Morgunblaðið - 06.09.1980, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1980
47
Sanngjarn sigur
Þórs gegn Haukum
í GÆRKVÖLDI sigraði
Þór Hauka 1 — 0 í 2. deild á
Akureyri. Sigur Þórs var
sanngjarn þrátt fyrir að
þeir léku einum manni
færra allan seinni hálfleik-
inn, því að Nóa Björnssyni
var vikið af leikvelli í
upphafi hálfleiksins fyrir
að slá til leikmanns. Með
þessum sigri eru Þórsarar
svo gott sem komnir í 1.
deild og eiga aðeins eftir
að loka á eftir sér dyrun-
um.
Leikurinn í gærkvöldi
var ágætlega leikinn á köfl-
um en veðrið var mjög
leiðinlegt og setti oft strik í
reikninginn. Haukar byrj-
uðu leikinn af miklum
krafti og strax á 5. mínútu
komst Sigurður Aðalsteins-
son einn innfyrir vörn Þórs
en skot hans af stuttu færi
geigaði. Skömmu síðar fékk
Sigurður aftur svipað færi
en Eiríkur varði meistara-
lega. Fyrri hálfleikur var
allur nokkuð jafn. Undir
lok fyrri hálfleiksins átti
Þór tvö ágæt tækifæri sem
Þór i-n
—Haukar ■■w
ekki nýttust. Staðan í hálf-
leik var 0—0.
Eftir að Nóa Björnssyni
hafði verið vikið af velli
kom mikil barátta upp í liði
Þórs og átti liðið mun
meira í síðari hálfleiknum.
Á 10. mínútu fékk Þór
aukaspyrnu og skaut Árni
Stefánsson beint i stöngina
og síðan var skallað að
marki í stöngina og eftir
mikinn darraðardans tókst
Haukum að bjarga í horn.
Þórsarar pressuðu nokkuð
stíft og á 70. mínútu var
brotið illa á Hafþóri Helga-
syni og dæmt víti á Hauka.
Úr því skoraði Árni Stef-
ánsson af öryggi. Var það
sigurmark leiksins. Bestu
menn Þórs voru Eiríkur í
markinu og Þórarinn í
vörninni. Lið Hauka var
mjög jafnt.
SOR.
• Þaó yrði Val mikill styrkur gegn Zagreb, ef Pétur léki með liðinu.
Víta framkomu KSÍ
SÍÐASTLIÐIÐ miðvikudagskvöld hindruðu forráðamenn
Knattspyrnusambands íslands Bjarna Felixson, íþróttafréttam-
ann sjónvarps, og aðstoðarmenn hans við fréttaöflun af
landsleik íslands og Sovétríkjanna á Laugardalsvellinum.
Samtök íþróttafréttamanna víta framkomu KSI i þessu tilfelli
og vonast til að stjórn KSÍ sjái svo um að slíkt endurtaki sig
ekki.
Með þessu athæfi hefur KSl þverbrotið þær venjur sem i
heiðri hafa verið hafðar við fréttaöflun. Þá líta samtökin svo á,
að með þessu hafi verið höggvið nærri því góða samstarfi sem
verið hefur á milli Knattspyrnusambandsins og Samtaka
iþróttafréttamanna.
• Leopoldo Luque sættir sig örugglega ekki við niðurskorið
launaumslag...
ÍBÍ og Ármann
deildu með sér
stigunum í gær
LIÐ Ármanns og ÍBÍ skildu jöfn á
Laugardalsvellinum í gærkvöldi er
þau mættust í 2. deild. Bæði liðin
skoruðu þrjú mörk. Leikmenn
Ármanns voru þó komnir með
tveggja marka forskot en urðu að
sætta sig við að missa leikinn
niður í jafntefli. Mikil barátta var
í leikmönnum beggja liða og oft á
tíðum leikin sæmileg knattspyrna.
Ármenningar voru fyrri til að
skora, Ivar Jósafatsson skoraði
mjög laglega og kom Ármenning-
um á bragðið. Jón Björnsson náði
að jafna fyrir ÍBÍ og staðan í
hálfleik var jöfn 1—1. Mikill
kraftur var í liði Ármenninga í
síðari hálfleik og tókst þeim að ná
tveggja marka forystu. Að vísu
voru bæði mörkin skoruð úr víta-
Ármann
—ÍBÍ
spyrnu en þær voru réttilega
dæmdar. Sveinn Guðnason tók
báðar spyrnurnar og framkvæmdi
þær af miklu öryggi.
