Tíminn - 08.07.1965, Síða 1

Tíminn - 08.07.1965, Síða 1
HANDBÓK VERZLUNARMANNA ÁSKRIFTA RS IfVN HANDBÓK VERZLUNAR M ANN A ÁSKRIFTARSÍIV!! W6B8 16688 iGCna BREZKU ÞINGMENNIRNIR TÖFÐUST UM EINN DAG FERÐAST AUSTUR OG NORÐUR FB—Reykjavík, miðvikudag. SíSdegis í dag komu hingað til lands sex brezkir þingmenn í boði Alþi'ngis. Ráðgert hafði verið að þingmennirnir kæmu hingað í gærkvöldi, en vegna tafa í milli- landaflugi komu þeir ekki fyrr en í dag. Á fiugvellinum voru b«ezki sendiherrann, blaðafulltrúi brezka sendiráðsins, Friðjón Sigurðsson, skrifstofustj. Alþingis, Ólafur Ól- afsson, fulltrúi á skrifstofu Alþing is, Páll Ásgeir Tryggvason, deild arstjóri, Sigurður Bjarnason, for seti neðri deildar, og Sigurður Ólafsson, forseti efri deildar, og tóku þeir á móti brezku þingmönn unum. í dagskrá um heimsókn þing- mannanna var ákveðið. að þeir skyldu byrja með því að heim- Framnam a í)ðu Brezku þingmennirnir ásamt leiðsögumönnum viS ræðupúltiS í neSri deild Alþingis í gserkvöldi (Tímamynd GE) Þessi mynd var tekin í gær í bandaríska sendiráðinu, af jarSfræSingunum tveim, sem fluffo yfír landiS, meS dr. SigurSi Þórarinssyni, til aS velja hraunlendi, sem bandarísku geimfararnir munu kanna hér f næstu viku. MeS SigurS! á myndinni eru þeir Alfred H. Chindester (f. miSju) og Ted Foss. Hér eru þelr aS skoSa kort af Reykjaneshrauni. (Tímamynd KJ) FJÓRIR BANDARÍSKIR JARÐFRÆÐINGAR KOMNIR: Velja hraunlendi fyrir geimfarana JHM-Reykjavík, miðvikudag. Til landsins eru komnir fjórir bandarískir jarðfræðingar, sem munu undirbúa ferðaáætlun banda rísku geimfaranna, sem hingað koma um helgina, til að fá tilsögn í jarðfræði. Jarðfræðingarnir, sem hér eru, heita Alfred H. Chindester, Ted Foss, Harold Masursky og Hal G. Stevens. Tveir þeirra, Chindester og Foss, flugu um Iandið í dag með dr. Sigurði Þórarinssyni og sátu síðan undir- búningsfund með honum. Ruben Monson, blaðafulltrúi bandaríska sendiráðsins, skýrði blaðinu svo frá, að hingað kæmu 11 geimfarar með flugvélum Loft- leiða á laugardag og sunnudag. Upphaflega var gert ráð fyrir að I VEITT I AR Um 2300 hreindýr nú á Austurlandi Reykjavík, miðvikudag. Menntamálaráðuneytið hefur eins og að undanförnu látið fara fram talningu á hreindýrahjörð- inni á Austurlandi og fóru þeir Ágúst Böðvarsson forstöðumaður landmælinganna og Egill Gunn- arsson hreindýraeftirlitsmaður, ásamt Birni Pálssyni flugmanni, í flugvél yfir hreindýrasvæðið 13. f. m. og töldu hreindýrin, að nokkru leyti með því að taka ljósmyndir af hreindýrahópum og telja síðan eftir myndunum. Reyndust full- orðin hreindýr vera 1805 og 473 kálfar eða samtals 2278 dýr. Álíta talningarmennirnir að þeim hafi ekki getað sézt yfir hreindýr svo að nokkru nemi að því er fullorð- in dýr varðar, en hins vegar hafi verið erfiðara að greina kálfana og álíta þeir að kálfarnir kunni að hafa verið nokkru fleiri en þeim taldist. Þar sem ekki virðist vera um að ræða nema rúmlega 1800 full- orðin hreindýr, þá telur ráðuneyt ið ekki rétt að leyfa hreindýra- veiðar á þessu ári, og hefur í dag gefið út