Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980
5
Hans Kristján Árnason
Einar Pálsson
I>jóöfélasið fyrr og nú kl. 21.25:
Landnemarnir og ís-
lendingar nútímans
í kvöld kl. 21.25 flytur Hans
Kristján Árnason hagfræðingur
erindi, sem hann nefnir Þjóðfé-
lagið fyrr og nú. Fjallar hann
þar um kenningar Einars Páls-
sonar um þjóðfélagið forna og
nýútkomna bók eftir Richard F.
Tomasson prófessor.
— Tomasson er háskólakennari
í New Mexico, sagði Hans Krist-
ján, — og bók hans heitir Iceland
— The First New Society, gefin út
af Iceland Review í samvinnu við
bókaútgáfu Minnesota-háskóla.
Tomasson upplýsir í formála bók-
ar sinnar að könnun hans hafi
verið fyrsta kerfisbundna tilraun-
in til að safna upplýsingum um
skoðanir, atferli og þekkingu nú-
lifandi íslendinga á ýmsum svið-
um. Hann bendir á að enn hafi
félagsfræðingar ekki rannsakað
þær geysimiklu heimildir um mið-
aldaþjóðfélagið sem felist í ís-
lenskum fornritum. Þessari skoð-
un Tomassons og margra annarra
fræðimanna mótmæli ég í mínu
erindi og bendi á að fyrir liggja
stórmerkar mannfélagsfræðilegar
rannsóknir og ritsafn eftir Einar
Pálsson á íslenskri menningu til
forna. Ég bendi enn fremur á, að
gildi rannsókna Einars Pálssonar
einskorðast ekki við skýringar á
íslandi til forna, heldur tekur
einnig til helstu menningarsamfé-
laga heims löngu fyrir daga
Krists.
Um daginn og veginn kl. 17.40:
Þurfum við einvald til
að stjórna landinu?
Á dagskrá hljóðvarps kl. 19.40
á mánudagskvöld er þátturinn
Um daginn og veginn. Sigurlaug
Bjarnadóttir menntaskólakenn-
ari talar.
— Ég á nú eftir að færa mest af
þessu í búning. Ég er með smá-
hugleiðingar út af fullveldisdegin-
um, og í framhaldi af því drep ég á
okkar lýðræði. Ég minnist á efna-
hagsvanda þjóðarinnar og segi að
fólk sé orðið þreytt og vonlaust; að
við þurfum jafnvel að fá bara
einvald á við De Gaulle til að
stjórna landinu, því að það er ekki
lengur hægt að stjórna Islandi. Ég
ætla mér aðeins að minnast á
áfengismál og tala um þann tví-
skinnung sem ræður hjá mönnum
sem flagga því prinsipi að vera á
móti boðum og bönnum, og bendi á
að það sé svo víða í öllum
siðmenntuðum þjóðfélögum sem
við séum umkringd boðum og
bönnum. Ég hef einnig hugsað
mér að minnast á afmæli Ríkis-
útvarpsins sem verður 50 ára á
þessu ári, og í framhaldi af því á
íslenskt mál og menningu. En ég á
eftir að útfæra þetta allt og
tíminn setur sínar skorður.
KL. 21.20 sýnir sjónvarpið
þriðja þátt bandaríska
myndaflokksins Landnem-
arnir. Þýðandi er Bogi Arn-
ar Finnbogason.
Levi Zendt, ungur maður
í Pennsylvaníu, er að
ósekju rekinn úr söfnuði
sínum. Hann fer burt
ásamt ungri stúlku, Ellý,
sem hann kvænist. Þau
halda vestur á bóginn
ásamt öðrum og koma loks
til John-Virkis þar sem
McKeag býr með eiginkonu
sinni, Leir-Körfu, og dótt-
ur.
Ut og suður kl. 10.3.5
Yfir Snæfellsnesfjallgarð
í Breiðafjarðareyjar 1917
Á dagskrá hljóðvarps í dag kl.
10.25 er þátturinn ÚT OG SUÐUR
i umsjá Friðriks Páls Jónssonar.
Jóhann J.E. Kúld rithöfundur seg-
ir frá ferð sinni yfir Snæfellsnes-
fjallgarð út i Breiðafjarðareyjar
árið 1917.
— Jóhann fór þessa ferð við
annan mann og var þá 15 ára
gamall, sagði Friðrik Páll. — Þeir
voru að fara með 8 stóðhross yfir
fjallgarðinn og var ferðin í rauninni
ekki söguleg, því að allt gekk að
óskum, en Jóhann lýsir þarna
ferðalögum á þessum tíma og kem-
ur með alls konar innskot og
hugleiðingar um það hvernig menn
ferðuðust þá að vetri til. Jóhann er
frá Ökrum á Mýrum, og þaðan
lögðu þeir félagar upp í nóvember.
Heim snéri Jóhann í desember eftir
nokkra dvöl í Breiðafjarðareyjum,
aðallega hjá skyldfólki sínu í Öxn-
ey. I sambandi við lýsingu hans á
ferðamáta þessa tíma vitnar hann í
Vilhjálm Stefánsson og segir
skemmtilegt dæmi um ferðamáta
eskimóa. Þegar þeir ferðast ganga
þeir í fyrsta lagi aldrei svo hratt að
vetri til að þeir svitni og þegar þeir
þurftu að fara langan veg, gengu
þeir alveg stöðugt þangað til þeir
voru orðnir þreyttir, sofnuðu þá
smástund standandi, og þegar þeir
voru að falli komnir, þá bara héldu
þeir áfram.
Jóhann J.E. Kúld.
DORMEUII
Saumum eftir máli
úr heimsins
bestu efnum frá
Ath. ef pantað er strax getnm við afgreitt fyrir jól.
Klæðsker-
inn verður
til viðtals í
verzlun
okkar á
morgun
mánudag
k. 1-6.