Morgunblaðið - 26.10.1980, Blaðsíða 44
AKAI
HLJÓMTÆKI
ORDIIDIO
LITTÆKI
100.000 kr. staögr. afsláttur
eöa 300.000 kr. útborgun
í flestum samstæöum.
AKAI er hágaaöa merki á góöu veröi.
100.000 kr. staögr afsláttur
eöa 300.000 kr. útborgun.
Gildir um öll littœki.
GRUNDIG vegna gaaöanna.
SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1980
A fimmta þúsund
kr. fyrir rjúpuna?
EKKI er enn vitað hvert verð á
rjúpu verður i vetur. en veiði-
menn itera sér vonir um að þeir
íái 3.500 — 4.000 krónur fyrir
rjúpuna og verð út úr búð yrði þá
eitthvað á fimmta þúsund krónur.
í fyrra seidu vciðimenn rjúpuna á
2.500 krónur.
Eðlilega ræðst verðið af fram-
boði, en þrátt fyrir að undanfarið
hafi mikið sézt af rjúpu norðan-
lands og sunnan hefur lítið veiðzt.
Eítið hefur hins vegar sézt af rjúpu
fyrir austan, en þar eins og annars
staðar hefur snjólag gert veiði-
mðnnum erfitt fyrir og hefur
rjúpan verið dreifð. Fréttir af
góðri veiði hjá einstaka mönnum
hafa þó heyrzt og t.d. fengu þrír
Akureyringar 115 rjúpur á Þorska-
fjarðarheiði á 1 '/z degi fyrir
skömmu. Stöðugt þrengist að
rjúpnaskyttum, þar sem landeig-
endur hafa mjög víða bannað
rjúpnaveiði í löndum sínum.
Á því byggist fjárlagafrum-
varpið og þjóðhagsáætlun
Ljósn. Mbl. Kristján.
RÍKISSTJÓRNIN hefur tekið
ákvorðun um vísitöluskerðingu
launa á næsta ári. í Reykjavíkur-
hréfi Morgunhlaðsins í dag eru
leiddar líkur að því, að fyrir
rikisstjórninni vaki að skerða vísi-
toluna annað hvort þannig. að ekki
verði greiddar hærri verðhætur á
laun en nemur 7,5% 1. mars næst-
komandi og 7,5% 1. júní eða verð-
ha'turnar nemi 9% 1. mars, 8% 1.
júní, 7% 1. septemher og 5% 1.
desemher á na'sta ári. Samhiiða
þessari vísitoluskerðingu hefur rík-
isstjórnin í huga að nota 12 millj-
arða króna á árinu 1981 til að bæta
láglaunafólki upp kjaraskerðing-
una og mun það gert með hækkun
niðurgrciðslna. hækkun fjölskyldu-
bóta eða lækkun skatta. Ríkis-
stjórnin stefnir þvi að svipuðum
„Stundaglas-
ið að tæmast“
SÁTTAFUNDUR stóð frá klukkan
10 til hádegis í gær án þess þó að
ASÍ og VSI ra-ddust við, en til nýs
fundar var boðað klukkan 15.30.
Sérfundur Sambands bygginga-
manna átti að hefjast klukkan 13 í
gær, en í fyrrakvöld sátu fulltrúar
sambandsins og ASI á sérfundi og
einnig kom trúnaðarmannaráð
Trésmiðafélags Reykjavíkur saman
í fyrrakvöld ásamt fulltrúum
Trésmiðafélags Akureyrar, sem síð-
an bættust í hóp samningamanna
hjá sáttasemjara í gærmorgun.
„Stundaglasið er að tæmast,"
sögðu samningamenn, sem Mbl.
ræddi við í gær og spurði um
framvindu mála.
Lögbann
STAÐFEST var í ha-jarþingi
Reykjavikur á föstudag lög-
bann, sem sett var á aðgerðir
Greenpeace-manna á hvalamið-
unum við landið sumarið 1979.
Eins og lesendur eflaust muna
trufluðu Greenpeace-menn veið-
ar íslenzku hvalbátanna það
sumar og notuðu við aðgerðirnar
stóran hraðbát. Hvalur hf.
krafðist lögbanns á aðgerðirnar
og var lögbann sett á þær hjá
embætti borgarfógeta. Hvalur
höfðaði síðan staðfestingarmál
fyrir bæjarþinginu og var lög-
bannið staðfest. Dómari var
Garðar Gíslason borgardómari.
Miklar skemmdir
á vélaverkstæði
af völdum bruna
MIKIÐ tjón varð í bruna í véla-
verkstæðinu llamarshöfða 2 í
Reykjavík í gærmorgun.
Slökkviliðinu barst tilkynning
um eldinn klukkan 8.06. Þegar liðið
kom á vettvang lagði út reyk með
öllu þakinu. Eldur var víða í húsinu
og gekk greiðlega að slökkva hann.
Sem fyrr segir urðu miklar
skemmdir á verkstæðinu, einangr-
un er ónýt og skemmdir urðu á
vélum. Sömuleiðis skemmdist mikið
sendibifreið af Mercedes Benz-gerð,
sem var í verkstæðinu.
aðgerðum og ríkisstjórn Geirs Ilall-
grímssonar greip til í febrúar 1978
og urðu til þess, að stjórnarand-
sta-ðingar með Alþýðubandalagið í
fararbroddi tóku upp kjörorðið:
„Samningana í gildi“.
