Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980 Verkamannabústaöir í Reykjavik: 268 umsóknir um 60 raðhús 314 umsóknir um 20 endursöluíbúðir Ford-umboðið Sveinn Egilsson hefur tekið að sér umboð fyrir japanska Suzuki-bila, en verksmiðjurnar framleiða fólksbíla, sendibíla og jeppa. Sýnir fyrirtækið bílana í dag milli kl. 10 og 16. Á myndinni er Þórir Jónsson að kynna jeppann. Ljtem. Rax. ASÍ styður baráttu pólskr ar verkalýðshreyfingar UMSÓKNARFRESTUR um 60 raðhús i Hólahverfi á vegum Verkamannabústaöa i Reykjavik er runnin út og bárust 268 umsóknir. Þá bárust 314 umsókn- ir um endursoluihúðir, en Eyjólf- ur K. Sigurjónsson, stjórnarfor- Hafnar yfir- heyrslur yf- ir bökurum HAFNAR eru hjá Rannsókn- arlögreglu rikisins yfir- heyrslur yfir fuiltrúum Landssambands bakarameist- ara vegna kæru Verðlags- stofnunar á meintri ólöglegri hækkun brauða. Ákvað Landssambandið nýverið að hækka brauö umfram það sem Verðlagsstofnun hafði heimilað og hrinti þeirri hækkun i framkvæmd eftir siðustu helgi. Að sögn Arnars Guðmundssonar hjá RLR cru fyrst teknar skýrslur af stjórnarmönnum Landssam- bands bakarameistara, en síð- an verða teknar fyrir kærur á einstaka bakara, sem einnig hafa borizt. TIIOMAS Nielsen, forseti Al- þýðusambands Danmerkur, kvaddi sér hljóðs i upphafi sið- degisfundar á ASÍ-þingi í gær í tilefni þess, að Snorri Jónsson, starfandi forseti Alþýðusam- bands íslands, væri nú að hætta i þvi starfi. Færði Thomas Nielsen Snorra að gjöf postulinsstyttu af „Ægtvedpigen**, eins og menn imynda sér hana hafa verið i lifanda lifi. Stúlka þessi, sem var uppi um 1800 fyrir Krist, fannst í mýrar- feni í Danmörku og er talið að henni hafi verið fórnað fyrir góða kornuppskeru. Nielsen sagði í maður, sagði i samtali við Mbl„ að nú væru 20 ibúðir til endur- sölu, en stefnt væri að þvi að endurselja um 100 ibúðir á ári. Eyjólfur sagði, að unnt ætti að vera að afhenda þær endursölu- ibúðir, sem lausar eru, fyrir áramót. Tilboð í jarðvegsvinnu á vegum verkamannabústaðanna við Eiðs- granda hafa verið opnuð, en þar er um 1. áfanga að ræða með 176 íbúðum. Þrettán tilboð bárust og voru þrjú þau lægstu fi*S Háfelli; 40.647.980 krónur, Ástvaldi og Halldóri; 43.421.696 krónur og Vörðufelli; 47 milljónir króna. Eyjólfur sagði framkvæmdir hefj- ast í desember. ÞING Alþýðusambands tslands, sem lauk í gær, samþykkti i þinglok stuðningsyfirlýsingu við stuttu ávarpi, sem hann flutti, að hann vildi þakka SnoTa gott og langt samstarf í samvinnu alþýðu- sambandanna tveggja og kvað hann hana hafa myndað góða vináttu milli þeirra. Hann kvað styttuna táknræna fyrir norræna formóður okkar og kvaðst vilja óska Snorra Jónssyni og konu hans allra heilla í framtíðinni. Snorri Jónsson þakkaði þessa persónulegu gjöf í stuttu ávarpi. Hann kvaðst þakka Thomasi Niel- sen fyrir langt og gott samstarf og bar fram þær óskir, að samstarf alþýðusambandanna myndi halda áfram báðum aðiium til hagsbóta. verkalýðshreyfinguna í Póllandi, sem berðist fyrir aukningu frelsis og mannréttinda þar i landi. t yfirlýsingunni er taiað um bar- áttu pólskrar verkalýðshreyf- ingar fyrir frjálsum verkfallsrétti og samningsrétti og að Alþýðu- samband íslands styðji þá örlaga- riku baráttu, sem i Póllandi væri háð. Jón Karlsson frá Sauðárkróki mælti fyrir tillögunni, en með- flutningsmaður hans var Guð- mundur J. Guðmundsson formaður Verkamannasambands íslands. Jón kvað það óviðunandi, ef ASÍ- þingi væri slitið án þess að slík yfirlýsing