Morgunblaðið - 12.11.1980, Page 21

Morgunblaðið - 12.11.1980, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1980 21 Kristleifur Þorsteinsson: Bændur og ferðamálin Gerum sumarleyfisfólki eftirsóknar- vert að dveljast í landinu sjálfu Nú eru bændur, sem sinna vilja ferðamálum, að sameinast í sam- tökum um bætta þjónustu við þá, sem leggja vilja leið sína um sveitir landsins, jafnframt að finna út sanngjarnt verð á þjón- ustu sína og samræma verðlag fyrir allt landið. Þetta er mikið verkefni og tekur langan tíma. Ekki er að vænta neinna stökkbreytinga enda er hægfara þróun haldbest og far- sælust. Verður þessi þróun að byKRjast á góðri samvinnu á milli ferðamanna og bænda. Það eru ýmis teikn á lofti um stóraukin ferðalög Islendinga um byggðir landsins. Að þessu viljum við styðja. Það gerum við með því að vinna að því að fólkið komi heim úr ferðum sínum hvílt og endur- nært og hlakki til næstu ferða. Skipuleggja þarf gistiaðstöðu og hafa þar alla hugsanlega þjón- ustu. Við þurfum að stuðla að því að fólkið dveljist sem lengst á hverjum stað, þá hvílist það betur og sparar auk þess peninga. Öll vitum við að veðrátta hér á Islandi getur verið mjög erfið. A móti því getum við vegið með því að hafa hlýja og notalega svefnstaði um allt landið. Á sem flestum gisti- stöðum þarf að vera einhver dægrastytting fyrir fólk sem ekki vill vera úti í illviðrum. Þótt notast hafi verið við tjöld, tjaldvagna og hjólhýsi sem gisti- staði, eru það tæki sem ekki eiga við hér á landi, það gera vegirnir og veðráttan. Við þurfum að byggja stór og góð sæluhús úti um landið á stöðum sem fólk sækist eftir að dveljast á. Þessi hús á skólaæskan að nota á vetrarferð- um. Á sumrin á að fullnýta skólabyggingar til gistiaðstöðu og skemmtanahalds auk samkomu- húsanna. Við eigum að staðla og láta þyggja í fjöldaframleiðslu lítil sumarhús ca. 20 m* fyrir 5 manna fjölskyldur. Slík hús geta bændur sem lagtækir eru byggt sjálfir þegar minnst er að gera við annan búskap. Þeir eiga síðan að leigja út stæði fyrir þessi hús, leggja til vatn, rafmagn og fleira eftir atvikum. Svona hús geta fjölskyldur átt, félagasamtök og einstaklingar eða bændurnir sjálf- ir. Sá sem á slíkt smáhýsi getur bætt nýtingu á því og auðveldað reksturinn með því að skiptast á við þá, sem eiga bústað annars staðar, eða leigja það út í samráði við bóndann á staðnum. Við þurf- um að gera tilraunir með smá- hýsasamstæður, módel. Annað hvort með eldunaraðstöðu eða sameiginlegri matsölu. Bædndur þurfa að eiga sem allra mestan þátt í ferðamálum til sveita. Þeir eru í svo góðri aðstöðu til þess, og á þeim og löndum þeirra bitna mistök sem verða á ferðamenningunni. Mikilvægast af öllu er að skapa góð tengsl á milli þeirra og kaupstaðabúa. Ilúsafelli, 10. nóv. 1980, Kristleifur Þorsteinsson Tvö presta- köll laus til umsóknar Atthagafélag Strandamanna vinnur nú að hyggingu sumarhústaðar i landi sinu rétt við Hólmavík. _ Árshátíð Átthagafé- lags Strandamanna BISKUPINN yfir íslandi hefur nú auglýst tvö prestaköll laus til umsóknar. en þau eru: 1. Ólafsvíkurprestakall í Snæ- fellsnes- og Dalaprófastsdæmi, (Ólafsvíkur-, Ingjaldshóls- og Brimilvallasóknir). Að ósk sóknarnefndar Ingjalds- hólssóknar fylgir sá fyrirvari þessari auglýsingu, að viðtak- andi embættisins sæti skipt- ingu prestakallsins í tvennt, ef til kæmi. Jafnframt er bent á 4. gr. laga nr. 35/1970 um rétt prests í slíku ti'lviki. Séra Árni Bergur Sigurbjörns- son, nýskipaður prestur