I umræðum um stefnuræðu for-
sætisráðherra létu ráðherrar orð
falla, sem gefa þessi áform til kynna
og miðast framkvæmd þeirra við
gjaldmiðilsbreytinguna um áramót,
þótt Steingrímur Hermannsson hafi
talið, að til þeirra ætti að grípa fyrír
1. desember á þessu ári. Gunnar
Thoroddsen lagði áherslu á, að
víxlhækkun kaupgjalds og verðlags
ætti mikinn þátt í verðþenslunni.
Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra,
sagði, að nauðsyn væri að vinna af
alefli gegn því „að þær launahækk-
anir sem lágtekjumenn fá fram
þessar vikurnar brenni upp í auknu
verðbólgubáli á næstu mánuðum og
þess vegna verður að reyna með
samstilltu átaki margra hagsmuna-
aðila að draga úr víxlhækkunum og
sjálfvirkni kerfisins á fyrstu mánuð-
um næsta árs.“ I ræðu sinni sagði
Steingrímur Hermannsson, sjávar-
útvegsráðherra, að niðurtalning
verðbólgunnar gæti aldrei borið til-
ætlaðan árangur, nema hámarks-
hækkanir væru ákveðnar á öllum
sviðum.
í þjóðhagsáætlun fyrir árið 1981
kemur fram, að meðalhækkun vísi-
tölunnar milli 1979 og 1980 verður
um 58% en forsenda fjárlagafrum-
varpsins fyrir 1981 um launa- og
verðlagsþróun er sú, að tekjur og
verðlag hækki að meöaltali um 42%
milli áranna 1980 og 1981. Sam-
kvæmt frumvarpinu er áætlað að
verja um 21 milljarði króna til að
greiða hækkun launa opinberra
starfsmanna vegna verðbóta og sagt
„að vegin launahækkun" af þeim
sökum verði um 15%, sambærileg
tala fyrir árið í ár mun vera
20—22%. Segir í þjóðhagsáætlun-
inni, að ríkisstjórnin muni stefna að
því að draga úr hvers konar sjálf-
virkni í verðákvörðunum og tekju-
ákvörðunum, sem tengjast vísitöl-
unni, eins og frekast eru föng á.
ASÍ-þing:
Alþýðubandalag leitar hóf-
anna hjá Sjálfstæðisflokki
„BÁÐIR armar Alþýðubanda-
lagsins hafa haft samhand við
okkur sjálfstæðismenn, en þeir
hafa ekki óskað eftir formlegum
viðræðum ennþá, enda ekki sam-
mála innhyrðis til þess. Hins
vegar munu furmlegar viðraslur
okkar og framsóknarmanna
verða í næstu viku,“ sagði Sigurð-
ur óskarssun. formaður verka-
lýðsmálaráðs Sjálfstæðisflokks-
ins, er Mbl. spurði hann i gær um
undirbúningsviðra'ður fyrir
ASÍ-þingið í haust.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Mbl. hefur aflað sér, stafar
ósætti alþýðubandalagsmanna að-
allega af framboði Ásmundar
Stefánssonar til forsetaembættis í
ASÍ. Virðist vera vaxandi and-
staða við það framboð, bæði í
röðum verkalýðsmálamanna og
stjórnmálamanna, þar sem í fyrr-
nefnda hópnum eru m.a. Guðjón
Jónsson og Kolbeinn Friðbjarnar-
son og í síðari hópnum Svavar
Gestsson og Lúðvík Jósepsson, en
Snorri Jónsson og Guðmundur J.
Guðmundsson fara fyrir hópi
stuðningsmanna Ásmundar.
Vertíð reknetabáta að Ijúka
LEYFI til síldveiða í reknet og
lagnet hafa verið afturkölluð frá
og með hádegi á morgun. í
tilkynningu frá sjávarútvegs-
ráðuneytinu segir, að líklegt sé
að heildarkvótinn, sem ákveðinn
var 18 þúsund lestir, fyllist um
helgina. Þeir bátar, sem síldveið-
ar stunda í reknet og lagnet,
skúlu hafa dregið net sín fyrir
hádegi á mánudag.
Mjólk og: kart
öflur lækka
MJÓLK og kartöflur lækka í
verði á mánudaginn vegna auk-
inna niðurgreiðslna ríkissjóðs;
mjólkurlítrinn lækkar um 18
krónur, úr 371 krónu i lítra-
umbúðum i 353 krónur, og
kartöflukilóið lækkar um 99
krónur, úr 356 krónum í 257
krónur. Þessi niðurgreiðslu-
aukning ríkissjóðs kostar 150
til 200 milljónir króna á þessu
ári.
Frá 1. september hefur
mjólkurlítrinn verið niðurgreidd-
ur um 146 krónur og kartöflukílóið
um 121 krónu, þannig að niður-
greiðslur verða nú 220 krónur á
kartöflukílóið og 164 krónur á
hvern mjólkurlítra.
Efnahagsráðstafanir rikisstjórnarínnar um áramót:
Skerðing á verðbót-
um launa áformuð
Vélbáturinn Guðrún frá
Hafnarfirði veiddi háhyrning
á Meðallandsbug seint i
fyrrakvöld. Báturinn kom til
Grindavíkur í gærmorgun og
var háhyrningurinn fluttur í
Sædýrasafnið, sem stendur
fyrir veiðunum. Háhyrningar
eru sem kunnugt er eftirsótt-
ir af erlendum sædýrasöfnum
og er verðið um 27 milljónir
fyrir stykkið. Myndin var
tekin í Grindavík í gærmorg-
un.