Morgunblaðið - 19.10.1980, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1980
75
Menningarlegar Mánudagsmyndir
• Adventures of Barry
McKenzie, var fyrst mynd
hinnar átrölsku nýbylgju,
sem vakti umtalsverða at-
hygli og áhuga Evrópubúa.
Hún var gerð af framleið-
andanum Philip Adams, en
leikstýrð af Bruce Beres-
ford. Næsta mynd þeirra
félaga nefndist Don ’s
Party, og er gerð eftir
samnefndu leikriti eins
kunnasta nútíma leikrita-
Hér á eftir verður drepið á nokkrum myndum sem valdar
hafa verið til sýninga á mánudögum í Háskólabíói, næstu
mánuði. Að venju er um að ræða fjölbreytt myndaval, víðsvegar að
og eiga það sammerkt, flestar, að flokkast undir svokallaðar
„listrænar myndir“. Þær njóta yfirleitt ekki brautargengis
hins almenna afþreyingarmarkaðs (með sífelldum undantekn-
ingum samt), og fást því oftast ekki sýndar öðruvísi en í
kvikmyndaklúbbum eða á sérsýningum, líkt og hér.
• Það eru fá orð sögð í
kunnri, tveggja ára gamalli,
danskri mynd 92 minutter
af i gaar. Hún segir af
frönskum kaupsýslumanni,
sem á stutta viðkomu í
Kaupmannahöfn, á leið
sinni til Stokkhólms. Hann
á vantalað við umboðsmann
sinn í borginni, og hefur 92
mínútur til umráða, en þeg-
ar á staðinn kemur er umbi
á braut en ung stúlka
önnum kafin að flytja inn.
Örlögin haga því svo að á
þessum skamma tíma
myndast sterkt samband á
milli þessara ólíku, ókunnu
persóna. Athyglisverð
mynd um landamæri
tungumála og tilfinninga.
Leikstjóri er Carsten
Brandt (hans fyrsta mynd,
sýnd opinberl. á Cannes,
1980).
• O Thiassos, eða Ferðalag
leikaranna, er heimsfræg,
4ra tíma löng grísk mynd,
er fjallar um baráttu þeirr-
ar mætu þjóðar gegn fas-
isma — bæði af innlendum
toga spunnum sem utanað-
komandi, á árabilinu frá
1939-1952.
Myndina gerði Thodoros
Angelopoulus, við knöpp
kjör á tímum hinnar illa
þokkuðu fasistastjórnar
herforingjanna, 1974—75.
höfundar þeirra Ástrala,
David Williamson.
Myndin fjallar um veislu-
höld sem eiga sér stað í
kringum kosningarnar
1969, þegar Frjálslyndi
flokkurinn tapaði í fyrsta
sinn í tuttugu ár, fyrir
Verkamannaflokknum.
Fjölskrúðug blanda mann-
fólks er í veislunni, eða
vinstrisinnaður kennari í
fylgd með einni háværri
með kynþörf í frekara lagi;
hæglátur endurskoðandi
með mislukkuðum heim-
spekingi; niðurlægð eigin-
kona ásamt klámmynda-
Þau Angie Dickinson og Burt Reynolds, voru kjörin„stjörnur
ársins", vestan hafs.
framleiðanda, og svo mætti
lengi telja. ..
• Það hefur verið geysilega
mikið látið með nýjustu
mynd James Ivory, The
Europeans, sem nú er vænt-
anleg í Háskólabíó. Mynd-
gerð hinnar þekktu sögu
Henry James, þykir hafa
tekist mætavel og gagnrýn-
endur eiga tæpast orð til að
lýsa hrifningu sinni á leik
Lee Remick.
• Newsfront er áströlsk
mynd sem hefur á sér
heimildarsvip, en hún fjall-
ar um mikið umbrotatíma-
bil í sögu Ástralíu, eða árin
uppúr 1948. Segir af bræðr-
um sem starfa báðir við
fréttamyndagerð, en
halda sitt í hvora áttina og
Roland Blanche í dönsku myndinni 92 minutter af i gaar.
Atriði úr hinni andfasistísku mynd O Thiassos.
Tvær kempur: Truffaut og Almendros við gerð „Græna
herbergisins'‘.
taka sitt hvora lífsstefnuna.
Newsfront hefur vakið
mikla athygli víðsvegar um
heim, leikstjóri er einn af
efnilegri leikstjórum hinn-
ar fjarlægu heimsálfu,
Philip Noyce...
