Morgunblaðið - 12.11.1980, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1980
+
Eiginmaöur minn, faöir okkar, bróöir og sonur,
GUNNARTHEÓDÓRGUNNARSSON,
lézt af slysförum í Þýzkalandi þann 10. nóv. sl.
Steinunn Friðgeirsdóttir Axfjörð,
Friðgeir Örn Gunnarsson,
Þórunn Ingólfsdóttir,
Georg Gunnarsson,
Hinrik Gunnarsson,
Jóhanna Magnúsdóttir,
Gunnar Theódórsson.
+
Fósturfaðir minn,
RÚDÓLF SÆBÝ,
lést í sjúkrahúsi Siglufjaröar mánudaginn 10. nóvember.
Fyrir hönd aöstandenda.
Björn Grétar Ólafsson.
+
Útför
STEFÁNS GUÐMUNDAR BRYNJÓLFSSONAR
fró Flateyri,
fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn 13. nóvember kl. 1.30 e.h.
Guðfinna Arnfinnsdóttir,
Brynhildur Stefónsdóttir,
Kjartan Stefónsson,
Ingibjörg Stefónsdóttir,
Hallur Stefónsson,
Lóa Stefónsdóttir,
Magnús Bjarnason,
Anna Sigmundsdóttir,
Kristinn Magnússon,
Fjóla Haraldsdóttir,
Guðmundur H. Þórðarson
og barnabörn.
+
Þökkum öllum nær og fjær innilega auösýnda samúö og veitta
aöstoö við andlát og jarðarför móöur minnar og tengdamóöur,
STEINUNNAR SIGUROARDÓTTUR
fró Hofsnesi, Öræfum.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á deild A4
Borgarspítalanum og í Hafnarbúöum.
Sigrún Þorsteinsdóttir, Viggó Jósefsson.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og
jaröarför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
MAGNEU STEFÁNSDÓTTUR,
Olafsvegi 8, Ólafsfirði.
Guöbjörn Jakobsson, Sigríður Sæland,
Einar Jakobsson, Ingimar Númason,
Barði Jakobsson, Póll Beck,
Stefón Jakobsson, Tryggvi Jónsson.
+
Innilegar þakkir færum viö öllum þeim er sýndu okkur samúö og
vinarhug viö andlát og jaröarför
SIGFUSAR ÓLAFSSONAR,
Hlið,
Sigluffrði.
Þorfínna Sigfúsdóttír, Steingrímur Magnússon,
Margrét Ólafsdóttir, Jón Dýrfjörö,
Bragi Dýrfjörö, Birgir Dýrfjörö,
tengdabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir færum viö öllum þeim, er sýndu okkur samúö og
vinarhug viö andlát og jaröarför eiginmanns míns og fööur okkar,
KRISTMUNDAR SÆMUNDSSONAR,
vélstjóra,
Kópavogsbraut 106.
Guðný Björgvinsdóttir,
Sigurbjörg Kristmundsdóttir,
Dröfn Kristmundsdóttir,
Linda Kristmundsdóttir,
Kristín Kristmundsdóttir.
+
Alúöarþakkir fyrir samúö og hlýhug viö fráfall og útför
JÓNASAR JÓNSSONAR STEINHÓLM
fró Höfðadal.
Ragnheiöur Jónasdóttir, Karl Höfðdal,
Abigael Jónsdóttir Steinhólm,
tengdabörn og barnabörn.
Geir Jón Ásgeirs-
son - Minning
Fæddur 8. júní 1929.
Dáinn 3. nóvember 1980. .
Sá er hyto(inn. sem þekkir aAra
hinn er vitur. sem þekkir sjálfan sík.
Sá er sterkur. sem sigrar aAra.
hinn er mikilmenni. sem sigrast á sjálfum sér.
Sá er ríkur. sem ánatjrtur er meA hlutskipti sitt,
þrekmikil starfsemi ber vott um vilja.
Sá sem stendur vel í stortu sinni er órujocur.
Sá. sem deyr. en ferst ekki.
á hid lanxa líf fyrir hondum.
Þessi spakmæli eftir Lao Tse
(Bókin um veginn) koma í huga
minn, þegar ég við andlát mágs
míns og vinar Geirs Jóns Ás-
geirssonar, minnist hans. Það kom
mér mjög á óvart, þegar mér var
tilkynnt lát hans. Daginn áður
höfðum við hjónin verið í heim-
sókn hjá honum, og kvatt hann
glaðan og hressan í bragði, eins og
ævinlega við okkar samfundi.
Sannast þar máltækið, að enginn
ræður sínum næturstað.
