Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980 15 Uppbygging orku- og iðjuvera er nauðsynleg ef tryggja á atvinnuöryggi og bætt lífskjör Hér fer á eftir fyrri hluti ræðu þeirrar sem Geir Hallgrímsson flutti við upphaf flokksráðs- og formannaráðstefnu Sjálf- stæðisflokksins í gær. Síð- ari hluti ræðunnar verður birtur í Morgunblaðinu á þriðjudag. Tveir eru þeir hornsteinar, sem Sjálfstæðisstefnan byggist um- fram allt á, sjálfstæði þjóðarinnar og frelsi einstaklingsins. Sjálfstæðisstefnan leggur áherzlu á heilbrigða þjóðernis- hyggju, en í því felst verndun og ávöxtun þess menningararfs, sem skapar okkur tilverurétt sem sjálfstæðri þjóð. Forverar sjálfstæðismanna börðust fyrir fullveldi okkar 1918 og sjálfstæðismenn höfðu for- göngu um lýðveldisstofnunina 1944. Á þessu tímabili milli styrjald- arlokanna tveggja prédikuðu sósí- alistar alþjóðahyggju og lögðu áherzlu á forystuhlutverk Sovét- ríkjanna og undirgefni undir þau og mæltu landvinningum þeirra og undirróðursstarfsemi 5. her- deilda í öðrum löndum bót. Þegar svo var komið skömmu eftir 2. heimsstyrjöldina, að svo virtist, sem til einskis hefði verið barizt fyrir lýðræði, frelsi og mannréttindum, stóðu Islendingar engu síður en aðrar vestrænar þjóðir á örlagaríkum tímamótum. Þjóðernishyggjan, sem liggur sjálfstæðisstefnunni til grundvall- ar og forysta Sjálfstæðisflokksins í sjálfstæðisbaráttunni lagði flokknum á herðar þá skyldu að móta stefnu í utanríkis-, öryggis og varnarmálum og aflaði flokkn- um þeirrar tiltrúar þjóðarinnar, að hann gat innt þá skyldu af hendi. Þátttaka okkar í Atlantshafs- bandalaginu og varnarsamningur- inn við Bandaríkin er trygging sjálfstæðis okkar og sjálfsákvörð- unarréttar. Það er gæfa Islend- inga að fylgt hefur verið þeirri utanríkisstefnu sem sjálfstæðis- menn hafa mótað og aflað fylgis alþjóðar. En ekki skortir á að kommún- istar hafi reynt að villa mönnum sýn. Öllum er enn í fersku minni, þegar svo var komlð 1974 að slíta átti varnarsamstarfinu eins og áður 1956. Vegna samtaka „Varins lands“ um undirskriftasöfnun og ákveðinnar stefnu Sjálfstæðis- flokksins fyrir kosningarnar 1874, var góður sigur unninn og varnar- samningurinn staðfestur strax eftir stjórnarmyndun Sjálfstæðis- flokksins um haustið. Síðan hafa andstæðingar okkar látið málið kyrrt liggja, þar til á þessu ári, að sósíalistum finnst vegur sinn og völd slík, að nú sé tími til kominn að láta á sér kræla á ný. Áuðvitað bregða kommúnistar yfir sig þjóðernishyggjuhjúp, þótt um andstæður sé að ræða, komm- únismi og þjóðernishyggja eiga ekki samleið, enda landvinningum Sovétríkjanna löngum mælt bót á síðum Þjóðviljans. Það er aðeins á síðustu tímum, að ungu mennirn- ir, að sögn gamals bolsévika, hafa ekki kjark til að viðurkenna opin- berlega sögulega nauðsyn Sovét- ríkjanna sem forysturíkis sósíal- ismans að taka í taumana, en sem betur fer, bætti hann við, viður- kenna þeir það með sjálfum sér. Og vissulega er ræða Ólafs Ragnars Grímssonar á nýafstöðn- um landsfundi Alþýðubandalags- ins og ályktun landsfundarins til marks um það. Annars vegar kemur fram í ræðunni, sem ber heitið „Sjálf- stæði þjóðarinnar" — gagnstætt innihaldi hennar — og í ályktun fundarins, að nú sé kjörið tæki- færi í þessari ríkisstjórnarsam- vinnu að gera Island varnarlaust. Inntakið er, að sé reynsla þessa árs af umræðum um herstöðina borin saman við ládeyður her- stöðvarmálsins ár eftir ár á hinum langa stjórnarandstöðutíma við- reisnaráranna, þá sést að kraftur baráttunnar er ekki endilega eða í sjálfu sér háður því, hvort flokk- urinn er innan stjórnar eða utan. Og Ólafur bætir við að saga aðgerðar- og árangursleysis henstöðvaandstæðinga á viðreisn- arárunum hafi endurtekið sig svo orðrétt sé eftir ólafi Ragnari haft: „... og á Geirstímanum voru farnar hefðbundnar leiðir, nokkr- ar lotur en síðan löng umræðu- hlé.