Morgunblaðið - 06.09.1980, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1980
KAfp/no v, fs
(ð
GRANI GÖSLARI
As( er...
... aó vera ekki
ein þó hann sé aó
heiman.
TM Reg US Pat Oft all nghts roMrved
• 1978 Los Ange*— Tlmw Syndtcef
í fyrsta la«i kcmur systir mín ekki fyrr en eftir 10 mínútur. — í
öðru lasi siturðu á kúlutyKKjóinu minu!
829 ' 4^0*
Veit hér enginn nær tölvan kemst
aftur i las?
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Bandaríkjamaðurinn Oswald
Jacoby var einn af landkönnuðum
bridgespilsins fyrir um 50 árum
síðan. Og enn er hann í fullu fjöri.
I spili dálksins var hann með spil
suðurs og andstæðingar voru ekki
af lakara taginu, sjálf hjónin
Josephine og Ely Culbertson. Ekk-
ert á ég skráð um gjafara og
hættur, enda spilið gamalt, en
Jacoby var sagnhafi í 6 laufum.
Norður
S. ÁK2
H. D8
T. G73
L. KG875
Vestur Austur
S. 75 S. D1098643
H. G6542 H. Á107
T. D1064 T. 98
L. 102 L. 6
Suður
S. G
H. K93
T. ÁK52
L. ÁD943
Austur hafði sagt spaða og
vestur spilaði út spaðasjö.
Hvernig líst þér á að skrapa
saman 12 slögum?
Utspilið var tekið með kóng í
blindum og eftir að hafa tekið tvo
slagi á tromp spilaði sagnhafi
hjartaáttunni frá norðri. Taki
austur þá ásinn getur sagnhafi
seinna látið tapslaginn í tígli í
hjartakónginn. Enda féll frú Jos-
ephine ekki í þessa gildru og suður
fékk slaginn á kónginn. Og enn
var eftir að losna við tapslag úr
öðrum hvorum rauðu litanna.
Jacoby leysti vandann á glæsi-
legan hátt. Hann spilaði trompi á
blindan, lét hjarta af hendinni í
spaðaás og trompaði síðasta spað-
ann. Því næst tók hann á ás og
kóng í tígli og úr því drottningin
kom ekki í, spilaði hann hjartanu
sínu og blessuð frúin festist inni.
Hún átti bara eftir spil í hálitun-
um en slík spil átti sagnhafi
hvorki heima né í blindum. Og
þegar hún reyndi hjartað tromp-
aði Jacoby heima en lét tígulinn
frá blindum. Og þá voru bara
tromp eftir í blindum, unnið spil.
Svona spilaði þessi náungi fyrir
næstum 50 árum og enn má sjá lík
tilþrif hjá honum í ýmsum mótum
vestan hafs.
Burt með þenn-
an óaldarlýð
Sigriður Sveinsdóttir skrifar:
„Fólk er almennt orðið orðlaust
yfir, hvað sumir unglingar nú um
stundir eru óskammfeilnir að
leyfa sér að vaða svona um eins og
verstu óþokkar og skemma alla
skapaða hluti fyrir náunganum,
sem er að snyrta og fegra í
kringum sig og okkur öll eftir
bestu getu. Hvers konar innræti
er þetta eiginlega í þessum ung-
mennum? Eg bara spyr. Sjálfsagt
eru þau meira og minna dauða-
drukkin eins og þeirra er vandi, en
það er engin afsökun fyrir þau —
og reyndar engan — þegar þau
haga sér eins og villidýr.
• Aðfarirnar við
Austurvöll
Tökum t.d. aðfarirnar við
Austurvöll og nágrenni um síð-
ustu helgi. Maður gæti nú ímynd-
að sér að allir hefðu ánægju af vel
hirtum trjám og blómaskrúði eins
og reynt er að hafa þar, flestum til
augnayndis. En því miður er þessi
lýður þannig innrættur að hann
kærir sig kollóttan um allt og alla
nema það að þjóna lund sinni og
heldur að það sé mikill vegsauki
að því að haga sér svona.
• Bleytum ræki-
lega i lýðnum
En mér, og ég held flestum,
finnst nú vera kominn tími til að
eitthvað reglulega raunhæft verði
gert í þessum málum, svo að þessi
lýður komist ekki upp með áfram-
haldandi skrílslæti. Ég veit að
lögreglan gerir sitt besta í þessu
Námskeið Bridge-
skólans að hefjast
Námskeið Bridgeskólans í
Reykjavík eru nú að hefjast
aftur að loknum sumarleyfum.
Sjálfsagt mun mörgum þykja
tími til kominn, þar sem bók-
stafurinn R er kominn í mánað-
arheitið aftur. En samkvæmt
gamalli venju má ekki spila á
kort þá fjóra mánuði ársins, sem
ekki bera þennan bókstaf.
Eflaust þykir mörgum ein-
kennilegt, að setjast þurfi á
skólabekk til að læra bridge,
þetta vinsæla spil. En það er
staðreynd, að þeir, sem kunna
spilið eru latir að kenna það
öðrum. Og af þessari ástæðu
þykja bridgeskólar sjálfsagðir í
öllum stærri bæjum hins vest-
ræna heims.
Nú sem fyrr fer kennsla skól-
ans fram í formi námskeiða og
hefst miðvikudaginn 10. sept.
með námskeiði fyrir byrjendur.
Og laugardaginn 13. september
hefst siðan námskeið ætlað þeim
fjölmörgu, sem dálítið hafa spil-
að en langar til að skerpa og
auka kunnáttu sína. Er nám-
skeið þetta jafnframt sniðið við
hæfi þeirra, sem lokið hafa
byrjendanámskeiði skólans.
Hér á íslandi hefur almenn-
ingi nokkrum sinnum verið boð-
in skipulögð bridgekennsla. En
slík fyrirtæki hafa sjaldan notið
langlífis. Ásinn, Bridgeskóli Páls
Bergssonar hóf göngu sína
haustið 1979 og kom strax í ljós
nauðsyn slíks skólahalds. Þá
strax fékk Páll til liðs við sig
reynda kennara, Guðjón Sig-
urðsson og Guðmund Pál Arnar-
son. Nafni skólans hefur nú
verið breytt í Ásinn, Bridgeskól-
inn í Reykjavík en kennarar
verða þeir sömu og áður. Og
sömu kennsluaðferðir verða við-
hafðar. Myndvarpa og sérstak-
lega undirbúin spil notuð sam-
kvæmt bandarískri fyrirmynd,
í Bridgeskóla Reykjavíkur.
viðurkenndri af sambandi
bridgekennara þar í landi.
Fljótlega kom fram áhugi á
stofnun útibúa frá skólanum. Og
úr varð, að við fjölbrautaskólann
á Reyðarfirði og seinna einnig á
Akranesi lærðu um 30 ungmenni
bridge og þóttu námskeið þessi
takast nokkuð vel. Og ef svo fer
sem horfir má reikna með að
slíkt námskeiðahald verði reynt
á fleiri stöðum í vetur.
Síðar skaut upp áhuga nem-
enda skólans á stofnun félags-
skapar til ao sjá um spila-
mennsku á eigin vegum. Og mun
skólinn veita alla hugsanlega
hjálp til að koma hugmynd
þessari í framkvæmd. Ekki er
ljóst hvort kennslustaðurinn,
Félagsheimili hestamannafé-
lagsins Fáks, hentar til slíkra
spilakvölda. En eflaust þætti
mörgum bridgespilaranum feng-
ur að stað, þar sem hægt væri að
líta inn stöku sinnum og grípa í
spil í góðum hópi.
(Fréttatilkynning)