Geir Jón fæddist í Reykjavík 8.
júní 1929 sonur Önnu Geirsdóttur
frá Múla í Biskupstungum og
Ásgeirs L. Jónassonar, vatns-
virkjafræðings frá Þingeyrum í
Vatnsdal. Hann missti móður sína
ungur, eða á fjórða ári. Má nærri
geta, að það hefur haft áhrif á
æsku hans og bræðra hans, Torfa
tveggja ára og Jóns Geirs fimm
ára.
Geir Jón var þeirra gæfu að-
njótandi að eiga góða að, og ólst
hann upp í skjóli föður síns,
móðurömmu og móðursystra. Á
sumrin dvaldi hann hjá frænd-
fólki sínu að Holti í Svínadal, naut
hann lítill drengur umhyggju alls
þessa góða fólks, sem hann mat
mikils allt sitt líf. Faðir hans
kvæntist í annað sinn Ágústu
Vigfúsdóttur frá Flögu í Skaftár-
tungum. Dvaldist hann hjá þeim
fram yfir fermingu. Ágústa og
Ásgeir eignuðust þrjú börn, þau
eru: Ólafur Ásgeir, Sigríður Vig-
dís og Vigfús. Þá eignaðist hann
tvær stjúpsystur af fyrra hjóna-
bandi Ágústu. Þær eru: Matthild-
ur og OÍöf Ólafsdætur. Á ungl-
ingsárum stundaði Geir Jón nám
við Menntaskólann á Akureyri, en
vann á sumrin margskonar störf,
meðal annars með föður sínum við
landmælingar. Ásgeir faðir hans
andaðist árið 1974.
Árið 1952 kvæntist Geir Jón
eftirlifandi konu sinni, Ástu Guð-
mundsdóttur, og eignuðust þau
fjögur börn. Þau eru: Anna, hún
stundar nám í læknisfræði við
Háskóla Islands, Sigurbjörg,
hjúkrunarkona og búfræðingur,
Guðmundur, framreiðslumaður og
Helga, í heimahúsum. Geir Jón
stundaði ýmis störf, lengst af við
verkstjórn, meðal annars hjá
Olíuverslun íslands um árabil.
Geir Jón var mikill áhugamaður
um veiðiskap, fór hann vítt um
land í veiðiferðir og ávallt í hópi
góðra vina. Sköpuðust oft
skemmtilegar samræður um þær
ferðir, sem ávallt voru ánægju-
legar, þótt smáerfiðleikar kæmu
fyrir á stundum, en þeir gerðu
frásögnina litríkari og skemmti-
legri eftir á. Minnist ég nokkurra
slíkra veiðiferða með honum. Á
vetrum stundaði hann skíðaferðir
ásamt börnum sínum. Hittumst
við oft í skíðalöndum Reykjavíkur,
kapp hans og áhugi var smitandi
og gerðu ferðirnar skemmtilegri.
Síðan Geir Jón tengdist mér
fyrir þrjátíu árum, hefur hann
reynst sannur félagi, og góður
vinur, hjálpsamur, úrræðagóður
og ósérhlífinn.
Þannig reyndist hann einnig
skyldfólki sínu og öðrum sam-
ferðamönnum. Hann hafði já-
kvætt viðhorf til lífsins og gafst
ekki upp þótt móti blési. Allt
skrum og skjall var honum á móti
skapi, og hafði hann lag á að
greiðasemi hans leit út eins og
sjálfsagður hlutur.
Með sameiginlegu átaki reistu
þau hjón myndarlegt heimili, sem
einkenndist af snyrtimennsku,
gestrisni og hlýju.
Fleira verður ekki sagt hér, þó
mörgu mætti við bæta.
Þegar nú leiðir skilja, vil ég og
fjölskylda mín þakka honum sam-
fylgdina og senda Ástu og börnun-
um innilegustu samúðarkveðjur,
og biðjum við þeim guðsblessunar.
Fari hann í friði.
Ámundi Sveinsson
Sjaldan eða aldrei hefur okkur
brugðið jafn illa og þegar við
fengum að mánudagsmorgni þann
ATHYGLI skal vakin á því, aö afmælis- og
minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi
á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal
einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um
hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum
Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
+
Þökkum auðsýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför
eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur, afa og bróöur,
SIGURHANS V. HJARTARSONAR.
Helga Guömundsdóttir,
Guómundur Sigurhansson, Ásta Stefánsdóttir,
Sœvar Sigurhansson, Arnþrúóur Björnsdóttir,
Helga Sigurhansdóttir, Brynjólfur Magnússon,
Sigurrót Sigurhansdóttir, Guðmundur Erlingsson,
Hrund Sigurhansdóttir,
barnabörn og systkini.
