Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 1
112 SÍÐUR
268. tbl. 68. árg.
SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sýrlendingar:
Undirbúa
átök við
Jórdani
DamaakuH, 29. nóv. — AP.
SÝRLENSKA ríkisstjórnin
undir íorystu Hafez Assad
forseta, sem nýtur stuðnings
Sovétríkjanna, virðist vera
að búa almenning í landinu
undir átök við Jórdaníu-
menn, að því er haft er eftir
heimildum í Austurlöndum
nær.
Haft er eftir sýrlenskum
embættismönnum, að vegna
öryggis þjóðarinnar sé það
réttlætanlegt að ráðast inn í
Jórdaníu til að stemma stigu
við og loka þjálfunarbúðum
Bræðralags múhameðstrú-
armanna, sem er félagsskap-
ur, sem gerður hefur verið
útlægur í Sýrlandi.
Vestrænir sertdimenn í
Damaskus halda því fram, að
um 20.000 hermönnum og 600
skriðdrekum hafi verið fylkt á
landamærum ríkjanna, Sýr-
lands og Jórdaníu, og að
Jórdanir hafi einnig eflt við-
búnað sinn. Vopnaskakið hef-
ur valdið áhyggjum víða um
heim og ísraelsmenn segjast
fylgjast grannt með öllum
hræringum. Talsmaður Banda-
ríkjastjórnar, John Trattner,
sagði, að Bandaríkjamenn litu
á „Jórdani sem vini og að
öryggi þeirra væri einnig
hagsmunir Bandaríkja-
manna."
Sýrlendingar eru taldir
helstu bandamenn Rússa í
Austurlöndum nær og í síð-
asta mánuði gerðu þeir Assad
og Brezhnev með sér 20 ára
vináttu- og samvinnusamn-
ing. Þeir sem fylgjast með
gangi mála í Damaskus segja,
að áróðursherferð stjórnvalda
sé augljóslega til þess farin að
auka á andúðina á Jórdönum
og búa fólk undir bein hernað-
arátök.
Nú er úti veður vott ... og ekki hundi út sigandi gæti hann verið að hugsa þessi, þar sem hann situr undir stýri og hnusar að
sunnanáttinni, sem nú ríkir um iand allt. (Ljósm. Kristján örn EiUsson.)
Skoðanakannanir í Noregi:
Hægri flokkurinn nú jafn-
stór Verkamannaflokknum
08ló, 29. nóvember. — AP.
LANDSSTJÓRN norska Verka-
mannaflokksins kemur saman til
fundar í Hamar eftir helgina til
að ræða minnkandi fylgi flokks-
ins i skoðanakönnunum. í þeim
kemur fram, að fylgi flokksins
hefur stórlega minnkað á siðustu
misserum — svo mikið, að Jo
Benkow, formaður hægri flokks-
ins segir að ekki sé lengur
marktækur munur á fyljji íhalds-
flokksins og Verkamannaflokks-
ins.
Samkvæmt Gallup-skoðana-
könnun sögðust aðeins 33,2%
þeirra sem spurðir voru styðja
Verkamannaflokkinn. Hins vegar
sögðust 31,1% þeirra sem spurðir
voru styðja Hægri flokkinn. Svip-
aðar niðurstöður koma fram í
skoðanakönnun Norsk Opinions
Institutt (NOI). Þar hefur Verka-
mannaflokkurinn þó aðeins meira
fyigi-
Niðurstöður kannana sýna, að
fylgi Verkamannaflokksins hefur
beinlínis hrunið síðustu misserin
Júgóslavía:
Yfirvöldum ofbýður
bókaflóðið um Tito
Belicrad. 29. nóv. — AP.
SANNKALLAÐ bókaflóð um
hinn Iátna júgóslavneska for-
seta, Josep Broz Tito, hefur
valdið opinberum umkvörtun-
um um fégræðgi, brask og
slæman smekk, að þvi er haft
er eftir júgóslavneskum emb-
ættismönnum, sem vinna nú
kappsamlega að þvi að ákveða
ýmsa hátiðisdaga til minn-
ingar um Tito heitinn, Tito-
stræti, Tito-torg og Tito-
styttur.
