Morgunblaðið - 12.11.1980, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1980
19
Flugleiðamál í neðri deild:
Deilt um málsmeðferð
fremur en efnisatriði
Snörp orðaskipti milli Vilmundar Gylfasonar og
Steingríms Hermannssonar, samgönguráðherra
RAGNAR Arnalds, fjár-
málaráðherra. mælti fyrir
stjórnarfrumvarpi um
málefni Flusleiða í neðri
deild alþingis sl. mánu-
dají. Rakti hann efnis-
atriði frumvarpsins sem
OK skilyrt ákvæði í nefnd-
aráliti meirihluta fjár-
hagsnefndar efri deildar.
sem ítarlega hefur verið
Kreint frá hér á þingsíðu
Mbl.
Fullt samkomulag
um efnisatriði
Fjármálaráðherra sagði að fullt
samkomulag hefði prðið um efnis-
atriðí frumvarpsins og hinna skil-
yrtu ákvæða. Einj munurinn, sem
eftir stæði í efri deild, væri sá, að
fulltrúi Alþýðuflokksins hefði vilj-
að skilyrðin inn í lögin, en aðrir
þingdeildarmenn hefðu talið
nægilegt að festa þau í nefndar-
áliti sem framkvæmdaveg fyrir
ríkisstjórnina. Þannig má segja að
ekki sé lengur málefnalegur
ágreiningur á ferð, enda „mesta
loftið að fara úr mönnum í
málinu“, sagði ráðherra.
Sammála mojíinstefnu
frumvarpsins
Benedikt Gröndal (A) sagði
Alþýðuflokkinn sammála megin-
stefnu frumvarpsins en hæpið
væri að gefa ríkisstjórninni svo
frjálsar hendur um framkvæmd,
að taka ekki skilyrt ákvæði beint
inn í sjálf lögin (5. grein). Hann
sagði að þær umræður, illdeilur og
átök, sem orðið hefðu um mál
þetta, innan þings og utan, hefðu
naumast orðið til gagns né sóma
eða styrkt íslenzka hagsmuni.
Málið hefði tekið langan tíma í
efri deild og hann hefði ekki trú á
því að neðri deild bætti mikið um
til hins betra. Nú bæri að snúa sér
að því að afgreiða málið.
Vinnubrögðin
vítaverð
Ólaíur G. Einarsson (S) sagðist
ekki vilja tefja umræðuna með
umfjöllun um einstök frumvarps-
atriði nú, enda brýn nauðsyn að
hraða málinu til nefndar. Hann
vildi þó gagnrýna harðlega þau
vinnubrögð, að fjárhagsnefndir
þingdeilda hefðu ekki unnið sam-
an að málinu, eins og venja væri
þegar um svo stórt mál væri að
ræða, sem auk þess þyrfti að
hraða afgreiðslu á. Verkstjórn
ráðherra hefði hér farið úr skorð-
um. Ólafur sagði að umræða um
mál þetta, bæði innan þings og
utan, hefði borið meira vitni
auglýsingamennsku einstakra
ráðherra og þingmanna en áhuga
á því að tryggja samíslenzka
hagsmuiíi flugsamgangna. Fagna
bæri hinsvegar þeirri samstöðu
sem tekizt hefði um málið í efri
deild og kappkosta að tryggja
áfram samstöðu um það, sem
tryggt gaeti íslenzka hagsmuni í
þessu mikilvæga máli.
Er íyrir)froiðslan
skilyrt?
Albert Guðmundsson (S) sagð-
ist sammála afstöðu Kjartans
Jóhannssonar (A) í efri deild.
Betur hefði farið á því að binda
hin skilyrtu ákvæði nefndarálits-
ins í lög, svo ekkert færi á milli
mála. Hann spurði samgönguráð-
herra, í fjarveru fjármálaráð-
herra, að því, hvort ekki væri
trygKt, að sú fyrirgreiðsla, sem
frumvarpið fæli í sér, væri háð
því, að Flugleiðir gengju að þeim
skilyrðum (skilyrtu ákvæðum)
sem fram hefðu komið í nefndar-
álití fjárhagsnefndar efri deildar.
Skilyrðin forsonda
fyrirgroiðslu
Steingrimur Hermannsson.
samgönguráðherra. sagði Flug-
leiðir ekki fá fyrirgreiðslu, sam-
kvæmt frumvarpinu, nema að
uppfylltum skilyrðum, sem fram
kæmu í nefndaráliti. Ef eitthvað
kemur upp á, sem stangast á við
gildandi lög, verður haft samráð
við fjárhagsnefndir þingsins,
sagði hann.
Ekki talað við
noma milljónamonn
Karvel I’álmason (A) sagði
samráð hafa verið haft við ýmsar
starfsstéttir flugsins, en sér sýnd-
ist þó, að þar hefði verið farið í
manngreinarálit. Ekki hefði verið
talað við þá, sem hefðu undir
milljón krónum á mánuði í laun.