kæmi frá þinginu. Er Jón hafði lokið ræðu sinni, var tillagan samþykkt með mögnuðu lófataki þingfulltrúa. t fyrrinótt hafði Guðmundur J. Hallvarðsson, fulltrúi Dagsbrúnar, mælt fyrir tillögu um stuðningsyf- irlýsingu við pólska verkalýðs- hreyfingu, sem fjallaði um baráttu hreyfingarinnar þar í landi við stjórnarfar landsins. Pétur Sig- urðsson frá Sjómannafélagi Reykjavíkur lagði fyrir þingið ásamt Guðmundi H. Garðarssyni tillögu um að þingið sendi félögum sínum í „Samstöðu", frjálsri verka- lýðshreyfingu í Póllandi, kveðjur sínar og árnaðaróskir, þar sem þingið lýsti yfir aðdáun sinni á baráttu þeirra fyrir lífsnauðsynj- um og þeim grundvallarréttindum lýðræðisins að verkalýðshreyfingin fengi að starfa frjáls og óháð, búa við réttinn til að boða verkföll, hafa skoðana- og tjáningarfrelsi og vera laus úr tengslum við hið ríkisrekna alþýðusamband, sem stjórnað væri af sömu valdhöfum og reyna að berja niður kröfur verkamanna. „Við heitum pólskri verkalýðs- hreyfingu virkum stuðningi við málstað þeirra og frelsiskröfur. — Við heitum þeim siðferðilegum MORGUNBLAÐINU barst I gær svohljóðandi yfirlýsing frá Sverri Ilermannssyni, alþingismanni: „Fyrir vikutíma eða svo hafði Dagblaðið Vísir samband við mig og innti mig eftir áliti mínu á bókinni „Valdatafl í Valhöll“. Nokkrum dög- um síðar hafði blaðið samband við mig og las blaðamaður upp það, sem ég hafði sagt og reyndist það rétt með farið. Síðan leið og beið og hélt ég satt að segja, að málið væri úr sögunni og að Vísir hefði hætt við að birta viðtaiið. Svo reyndist þó ekki, heldur hafði tíminn verið notaður til þess að lofa höfundum Valdataflsins að svara orðum mínum málsgrein eftir málsgrein og mér ekkert gert viðvart um það. Þetta gerir auðvitað ekkert til, enda ræður Ellert B. Schram, vinur minn, vinnubrögðum sínum sjálfur. Höfundurinn, Hreinn, endurtekur ósannindi sín í minn garð. í því sambandi, aðeins þetta: „Hvaða ástæðu skyldi ég hafa haft til að ljúga því upp á sjálfan mig, að Guðlaugur Bergmann hafi boðið mér ráðherradóm? í annan stað — Hreinn höfundur segist aldrei hafa beðið mig um flokksfundarræðu mína og þykir mér enn undarlega við bregða. Þeir segjast hafa verið á flokksráðstefnunni „og nóterað niður ýmislegt úr ræðum manna". Fundurinn var lokaður, enda segir Hreinn ekki sannleikann í þessu efni. Ákveðið var að læsa ræðurnar, sem fluttar voru, inni í peningaskáp í Valhöll. Vélrituð voru tvö eintök eftir upptökunni, en spólan og annað eintakið síðan læst inni í peninga- skápnum með yfirlýsingu um að aldrei yrði birt, nema með leyfi viðkomanda, en hitt eintakið er í minni vörzlu, þ.e.a.s. eintakið, sem ungu mennirnir báðu mig um að fá styrk með fordæmingu á að erlent kúgunarafl sendi skriðdreka sína enn einu sinni til að drepa niður kröfur þeirra," sagði í tillögunni, en jafnframt sagði að ASI skoraði á öll alþjóðasamtök verkamanna, sem ASI ætti aðild að, að fordæma notkun hvers konar vopna og ofbeldis, sem reynt verði að beita til þess að brjóta frelsiskröfur Pólverja á bak aftur. Hvorki þessi tillaga né tillaga Guðmundar J. Hallvarðssonar fékk þinglega meðferð, þar sem þingfor- seti, Eðvarð Sigurðsson, úrskurðaði að of naumur tími væri eftir til þess að unnt yrði að láta tillögurn- ar fá þinglega meðferð. lánaö, en segja mig nú skrökva, að þeir hafi beðið um eintakið. C :r Hallgrímsson lofaði hinsveg- ar Hreini Loftssyni að fara í pen- ingaskápinn og lesa ræðurnar gegn því drengskaparloforði, að ekkert af þeim færi úr húsinu. Við sjáum nú, hvernig hann hélt það loforð og er það eftir öðru. