Morgunblaðið - 19.10.1980, Qupperneq 30
78
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1980
uiicutlOST ADSBL*PEf
%n Gudmundsson
Qen fredlöses’ he^
_ lnl„w, tor •
.r p4 ■r*E*r,£k.
Sk»ndin»"pn* ,"1" Ga(l.
R»;WÍ»'ik' ..
tilUetka sma efM . „ii#l och
, tekntWen haf haVf ijehanda sinnn-
„iveckUtochgjort^^
I kakonsUuk.ionendockwM
SiNDRA
STALHF
Fyrirliggjandi i birgðastöð
Borgartúni31 sími27222
Borgartúni31 sími27222
íslendingar með leikbrúðu-
námskeið í Finnlandi
Nýja SameÍKnafélaKshúsiA við Kirkjubraut og gömlu húsin Bjarmi og
SóleyjartunKa. sem voru byifiíð var fyrir síðustu aldamót.
aftur og rakt vaskaskinn strengt
yfir andiitið.
Síðan tók eitt við af öðru, smíða
líkama, gera hendur og fætur, og
að lokum að sauma föt á leikbrúð-
urnar.
Allt efni til námskeiðsins tóku
stjórnendur með frá Islandi, nema
leirinn.
Vinnustundir þessarar viku
urðu u.þ.b. 40 og óhætt að segja að
allir hafi unnið af mikilli vinnu-
gleði og áhuga.
Tíminn var naumur, en allir
luku við eina leikbrúðu, sumir
tvær, eða þeir sem höfðu tækifæri
til að vinna jafnframt heima.
Síðasta kvöldið var haldin
kvöldvaka, þar sem stjórnendur og
þátttakendur sýndu smáþætti með
brúðu, sem þeir höfðu gert. Þótt
tími til æfinga væri nánast eng-
inn, var leikgleðin og hugmynda-
flugið ríkjandi og stemmningin
fín.
Við vonum að námskeiðið hafi
áhrif í þá átt að efla brúðuleikhús-
starfsemi í Finnlandi og kvöddum
við Erna fólkið og landið með
söknuði."
að á þessu ári
Akranesi 16. okt. 1980.
ÞAÐ hafa verið töluvert miklar
byggingaframkvæmdir hér á
Akranesi á þessu ári. Úthlutað
var 45 einbýlishúsalóðum og 15
raðhúsalóðum og mörg hús eru í
byggingu.
Um 1.600 metrar af nýjum
götum hafa verið lagðir og varan-
legt slitlag lagt á 1.296 metra eldri
gatna. Þá er búið að leggja
varanlegt slitlag á 15.980 metra af
26.700 metra gatnakerfi bæjarins
eða um 60% alls.
Stærsta húsið, sem nú er risið
og bíður innréttingar, er Sam-
eignafélagshúsið Kirkjubraut 40.
Það er þriggja hæða, 1.195 fer-
metrar og 4.596 rúmmetrar. Eig-
endur þess eru Verkalýðsfélag
Akranes (30%), Lífeyrissjóður
Vesturlands (30%), Sveinafélag
málmiðnaðarins (15%), Verk-
fræði- og teiknistofan S/F (15%),
Trésmíðafélagið (5%) og Verzlun-
armannafélag Akraness (5%).
Áætlað verð hússins er 300 til 350
milljónir. Verkfræði- og teikni-
stofan S/F hefur annazt hönnun
hússins og séð um allar teikn-
ingar. Ungt fólk, sem er að byrja
búskap, hefur einnig keypt gömul
hús, gert þau upp og prýtt svo
eftirtekt hefur vakið.
Næsta átak í byggingarmálum
vegna íþróttamála er fullkomin
sundlaug á Langasandsbökkum.
Nú þegar er hafin söfnun í bygg-
ingarsjóð hennar og hefur íþrótta-
bandalag Akraness gefið hálfa
milljón og skorað á félög og
einstaklinga að styrkja bygging-
una með framlögum og áheitum.
Opnaður hefur verið gíróreikning-
ur númer 7.800 í þessum tilgangi.
