Morgunblaðið - 06.09.1980, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1980
Húsið að Suðurxötu 7 hefur
mjoií verið til umræðu að undan-
förnu. Ágrciningur er um hvað
píkí að Kera við húsið <>k hafa
inarKÍr aðilar dreKÍst inn í málið.
í vrtur fóru nokkrir af eÍKendum
hússins framá að það yrði rlfið en
borjíarminjavörður ok embætti
bori'arverkfra'ðinKs loKðust á
móti því en mæltu með að það
yrði flutt upp í Árbæjarsafn.
Listamenn. sem undanfarin þrjú
ár hafa verið með sýninxastarf-
semi þarna i húsinu <>k nefnt það
Gallerí Suðurgötu 7, vilja að
borKÍn kaupi lóðina <>k Keri húsið
upp þar sem það cr eða að það
vcrði flutt upp í Grjótaþorp <>k
>í<Tt upp þar. Einn eÍKendanna.
Ása lljaltested, sem býr í húsinu
<>K hefur búið þar um lanKt skeið,
vill að húsið verði Kert upp þar
sem það er <>k borKÍn kaupi
l<>ðina. Ilún vill alls ekki að húsið
verði flutt upp í Grjótaþorp en
Ketur huKsað sór að það verði
flutt upp i Árbæ ef enKÍn önnur
lausn finnst á málinu.
Saga hússins
Húsið að Suðurgötu 7 var byggt
árið 1833 af Teiti Finnbogasyni,
járnsmið og síðar dýralækni í
Reykjavík. Hann fékk verðlaun
fyrir þetta hús og smiðju sem
hann reisti í grend við það og
námu þessi verðlaun tíunda hluta
af byggingarverði hússins sam-
kvæmt konungsúrskurði frá 20.
marz 1789. Árið 1859 keypti Björn
Hjaltested, járnsmiður sem numið
hafði járnsmíði hjá Teiti, húsið og
hefur það verið í eigu ættnr hans
síðan. Björn byggði við húsið >
áföngum og bætti við það einni
hæð en árið 1884 hafði húsið
fengið það útlit sem það hefur nú.
Umhverfi hússins hefur breytzt
mikið í gegn um tíðina. Gatan
fyrir framan það hefur t.d. verið
hækkuð — áður voru tvær tröppur
upp í húsið en nú er gengið niður
eina tröppu inn í það. Nafnið
Suðurgata var ekki tekið upp fyrr
en um 1870 en áður hét gatan
Kirkjugarðsstígur. Synir Björns
Hjaltested, séra Bjarni Hjaltested
og Pétur Hjaltested, erfðu húsið
að honum látnum og eru það börn
þeirra tveggja sem eiga húsið og
lóðina nú.
„Húsið liggur
undir skemmdum“
Morgunblaðið hafði samband
við nokkra aðila um hlutast hafa
til um örlög hússins. Álfheiður
Ingadóttir, formaður Umhverf-
ismálaráðs, hafði eftirfarandi um
málið að segja: „Þetta hús hefur
lengi verið til athugunar hjá
okkur. Síðastliðinn vetur óskuðu
nokkrir eigendur hússins eftir því
að það yrði rifið en allir í
Umhverfismálaráði voru því mjög
andsnúnir og óskuðu eftir að gerð
yrði könnun á ástandi hússins.
Borgarminjavörður, embætti
borgarverkfræðings og þjóðminja-
vörður lögðust á móti því að húsið
yrði rifið — við athugun kom í ljós
að ástand þess er orðið mjög
slæmt og að vinda þarf bráðan
bug að því að gera það upp þvi það
liggur undir skemmdum. Það var
eindregið álit borgarminjavarðar
og þjóðminjavarðar að ef húsið
yrði flutt ætti það hvergi heima
nema í Árbæjarsafni, enda væri
gert ráð fyrir því í skipulagi
safnsvæðisins þar.“
„Árbæjarsafn bezti
staðurinn“
Guðný Guðmundsdóttir, hjá
Borgarminjasafninu, sagði þetta
um málið: „Húsið að Suðurgötu 7
er orðið mjög gamalt hús. Það
þrengir mjög að því þar sem það
stendur og ef það á að vera þarna
áfram verður að gera mjög miklar
Ip Is ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■á 9 mw\
Suðurgata 7. Hluti þessa húss var byggður 1833, siðan var byggt við það og bætt ofan á það einni hæð. Árið
1884 hafði húsið fengið þann svip sem það hefur nú.
Gestur Ólafsson:
„Neyðarráðstöfun ef hús-
ið verður flutt í Árbæ“
Suðurgata 7 — gallerí eða safngripur?
Geir Ólafsson:
„Bezta lausnin að hús-
ið verði flutt í Árbæ“
endurbætur á því, m.a. að lyfta því
og hlaða undir það nýjan kjallara.