F'ormaður viðkomandi nefndar í
efri deild, Ólafur Ragnar Gríms-
son, hefði tekið mið af vægi
launaumslagsins í vali viðræðuað-
ila. Gjarnan hefði matt tala við þá
stóru hópa, sem minna bæru úr
býtum.
Atlantshafsflugið
vonlaust
Árni Gunnarsson (A) lagði
áherzlu á, að tryggðar yrðu hinar
nauðsynlegustu flugsamgöngur
innanlands og við umheiminn.
Hins vegar væri flugið Luxem-
borg-New York (Atlantshafsflug-
ið) vonlaus ævintýramennska við
núverandi aðstæður.
Doilt á samnröniíu-
ráðhorra
Vilmundur Gylfason (A) sagð-
ist taka sæti Sighvatur Björg-
vinssonar í fjárhagsnefnd þing-
deildarinnar í þessu máli. Hann
deildi hart á samgönguráðherra,
m.a. vegna f yrirspurna til Flug-
leiða, hvort ekki væri rétt, að
fyrirtækið hefði farið fram á
fyrirgreiðslu við Atlantshafsflug-
ið. Það hefði ætlað að skera þann
flugþátt niður þegar stjónvöld
hefðu gripið inn í. Hann sagði
hamskipti ráðherra í þessu máli
hafa verið úr gervi Skugga-Sveins
í gervi Ketils skræks. Ráðherra
hefði tekið mið af ríku fólki,
kenndu við Arnarnes.
Spurt að uefnu
tilofni
Steingrímur Ilermannsson.
samgönguráðherra, sagði Vil-
mund „ekki raknaðan úr rotinu
eftir flokksþing Alþýðuflokksins.
Bréfaskriftir sínar, varðandi þetta
mál, væru eðlilegar, og öll afrit í
höndum þingnefnda. Spurt hefði
verið að gefnu tilefni, hvort óskað
væri eftir aðstoð við Atlantshafs-
flugið og svarið staðfest slíka ósk.
Að loknum snörpum orðaskipt-
um, einkum milli Vilmundar
Gylfasonar og samgönguráðherra,
var málinu vísað til fjárhags-
nefndar þingdeildarinnar.
Togveiðar bannaðar út
af Vopnafjarðargrunni
Sjávarútvegsráðuneytið gaf í
ga‘r út reglugerð um hann við
togveiðum út af Vopnafjarðar-
grunni. í tilkvnningu ráðuneytis-
ins segir svo um þessa ákvörðun:
Síðan í byrjun október hefur
orðið vart við verulegt magn af
smáþorski í afla togara á svæði út
af Vopnafjarðargrunni og hefur
fjórum sinnum verið gripið til
skyndilokunar af þeim sökum.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
nú, að tillögu Hafrannsóknastofn-
unar, gefið út í dag reglugerð, sem
bannar allar veiðar í botn- og
flotvörpu á svæði út af Vopna-
fjarðargrunni, sem markast af
eftirfarandi punktum:
1.66015’N, 13022’V
2.660120, 12mN48’V
3.66023’N, 1301*2’V
4.66027’N, 13012’V
Reglugerð þessi gildir í óákveð-
inn tíma, en áfram mun verða
f.vlgst með svæðinu.
Skagafjörður:
Þyngsti dilkurinn
vó 30,1 kílógramm
Sauóárkróki 11. nóv. 1980.
HJÁ Slátursamlagi Skagfirðinga
á Sauðárkróki var í haust slátrað
alls 11.235 kindum. þar af 1.29fi
siðsumars vegna öskufalls í fram-
anverðum Skagafirði. Meðalfall-
þungi dilka í haustslátrun var
14.0fi kg en í sumarslátrun 12.72
kg.
Pétur bóndi Pálmason á Reykja-
völlum, sem lagði inn 120 dilka,
átti hæstu meðalvigt, 19,1 kg.
Hann átti einnig þyngsta dilkinn á
þessu hausti, sá lagði sig á 30,1 kg.
í fyrra var slátrað rúmlega 13
þús. kindum hjá Slátursamlaginu,
og meðalvigt dilka þá var 12,52 kg.
Hjá Kaupfélagi Skagfirðinga
var alls slátrað 52.126 kindum, þar
af voru 1.044 lömb af öskufalls-
svæðinu. Meðalþungi dilka í aðal-
slátrun var 14,26 kg en sé sumar-
slátrun tekin með 14,23 kg.
Haustið 1979 var alls slátrað
hjá K.S. 65.637 kindum, þannig að
sláturfjárfjöldinn hefur dregist
saman um rúm 20%.
- Kári.
Gleðileg jól
og farsælt knmandi ár
Kveðja sem kemur
á óvart! Augnabliksmynd getur orðið
að skemmtilegu jólakorti.
ATH. MINNSTA PÖNTUN ERU 10 STK. EFTIR SÖMU MYND.
Pantið tímanlega. Verð kr. 300.00 pr. kort.
HAHS PETERSEN HF
BANKASTRÆTI
S: 20313
GLÆSIBÆR
S: 82590
AUSTURVER
S. 36161
Umboðsmenn
um allt land