“ En nú þykjast kommúnistar með núverandi stjórnaraðild báð- um fótum í jötu standa og ný sókn er hafin til að gera ísland varnar- laust. Og fyrsta áfanga hinnar nýju sóknar er þegar náð. Sósíal- istar hafa fengið stöðvunarvald um framkvæmdir á Keflavíkur- flugvelli og hyggjast fyrst og fremst beita því við byggingu flugstöðvar og nýrra olíugeyma. er frekar að vænta, ef Sovétríkin eiga staðfestu og styrk að mæta en ella. Þær sveiflur, sem átt hafa sér stað í samskiptum austurs og vesturs bera þessari skoðun glöggt vitni. Við íslendingar hljótum áfram að gera upp hug okkar. Viljum við hafa hönd í bagga með eigin örlögum eða láta skeika að sköp- uðu? Viljum við leggja lið til verndar friði í okkar heimshluta eða stinga höfðinu v sandinn? Viljum við táka ábyrgð á sjálfum okkur sem þjóð eða vera ómagi annarra? Ristir þjóðernishyggja okkar nægilega djúpt? Það er hlutverk Sjálfstæðisflokksins að sjá til þess. Enginn lifir sjálfum sér, hvorki einstaklingur né þjóð. Sjálfstæðis- og Öryggismál eru sönnun þess eins og önnur samskipti þjóða á milli á alþjóðavettvangi. Sjálfstæðisflokkurinn stendur svo djúpum rótum í þjóðernis- kennd Islendinga, að hann hefur án minnimáttarkenndar brotið ís- inn í ýmsum milliríkja- og alþjóð- legum samskiptum. Um það skulu nefnd þrjú dæmi. Fyrsta dæmi: í kosningabaráttunni 1974 hét- um við að færa efnahagslögsöguna Fyrri hluti ræðu Geirs Hallgrímssonar á flokks- ráðs- og formannaráðstefnu Sjálfstæðisflokksins Hvorutveggja brýn hagsmunamál íslendinga í daglegu lífi og til þess að varnar- og eftirlitsstörfin á Keflavíkurflugvelli nái tilgangi sínum. Hins vegar er það athyglisverð- ast í átta dálka grein eða ræðu Ólafs Ragnars svo og í ályktun landsfundar Alþýðubandalagsins, að ógnin að þeirra mati stafar einhliða af vopnaviðbúnaði Bandaríkjanna og vesturveldanna. Vígbúnaður Sovétríkjanna, aukin hernaðarumsvif og útþenslu- stefna, sem eru orsök viðbúnaðar vestrænna ríkja og veru erlends varnarliðs á Islandi, koma hvergi við sögu íslenzkra kommúnista. Látum vera í bili, að íslenzkir sósíalistar séu búnir að gleyma atrburðum eins og í Ungverja- landi og Tékkóslóvakíu en sam- tímaviðburðum er einnig sleppt eins og innrásinni i Afganistan og frelsisbaráttu verkalýðshreyf- ingarinnar í Póllandi, þar sem sovézkur her er í viðbragðsstöðu, ef menn skyldu dirfast að krefjast frelsis í sósíalisku ríki. Þögn getur verið mælsk. Þögnin leiðir í ljós, hvar hjarta íslenzkra sósíalista slær. Auðvitað er það sívarandi verk- efni íslendinga að huga að stöðu sinni í samfélagi þjóðanna til að tryggja sjálfstæði sitt. Og samkvæmt því er enginn vafi, að utanríkisstefna sjálfstæð- ismanna og mikils meirihluta ís- lenzku þjóðarinnar er rétt. Hlut- leysið dugar okkur ekki frekar en öðrum þjóðum, sem sagan sýnir að misst hafa sjálfstæði sitt, og innrás Sovétríkjanna í Afganistan er nýjasta dæmið um. Nú er spurt, hvort viðhorfin breytist í kjölfar þjóðhöfðingja- skipta í Bandaríkjunum. Það er óráðið dæmi. En ef skapstilling