Morgunblaðið - 26.10.1980, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1980
25
Námskeið í stillingu hitakerfa:
Spara mætti 2,5 til 5
milljarða króna á ári
NÝLEGA er lokið námskeiði i
stillingu hitakerfa sem Bygg-
ingarþjónustan sá um að tilhlut-
an iðnaðarráðuneytisins. Nám-
skeiðið var haldið í Reykjavik og
sóttu það rúmlega fjörutiu
manns — pípulagningarmenn,
starfsmenn hitaveitna og tækni-
menn, viðs vegar að af landinu.
Næsta námskeið verður haldið
dagana 10. og 11. nóvember nk.
og hefur þegar fengizt næg þátt-
taka. Þá er fyrirhugað að fara
með þetta námskeið út um land,
ef næg þátttaka fæst, t.d. á
ísafjörð og Egilsstaði, en á Vest-
fjörðum og Austurlandi er oliu-
notkun til upphitunar mest á
landinu.
Námskeiðahald þetta er liður í
því fræðslu- og upplýsingastarfi
sem unnið er á vegum Orkusparn-
aðarnefndar iðnaðarráðuneytis-
ins, en þar hefur verið iögð
áherzla á að fá sem flesta aðila til
samstarfs. Tilgangur námskeiðs-
ins er að auka þekkingu og
kunnáttu pípulagningarmanna og
annarra sem taka að sér stillingu
hitakerfa fyrir húseigendur. Nú
stendur yfir víðtæk athugun á
orkunýtingu húsa hérlendis, sem
fram fer á vegum Orkustofnunar
og Rannsóknarstofnunar
byggingariðnaðarins. Könnunin
gefur vísbendingu um að stillingu
hitakerfa sé almennt mjög ábóta-
vant, jafnt í olíukyntum húsum
sem á hitaveitusvæðum.
Augljost er því að með sam-
stilltu átaki geta húseigendur og
samfélagið sparað miklar fjár-
hæðir í hitunarkostnaði. Sam-
kvæmt reynslu grannþjóða okkar
er meðalsparnaður af stillingu
hitakerfa á bilinu 15—25%. Hér á
•landi virðist orkunotkun til upp-
hitunar vera 20—30% meiri en
eðlilegt getur talizt og í einstökum
tilvikum þrisvar til fjórum sinn-
um meiri.
Ástæðan virðist vera vanstilling
á stillitækjum vatnshitakerfa og
hirðuleysi um hitastig í íbúðar-
húsnæði auk ónógrar einangrun-
ar.
Ef vel tækist til með stillingu
hitakerfa mætti spara 10 til 20%
þessarar óþarfa notkunar. Ef mið-
að er við 500 fermetra olíukynt
einbýlishús með 2,1 millj. kr.
kyndingarkostnaði á ári mætti
þannig spara um 630 þús. kr.
Ef landsmönnum tækist að
draga úr þessari óþörfu orkunotk-
un um 10 til 20%, þýddi það að 2,5
til 5 milljarðar spöruðust. Húseig-
endur á íslandi gætu náð þessu
marki með aðgerðum sem borguðu
sig á nokkrum árum. Bættur
tækjabúnaður hitakerfanna getur
þýtt enn meiri sparnað og aukin
þægindi. Hver gráða fram yfir 20
gráður eykur rekstrarkostnað um
7 prósent, sé um olíukynt kerfi að
ræða, en um 10 prósent, sé um
hitaveitu að ræða.
Þátttakendur á námskeiðinu æfa sig í að stilla hitakerfi sem
sérstaklega var smíðað í Tækniskóla íslands fyrir námskeiðið.
Leita bíl-
stjóra sem
stakk af
KLUKKAN 10.55 á föstudags-
morguninn var ekið aftan á
dreng á hjóli á Hafnarfjarðar-
vegi við Ásgarð í Garðabæ.
Drengurinn féll í götuna, reis
siðan á fætur og ætláði að leiða
hjólið út fyrir veginn. Þá tókst
ekki betur til en svo að billinn ók
aftur á drenginn.
Að því búnu brunaði bíllinn af
vettvangi án þess að stoppa og
hélt upp Vífilsstaðaveg. Lögreglan
vill skiljanlega ná tali af öku-
manninum og auglýsir hér með
eftir honum svo og vitnum. Hér
var um að ræða græna Skoda
Amigo bifreið með G-númeri.
Drengurinn meiddist á öxl og
hjólið hans er ónýtt.
Röng fyrirsögn
RÖNG fyrirsögn var á þætti sr.
Árelíusar Níelssonar, „Við glugg-
ann,“ hér í hlaðinu í gær. Heiti
þáttarins átti að vera: „Hvar er
altarið þitt?“, en ekki: „Vofur á
vetrarkvöldi nútimans.“ — Höf-
undur er beðinn velvirðingar á
mistökunum.
tfeuiLaKCííiMLiu
Innlent lán ríkissjóós íslands
____________1980 2.F1._________________
VERÐTRYGGÐ
SPARISKÍRTEINI
Fjármálaráðherra hefur f. h. ríkissjóðs
ákveðið að bjóða út til sölu innanlands
verðtryggð spariskírteini að fjárhæð allt
að 3000 milljónir kr.
Kjör skírteinanna eru í aðalatriðum þessi:
Skírteinin eru lengst til 20 ára, bundin
fyrstu 5 árin. Þau bera vexti frá 25. þ. m.,
meðalvextir eru 3,5% á ári. Verðtrygging
miðast við breytingar á lánskjaravísitölu,
sem tekurgildi 1. nóvember 1980.
Skírteinin eru framtalsskyld, en um
skattskyldu eða skattfrelsi skírteina fer
eftir ákvæðum tekju- og eignarskattslaga
eins og þau eru á hverjum tíma. Nú eru
gjaldfallnar vaxtatekjur, þ. m. t.
verðbætur bæði taldar til tekna og
jafnframt að fullu frádráttarbærar frá
tekjum manna, og þar með skattfrjálsar,
enda séu tekjur þessar ekki tengdar
atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi,
sbr. lög nr. 40/1978 og nr. 7/1980.
Skírteinin eru gefin út í fjórum stærðum,
10, 50, 100 og 500 þúsund krónum, og
skulu þau skráð á nafn.
Sala hefst 28. þ. m. og eru sölustaðir hjá
bönkum, bankaútibúum og sparisjóðum
um land allt, svo og nokkrum
verðbréfasölum í Reykjavík.
Sérprentaðir útboðsskilmálar liggja
frammi hjá þessum aðilum.
Október 1980
.o\A»4a
.il
V.vsV'
SEÐLABANKIISLANDS