Morgunblaðið - 06.09.1980, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1980
31
Þrjár nýjar
bækur frá
Hvítasunnu-
söfnuðinum
Ógleymanleg frásðgn
ungrar stúlku um hetjulega
FRANK MANGS
VEGUR
FRELSISINS
Ilvitasunnusöfnuúurinn hefur
ftefið út þrjár bækur! „Joni" eftir
Joni Eareckson, „Lækningr Iök-
reglumannsins" eftir Kathrynu
Kulhman og „Vegur frelsisins"
eftir Frank ManKS.
t bókinni Joni setnr höfundurinn
frá slysi sem hún varð fyrir aðeins
17 ára gomul. Hún hálsbrotnaði og
lamaðist frá hálsi og niður úr.
Joni segir frá vonbrigðum og
baráttunni sem hún átti í. Hún lysir
sjúkrahússvistinni, endurhæfingar-
stoðinni og stofnunum frá sjónarhóli
sjúklingsins. Hún segir frá viðbrögð-
um félaga sinna og lýsir því hvernig
það er að hverfa út úr hringiðu
æskuáranna.
Joni er nú þekktur munnmálari og
fyrirlesari í Bandaríkjunum. Nýlega
var gerð kvikmynd eftir þessari bók
og fer Joni sjálf með aðalhlutverkið í
myndinni.
í „Lækning lögreglumannsins"
segir Kathryn Kuhlman, sem er
þekkt fyrir lækningasamkomur sín-
ar, frá lögreglumanninum Jon Le
Vrier. Hann var heltekinn af
krabbameini en læknaðist á sam-
komu hjá Kuhiman.
Bókin „Vegur frelsisins" er endur-
útgefin eftir að hafa verið ófáanleg
um árabil. í bókinni útskýrir Frank
Mang friðþægingu syndanna og ei-
líft líf. Mang er þekktur kristniboði
sem starfað hefur á Norðurlöndun-
um síðustu áratugi. ■
Carl Bang, sumarljósmyndari, bíður þess með óþreyju að mótífið komi fram á polaroid-filmunni. Og í
baksýn bíða fyrisætur hans: Gréta Sigfúsdóttir. Kenneth Goodwin og Oddur Knudsen eftir
árangrinum. (Ljósm.: Jan B. Henri’ksen)
gjarna veður úr einu í annað. Við
tökum því hliðarspor og segjum
frá því þegar Bang sem ungur
aðstoðarmaður fékk heimsókn í
búðina af einkar föngulegri konu
frá Austurlandi. Konan hafði
tekið sér stöðu framan við hillu
með fáeinum bókum eftir Sigríði
Undset og sagði að sig langaði til
að líta á bækur. Bang brást
skjótt við, en taldi að bækur eftir
Sigríði Undset væru tæplega
neitt fyrir hana. Hún ætti heldur
að fara með honum í deildina þar
sem hin fræga metsölubók Sig-
ríðar Bo, „Við sem vinnum eld-
hússtörfin", hafði hlotið heið-
urspláss.
En konan föngulega sagði þá
kurteislega að við nánari íhugun
hefði hún ekki áhuga á að líta á
bækur og gekk út úr búðinni.
Daginn eftir sat ungi bóksölu-
lærlingurinn og gluggaði í eitt af
dagblöðum borgarinnar. Þar var
m.vnd og feitletruð fyrirsögn þess
efnis, að Sigríður Undset hefði
verið í Stafangri.
Og hún var einmitt konan sem
Bang hafði álitið að bæri mest úr
býtum með því að lesa „Við sem
vinnum eldhússtörfin".
Frá Stafangri (klippt úr
Rogaland Avis).
Gréta Sigfúsdóttir þýddi.
Þegar Carl Bang hvatti Sigríði Undset
til að snúa sér að eldhússtörfum
Sumarsvipmyndir Rogaland Avis
Það er ekkert launungarmál,
að hinn vinsæli Stafangur-
bóksali Carl Bang er maður
fjarhuga. Sú saga gengur m.a. að
hann hafi einhverju sinni fyrir
stríð verið kominn út á stökk-
brettið á baðstaðnum Vaulen
þegar einn kunningi hans upp-
götvaði að hann hafði ekki tekið
af sér armbandsúrið.
— Klukkan! Klukkan! æpti
kunningi hans. Bang leit á arm-
bandsúrið.
— Klukkan er fjögur, anzaði
hann og steypti sér til sunds.
En Bang er þó ekki svo utan
við sig að hann gleymdi að ýta á
takkann í tilefni af verðlauna-
seríu okkar. En honum láðist að
stilla inn á rétta fjarlægð.
Þess vegna varð framlag hans
dálítið óskýrt, en ekki óskýrara
en svo að unnt er að greina
myndina. Og það voru viðskipta-
vinir úr bókabúðinni í Ólafskleif
sem Bang hafði teymt út á götu
til ljósmyndunar. Daman heitir
Gréta Sigfúsdóttir. Hún er ís-
lenzk og hefur skrifað fimm
bækur. Noregsdvöl hennar er í
sambandi við nýja skáldsögu sem
hún er með í smíðum. Herra-
mennirnir á myndinni eru þeir
Kenneth Goodwin frá Aberdeen
og Oddur Knudsen olíuráðgjafi.
Goodwin er í olíubransanum og
var í erindagerðum í Stafangri.
Hér hafði hann verið á vegum
Knudsens.
Bang bóksali er maður sem
Hér höfum við sumarsvipmynd Bangs af viðskiptavinum fyrir
framan búðina sína. Myndin er þvi miður fremur óskýr.
(RA: Lars Chr. Sande)
9*
HÆÐUM I TORGINU
Austurstræti 10
sinii: 27211
B4TN/4ÐUR Á
ÆLA FJÖLSKYLDUM4