Gatan við húsið er svo há og vatn
leitar af henni niður í grunninn og
hefur það valdið skemmdum á
húsinu. Það hefur verið reynt að
finna nýja lóð fyrir húsið en það
er orðið svo gamalt að erfitt er að
finna stað þar sem það fellur vel
inní. Við viljum sérstaklega leggja
áherzlu á að vegna hins háa aldurs
eigi húsið tvímælalaust heima hér
á Árbæjarsafninu. Við erum ekki
þar með að hafna þeirri stefnu að
gömul hús skuli standa á sínum
upprunalegu stöðum, — en í þessu
tilfelli er það matsatriði. Húsið
fellur ekki vel inn í byggðina þar
sem það er og raunverulega ekki
heldur inn í byggðina í Grjóta-
þorpi. Árbæjarsafnið virðist vera
bezti staðurinn fyrir þetta hús.“
„Neyðarráðstöfun að
flytja húsið í Árbæ“
Gestur Ólafsson, arkitekt, sem
er í samtökunum Líf og Land
sagði um málið: „Mér finnst það
alger neyðarráðstöfun ef húsið
verður flutt upp í Árbæ. Við
höfum að undanförnu verið að
gera upp Unuhús sem er alveg
samskonar hús. Suðurgata 7 skap-
ar hluta af þeim staðarblæ sem
einkennir gamla miðbæinn og mér
finnst æskilegt að húsið fái að
standa þarna áfram. Eins finnst
mér vel koma til álita að flytja
húsið upp í Grjótaþorp. Ég vil
taka undir þá ósk listamannanna,
sem staðið hafa að Gallerí Suður-
götu 7, að þeir fái að halda húsinu
fyrir sýningastarfsemi áfram —
þeir hafa unnið þarna bæði
áhugavert og virðingarvert starf
þennan tíma sem þeir hafa haft
afnot af húsinu."
„Ósamkomulag milli
eigendanna um málið“
Þá hafði Morgunblaðið sam-
band við Ásu Hjaltested, sem er
ein af eigendum hússins og hefur
búið í því um árabil. „Ég vildi
helst að húsið fengi að vera hér
áfram,“ sagði Ása, „það mætti
alveg flytja það innar á lóðina ef
með þyrfti. Mér finnst réttast að
borgin kaupi alla eignina og húsið
verði svo gert upp hér þar sem það
stendur. Enginn af eigendunum
ætlar að byggja á lóðinni, það þarf
ekki að rífa húsið þess vegna — og
sjálf hef ég engan áhuga á að
græða á þessu. Eg vil alls ekki að
húsið verði flutt upp í Grjótaþorp
— það væri sjálfsagt skárri lausn
að flytja það upp í Árbæ en að rífa
það. — Það er ósamkomulag milli
okkar eigendanna um þetta mál.
Við erum níu sem eigum húsið og
lóðina sem fylgir því, — sex vilja
losna við húsið og selja lóðina á
frjálsum markaði en við þrjú
viljum að húsið verði gert upp hér
þar sem það er og listamennirnir
hafi hér aðstöðu áfram.“
„Bezta lausnin að
borgin keypti
lóðina og húsið“
Friðrik Þór Friðriksson, einn
listamannanna sem standa að
Gallerí Suðurgötu 7, sagði eftir-
farandi um malið: „Bezta lausnin
að okkar mati væri að borgin
keypti lóðina og húsið og gerði það
upp þar sem það er. Eins væri það
auðvitað lausn ef hægt væri að
finna húsinu stað í Grjótaþorpi. —
Við höfum mikinn áhuga á að
halda áfram þeirri sýningar-
starfsemi sem við höfum verið
með í húsinu en ef það verður flutt
upp í Árbæ mun hún að sjálfsögðu
leggjast niður þar sem safnið er
aðeins opið yfir sumarið."
„Hafa beðið í
þrjátíu ár“
Að lokum hafði Morgunblaðið
samband við Geir Stefánsson,
heildsala, sem er í forsvari fyrir
meirihluta eigenda hússins. „Ég á
ekkert í þessari eign og ætlaði
ekkert að skipta mér af þessu,"
sagði Geir. „Konan mín er hins
vegar einn af eigendunum og þeir
báðu mig um að reyna að koma
þessu í verð fyrir sig. Þeir eru nú
búnir að bíða í um það bil 30 ár
eftir að hægt væri að skipta
eigninni — það hefur ekki mátt
rífa húsið og enginn viljað flytja
það burt. Mér finnst að bezta
íausnin væri að húsið yrði flutt á
Árbæjarsafnið — það er einmitt
staðurinn fyrir svona hús. Annars
getur borgin auðvitað keypt lóðina
og gert húsið upp þarna ef einhver
vilji er fyrir því — eigendunum er
alveg sam« hver kaupir þetta. —
Það hefui held ég orðið nokkur
misskilningur með þessa lista-
menn sem hafa verið að sýna i
húsinu. Þeir eiga ekkert í því og
eru raunverulega ekki neinir aðil-
ar að þessu máli. Ég skil að
sjálfsögðu þeirra sjónarmið, — að
þeir vilji halda áfram að sýna
þarna, og þeim stendur auðvitað
til boða að kaupa eignina eins og
öðrum ef þeir vilja. Það hefur
verið gert miklu meira úr þessu
máli en ástæða er til, því raun-
verulega er þetta ekkert mál,“
sagði Geir að lokum.