, og fá helgarfri, efnahagslegar kjarabæt-
ur og takmarkanir á ritskoðun. Flestir námuverka-
manna í Póllandi gengu til vinnu á ný á fimmtudag, en
verkfallsmenn í Bytom kröfðust einnig breytinga á
stjórn námanna og hefur nú verið gengið að þeim
kröfum.
Yfirvöld í Póllandi tilkynntu í
dag að Sovétríkin og önnur
Austur-Evrópuríki hefðu ákveðið
að veita Póllandi efnahagslega
aðstoð til þess að hjálpa þeim að
komast fram úr erfiðleikum í
efnahagsmálum. Sovétmenn munu
veita þeim lán til þess að gera
þeim kleift að kaupa nauðsynlegar
vörur frá Vesturlöndum.
Pólska fréttastofan sagði, að nú
væri verið að flytja ýmsar neyslu-
vörur inn frá Tékkóslóvakíu, til
bess að koma til móts við kröfur
verkfallsmanna og aðgerðir til
þess að halda verðhækkunum í
skefjum væru þegar hafnar.
Dagblaðið Tribuna Ludu sagði að
ýmsar munaðarvörur, sem hingað
til hafa aðeins verið á boðstólum í
verzlunum, þar sem borgað er með
erlendum gjaldeyri, hefðu verið
teknar úr hillunum þar.
Útvarpið í Wroclaw sagði að
skammt suð-vestur af Varsjá
hefði verið haldinn undirbúnings-
fundur vegna stofnunar nýs óháðs
E-vítamín við
góðkynja æxlum
Chicago. Illinois. 5. sept. — AP.
MILLJONIR kvenna sem hrjáð-
ar eru af óþægilegum en ekki
illkynja brjóstaæxlum kunna
að fá bót meina sinna með því
að taka hæfilegan skammt E-
vítamíns, að því er bandarisk
visindamannanefnd sagði i dag.
Dr. Robert London sem leiddi
rannsóknina sagði að E-vítamin
kynni að reynast mjög árang-
ursríkt ef um væri að ræða
óeðlilega æxlismyndun eða kýli
i brjóstum. Þessi æxli yllu
konum sem fengu þau, miklum
sársauka þótt þau væru góð-
kynja en nú bentu tilraunir til
að E-vítamín gætu þarna orðið
að miklu gagni.
Londin hvatti þó til hóflegrar
bjartsýni og sagði að konur
yrðu að gæta sín á þvi að hefja
ekki alltof stórar inntökur af
E-vitamin, enda myndi það eins
og óhófleg notkun annarra vita-
mina þá ekki koma að nokkru
gagni.
Réttarhöld í Rússlandi
Moskvu, 4. sept. •— AP.
ALEXANDER Ogorodnikov, sem
staðið hefur fyrir umræðuhópum
um trúmál i Rússlandi, var dreg-
inn fyrir rétt í Kalinin í gær,
sakaður um andsovéskan áróður,
að því er haft var eftir heimildum
úr röðum rússneskra andófs-
manna.
I janúar á síðasta ári var
Ogorodnikov, sem er 29 ára,
dæmdur til ársvistar í vinnubúð-
um fyrir „sníkjulifnað" og fyrir að
geta ekki gegnt þjóðnýtu starfi.
Nú á hann yfir höfði sér sjö ára
fangelsisdóm og fimm ára útlegð
innan Sovétríkjanna.
Á árinu 1974 kom Ogorodnikov
á fót „krostnum umræðuhópum" í
Moskvu þar sem rædd var kristin
kenning og það, sem hann taldi til
merkis um kristna trúarvakningu
í Sovétríkjunum. Einnig gáfu
hann og félagar hans út neðan-
jarðarrit um trúmál.
í síðustu viku var Gleb Yakunin,
prestur í rússnesku rétttrúnað-
arkirkjunni, dæmdur í fimm ára
þrælabúðavinnu og fimm ára út-
Frakkar fram-
selja öfgamann
Aix, Frakklandi 5. sept. — AP.
