Morgunblaðið - 19.10.1980, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 19.10.1980, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1980 79 Norræna húsið: Fyrirlestur um Villy Sörensen PRÓFESSOR Mogens Bröndsted frá Kaupmannahöfn heldur erindi í Norræna húsinu mánudaginn 20. okt. kl. 20.30 og talar um Villy Sörensen. Nefnir hann erindi sitt „Villy Sörensen og hans historie- syn“. Villy Sörensen er kunnur nútímahöfundur danskur, og árið 1974 hlaut hann bæði bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs og Heinrich Steffens-verðlaunin þýsku. bókmenntasögu, m.a. Nordens Litteratur (1972). Hann á sæti í dönsku lektoratsnefndinni og dómnefndinni fyrir bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs. Fyrirlesturinn um Villy Sören- sen og söguskoðun hans er öllum opinn. (FréttatilkynninK.) Rósin sýnd í Nýja bíó í gær frumsýndi Nýja bíó kvik- myndina „Rósin“. Myndin sú er framieidd af Aron Russo og Marvin Worth og leikstjóri er Mark Rydell. Myndin greinir frá umbrotatímum í lífi bandarískra ungmenna á áratugnum 1960—1970. Með aðal- hlutverk fara Betty Midler og Alan Bates. Islenzkur texti er með Leikkonan Betty Midler í kvikmyndinni „Rósin“. myndinni. Mogens Bröndsted (f. 1918) er bókmenntafræðingur að mennt, var lektor í dönsku í Osló og Uppsölum, prófessor í norrænum bókmenntum við háskólann í Óðinsvóum frá 1966 og rektor þess háskóla 1966—71. Mogens Bröndsted hefur gefið út bækur um norrænar bókmenntir, auk þess sem hann er „meðhöfundur" að ýmsum stærri verkum um Fyrirlestr- ar um Biblíu- rannsóknir HÉR á landi er nú staddur hollenskur fræðimaður, C.T. Stef- felaar. Mun hann halda hér nokkra fyrirlestra um Biblíurann- sóknir og ýmsa spádóma hinnar Fyrirlesarinn Steffelaar. helgu bókar, sem hann segir að tengist þeim örlagaríku tímum, er vér lifum nú á. Steffelaar mun sýna litskyggn- ur með fyrirlestrunum. Þeir verða fluttir á ensku, en túlkaðir á íslenzku, og haldnir í Fáksheimil- inu við Breiðholtsbraut í Reykja- vík, nk. tvo þriðjudaga og fimmtu- daga, þ.e. 21/10, 23/10, 28/10 og 30/10 kl. 20.30 alla dagana. Æskulýðssambandið: Gervasoni fái hæli! MBL. HEFUR borizt eftirfarandi samþykkt af fundi sambands- stjórnar Æskulýðssambands ís- lands, 14da þessa mánaðar. „Sambandsstjórn Æskulýðs- sambands íslands samþykkir að beina þeirri eindregnu áskorun til íslenskra stjórnvalda að þau veiti friðarsinnanum Patrick Gerva- soni hæli á íslandi. Þjóð sem státar sig af að hafa ekki her og kunna ekki her- mennsku getur ekki leyft sér að vísa úr landi ungum manni, sem hefur þor til að standa fast á þeirri sannfæringu sinni, að það sé réttur hvers manns að neita hermennsku, ef hún brýtur í bága við siðferðisvitund hans.“ SKEMMTILEG SUMARHÚS Eitt mun örugglega henta yður (//■i /1 * UM*/I dW>// jhuuiliuixííihi Nú getum við boðið úrval glæsilegra sumarhúsa í öllum stærðum, sem sem þér getið fengið á ýmsum byggingarstigum. En vinsælust eru frágengin hús, því þá er allt innifalið og ekkert annað eftir en að flytja inn. Smiðum húsin allt árið, þannig að húsið þitt getur verið tilbúið í vor eða fyrr. Komiö og kynnið ykkur verð og gæði húsanna að Smiðjuvegi 42. Höfum opið um helgina. LAND UNDIR SUMARHÚS Félög og fyrirtæki ættu að athuga, að við getum hoðið stórt land undir sumarhús á fallegum stað við Laugarvatn. Sumarhúsasmíði Jóns Smiðjuvegur 12, sími 71810 — 75612.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.