Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980 29 Ég er sannfærð um það og byggi það á því, að allur sá mikli fjöldi fólks, sem hefur sömu lífsskoðun og lífshugsjón og Sjálfstæðisflokkurinn berst fyrir, leyfir ekki og mun ekki leyfa, að þessi ágreiningsmál yfirgnæfi allt annað í stefnu og starfi Sjálfstæðisflokksins. Þetta finn ég glöggt í samtölum við flokksfólk. Ég held líka, að margir séu farnir að staldra við og íhuga á hvaða leið við erum vegna aukinna áhrifa kommún- ista og annarra vinstri manna og muni ekki sízt vegna þess spyrna við fótum áður en ein- stökum mönnum hefur tekizt að gera flokkinn áhrifalausan í íslenzkri pólitík. Þess vegna held ég að þetta sé tímabundið ástand. Þegar um er að ræða raun- veruleg vandamál þjóðarinnar og hlut Sjálfstæðisflokksins í að leysa þann vanda, mun styrkur flokksins koma í ljós, styrkur, sem fólginn er í öllum þeim mikla fjölda einstaklinga, sem hefur sömu lífshugsjón og við Sjálfstæðismenn. — Hvernig ætlar þú að stuðla að því i þinu starfi að Sjálfstæðisflokkurinn verði þess megnugur að gegna þvi hlutverki, sem honum er ætlað? Málefnanefndir flokksins hafa ekki verið nýttar sem skyldi og raunar hefur mörgum yfirsést um mikilvægi þeirra. Starf þeirra hefur aðallega verið fólgið í að semja álitsgerðir fýrir landsfundi og kosningar. Ég legg á það áherzlu, að það sé sameiginlegt verkefni þing- flokks og málefnanefnda að koma samþykktum landsfundar fram. Málefnanefndirnar, sem voru settar á stofn í formanns- tíð Jóhanns heitins Hafstein, hafa nú þegar fengið þau verk- efni að undirbúa frumvörp og tillögur í meira mæli en verið hefur í samvinnu við þingflokk- inn. í málefnanefndunum er hópur manna, sem býr yfir sérþekk- ingu á ákveðnum málum og sem eru í góðum tengslum við sitt umhverfi. Einn þýðingarmesti þátturinn í starfi þeirra er að koma nýjum hugmyndum á framfæri. Þess vegna geta nefndirnar virkað sem upp- spretta og hugmyndabanki. Það er ekki nóg fyrir flokkinn að leggja fram og samþykkja stefnu, hann verður líka að vinna að því að koma henni í framkvæmd og hann þarf að eiga talsmenn, sem vinna henni fylgi. Það er þáttur í starfi flokksins, sem ekki hefur verið lögð nægileg rækt við og flokk- urinn orðið að gjalda fyrir í kosningum. Sambandið við hinn almenna flokksmann hefur ver- ið vanrækt og gildi hans sem áróðursmanns fyrir stefnu flokksins vanmetið. Við verðum að byrja að byggja upp fólk og það gerum við með fræðslu- og útbreiðslustarfi. Við eigum ónotað mikilvægasta áróðurs- tækið, sem flokkurinn á, en það er hinn almenni flokksmaður. Sjálfstæðisflokkurinn í dag er óaðgengilegur og það er erfitt að komast í samband við hann. Við þurfum að skapa fólki betri skilyrði til þess að starfa innan flokksins og nota Sjálfstæðis- húsið meira sem vettvang, þar sem flokksfólk kemur saman, ræðir málin, miðlar upplýsing- um og kynnist og Iærir hvert af öðru. Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur verið of mikil stofnun og starfsemin ekki í takt við tím- ann. Flokkurinn hefur ekki ver- ið það lifandi baráttutæki, sem hann á að vera. Við þurfum líka að sýna á okkur glaðlegra andlit — og það er enginn vandi, því það er nefnilega gaman að vera Sjálfstæðismaður. Stg. Þetta gerðist 30. nóv. 1652 — Hollendingar sigra flota Englendinga við Dungeness. 1710 — Tyrkir segja Rússum stríð á hendur. 1782 — Frelsisstríðinu í Norður- Ameríku lýkur með undirritun bráðabirgðafriðar. 1838 — Mexíkó segir Frakklandi stríð á hendur eftir að Frakkar tóku Vera Cruz. 1853 — Rússar eyða tyrkneska flotanum við Sinope. 1918 — Transylvanía lýsir yfir sameiningu við Rúmeníu. 1934 — Egypzka stjórnarskráin felld úr gildi — Hreyfing þjóðern- issinna stofnuð í Marokkó. 1938 — Félagar úr Járnverðinum í Rúmeníu skotnir í baráttu stjórnarinnar gegn fasisma. 1939 — Rússar gera innrás í Finnland. Vetrarstríðið hefst. 1949 — Kínverskir kommúnistar taka borgina Chungking. 1962 — U Thant frá Burma kosinn framkvæmdastjóri SÞ. 1964 — Rússar skjóta geimfari til Mars að keppa við Mariner 4. 1966 — Barbados fær sjálfstæði. 1967 — Alþýðulýðveldið Jemen fær sjálfstæði. 1975 — Gerald Ford forseti fer til Kína. 1978 — Leynifundur Jóhannesar Páls páfa II og blökkumannaleið- toga í sunnanverðri Afríku kunn- gerður. Eigendur, stjórnendur og viögeröarmenn CATERPILLAR báta- og þungavinnuvéla. Verið ekki uppteknir, því við höldum NÁMSKEIÐ Námskeið fyrir eigendur og vélstjóra Caterpillar bátavéla af öllum stæröum 14.—16. janúar 1981. Námskeið fyrir stjórnendur og viðgeröarmenn Caterpillar þunga- vinnuvéla 22.-24. apríl 1981. Látið skrá ykkur strax í dag. HF — Sími 21440. Afmæli. Sir Philip Sidney, enskur stjórnmálaleiðtogi (1554—1586) — Jonathan Swift, enskur ádeiluhöf- undur (1667—1745) — Adalbert von Chamaisson, þýzkt skáld (1781—1838) — Theodor Momm- sen, þýzkur sagnfræðingur (1817—1903) — Mark Twain, bandarískur rithöfundur (1835— 1910) — Sir Winston Churchill, brezkur stjórnmálaleiðtogi (1874-1965). Andlát. 1750 Maurice de Saxe, hermaður — 1900 Oscar Wilde, leikritahöfundur — 1954 Wilhelm Furtwángler, hljómsveitarstjóri — 1957Benjamino Gigli, söngvari. Innlent. 1870 Stöðufrumvarpið afgreitt fá ríkisþingi — 1911 Bókmenntafélagið flyzt heim — 1918 Sig. Eggerz leggur fram stjórnarskrárfrumvarpið i ríkis- ráði 1916 „Goðafoss" strandar á Straumnesi — 1918 Síðasti fundur í hinu danska ríkisráði um ísl. málefni. Konungur undirritar sambandslögin — 1925 Síma- samningur síðari undirritaður — 1943 Yfirlýsing þriggja þing- flokka um lýðveldisstofnun — 1959 d. Gísli Sveinsson — 1965 Skarðsbók keypt á uppboði í Lond- on. Orð dagsins. Þann litla hluta þekkingarinnar sem við flokkum og skilgreinum köllum við þekk- ingu — Ambrose Bierce, banda- rískur rithöfundur (1842—1914?). ÞÚ AUGLÝSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR í MORGUNBLAÐINU Það er stutt til jóla ... ef þú ætlar að mála áður! Með Spred Satín færóu mjúka silkiáferð á veggina. Málningu sem auðvelt er aó mála með og auðvelt er að þrífa. Málningu sem þekur vel og er sterk. töfratóna lífgar upp í skanimdeginu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.