auglýsingu um það. Þó verða væntanlega veitt leyfi til að veiða nokkur dýr til þess að halda áfram vísindalegum rann- | sóknum á heilbrigði hreindýra- j stofnsins, sem Guðmundur Gísla- son læknir við Tilraunastöðina að Keldum hefur unnið að undanfar- in ár að beiðni ráðuneytisins. A undanförnum árum hefur ver ið heimilað að veiða allt að 600 hreindýr árlega á tímabilinu frá 7. ágúst til 20. september. En j samkvæmt skýrslum hreindýraeft- j irlitsmanns, Egils Gunnarssonar á , Egilsstöðum í Fljótsdal, sem hef- ur eftirlit með hreindýraveiðunum, I hefur tala veiddra hreindýra und | ! anfarin sex ár verið sem hér seg- j ir: Árið 1959 484 hreindýr, árið li'»- ■. H o í h IA 18 geimfarar kæmu, en sú tala lækkaði fljótt í 13, og nú hafa tveir til viðbótar fallið úr lestinni, þeir Dick Gordon og Mike Collins. Fyrsti hópurinn kemur til Kefla víkurflugvallar á laugardag, en sá seinni á sunnudag. Á mánudag flýgur allur hópurinn til Akureyr- ar í flutningavél frá varnarliðinu. Frá Akureyri verður flogið í smærri vélum til Herðubreiðar- linda og þar munu fjallabílar taka við hópnum og útbúnaði þeirra og aka þeim upp að Öskju. Á miðvikudag munu þeir svo koma til baka til Keflavíkur. Blaða fulltrúinn tjáði blaðinu, að ekki væri endanlega búið að ganga frá áætluninni eftir þann tíma, en búast mætti við að geimfararnir myndu annaðhvort skoða Heklu- hraun eða Laka. Þá mætti gera ráð fyrir að þeir myndu fljúga yfir hraunlendi og skoða þau úr lofti. Einnig er gert ráð fyrir að þeir kanni Reykjaneshraun, á svæðinu í kringum Krýsuvík. Á föstudagsmorgun fljúga þeir svo til Bandaríkjanna aftur. Ekki er enn búið að ákveða hvort þeir fari út í Surtsey í þess ari ferð sinni. Um helgina koma með hópnum þrír jarðfræðingar til viðbótar, einn ljósmyndari, einn upplýsinga fulltrúi frá geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) og einn þjálfari frá NASA. Alls verður 21 meðlimur í þessum rannsóknarleið angri og búast má við að einhverj- ir íslenzkir jarðfræðingar sláist með í förina hópnum til aðstoðar. Einn af jarðfræðingunum, sem eru hér, Ted Foss, er frá NASA, en hinir þrír eru frá U.S. Geo- I fræðideildin í bandaríska innan- ríkisráðuneytinu. Búast má við að á morgun, föstu | dag, eða á laugardag, verði end- anlega skýrt frá ferðaáætlun I bandarísku geimfaranna á íslandi. Byssumálið fer m til saksóknara TK—Rvík, miðvikudag. Björn Ingvarsson, lög- reglustjóri á Keflavíkurflug velli, skýrði blaðinu frá þvx I dag, að rannsókn og rétt arhöldum út af hundamál- utnum í Hvalfirði væri nú lokið, og yrði málið sent saksóknara. Hreppstjóri á- samt manni þeim, sem með honum var, ber, að hrepps- stjóranum hafi verið ógnað með byssu og hótað lífláti, ef hann snerti hundana. Björn Ingvarsson sagði, að tveir verðir hefðu verið í hliðinu, er atburðurinn átti sér stað, annar vopnaður byssu, en hinn óvopnaður, skv. framburði hermann- anrna. Segi hermennirnir, að hinn óvopnaði hafi átt orða skiptin við hreppstjóra, en ekki yfirvörðurinn, sem var vopnaður.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.