Morgunblaðið - 30.11.1980, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980
19
verða ekki í samræmi við núgild-
andi vöruverð. Hinni háttvirtu bæj-
arstjórn og fjárhagsnefnd hlýtur,
eins og okkur, að vera vel kunnugt
um það, að síðasta misserið hafa
flestallar vörur hækkað í verði,
sumar jafnvel um þriðjung.
Við undirritaðir lögreglumenn
leyfum oss því hér með að fara þess
á leit við hina háttvirtu bæjar-
stjórn, hvort hún ekki muni sjá sér
fært, að hækka dýrtíðaruppbót
okkar svo, að hún verði í samræmi
við núverandi vöruverðshækkun þá,
er orðið hefir hér síðustu mánuðina,
og sem rírt hefir svo kaup okkar í
heild sinni, að það er nú meira en
hlutfallslega lægra en það hefir
verið, samanborið við helstu nauð-
synjavörur, er við þurfum að afla
okkur.
Vonum við að hin háttvirta
bæjarstjórn sýni oss hina sömu
sanngirni, sem við megum játa að
hún hefir gert undanfarin ár.
Reykjavík, 15. júní 1923.
Virðingarfyllst, Krístján Jónsson.
Ó.B. Magnússon, Guðmundur Stef-
ánsson, Guðbjörn Hansson, bórður
Geirsson, Sæmundur Gíslason,
Guðplaugur Jónsson, Páll Árna-
son, ólafur Jónsson, Margrímur
Gfslason, Sig. Gislason, Karl Guð-
mundsson, Kjartan Sigurðsson,
Jónas Jónsson, Erlingur Pálsson
yfirlögrþj.
Afgreitt með uppbót eftir barna-
fjölda.
Að lifa á kaupinu
Úr grein í dagblaði í Reykjavík 1.
apríl 1923:
Húsaleiga 50 kr. á mánuði 600
Kol 8 skp á 12 96
Steinolía 200 pt 110
Skófatnaður 50 kr. pr.m. 250
Klæðnaður 50 250
Hlífðarföt 35
Útgj. v.veikinda 100
Opinber gjöld 100 1531
469 kr. eftir til að fæða 5 manns í
eitt ár, segir greinarhöfundur. í
marzmánuði kostar ýsupundið 20
aura í Vesturbænum en 25 aura við
Klapparstíginn.
Þótt ljóst verði af frásögn lög-
reglumanna að kjör þeirra eru lítt
viðunandi og eigi safnist þeim
sjóðir þá var starf þeirra eftirsótt.
Má það m.a. marka af því að þá er
auglýst er eftir ... lögregluþjónum
í marzmánuði 1922 þá eru umsækj-
endur 46 að tölu.
Af þeim sem ráðnir eru til
starfsins hafa 4 gegnt starfi sem
settir en tveir hafa starfað við
aðrar greinar.
Meðal umsækjenda eru kennarar,
bifreiðastjórar, trésmiðir, sjómenn
og verkamenn, auk bréfbera, síma-
manna og bænda. Má þá sjá
atvinnukjör þeirra starfsstétta er
slíkur fjöldi sækist eftir láglauna-
starfi lögreglumanna og löngum
vinnudegi þeirra, með kvöðum er
fylgdu og banni við því að gegna
aukastarfi.
Til gamans má geta mælinga á
hæð lögreglumanna er skrá um-
sækjenda ber með sér. Þar er
tilgreind hæð hvers umsækjanda.
Sigurður Gíslason er sagður vera
183 cm á stígvélum. Bréfberi einn
og verkstjóri er eigi hlýtur hnossið
er hinsvegar 181 cm án stígvéla.
Þá er Þingvallamaður einn ný-
kominn úr foreidrahúsum 193 cm á
stígvélum, en verkamaður 39 ára er
dvalist hafði 14 ár í Ameríku var
186 cm án stígvéla. Eigi nægði þeim
líkamsatgjörfi til ráðningar í lög-
reglustarf. Þá má geta þess að
Björn Vigfússon kenndur við Gull-
berastaði og settur lögregluþjónn
er 189 cm. Hann hlýtur fast starf
lögreglumanns árið 19 ..
Elstur umsækjenda er 42 ára
gamall cand. phil. úr Arnarda),
ókunnugt um líkamshæð. Yngstur
umsækjenda 22 ára Snæfellingur.
Það verður ljóst þá er hugað er að •
undirskriftum að á fyrra skjalið
rita eigi allir lögregluþjónar.
Seinna skjaiið er þeir lögreglumenn
senda bæjaryfirvöldum er hinsveg-
ar undirritað af þeim öllum. Þannig
hefir þeim vaxið ásmegin er þeim
skildist að bæjaryfirvöld tóku til
greina óskir þeirra. Má því segja að
upphafsmaður og oddviti þeirra,
Guðlaugur Jónsson, hafi fengið
nokkru áorkað þá er hann gekkst
fyrir að fylkja þeim félögum í
kjarabaráttu, þótt hann skipaði eigi
til verka á daglegum starfsvett-
vangi þeirra.
Pétur Pétursson, þulur.
Gleðileg jól
og farsælt koiu.indi ár
Kveðja sem kemur
á óvartl Augnabliksmynd getur orðið
* að skemmtilegu jólakorti.
ATH. MINNSTA PÖNTUN ERU 10 STK. EFTIR SÖMU MYND.
Pantið timanlega. verð kr. 300.00 pr. kort.
m HANS PETERSEN HF
BANKASTRÆTI GLÆSIBÆR AUSTURVER Umboðsmenn
S: 20313 S: 82590 S: 36161 um alll land
Krakkar,
mömmur og pabbar
Ævintýrin vinsælu um Rauðhettu og systkinin
Hans og Grétu hafa nú veriö færð í hressan
og líflegan sönglagabúning Gylfa Ægissonar.
Þetta er plata fyrir börn á öllum aldri og
foreldrarnir geta líka haft gaman af að rifja
þessi skemmtilegu ævintýri upp meö börnunum.
Sögumaður er hinn kunni íþróttafréttamaöur
Hermann Gunnarsson sem leikur einnig hlutverk veiöimannsins í ævintýrinu
um Rauðhettu. Aðrir sem við sögu koma eru Þórhallur Sigurösson (Laddi),
Áróra Halldórsdóttir, Margrét Ragna
Jónsdóttir, Páll Óskar Hjálmtýsson,
Anna Lísa Sigurjónsdóttir, Rúnar
Júlíusson, Engilbert Jensen, María
Baldursdóttir og Gylfi Ægisson, sem fer
á kostum í hlutverki nornarinnar í Hans
og Grétu.
Hljómplatan með söngævintýrunum
Rauðhettu og Hans og Grétu er
skemmtilegur og góður félagi
barnanna.
SÖNG-
ftaÍnorM
•ímar 85742, 85055.
k •
M IM
söngleikuruM Rauðhettu&dHans ogGrétu