og jafnvægi ræður fer sakar ekki meiri ákveðni í stefnu og athöfn- um. Reynslan sýnir, að Sovétríkin fara ávallt eins langt og þau geta og fylla hvert tómarúm. Árangurs í slökun og afvopnun út í 200 mílur. Það var talið óraunhæft kosningayfirboð. Ólaf- ur Jóhannesson taldi okkur hafa nóg með 50 mílurnar. Lúðvík Jósefsson vildi bíða, þar til haf- réttarráðstefnunni væri lokið, sem enn er ekki á enda, auk þess sem hann taldi okkur hvort sem er ekkert veiða á milli 50 og 200 mílnanna. Þegar við mynduðum ríkis- stjórn 1974 var Sjálfstæðisflokk- urinn sem endranær sjálfur sér samkvæmur og framkvæmdi það eftir kosningar, sem hann lofaði fyrir þær. Við færðum út í 200 mílur. Það kostaði baráttu á sjó og landi. Við vorum sakaðir um landráð og linkind. Það mátti ekki senda fulltrúa á fundi Atlants- hafsbandalagsins en við vorum ekkert hræddir að tala máli okkar á erlendum vettvangi og færa okkur í nyt málflutning innan Atlantshafsbandalagsins. Við vor- um ekkert smeykir við að lýsa því yfir að við vildum semja til sigurs og okkur tókst það. Og myndin er mikið breytt. í stað þess að við vorum rúmlega hálfdrættingar miðað við útlend- inga í þorskafla, þá höfum við nú óskoruð yfirráð yfir öllum þorsk- afla á íslandsmiðum. í stað þess að við fengum um 260 þús. tonna þorskafla í okkar hlut, höfum við nú úr meira en 400 þús tonna þorskafla að vinna. í stað þess að verið var að gereyða þorskstofnin- um er hann nú í vexti samkvæmt síðustu niðurstöðum fiskifræð- inga, enda fylgdi þáverandi sjáv- arútvegsráðherra, Matthías Bjarnason, 200 mílna útfærslunni eftir með áhrifamiklum verndar- aðgerðum. Það þarf ekki getum að því að leiða, hve grundvöllur sóknar ís- lendinga til bættra lífskjara er nú traustari en áður, þegar þessar staðreyndir eru hafðar í huga. Annað dæmi um gagnsemi al- þjóðlegra samskipta: Aðild íslands að EFTA var samþykkt fyrir forgöngu viðreisn- arstjórnarinnar með hjásetu Framsóknar og andstöðu Alþýðu- bandalags, en báðir samþykktu þó viðskiptasamning við Efnahags- bandalagið á grundvelli EFTA- aðildar. En hvorutveggja hefur leitt til lækkaðra tolla á íslenzkum útflutningsvörum í viðskiptalönd- um okkar og fært okkur hærra verð fyrir vinnu og framleiðslu okkar. Það var ekki að furða, þrátt fyrir einangrunartilhneigingar og hjásetu Framsóknar og afturhald og andstöðu Alþýðubandalags, að viðskiptaráðherra átti í sumar tæpast nógu fögur orð á afmæli EFTA, hvílíkt gagn við íslend- ingar hefðum haft af aðildinni. Þriðja dæmið vil ég nefna um samninga við útlendinga til að treysta efnahagslegt sjálfstæði ís- lendinga. I byrjun viðreisnar gerðu sjálfstæðismenn sér grein fyrir að skjóta þurfti fleiri og fjölbreyttari stoðum undir ís- lenzkt efnahagslíf og nýta betur og fljótar orkulindir iandsins til að bæta kjör fóiksins. Ráðizt var í Búrfellsvirkjun á grundvelli samninga um orkusölu til ísals. Bæði Alþýðubandalag og Framsóknarflokkur eru á móti þeirri samningsforsendu Búrfells- virkjunar. Ef þeir hefðu mátt ráða, hefði leið smávirkjana verið farin, orkuverð verið miklu hærra og útflutningsverðmæti okkar allt að fimmtungi minna. Þrátt fyrir framhald Sigöldu- virkjunar og járnblendiverksmið- ju, sem sjálfstæðismenn leiddu einnig í höfn, þá hefur dauð hönd Alþýðubandalags lagzt á frekari þróun mála. Bréf Hjörleifs Guttormssonar með beiðni um að fresta gangsetn- ingu fyrstu vélar Hrauneyjafoss- virkjunar frá hausti 1981 til hausts 1982 ber