ísfirðingar voru pö ekki á því að
gefa sig og sóttu af kappi og
Andrés Kristjánsson skoraði fal-
legt mark og minnkaði muninn
niður í eitt mark. Haraldur Leifs-
son jafnaði svo metin úr víta-
spyrnu. Má segja að úrslit leiksins
hafi verið sanngjörn eftir gðngi
hans.
Frægasta félag
Suður Ameríku
á hausnum!
FRÆGASTA knattspyrnufélag
Suður Ameriku er líklega argen-
tinska félagið River Plate. Nú
vofir glötun yfir félaginu. þar
sem liðið var mjog óvænt slegið
út úr meistarakeppni suður Am-
eriku, hinni svoköluðu „Copa
Libertadors“ keppni. í þeirri
keppni eigast við efstu lið hvers
lands i Mið- og Suður-Ameriku og
er hér um mikla peningakeppni
að ræða. Framtið River Plate
hefur verið tryggð jafnan síðustu
árin vegna góðrar frammistöðu i
keppninni, þannig hefur RP unn-
ið keppnina fjórum sinnum á
siðustu sex árum.
Vegna þessa þykir sýnt, að
River Plate getur ekki greitt öllum
landsliðsmönnum sínum þau laun
sem samningar þeirra kveða á um.
Þarf ekki að fara í grafgötur með
að þeir sömu landsliðsmenn munu
heimta sölur. Hér er um fimm
heimsfræga kappa að ræða og má
með sanni segja að liðið myndi
leysast upp ef þeir yfirgefa allir
félagið. Leikmennirnir fimm eru
Daniel Passarella, Alberto Tar-
antini, Norberto Alonso, Leopoldo
Luque og markvörðurinn Ubaldo
Fillol.
Austri
fallinn
STAÐAN i 2. deild íslandsmóts-
ins í knattspyrnu er nú þessi:
KA 15121 2 53:11 25
Þór 1G 10 3 3 30:13 23
Þróttur 15 6 5 4 21:21 17
ÍBÍ 16 4 8 4 31:33 16
Haukar 16 5 56 27:32 15
Fylkir 15 5 4 6 25:20 14
Selfoss 16 5 4 7 23:35 14
Ármann 16 3 7 6 24:31 13
Völsungur 15 35 7 17:27 11
Austri 16 1 69 16:44 8
Eins og sjá má á þessari stöðu er
lið Austra fallið í 3. deild.
3—3
Pétur að öllum
líkindum með Val
— gegn júgóslavnesku bikarmeisturunum í Höllinni
ALLAR likur eru á þvi, að risinn
Pétur Guðmundsson muni leika
með Val gegn júgóslavneska lið-
inu Chibona Zagreb i Evrópu-
keppni hikarhafa i körfuknatt-
leik i næsta mánuði. Pétur spilar
nú með argentinska félaginu
River Plate. Það verður því mjög
sterkt Valsliðið, sem mætir Júgó-
slövunum. Sem kunnugt er, mun
Flosi Sigurðsson, sem nú leikur i
Bandarikjunum, leika Evrópu-
leikina. Bandarikjamaðurinn i
liði Vals, Roy Jones, hefur leikið í
NBA-atvinnudeildinni í Banda-
rikjunum og er þvi enginn auk-
visi. Þá munu Vaismenn fá annan
Bandarikjamann til liðs við sig.
Það er því ljóst, að Evrópuleik-
irnir i Laugardalshöllinni verða
ákaflega tvisýnir og Valsmenn
munu leggja allt i sölurnar til að
komast i 2. umferð.
Pétri Guðmundssyni hefur
vegnað vel með félagi sínu, River
Plate í Argentínu. Asamt honum
leika tveir Bandaríkjamenn með
River Plate en aðeins tveir útlend-
ingar fá að leika samtímis. Ferro
er í efsta sæti deildarinnar eftir 6.
umferðir með 12 stig — hefur
unnið alla sína leiki. River Plate
er í öðru sæti með 10 stig, — beið
nauman ósigur fyrir Ferro. Deild-
arkeppnin í Argentínu er með því
sniði, að á 6 vikna fresti er gert
hlé í viku eða svo. Þetta gerir það
að verkum, að líklegt er, að Pétur
komist heim til að leika með
Valsmönnum og einnig með lands-
liðinu, sem mætir Kínverjum í
Laugardalshöll. H. Halls
gegn Þrótti
á Laugardalsvelli í dag kl. 2.
Víkingar!
Fjölmennið á síöasta
heimaleikinn okkar í sumar.
AFRAM
VÍKINGUR!