• Messer im Kopf, eða
Hnífurinn í höfðinu, nefnist
afkvæmi vestur-þýzku kvik-
myndanýbylgjunnar frá
1978, gerð af Reinhard
Hauff.
Fjallar um mann sem
missir minnið sökum höf-
uðáverka og reynir að kom-
ast á sannir um hvort hann
hafi verið friðsæll borgari
fyrir slysið eða hættulegur
hryðjuverkamaður, eins og
lögreglan lætur í veðri
vaka. Sterk, pólitísk mynd.
• Næst í röðinni er mynd
eftir snillinginn Francois
Truffaut, en hver ný mynd
frá hans hendi er næsta
kærkomin. Hér er um að
ræða Græna herbergið, (La
Chambre Verte). Hér er, í
stuttu máli, um að ræða
eina bestu mynd snillings-
ins, og í henni að finna flest
það sem helst prýðir mynd-
ir hans. Einvala lið er
Truffaut til aðstoðar, líkt
og myndatökumaðurinn
Nestor Almendros og sjálf-
ur fer Truffaut með aðal-
hlutverk og semur handrit-
ið.
• Norðmenn, nágrannar
vorir hafa verið iðnir við
kolann í kvikmyndagerð
undanfarin ár og Hvem har
bestemt ...? þykir standa
þar framarlega í flokki.
Myndinni er lýst sem ádeil-
inni kómedíu um þá spurn-
ingu hversu frjáls maður í
rauninni er í vestrænu lýð-
ræðisríki. Leikstjóri er
Petter Venneröd.
• Ar þrettán mánaða, (In
einem Jahr mit 13 Monden),
nefnist þekkt nýleg mynd
eftir Fassbinder, hér semur
hann einnig handritið,
klippir og kvikmyndar.
Viðfangsefnið er ekki
nýtt fyrir hinum afkasta-
mikla leikstjóra, eða mar-
tröð lítilmagnans i þjóðfél-
agi nútímans, en myndin
fjallar um Erwin sem lét
breyta sér í Elviru til að
reyna að nálgast manninn
sem hann elskar ...
Vítt og breitt
Síðastliðin vika var frem-
ur ómerkileg, frá kvik-
myndalegu sjónarmiði.
Kalígúla ríður húsum,
(o.fl.), í Laugarásbíói, hér
má segja að sé keisaralegt
klám á ferðum. Maður er
manns gaman, er ein af
þessum furðulegu myndum
sem fólk flykkist á af eins-
konar hjarðhvöt.
Austurbæjarbíó stillti
upp framhaldsmynd um
farþegaskipið Poseidon, og
þykir standa frummyndinni
all-langt að baki, sem var
þó ekki ýkja háreist ...
Stjörnubíó frumsýndi
Vélmennið, með stálkjaft-
inn kunna, Richard Kiel í
aðalhlutverki, eins getur
þar að líta Barböru Bach,
sem gekk í það heilaga með
erkibítlinum Ringo, á dög-
unum. Annarsstaðar mest-
megnis endursýningar.
Astkær fósturjörðin
komst í fyrirsögn í „biblíu
skemmtiiðnaðarins", Vari-
ety, þ. 1. þessa mánaðar, í
sambandi við vesturfara,
Hrafn, (á hvers nafni Vari-
ety klæmist á og skírir
Hrafal), Ágúst og Knút
Hallsson. Þeir halda vestur
um haf með góðar myndir í
farangrinum: The Father’s
Estate og Land and Sons,
auk myndar Kristbergs
Óskarssonar, sem á ensku
útleggst The Broad Gate To
Heaven.
Eins og komið hefur
fram, þá verða þessar
I myndir sýndar á Skandin-
J avískri kvikmyndakynn-
^ ingu sem standa á fimm
vikur í Museum of Modern
Art, í háborg listanna, New
York. Síðan halda lista-
| mennirnir með verk sín á
I fleiri hátíðir þar vestra.
Megi gengi þeirra verða
i sem mest.
Og áfram með hátíðir: Nú
; hafa Bandaríkjamenn
ákveðið að halda árlega
kvikmyndahátíð á sama
tíma og Cannes, vestur í I
Ix)s Angeles. Hátíðina setja
þeir til höfuðs Frökkum,
sökum þess uppsprengda
kostnaðar og plokkerís á
öllum sviðum sem hefur
sett mark sitt á hinn fræga,
franska kvikmyndamarkað
við Miðjarðarhafið. Frakk-
ar hafa náttúrlega borið
fram hávær mótmæli, að
vonum.