3. þessa mánaðar þá hörmulegu
frétt að bezti vinur okkar og félagi
væri látinn. Það tók langan tíma
að trúa því að hann sæist ekki
lengur í lifanda lífi. Það þyrmdi
yfir og alla okkar sameiginlegu
minningar ruddust fram, minn-
ingar liðinna ára bæði nálægar og
fjarlægar.
Deginum áður vorum við að
spjalla um ferð norður að Holti til
rjúpnaveiða og vorum við byrjaðir
að skipuleggja nýja ferð norður,
en þar höfðum við verið hálfum
mánuði áður eins og hvert ár
undanfarin 5 ár. Ár hvert var lagt
af stað 14. október og allt var til
reiðu þann dag. Ekki renndi mig í
grun að þessi ferð væri okkar
síðasta saman til veiða, sem var
okkar sameiginlega hjartans
áhugamál.
Það er erfitt að setjast niður og
skrifa minningargrein um vin
sinn, minnst þrjátíu árum of
snemma, en enginn veit hvað
framtíðin ber í skauti sér. Það
verður vandfyllt skarðið, sem
hann skilur eftir sig og þung verða
sporin mín norður aftur á okkar
gömlu slóðir og ganga um staðina
alla, sem við skírðum eftir okkar
höfði til glöggvunar. Nöfn eins og
Jóhannsbrekkur og Guðmundar-
skarð líða ekki úr minni. Þessi
kennileiti notuðum við til glöggv-
unar þegar við hittumst aftur að
loknum veiðidegi. Hætt er við, nú
þegar Geirs Jóns nýtur ekki leng-
ur við, að erfitt verði að taka
ákvarðanir upp á eigin spýtur, því
þegar hugsað er til baka tók hann
allar meiri háttar ákvarðanir svo
reyndur og kunnugur öllum stað-
háttum sem hann var.
Það var sama hvort það var
byssa eða veiðistöng, alltaf var
hann fremstur og kunni best til
verka. Nú missa veiðiferðirnar
stóran hluta af þeim tilgangi sem
þær höfðu í fylgd með honum.
Mest allt sem við kunnum í
veiðimennsku lærðum við af hon-
um, og natnari og þolinmóðari
kennari er og verður aldrei til.
Geir Jón starfaði í fjölda mörg
ár hjá Olís og síðan hjá steypu-
stöðinni Verki hf., síðar Breiðholti
hf., þar sem okkar leiðir lágu fyrst
saman. Varð hann og fjölskyldan
nágrannar okkar hér í norðurbæn-
um, og allar stundir sem við áttum
saman bæði heima hjá honum og
okkur eru og verða ógleymanlegar.
Geir Jón var verkstjóri í steypu-
stöðinni og flest sín vinnandi ár
var hann yfirmaður og hikaði ekki
við að taka ákvarðanir sem hann
taldi réttar og fylgdi þeim síðan
eftir af mikilli röggsemi. Hann
var bráðverklaginn, vandvirkur og
hörkuduglegur svo af bar. Ber
húsið og garðurinn þess merki að
samhent hjón voru þar að verki.
Naut Geir Jón þar verkstjórnar
Ástu konu sinnar og er allt
handbragð til fyrirmyndar.
Snyrtimennskan og hirðusemin
voru einstök og alltaf allt í röð og
reglu. Öll sú vinna sem hann lagði
í húsið sjálfur var ótrúleg og
maður sem aldrei hafði áður
nálægt slíkri vinnu komið gerði
það ekki síður en um fagmann
hefði verið að ræða. Stundvís var
hann með afbrigðum og þoldi illa
að menn stæðu ekki við sögð orð.
Eftir að hann hætti hjá Breiðholti
hf. vann hann um tíma hjá
Ármannsfelli hf., og nú síðast sem
ökukennari á eigin bíl.
Geir Jón Ásgeirsson var fæddur
8. júní 1929 í Reykjavík, sonur
Ásgeirs L. Jónssonar og konu hans
Önnu Geirsdóttur. Móður sína
missti hann á fjórða ári. Naut
hann ömmu sinnar og móður-
systra á þessum árum, en var á
sumrum hjá föðurfólki sínu að
Holti í Svínadal. Faðir hansgiftist
aftur Ágústu Vigfúsdóttur. Hann
átti 3 albræður og 3 hálfsystkini
og 2 stjúpsystkini. Hann var
gagnfræðingur frá M.A. Geir Jón
giftist eftirlifandi konu sinni 23.
ágúst 1952 og eignuðust þau 4
börn.
Við og fjölskyldur okkar vottum
Ástu og börnum okkar innilegustu
samúð og vonum að guð megi
styrkja þau um ókomin ár. Vinur
okkar Geir Jón er nú kvaddur að
sinni, en leiðir okkar munu liggja
saman á ný á öðrum stöðum.
Pétur Jökull og Hallgrímur.