Iþróttamannvirki hafa raunar
verið reist hér á Akranesi með
þegnskylduvinnu áhugamanna,
svo sem íþróttavöllurinn og
íþróttahúsin, en bæjarfélagið hef-
ur raunar alltaf fylgt á eftir á
rausnarlegan hátt.
Það má segja að næg atvinna
hafi verið hér að undanförnu og ef
miðað er við Akranes á milli
Hvalfjarðar og Grunnafjarðar, þá
er hér eitt mesta iðnaðarsvæði á
landinu með Sementsverksmiðj-
una, Grundartangaverksmiðjuna,
Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ell-
erts hf., frystihúsin, Fiskiðjuna
Arctic, Niðursuðuverksmiðju H.B.
& Co., Trésmiðjuna Akur og Síld-
ar- og fiskimjölsverksmiðju Akra-
ness hf.
En ef sjávarútvegurinn og iðn-
aður hans á að halda í horfinu,
verður að minnsta kosti að bætast
einn togari í flotann, og er þá
miðað við að fiski fjölgi í sjó, en
það er þýðingarmest.
Július
verkstæði Jóns í Reykjavík og
orðaði hann þá, að einhverntíma
kæmi Jón til Finnlands til að
halda námskeið í leikbrúðugerð.
„Vegna ýmissa orsaka hefur
ekki getað orðið af því fyrr en nú“
sagði Jón í stuttu samtali við Mbl.
um ferðina.
„Námskeiðið var haldið í Espo
Thorstrup í nágrenni Helsinki.
Nemendur voru 12, flestir meðlim-
ir í áhugaleikfélögum í Espo og
Helsinki.
Fyrsta daginn voru kynntar níu
tegundir leikbrúða og gátu þátt-
takendur valið sér þá leikbrúðu-
gerð, sem þeir höfðu mestan
áhuga á að búa til.
Útkoman var sannarlega fjöl-
breytt, skógartröll, fuglar, api og
furðudýr úr hafinu, fyrir utan alla
karla, kerlingar og kóngafólk.
Fyrst var hafist handa við að
móta höfuð úr leir, síðan voru sett
fjögur lög af pappír og lími
utanum það. Þegar límið var þurrt
var leirinn tekinn innanúr og
höfðuðið skorið í tvennt og munn-
hreyfibúnaður settur í.
Þarnæst er höfuðið límt saman
Hálfhert efni í þykktum
frá 0,80 mm — 6,00 mm
Plötustæröir 1200 mm x 2500 mm
Finnsk blöð sögðu frá heimsókn íslendinganna til þess að kenna
Finnum leikbrúðugerð og hér er mynd af frásögn í stærsta blaðinu.
Hufudstadsbladet.
Jón E. Guðmundsson með að-
stoð Ernu Guðmarsdóttur, hélt
námskeiðí leikbrúðugerð í Finn-
landi dagana 26. sept. til 3. okt.
1980.
Námskeiðið var haldið á vegum
Generalförbundet för svenska
teateramatörer í Finnlandi og
Teateramatörernes Samarbets-
kommité. Finnsk-íslenski menn-
ingarsjóðurinn veitti ferðastyrk.
Aðdragandi námskeiðsins er sá,
að árið 1975 var hér á ferð Bjarne
Lönegren, formaður generalför-
bundet för Svenska teateramatör-
er, og kom hann í heimsókn á
ALPLÖTUR
Akranes:
60 lóðum úthlut-
SINDRA
STALHR
SINDRA STAL
í þrí liggur
styrkurinn
Það sem steypt er þarf að styrkja
með stáli — Steypustyrktar stáli.
Steypustyrktarstál er ein af okkar
sérgreinum.
Við geymum stálið í húsi, sem
heldur því hreinu og gljáandi,
þannig verður þaö þægilegra í
vinnslu og sparartíma. Markmið
okkar er fljót og góð sendingar-
þjónusta.
Notaðu aðeins gott steypustyrktar-
stál, í því liggur styrkurinn.