Morgunblaðið - 26.10.1980, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 26.10.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1980 29 innar getið, og platan fyrirfannst ekki í verslun hans. Hið eina, sem viðskiptavinurinn gat sagt honum, var, að hljómsveitin væri frá Liverpool, og að platan hefði verið gefin út í Þýskalandi. Epstein tókst síðan að hafa upp á hljómsveitinni, og setti sig í samband við hana, en hann heill- aðist þegar af hljómlist þeirra og af persónuleika Lennons. Þess er áður getið, að vel heppnaðar hljómplötur fylgdu hver á fætur annarri, og einnig gerðu þeir aðra kvikmynd, Help nefndist sú. Lðg úr myndinni komu út á hljómplötu, og titillagið Help, náði óhemjuvinsældum víða um heim og náði efsta sæti vinsældalista í fjölmörgum lönd- um. — Allar spár um að Bítlaæðið gengi senn yfir og um að þeir myndu brátt tilheyra fortíðinni, reyndust rangar, því svo virtist sem vinsældum þeirra og nýjum sigrum væru engin takbiörk sett. Dauði Epsteins — eiturlyf og austur- lensk áhrif Brian Epstein lést árið 1967, líklega vegna þess, að hann drakk áfengi ofan í svefnlyf. Þess er áður getið, að veldi Bítlanna stóð ekki lengur eða féll með góðum um- boðsmanni, en dauði Epsteins hafði þó mikil áhrif á fjórmenn- ingana. Hann hafði reynst þeim tryggur vinur og félagi frá upp- hafi, og á vissan hátt mátti líta á hann sem fimmta manninn í hljómsveitinni. Um það leyti er Epstein lést, voru Bítlarnir á kafi í austur- lenskri dulspeki, og einnig neyttu þeir eiturlyfja ótæpilega á þessum tíma. Los virtist vera að koma á samvinnu þeirra Starrs, Lennons, McCartneys og Harrisons á þess- um tíma, og þess fóru að sjást merki, að samstarfið væri ekki eins gott og það hafði verið. Eitt af því, sem varð til þess að eyðileggja samstarf þeirra, var stofnun fyrirtækisins Apple, sem meðal annars gaf út plötur þeirra, og stundaði margvíslega starfsemi aðra. Rekstur þess fyrirtækis hef- ur löngum þótt gott vitni þess, að enginn þeirra hafi hundsvit á fjármálum, þó snilligáfa þeirra hafi gert þeim kleift að vinna sér inn meira fé en flestum öðrum hefur tekist. Enn gullkorn í handraðanum Bítlarnir voru þó alls ekki búnir að syngja sitt síðasta, þótt sjá megi merki þess eftir á, að þegar kom fram á árið 1967 væri tekið að styttast í samstarfi þeirra. Mörg gullkorn voru enn eftir í handrað- anum, og aðdáendur þeirra fengu ýmislegt að heyra næstu misserin. Þar má til dæmis nefna lögin Hey Jude, Ballad of John and Yoko og mörg fleiri, stóru plöt- urnar The Beatles (hvíta albúm- ið), Let It Be að ógleymdri Abbey Road-plötunni. — A öllum þessum hljómplötum eru fjölmörg góð lög, sem enn heyrast víða leikin, ýmist í upprunalegum útsetningum eða í nýjum búningi. I upphafi fluttu Bítlarnir jöfn- um höndum lög eftir Lennon og McCartney og lög eftir aðra lista- menn, en er leið á feril þeirra, voru á hljómplötum þeirra nær einvörðungu lög þeirra Lennons og McCartneys. — Síðar bættist þeim svo góður liðsauki þar sem George Harrison var, en upphaf- lega fékkst hann lítið sem ekkert við lagasmíðar. Mörg laga hans þykja þó í dag meðal þess besta sem Bítlarnir gerðu, einkum lög hans á Abbey Road. Nokkur lög frá Ringo flutu svo einnig með. Auk þeirra laga og hljómplatna, er fyrr er getið, fengust fjórmenn- ingarnir einnig við kvikmyndir sem fyrr, og litu til dæmis dagsins ljós myndirnar Magical Mystery Tour (sjónvarpskvikmynd), og Yellow Submarine (teiknimynd), og loks myndin Let It Be. — I þeirri síðustu mátti glögglega sjá, að hljómsveitin var að því komin að springa, sem og varð raunin. Bresku Bítlarnir slitu samstarfi sínu árið 1970, en áður höfðu þeir ekki komið fram á hljómleikum um langan tíma. Þeir virtust hafa þroskast sitt í hverja áttina, og samstarf þeirra var óhugsandi úr því sem komið var. Það voru einkum þeir John Lennon og Paul McCartney, sem virtust vera gagnstæðir pólar á þessum tíma, en áður hafði sam- starf þeirra einmitt verið með hvað mestum ágætum. Hlutur Ringos Starr og George Harrisons virðist minni, enda áttu þeir meira undir því, að The Beatles lifði áfram, en hinir tveir, sem almennt voru taldir fremri tón- listarmenn. Endalok samstarfsins Erfitt er að gera sér grein fyrir því, hvað raunverulega olli vinslit- um þeirra Lennons og McCartneys eftir svo langt og árangursríkt samstarf. Líklegast hefur það þó ráðið úrslitum, að þeim fannst þeir ekki hafa nægilegt listrænt frelsi í hljómsveitinni, auk þess sem skoðanir þeirra á ýmsum málum fóru ekki saman. John Lennon gat sér til dæmis á árunum kringum 1970 orð fyrir mjög róttækar þjóðfélagsskoðan- ir; hann barðist gegn þátttöku Bandaríkjamanna í Vietnamstríð- inu og hann gagnrýndi þátt Breta í deilunum á írlandi. Yfirlýsingar hans margar urðu fleygar, svo sem er hann sagði Bítlana njóta meiri vinsælda en Jesú Krist. Þá vakti hann hneykslan með því að skila Bretadrottningu orðunni, er hún hafði áður veitt honum, og honum tókst að móðga bresku þjóðina eins og hún lagði sig, er hann rak út úr sér tunguna í sjónvarpsviðtali, er hann var í lok þáttarins spurður hvort hann hefði eitthvað að segja löndum sínum. Lennon, sem þá var búsett- ur í Bandaríkjunum, kvað já við, sneri sér að sjónvarpsmyndavél- inni og „ullaði" framan í landa sína! McCartney hefur á hinn bóginn virst hafa átt auðveldara með að aðlaga sig hinu borgaralega lífi, þótt á ýmsu hafi gengið að vísu. Ætla má því, að honum hafi gramist og leiðst ýmis uppátæki félaga síns á þessum tíma. Oft hefur verið sagt, að síðari kona Johns, Yoko Ono, hafi haft áhrif á hann til hins verra. í nýlegu viðtali við bandaríska ritið Newsweek segir hann hins vegar, að hún hafi þvert á móti reynt að hjálpa honum yfir erfiðleikatíma, þar sem frægðin hafi verið orðin honum vandamál. En nánar verð- ur vikið að því síðar. The Beatles, sem svo oft höfðu fyllt hljómleikasali og íþrótta- leikvanga, heyrðu nú sögunni til. Hljómsveitin lifir þó enn góðu lífi á hljómplötum og í minningu aðdáenda hennar, auk þess sem liðsmenn hennar eru enn að gera það gott, hver í sínu lagi. - AII

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.