Tito lést 4. maí sl. 87 ára að
aldri og þó að mikið hafi verið
látið með hann í lifanda lífi er
eins og nú fyrst hafi tekið
steininn úr. Flestir telja þó að
það sé ekki eingöngu af ást á
Tito sáluga heldur vaki annað
fyrir bókaútgefendum og
minjagripasölum, sem sagt að
komast yfir auðveldan gróða.
Útgefendur eru sagðir mjög
ósvífnir í sölumennskunni og í
júgóslavneska tímaritinu Nin
sagði, að fólk hefði verið hvatt
til að kaupa Tito-bækur og
gefið hefði verið í skyn, að þeir
sem það gerðu ekki, yrðu nefnd-
ir við yfirvöldin.
„Sumar Tito-bókanna,“ sagði
í Nin, „eru aðeins endurprent-
anir á ræðum og svo mikið
hefur legið á, að ekki hefur
gefist tími til að stroka út eitt
og annað, t.d. stendur reglulega
„klappið" á kaflaskiptum í
einni bókinni."
og mánuðina. Fylgi hans hefur
ekki verið jafnlítið í fimm ár. í
kosningunum 1977 fékk Verka-
mannaflokkurinn 42,3% atkvæða.
Skoðanakannanir á siðastliðnu ári
sýndu að fylgið hafði farið niður í
38% og í september síðastliðnum
var það 35,9%. Hins vegar hefur
fylgi Hægri flokksins aukist jafnt
og þétt. Flokkurinn fékk 24,8%
atkvæða í kosningunum 1977 og í
skoðanakönnunum í september
síðastliðnum sögðust 29% styðja
flokkinn. I könnunum nú kemur
fram, að borgaraflokkarnir þrír
myndu fá yfir 50% atkvæða ef
kosið væri nú. Hins vegar myndi
Verkamannaflokkurinn og sósial-
ísku flokkarnir aðeins fá 40,2%
atkvæða. Þegar fylgi Verkamann-
aflokksins var hvað mest, fékk
flokkurinn yfir 50% atkvæða í
kosningum.
Aftenposten, stærsta blað Nor-
egs, sagði í leiðara, að niðurstöður
skoðanakannana nú væru „sögu-
legar". Þær sýndu ótrú almenn-
ings á Verkamannaflokknum.
Odvar Nordli, forsætisráðherra,
hefur viðurkennt, að niðurstöður
skoðanakannana séu alvarlegt
mál fyrir flokkinn. Óánægju-
raddir hafa komið fram í Verka-
mannaflokknum með formennsku
Reiulfs Steen og eins hefur Odvar
Nordli sætt vaxandi gagnrýni. Þá
eru flestir fréttaskýrendur sam-
mála um, að deilur innan flokks-
ins og hikandi afstaða hans í
samkomulagsumleitunum við
Bandaríkjamenn um hernaðarvið-
búnað í landinu, hafi stuðlað að
minnkandi fylgi en yfir 65%
Norðmanna eru fylgjandi aðild að
Atlantshafsbandalaginu.
Reagan ánægður með
viðbrögð í Moskvu
Santa Monica, 28. nóvember. — AP.
RONALD Reagan, nýkosinn for-
seti Bandarikjanna, sagði við
fréttamenn i Santa Monica. að
hann væri ánægður með teikn frá
Sovétrikjunum, um að Sovétmenn
væru nú reiðubúnir að setjast að
samningaborði og endursemja
SALT II-samkomulagið.
Reagan lét þessi orð falla vegna
dvalar Charles Percys, sem taka
mundi við formennsku utanríkis-
málanefndar öldungadeildarinnar, í
Moskvu. Percy lét þau orð falla í
gær, að Sovétmenn væru nú reiðu-
búnir að setjast að samningaborði
og endursemja SALT II. „Þeir vita
nú, að gera verður nýtt samkomu-
lag,“ sagði Percy.
„Ég er ánægður að heyra, að
Sovétmenn séu reiðubúnir að ræða
málin,“ sagði Reagan og bætti við:
„Ég hef alltaf verið fylgjandi við-
ræðum um takmörkun vígbúnaðar."