þessu vitni. Landsvirkjun kom sem betur fer í veg fyrir það. En nú þegar búum við við orkuskömmtun. Þegar ríkisstjórn Ólafs Jóhann- essonar var mynduð haustið 1978 lagði Hjörleifur Guttormsson niður viðræðunefnd um orku- frekan iðnað — svokallaða stórið- junefnd. Ekkert hefur síðan verið hugað að viðræðum við aðra um framkvæmdir um orkufrekan iðn- að, en til þess þarf góðan fyrir- vara, eins og reynslan sýnir. Alþýðubandalagið hrósar sér í núverandi ríkisstjórn af að hafa stöðvunarvald í þessum efnum sem í varnarframkvæmdum. Lúðvík Jósefsson segir, að við verðum að fara sparlega með vatnsaflið, því að það nægi ekki til almennra raforkunota lengur en til 40 ára. Lúðvík stjórnar Hjör- leifi, sveitunga sínum og puntu- dreng sem hann dubbaði til ráð- herra, en jafnvel öðrum alþýðu- bandalagsmönnum eins og Tryggva Sigurbjarnarsyni biöskr- ar afturhald Lúðvíks og Hjörleifs. Tryggvi segir í Þjóðviljanum að „með þeim hætti mun vatnsaflið endast okkur langleiðina til ársins 2100 eftir því sem helzt er spáð um aukningu orkuþarfar á næstu öld. Vel má vera að afkomendur okkar í þriðja lið verði okkur þakklátir fyrir slíka íhaldssemi," en Tryggvi bætir síðan við: „Þessi leið mundi ekki stuðla að bættum lífskjörum í landinu með því að nýta þá orku til verðmætasköpun- ar sem nú rennur óbeizluð til sjávar." Sannleikurinn er sá að orku- spárnefnd hefur gert spá, að raforkunotkun árið 2000 verði 6 þúsund milljón Kwh að meðtal- inni núverandi stóriðju sem notar um 2 þúsund milljón Kwh. Ef framkvæmdir í virkjunar- málum verða með sama hraða á næstu 20 árum og á síðustu 15 árum, 1966—1981, yrði raforku- framleiðslan árið 2000 um 10 þúsund milljón Kwh., sem er um 4 þús. millj. fram yfir það, sem áðurnefnd orkuspá gerir ráð fyrir. Slík uppbygging yrði að haldast í hendur við orkufrekan iðnað og þrefaldaðist hann þá á næstu 20 árum miðað við orkunotkun. Slík uppbygging raforkuvera með vatnsafli er fullkomlega raunhæf, og ætti sízt að vera okkur um megn, en til þess þarf um 5 nýjar stórvirkjanir á næstu 2 áratugum. Og slík þróun er ekki eingöngu raunhæf, hún er nauðsynleg ef tryggja á atvinnuöryggi og bætt lífskjör í landinu. En slík þróun verður ekki ef hin dauða hönd Alþýðubandalagsins hefur stöðv- unarvald eins og er í þessari ríkisstjórn. Þetta skilja orðið menn í öllum flokkum, eins og áskoranir Aust- firðinga um framkvæmd Fljóts- dalsvirkjunar og stóriðju í Reyð- arfirði sýna. Alþýðubandalagið er nátttröll íslenzkra stjórnmála og Framsóknarflokkinn virðist ætla að daga uppi með þvi. Einu sinni töluðu kommúnistar um þjóðlega atvinnuvegi, land- búnað og sjávarútveg, eins og um andstæðu væri að ræða við aðra atvinnuvegi. En iðnaður hvort heldur almennur eða orkufrekur er ekki ógnun við aðra atvinnuvegi eða keppinautur heldur hefur hver stoð af öðrum og rækt má og á að leggja við alla þessa atvinnuvegi sem og verzlun og viðskipti, sem eykur verðgildi framleiðslunnar. Með öðrum hætti aukum við ekki vöruframleiðsluna í landinu og verðmæti hennar, þjóðarfram- leiðslu og tekjur, sem koma til skipta milli landsmanna. Menn geta yppt öxlum yfir hagvexti og talið sér trú um, að þeir væru hamingjusamari að hverfa til fábreyttari lífshátta, en þeir hinir sömu eru einmitt gjarnan mestu kröfugerðarmennirnir. Skilyrði þess að ná félagslegum, mannúð- ar- og menningarlegum markmið- um er óneitanlega aukinn hag- vöxtur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.