í Ás- prestakalli í Reykjavík hefur þjónað þessu prestakalli undan- farin 8 ár. 2. Bólstaðarhlíðarprestakall í Húnavatnsprófastsdæmi, (Ból- staðarhlíðar-, Bergsstaða-, Auðkúlu-, Svínavatns- og Holtastaðasóknir). Þar hefur séra Hjálmar Jónsson annast prestsþjónustu, en hann hefur nú verið kjörinn prestur á Sauðárkróki. Umsóknarfrestur um bæði þessi prestaköl) er til 1. des. nk. VETRARSTAUF Átthagafélags Strandamanna er nú hafið og hefur fyrsta spilakvöld vetrarins þegar verið haldið. Árshátíð fé- lagsins stendur nú fyrir dyrum. fyrr en venjuiega og á nýjum stað. veitingahúsinu Ártúni við Vagnhofða í Reykjavík. föstudag- inn 14. nóvember. Þá mun Átthagafélagið að venju gefa út ársritið Strandapóstinn og er hann væntanlegur um næstu mánaðamót. Æfingar eru hafnar hjá kór félagsins, sem söng inn á plötu á síðasta ári, en í vor er stefnt að því að halda hljómleika. Fvrir nærri tveimur árum var félaginu gefið land undir sumar- hústað við Hólmavík. Er þar nú risinn fokheldor sumarhústaður. Gullsmíðaverkstæði og verslun Hjálmars Torfasonar flutti nýlega frá Laugavegi 28 inn á Laugaveg nr. 71 í nýtt húsna'ði. Hefur fyrirtækið verið starfrækt í 20 ár þann 3. desember nk. Aðaláhersla er lögð á smíði handunninna skartgripa úr 'gulli og silfri og leggja starfsmenn áherslu á handverkið í smíðinni en ekki fjöldaframleiðslu. Á myndinni eru hinir tveir gullsmiðir fyrirtækisins. Hjálmar Torfason (t.v.) og Pétur Tryggvi Iljálm- arsson. x 38. þing Iðnnema- sambands íslands ÞRÍTUGASTA og áttunda þing Iðnnemasamhands íslands var haldið dagana 31. okt. til 2. nóv. í Iðnskólanum í Reykjavík. Við setningu þingsins fluttu ávörp Snorri Jónsson. forseti ASÍ.'Ingv- ar Ásmundsson. skólastjóri Iðn- skólans og Ósvald Johansen. for- maður iðnnemasamtakanna í Fa>r- eyjum. Þinginu lauk á sunnudags- kvöldið með kjöri í trúnaðarstöð- ur sambandsins fyrir næsta starfsár. Formaður var kosinn Guðmund- ur Árni Sigurðsson og varaformað- ur Margrét R. Sigurðardóttir. Mcð þeim í framkvæmdastjórn hlutu kosningu: Kristján T. Högnason, Ása L. Björgvinsdóttir, Olafur Ast- geirsson, Pálmar Halldórsson og Baldur Guðbjartsson. Ritstjóri Iðnnemans var kjörinn Heimir Óskarsson og fræðslustjóri Haf- steinn Eggertsson. Þingið sendi frá sér ýmsar álykt- anir um iðnfræðslu, kjaramál og félagsmál iðnnema. I iðnfræðslu- ályktun er einkum lögð áherzla á eftirfarandi: Þingið ítrekar álit fyrri þinga um að reynslan af verknámsskólum hafi sannað menntunarlegt gildi sitt fram yfir meistarakerfisnámið, en tryggja þurfi verknámsskólanemum sam- bærileg kjör og hjá þeim sem í meistarakerfinu eru. Þingið fjall- aði um réttindaleysi þeirra nem- enda er fara í starfsþjálfun án námssamnings — bæði er varðar nám þeirra og önnur réttindi, og krefst þess að úr verði bætt á grundvelli þeirra tillagna er INSÍ hefur sett fram. Þingið krefst þess að tillögur þær að nýrri reglugerð um iðnfræðslu er liggja fyrir menntamálaráðuneytinu verði gefnar út hið fyrsta. Telur þingið að á grundvelli þeirra breytinga megi leysa mórg af þeim vanda- málum er að iðnfræðslunni steðja. Þingið hvetur fagfélögin til að vera vel á verði gegn öllum tilhneiging- um til skerðingar á hlutdeild þeirra í stjórnun og mótun iönfræðslu í landinu. í kjaramálum beindust augu þingsins einkum að kjaradeilu þeirri er nú er yfirstaðin. Fordæmd vorU vinnubrögð VSÍ , í kjara- samningaviðræðunum. Einnig voru gagnrýnd vinnubrögð forystu- manna launþegasamtakanna og hvatt til breyttra