ÁFRÝJUNARDÓMSTÖLL í Aix í
S-Frakklandi úrskurðaði i dag að
orðið skyldi við beiðni italskra
stjórnvalda um að framselja
hægriöfgasinnan Marco Affatig-
ato, sem talinn er viðriðinn
sprengjuárásina á jarðbrautar-
stöðina i Bologna. Ilann var hand-
tekinn i Nizza að beiðni italskra
stjórnvalda og hefur setið i gæzlu-
varðhaldi meðan málið var kann-
að og framsalsbeiðnin var til
meðhöndlunar. Það er innanrikis-
ráðherrann sem hefur siðasta orð-
ið i málinu og hefur hann ekki
tjáð sig að svo komnu máli.
legð fyrir andsovéskan áróður og
fyrir sömu sakir var Tatyana
Yelikanova dæmd til fjögurra ára
vinnuþrælkunar og fimm ára út-
legðar.
verkalýðsfélags og hefði verið boð-
að til hans af Jerzy Poirkowsky,
sem var einn forystumanna sam-
einaðra verkfallsmanna í Varsjá.
Forystumenn verkalýðsfélaga í
Bretlandi hættu í dag við að fara í
fimm daga heimsókn til Póllands,
sem áætluð hafði verið, eftir að
pólsk yfirvöld styttu leyfilegan
dvalartíma þeirra niður í einn dag
og gáfu aðeins leyfi til þess að þrír
menn yrðu sendir í stað sex. David
Basnett, formaður sex-manna
nefndarinnar, sagði að takmark-
anir pólskra yfirvalda væru óvið-
unandi og heimsókn undir þessum
skilmálum væri tilgangslaus.
Franskir fiskimenn gera atlögu að lögreglumönnum, sem
leita skjóls í brynvörðum bílum. Átökin urðu sl. þriðjudag
þegar fiskimennirnir efndu til mótmæla fyrir framan
samgöngumálaráðuneytið í París.
Veður
víða um heim
Akureyri 9 alskýjað
Amsterdam 23 skýjaö
Aþena 26 skýjaö
Barcelona 26 skýjaö
Berlín 25 heiöskirt
BrUsael 25 heiöakírt
Chicago 29 skýjaö
Feneyjar 24 þokumóöa
Franklurt 26 heiöskírt
Færeyjar 13 skýjað
Genf 23 skýjaö
Heleinki 19 heiðskirt
Jerúsalem 24 heiöskírt
Jóhannesarborg 25 heiöskírt
Kaupmannahöfn 21 heiöskirt
Las Palmas 25 léttskýjaö
Lissabon 26 heiöskirt
London 19 heiðskirt
Los Angeles 27 heiöskirt
Madrid 31 skýjaö
Malaga 27 heiöskírt
Mallorca 28 léttskýjaö
Míami 29 skýjaö
Moskva 15 skýjað
New York 28 skýjað
Oslo 20 skýjaö
París 19 skýjað
Reykjavík 11 rigning
Rio de Janeiro 32 skýjað
Rómaborg 30 heiöskírt
San Fransisco 17 skýjaö
Stokkhólmur 18 heiðskírt
Tel Aviv 29 heiöskírt
Tökýó 31 heiöskírt
Vancouver 21 skýjaö
Vínarborg 21 heiöskirt
Veistu
AÐ í LAUGARDALSHÖLLINNI
geturþú
ORÐIÐ
UNNIÐ
TOPE
MAÐUR
DAGSINS
SAMKEPPNINNI
LEYST
«4100
ÞRAUTINA
SMAKKAÐA
TROPICANA
1 GRAPESAFA
APPELSÍNUSAFA
OG EPLASAFA
BRAGÐAÐ
i4lii
~ AKEXI
AUK ÞESS SÉÐ TROPICANA
JÁRNBRAUTARLESTINA O.M.FL.
smjörlíki hf. SÓLHF
I ei I I 14 M t V 9 *.»*»•!
33'FUITj'