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins þurfa að orðtaka þessa bók og birta á einum stað leiðréttingar, því að ella verður þetta hræðilega kjaftæði og ósannindavaðall að staðreyndum í pólitískri sögu þessa tímabils eftir nokkra áratugi." Engin álykt- un um NATO ASÍ-ÞINGI lauk í gær og hafði þá staðið í 5 daga. Það vakti athygli manna á þinginu, að engin álykt- un var gerð eða borin fram um Atlantshafsbandalagið og dvöl varnarliðsins í landinu. Mun þetta vera fyrsta þing Alþýðusambands íslands í marga áratugi, sem ekki ályktar um þessi mál. Leiðrétting FALLIÐ hefur niður í setningu dagskrárliðar í kynningu Morgun- blaðsins á ráðstefnunni: Land- spítalinn til aldamóta (bls. 18 í gær): Kl. 14.20 Landspítalinn — húsnæðisbreytingar til aldamóta: Jónas H. Haralz, formaður yfir- stjórnar mannvirkjagerðar á Landspítalalóð. Velvirðingar er beðizt á þessum mistökum. Gunnar Snorrason, formaður Kaupmannasamtaka Islands: Sanngirnismál, að vörubirgð- ir séu færðar til raunvirðis Annað er hrein eignaupptaka „ÞAÐ má eiginlega segja, að nú sjáum við hiila undir lausn á áralöngu baráttumáli okkar, þ.e. a.s, að mega færa vörubirgðir upp til raunvirðis á hverjum tima eða miðað við endurkaupsverð,“ sagði Gunnar Snorrason. formað- ur Kaupmannasamtaka Islands, f samtaii við Mbl., er hann var inntur álits á þeirri tillögu. sem nú liggur fyrir verðlagsráði. og gerir ráð fyrir þvi að heimilað verði að færa vörubirgðir upp til raunvirðis. „Meginástæðan fyrir því, að þetta er nauðsynlegt, er blessuð verðbólgan. Innkaupsverð vöru hækkar stöðugt og viðbótarfjár- magn er því nauðsynlegt í hvert sinn, sem keypt er ný vara. Með Ólafslögunum svokölluðu er gert ráð fyrir verðtryggingu fjármagns og þess vegna vil ég meina það, að það sé ekki raunhæft að selja eldri birgðir á gömlu verði, frekar heldur en allt annað, eins og t.d. íbúðir. Þær eru ekki seldar á sama verði og þær voru kannski keyptar fyrir tveimur árum. Reyndar má fullyrða, að allir lausafjármunir séu háðir markaðsverði á hverjum tíma,“ sagði Gunnar ennfremur. „Við höfum átt ótal fundi með viðskiptaráðherrum í gegnum tíð- ina og bent þeim á, að allt sé orðið verðtryggt hvert sem litið sé. Launþegar eru með verðtryggingu á laun og sparifjáreigendur eru með verðtryggingu á sitt innlánsfé og bankar og aðrar útlánastofnan- ir lána varla orðið nokkuð fjár- magn, sem heitið getur, öðru vísi heldur en gegn verðtryggingu. Mér finnst það því ósanngjarnt, þó ekki sé tekið dýpra í árinni, að þeir sem eiga bundna peninga í lager, að þeir sitji einir eftir. Það er hrein eignaupptaka og ekkert ann- að. Ef ekkert verður gert til að leiðrétta þetta ósamræmi, þá leið- ir þetta ástand óhjákvæmilega á endanum til vöruskorts. Þá má og skjóta því að, að í flestum ná- grannaiöndum okkar er það algild regla, að vörubirgðir séu færðar upp til raunvirðis, en þar er verðbólga þó aðeins lítill hluti af því, sem hér þekkist. Verðlagsstjóri hefur sagt mér, að þetta mál verði tekið fyrir í verðlagsráði á næstunni og ég ber þá von í brjósti, að þeir menn sem skipa ráðið, verði sanngjarnir og taki á þessu máli eins og þeirra samviska bíður, en láti ekki póli- tísk sjónarmið ráða,“ sagði Gunn- ar Snorrason, formaður Kaup- mannasamtaka Islands, að síð- ustu. Danska alþýðu- sambandið færði Snorra gjöf Yfirlýsing frá Sverri Hermannssyni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.