vinnubragða af þeirra hálfu. Taldi þingið að hin lága grunnkaupskrafa ð SÍ hafi vcikt möguleika á hörði. aðgerð um og árangursríkri kj;o iharáttu. Þingið telur að iðnnenta verði að þjappa sér betur saniar að haki kjarantálakröfum sínum g aö ekki náist frant að ganga króf.o eins og verkfalls og samningsr; 'tur fyrir iðnnenta, nenta nteð t'lugri og víðtækri haráttu þeii : Þingið leggur áherzlu á að þess , erði gætt að iðnnemar verði ekki hiunnfarnir varðandi þau atriði er fr;.:n náðust í síðustu kjarasamningum. I félagsntálum var einkum rætt um nauðsyn á eflingu félagslegrar virkni innan sambandsins. í því sambandi var rætt unt að efla þyrfti Félagsmálaskóla INSÍ og útgáfustarfsemina. Þingið ræddi einnig nánari tengsl iðnnemafélag- anna og sveinafélaganna og var stjórn sambandsins falið að taka upp viðræður við sveinafélögin á grundvelli þriggja grundvallar- atriða er þingið samþykkti. Á þinginu voru mjög skiptar skoðanir um hvort fjallaö skyldi og ályktað um almenn þjóðmál. Fram kom málamiðlunartillaga er sam- þykkt var samhljóða og fól í sér að ekki skyldu sendar frá þinginu ályktanir um almenn j ðinál að þessu sinni. (Fréttatilky t>ning) smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Sófasett og borðstofusett Til sölu mjög vel meö fariö sófasett, plussáklæöi og borö og pinnastólar frá Vörumarkaöin- um. Uppl. í síma 52557 eftir kl. 6. Er stíflaö? i Fjarlngi stiflur úr vöskum, WC-rörum og baökerum. Góö tæki, vanir menn. Heimavinna og innheimta óskast, simi 53835. Verðbréf Fyrirgreiösluskrifstotan, Vestur- götu 17, sími 16223. Valur Helgason, s. 77028. □ Helgafell 598011127 — 6. 'Glitnir 598011127 =1. I.O.O.F. 7 =16211128' r = 9. II. I.O.O.F. 9 = 16211128’/2 = 9. I. Frá Sálarrannsóknarfé- laginu í Hafnarfirði Fundur veröur í Góðtemplara- húsinu, miövikudaginn 12. nóv. kl. 20.30. Dagskrá: Ræöa. séra Siguröur Haukur Guöjónsson. Guömundur Jörundsson flytur frásagnir og þær Jóhanna Guö- ríöur Linnet og Ingveldur Ólafs- dóttir syngja tvísöng. Stjórnin FERDAFÉLAG ÍSLANDS ___ ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR11796 og 19533. Miövikudaginn 12. nóv. kl. 20.30 veröur myndakvöld aö Hótel i Heklu Rauöarárstíg 19. Tryggvi Halldórsson sýnir myndir úr at- hyglisveröum feröum um landiö Aögangur ókeypis. Veitingar seldar í hléi á kr. 2.300. Allir velkomnir meöan húsrúm leyfir. Feröafélag íslands A.D. K.F.U.K. Hafnarfiröi Kvöldvaka veröur í húsi félag- anna, Hverfisgötu 15, í kvöld kl. 8.30. Dagskrá: Frásagnir og myndir frá Sviss og Spáni. Halla Bachmann kristniboöi talar. All- ar konur velkomnar. Stjórnin Hörgshlíð 12 Samkoma í kvöld kl. 8. Frá Sálarrannsóknarfé- laginu í Hafnarfirði Fundur veröur í Góötemplara- húsinu, miövikudaginn 12. nóv. kl. 20.30. Dagskrá: Ræöa. séra Siguröur Haukur Guöjónsson Guömundur Jörundsson flytur frásagnir og þær Jóhanna Guö- ríöur Linnet og Ingveldur Ólafs- dóttir syngja tvísöng. Stjórnin I.O.G.T. Verðandi nr. 9 Fundur í kvöld. miövikudag kl. 20.30. Æ.T. Frá Knattspyrnudeild j Aöalfundur Knattspyrnudeildar I Fram, veröur haldinn í télags- heimilinu viö Safamýri. fimmtu- daginn 20. nóvember 1980 kl. 20. Venjuleg aöalfundarstörf. Stjórnin ISLENSKI ALPAKIUBBUIINN ÍVM.I’ ICELANOIC ALPINE CLUB Opið hús aö Grensásvegi 5. miövikudag- inn 12. nóvember kl 20 30. Siguröur Sigurösson kynntr nýja tímaritiö Áfangar, tímarit um útiveru og feröamál Alltr vel- komnir. íslenskt Alpaklubburinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.